Morgunblaðið - 29.02.1992, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
Færeyjar:
Til hamingju með afmælið!
Elizabeth Taylor hélt í gær uþp á sextugsafmæli sitt í Disneygarði í Anaheim í Kaliforníu og að sjálfsögðu
tók Mikki mús á móti afmælisbarninu þegar það mætti til veislunnar sem sögð var hin umfangsmesta sem
sögur fara af. Frú Taylor er vön að láta bíða eftir sér og engin breyting varð þar á að þessu sinni því hún
mætti ekki til sinnar eigin veislu fyrr en hálftíma á eftir síðasta gestinum en þeir voru um eittþúsund.
Þórshöfn. Frá Hirti Gíslasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
TILKYNNT hefur verið um nálægt 1.000 skemmdir af völdum óveð-
ursins sem gekk yfir Færeyjar á fimmtudag. A föstudagsmorgun
rigndi tilkynningum um tjón yfir starfsmenn Brunatryggingarinnar
en hún tekur á móti tilkynningum sem þessum. í nær öllum tilfellum
var um smávægilegt tjón að ræða, rúður brotnuðu, þakplötur og
þök losnuðu og ýmislegt lauslegt fauk út í veður og vind og olli við
það nokkrum skaða. Aðeins er vitað um eitt slys en kona fótbrotn-
aði þegar bíll hennar fauk út af veginum. Um allar Færeyjár vann
fólk í gær að viðgerðum enda var spáð miklu hvassviðri með kvöld-
inu og gefin út viðvörun vegna þess.
Allar samgöngur jafn á láði, legi
sem og í lofti lögðust niður. Feijur
komust ekki á milli háfna, öllum
helstu þjóðvegum var lokað fyrir
umferð og flug lagðist af fram á
kvöldið.
Stiiðning-
ur við Bush
dvínar enn
Wasliington. Reuter.
STUÐNINGUR bandarísku þjóð-
arinnar við George Bush forseta
dvínar enn ef marka má niðurstöð-
ur skoðanakönnunar sem birt var
í fyrradag en samkvæmt þeim eru
aðeins 39% þjóðarinnar sátt við
frammistöðu forsetans, eða 7%
færri en í janúar og 51% færri en
í mars í fyrra en þá sögðust 90%
þjóðarinnar ánægð með frammi-
stöðu Bush á valdastóli. Var þá
Persaflóastríðinu nýlokið.
Af stærstu tjónunum má nefna
að gluggi brotnaði í nýlegri pappírs-
verksmiðju, við það gaf milliveggur
sig og rafmagn fór af húsinu.
Reiknað er með að vinna hefjist af
fullum krafti á mánudag eftir við-
gerðir. í Kvívík fór helmingur af
þaki af einu húsanna og fuku báru-
járnsplötur með miklum látum í
gegnum byggðina. Kofi fauk af
grunni sínum og lenti milli fjóss og
íbúðarhúss með þeim afleiðingum
að íbúarnir komust ekki út úr hús-
inu. í Klakksvík sukku tveir útróðr-
arbátar og í Hvannasundi losnuðu
þakplötur upp af sjö húsum. Raf-
magn fór víða af en komst aftur á
með kvöldinu. Tjón í þessu illviðri
varð miklu minna en í óveðrinu sem
gekk yfir um jólin 1988.
írland:
Ráðherra styður breytta
TTjónið í óveðrinu yf-
irleitt smávægilegt
Samkvæmt könnuninni, sem gerð
var á vegum Times Mirror- miðstöðv-
arinnar, myndi Bush tapa forseta-
kosningum færu þær fram nú, fengi
40% atkvæða en ónefndur frambjóð-
andi Demókrataflokksins 48%. Hins
vegar sögðust 66% aðspurðra allt
eins eiga von á því að þegar Ijóst
yrði hvert yrði forsetaefni demókrata
næði Bush endurkjöri í nóvember.
Könnunin var gerð á tímabilinu
20.-23. febrúar.
löggjöf um fóstureyðingar
Dyflinni. Reuter.
CHARLES McCreevy, félags-
málaráðherra Irlands, lýsti í
gær yfir stuðningi við breyting-
ar á strangri löggjöf sem bannar
fóstureyðingar með öllu. Djúp-
E vr ópubandalagið:
Þúsundir ákvarðana
gætu reynst ógild-
ar vegna formgalla
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÚTLIT er fyrir að hægt sé að vefengja allar ákvarðanir framkvæmda-
stjórnar Evrópubandalagsins allt frá árinu 1957 þegar hún var sett
á laggimar, vegna formgalla á störfum hennar. Fyrstastigsdómstóll
Evrópudómstólsins I Lúxemborg ógilti í gær ákvörðun framkvæmda-
sljómarinnar frá árinu 1989 um að sekta fjórtán fyrirtæki í plastiðn- -j-, , , , . .*
aði fyrir tilraun til hringamyndunar á þeirri forsendu að forseti HiVFOPUD(HKlcllRfflO!
framkvæmdastjórnarinnar, Jacques Delors, hefði ekki undirritað
ákvörðunina á öllum níu tungumálum bandalagsþjóðanna.
stæð siðferðiskreppa plagar nú
írskt þjóðfélag vegna deilu út
af 14 ára stúlku sem kyrrsett
var er hún hugðist fara til Eng-
lands til að láta eyða fóstri. Hún
er þunguð eftir að faðir bestu
vinkonu hennar nauðgaði henni.
McCreevy er fyrsti ráðherrann
sem Iýsir stuðningi við að aflétt
verði skilyrðislausu banni við fóst-
ureyðingum í írlandi, þar sem
strangur siðferðisboðskapur ka-
þólsku kirkjunnar á meiri ítök en
víðast hvar annars staðar á Vestur-
löndum. „Séu menn ekki andvígir
fóstureyðingum í undantekning-
artilvikum er rökrétt að breyta
lögunum,“ sagði ráðherrann.
Harðar deilur brutust út í ír-
landi þegar borgardómur Dyflinn-
ar setti táningsstúlkuna í farbann
fyrir skemmstu er hún hugðist leita
eftir fóstureyðingu í London. í
þessari viku varð hæstiréttur Ir-
lands hins vegar við beiðni foreldra
stúlkunnar og úrskurðaði að henni
væri frjálst að fara úr landi, en
fóstureyðingar er ekki að fá á ír-
landi vegna hins undantekningar-
lausa banns.
í hverri viku fara tugir írskra
kvenna til Englands og gangast
þar undir fóstureyðingaraðgerð án
þess að við því hafi verið amast
af hálfu yfirvalda. Hafa írar verið
gagnrýndir harðlega fyrir þetta á
alþjóðavettvangi og sakaðir um
hræsni. McCreevy viðurkenndi í
gær að þessi gagnrýni ætti rétt á
sér og sagði málið gott dæmi um
„írska tvöfeldni“.
Aðstoðarráðherra og nokkrir
þingmenn úr röðum kvenna lögðu
til í vikunni að löggjöf um bann
við fóstureyðingum yrði rýmkuð
þannig að eyðing fósturs yrði leyfð
í undantekningartilvikum, svo sem
þegar um nauðgun eða sifjaspell
væri að ræða. Skoðanakönnun sem
gerð var um síðustu helgi leiddi í
ljós aða tveir þriðju íra eru hlynnt-
ir rýmkun á löggjöfinni. Er þar
um að ræða gagngera hugarfars-
breytingu frá 1983 er skilyrðis-
laust bann við fóstureyðingum var
samþykkt með tveimur þriðju at-
kvæða í þjóðaratkvæði.
erleinit
Þetta er í þriðja sinn á mánuði
sem dómarar í Lúxemborg ógilda
ákvarðanir framkvæmdastjómar-
innar vegna formgalla. Þau vinnu-
brögð hafa verið viðhöfð innan
framkvæmdastjómar EB frá upp-
hafí að forseti hennar hefur látið
nægja að undirrita fundargerðir til
að staðfesta þær ákvarðanir sem
teknar hafa verið. Samkvæmt regl-
um bandalagsins teljast textar á
tungumálum allra aðildarríkjanna
fmmtextar og skýrt er kveðið á um
að forseti framkvæmdastjórnarinn-
ar eigi að undirrita ákvarðanir á
fmmtextum sem em bindandi fyrir
aðildarríkin.
Framkvæmdastjórn EB kemur
vikulega saman til funda og af-
greiðir að jafnaði 300 mál á fundi
eða um 18.000 mál á ári. Embættis-
menn benda á að ef fara ætti eftir
reglunum þyrfti Delors að skrifa
nafn sitt allt að 3.000 sinnum að
loknum hveijum fúndi; slíkt gæti
ekki leitt til annars en skrifkrampa
í handlegg forsetans. Samkvæmt
heimildum í Bmssel er ekki talið
útilokað að vefengja megi ákvarð-
anir framkvæmdastjómarinnar fyr-
ir dómstólum á sama hátt og plast-
fyrirtækin fjórtán gerðu og jafnvel
að tveggja mánaða kæmfrestur
geti ekki gilt um þessi mál. í raun-
inni segjast embættismenn ekki vita
hvort þeir eigi að gráta eða hlæja,
ef taka eigi niðurstöður dómstólsins
alvarlega muni þær hafa ófyrirsjá-
anlegar afleiðingar. Fastlega er
búist við því að framkvæmdastjórn-
in geti áfrýjað úrskurðinum til Evr-
ópudómstólsins og ósennilegt er
talið að hann muni stefna rúmlega
þijátíu ára vinnu í voða. Akvarðan-
ir framkvæmdastjórnarinnar varða
nánast allt milli himins og jarðar
innan ramma Rómarsáttmálans.
Þannig hlýtur um stundarsakir að
ríkja um það fullkomin óvissa innan
EB hvort gulrætur eru ávöxtur þar
sem ákvörðun framkvæmdastjóm-
arinnar þess efnis er nú vefengjan-
leg.
Danir lýsa yfir vilja til
að greiða götu Finna
Helsinki. Reuter.
UFFE Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, fagnaði í
gær þeirri ákvörðun finnsku ríkissfjórnarinnar að sækja um aðild
að Evrópubandalaginu (EB) og lýsti yfir því að Danir myndu vinna
að því að umsókn Finna fengi jákvæðar viðtökur.
Ellemann-Jensen lét þessi orð
falla á fundi með blaðamönnum í
Helsinki en á fimmtudagskvöld
lýsti Esko Aho, forsætisráðherra
Finnlands, yfír því að Finnar hefðu
ákveðið að sækja um aðild að EB.
Var þessi ákvörðun bundin því
skilyrði að þingheimur samþykki
álit ríkisstjórnarinnar er málið
verður tekið fyrir 18. mars. Utan-
ríkisráðherra Dana sagði að mestu
skipti að hreyfing væri komin á
málið og kvaðst hann ætla að gera
utanríkisráðherrum aðildarríkja
Evrópubandalagsins grein fyrir
afstöðu Finna í næstu viku. Uffe
Ellemann-Jensen sagði að Danir
myndu gera hvað þeir gætu til að
greiða götu Finna í þessu efni er
þeir taka við formennsku í ráð-
herraráði EB á næsta ári.
Danski utanríkisráðherrann var
minntur á að finnsk stjómvöld
hefðu lýst yfir því að þau væntu
þess að engin breyting yrði á hlut-
leysis- og öryggismálastefnu Finn-
lands þótt aðild að Evrópubanda-
laginu yrði að veruleika. Uffe Elle-
mann-Jensen kvað ljóst að Finnar
yrðu að taka tillit til áforma EB-
ríkja um samruna og samstarf á
flestöllum sviðum líkt og ákveðið
hefði verið á leiðtogafundinum í
Maastricht í Hollandi í desember.
Þar væri gert ráð fyrir að sam-
starf ríkjanna tæki einnig til varn-
ar- og öryggismála.
Utanríkisráðherrann lét þess
getið að umsókn Finna og Svía,
sem einnig hafa afráðið að bætast
í hóp aðildarríkja EB, myndi verða
til þess að auka áhrif Norðurlanda
í hinni nýju Evrópu.