Morgunblaðið - 29.02.1992, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRUAR 1992
Æskulýðsdagnrinn
í Keflavíkurkirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 1. mars, er æskulýðsdagur þjóðkirkjunn-
ar. Þá verður sunnudagaskólinn kl. 11.00 í umsjá Ragnars og Mál-
fríðar. KI. 14.00 verður æskulýðsguðsþjónusta í kirkjunni sem að
mestu leyti verður í umsjá barna og unglinga úr sókninni og sniðin
að þeirra gerð. Ungbörn verða borin til skírnar, fermingarbörn lesa
ritningalestra og tónlistin mun skipa veglegan sess.
Æskulýðsdagurinn er einnig
kirkjudagur Tónlistarskólans í
Keflavík og taka yngri nemendur
skólans þátt í sunnudagaskólanum
um morguninn. Eldri nemendur
skólans halda tónleika hálfri
klukkustund fyrir guðsþjónustuna
eftir hádegið og heíjast þeir kl.
13.30 í kirkjunni. Einnig koma fram
allir kórar kirkjunnar þ.e.a.s.
barna-, fermingabarna- og kirkju-
kórar kirkjunnar undir stjórn org-
anistans Einars Árna Einarssonar.
Þess er sérstaklega vænst af
fermingabörnum og foreldrum
þeirra að þau mæti í þessa æsku-
lýðsguðsþjónustu.
En þótt um sé að ræða æskulýðs-
guðsþjónustu þá eru þeir sem eldri
eru jafn velkomnir og þeir yngri.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Bj örgnnarsýn-
ingn lýkur í dag
DAGANA 27.-29. mars nk. gang-
ast Landsbjörg, landssamband
björgunarsveita og Rauði kross
Islands fyrir ráðstefnu og sýn-
ingu sem ber nafnið Björgun 92.
Ráðstefnan fer fram á Hótel
Loftleiðum en sýningin verður
haldin í björgunarmiðstöð Flug-
björgunarsveitarinnar.
Búist er við allt að 300 þátttak-
endum í ráðstefnunni, fólki úr
björgunarsveitunum, Rauða kross-
inum, slökkviliðs-, sjúkraflutninga-
og lögreglumönnum, almannavarn-
afólki, starfsfólki opinberra stofn-
ana o.fl. Munu um 30 sérfræðing-
ar, innlendir og erlendir, flytja fyrir-
lestra á ráðstéfnunni. Þá verður
sýnikennsla á ýmsum sviðum og
þátttakendur geta tekið þátt í um-
ræðuhópum um málefni björgunar-
og öryggisþjónustunnar. í tengslum
við ráðstefnuna verður haldin viða-
mikil vörsýning. Sýndur verður alls
konar búnaður til björgunar og
ferðalaga. Um 50 fyrirtæki, innlend
og erlend, munu sýna vörur sínar
og þjónustu á sýningunni. Sýningin
verður opin fyrir almenning og er
búist við um 3.000 gestum.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Menntamálaráðherra skoðar
væntanlega
Olafur G. Einarsson menntamálaráðherra skoðaði
húsnæði væntanlegrar listamiðstöðvar í Grófargili í
heimsókn sinni til Akureyrar á dögunum. Mennta-
málaráðherra heimsótti Amtsbókasafnið á Akureyri
og voru honum kynntar hugmyndir um viðbyggingu
við safnið, þá kom hann á fund með foreldrafélögum
grunnskólanna á Akureyri þar sem rætt var um
skólamái. Menntamálaráðherra var einnig gestur á
listamiðstöð
sýningu Leikfélags Akureyrar á Tjútti og trega í
Samkomuhúsinu. Þá ræddi ráðherra m.a. við fulltrúa
héraðsnefndar Eyjaíjarðar um málefni framhalds-
skóla og við fulltrúa bæjarins um áætlanir í menning-
armálum. 1 ferð sinni ræddi ráðherra einnig við full-
trúívtónlistarfólks í bænum, LA, Náttúrufræðistofn-
unar, íþrótta- og æskulýðsmála og Minjasafnsins.
Tónlistarskóli Eyjaíjarðar:
Vinir Dóra á lokakvöldi fjöl-
miðlablússins á Púlsinum
Á PÚLSINUM í kvöld, laugar-
daginn 29. febrúar, verður fjöl-
breytt lokakvöld fjölmiðlablúss-
ins með blússveitinni Vinum
Dóra í broddi fylkingar.
Þá um kvöldið koma fram allir
þeir gestir sem skreytt hafa fjöl-
miðlablúskvöldin í vetur, þ.e. full-
trúar frá Morgunblaðinu, DV,
Pressunni, Sjónvarpinu, Stöð 2,
Bylgjunni, Stjörnunni, FM 95,7,
Aðalstöðinni, Ríkisútvarpinu og
Rás 2.
Hljómsveitina Vini Dóra skipa
Halldór Bragason, Guðmundur
Pétursson, Haraldur Þorsteinsson
og Jóhann Hjörleifsson.
Tvær norskar teiknimyndir
fyrir böm í Norræna húsinu
KVIKMYNDASÝNING fyrir
börn verður í fundarsal Norræna
hússins á morgun, sunnudaginn
1. mars kl. 14.00.
Sýndar verða kvikmyndirnar
„Nár drommene vákner (Þegar
draumarnir verða að veruleika).
Þetta er ævintýri sem segir frá Isa-
bell 6 ára og ömmu hennar sem
er svo hress og jólasveinum, kanín-
um alvöru úlföldum o.fl. sem birt-
ast þegar draumar Isabellu verða
skyndilega raunverulegir. Þetta er
ný norsk teiknimynd frá árinu 1990
og er 23 mín. að lengd. Sú seinni
Hvem ska tröste knöttet? (Hver á
að huggga krílið?) er tónlistarmynd
sem er byggð á sögu eftir Tove
Janson og tekur sýningin 23 mín.
Báðar myndirnar eru teikni-
myndir með norsku tali/söng. Að-
gangur er ókeypis og boðið er upp
á ávaxtasafa í hléi.
?Auglýsing
um lausar lóðir
Auglýstar eru lóðir til umsóknar á skipulagssvæði milli
Drottningarbrautar og Hafnarstrætis, frá lóð gæsluvallar
að sunnan og norður að lóð nr. 41 við Hafnarstræti.
Á lóðunum skal reisa einnar og tveggja hæða hús fyrir
atvinnustarfsemi, t.d. verslun, léttan iðnað, sýningar-
starfsemi eða þjónustu svo og íbúðarhús á lóð nr. 31
við Hafnarstræti. í umsóknum skal tilgreina um hvaða
starfsemi sé að ræða.
Upplýsingar um lóðirnar eru veittar á skrifstofu bygging-
arfulltrúa, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 27. mars nk.
Nauðsynlegt er að endurnýja eldri umsóknir.
Akureyri, 25. febrúar 1992.
Byggingafulltrúi Akureyrar.
Tónleikar í öllum skólum á svæðinu
Wterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
strandarhrepp, Eyjafjarðarsveit,
Glæsibæjarhrepp, Arnarneshrepp,
Skriðuhrepp og Oxnadalshrepp.
Skólinn starfar í nánu samstafi
við grunnskólana og í tilefni af
ári söngsins verður í næstu viku
efnt til tónleika í öllum skólum á
starfssvæðinu, auk þess sem tón-
iistarnemendur í hveijum grunn-
skóla fyrir sig leika á hljóðfæri
fyrir sína skólafélaga.
Haldnir verða tónleikar í
Hrafnagilsskóla kl. 11 á mánudag,
á þriðjudag verða tónleikar í Þela-
merkurskóla kl. 9 og kl. 11 í Laug-
alandsskóla. Á fimmtudag verða
þrennir tónleikar, hinir fyrstu í
Grunnskóla Svalbarðsstrandar-
hrepps kl. 9, þá í Grunnskólanum
á Hrafnagili kl. 10.40 og kl. 13 í
Grenivíkurskóla. Loks verða tón-
leikar í Sólgarðsskóla kl. 13 á
föstudag.
UM 10% íbúa á starfssvæði Tón-
listarskóla Eyjafjarðar stunda
tónlistarnám, en 217 manns á
svæðinu er í tónlistarnámi af
rúmlega 2.000 ibúum. Skólinn
er nú á sínu fjórða starfsári og
hefur aðsókn sjaldan verið
meiri.
Starfssvæði skólans nær um
Grýtubakkahrepp, Svalbarðs-
Málmiðnaðardeild
fær logsuðusett
Árvík sf. í Reyjavík hefur gefið Málmiðnaðardeild Verkmenntaskól-
ans á Akureyri logsuðutækjasett af Harris gerð. Árni Árnason fram-
kvæmdastjóri Árvíkur, sem er lengst á hægri á myndinni afhenti
gjöfina, en auk hans eru Gunnlaugur Björnsson deildarstjóri Málmiðn-
aðardeildar, nemendur í framhaldsdeild málmiðnaðar og Bernharð
Haraldsson á myndinni.
Messur á Akureyri
AKUREYRARPRESTAKALL:
Guðsþjónusta á Pjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri kl. 10 f.h.
sunnudaginn 1. mars. Þórhallur
Höskuldsson. Sunnudagaskólinn
kl. 11. Öll börn velkomin. Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14., upp-
haf kirkjuviku. Guðmundur Ein-
arsson, fræðslufulltrúi kirkjunnar
á Norðurlandi predikar. Kór Lund-
arskóla syngur. Fermingarbörn og
foreldrar þeirra sérstaklega hvött
til þátttöku. Guðsþjónusta á Dval-
arheimilinu Hlíð kl. 16. Þórhallur
Höskuldsson. Fundur í Æskulýðs-
félagi Akureyrarkirkju í kapell-
unni kl. 17. Biblíulestur verður í
Safnaðarheimili mánudaginn 2.
mars kl. 20.30. Björgvin Jörgen-
son byrjar lestur og skýringar á
Lúkasarguðspjalli.
GLERÁRPRESTAKALL:Fjöl-
skylduguðsþjónusta sunnudag l'.
mars kl. 14. Mánaðarlegar fjöl-
skylduguðsþjónustur hafa verið
vel sóttar í vetur og hefur fólk á
öllum aldri sameinast í bæn og
söng. Unglingar í æskulýðsfélagi
kirkjunnar aðstoða í athöfninni og
Sigríður Helga Hauksdóttir flytur
hugleiðingu. Barnakór kirkjunnar
mun syngja og kirkjukórinn verður
með kaffi og ijómabollur til sölu
eftir messu og mun jafnframt
syngja nokkur lög. Öll fjölskyldan
er hvött til þátttöku í æskulýðs-
degi þjóðkirkjunnar. Gleðistundu
í kirkjunni sinni er vel varið.