Morgunblaðið - 29.02.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
33
Nemendur syngja
Nemendur úr Kársnesskóla syngja við undirleik nemenda úr Tónlist-
arskóla Kópavogs. I tilefni af ári söngsins verður samvinna milli grunn-
skólanna í Kópavogi og Tónlistarskóla Kópavogs fyrstu vikuna í mars.
Þá munu nemendur syngja og spila saman.
Á myndinni frá vinstri: Kristján Ottosson framkvæmdast. LAFÍ, Krist-
ján Níelsen í stjórn LAFÍ, Jón Sigurjónsson yfirverkfr. Rb., Einar
Þorsteinsson deildarst. lagnad. Rb., Valur Guðmundsson ritari LAFÍ,
Jón Oskarsson yfirverkfr. VR, Gunnar Sigurðsson byggingarfulltrúi
Rvk., Sigurður Grétar Guðmundsson varaformaður LAFI afhendir
Hákoni Olafssyni forstjóra Rb. hina veglegu gjöf, Alan Mitchison verkfr.
Rb., Hreinn Frímansson yfirverkfr. og formaður LAFÍ og Sæbjöm
Kristjánsson tæknifr. Forsjá.
M STJÓRN Lagnafélags íslands
færði nýlega Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins liðlega
800.000 kr. að gjöf í tilefni stofnun-
ar lagnadeildar við Rannsóknastofn-
un byggingariðnaðarins.
Formaður Lagnafélags íslands,
Hreinn Frímannsson, verkfræð-
ingur, rakti aðdraganda við lagna-
deild við Rb. Hann lýsti því hvernig
stjórn Lagnafélagsins vann að und-
irbúningi'þess að sérstök lagnadeild
yrði stofnuð við Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins. Hákon Ólafs-
son forstjóri Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins þakkaði góða
gjöf. Hann hvatti til þess að áfram
yrði gott samstarf milli Lagnafélags-
ins og Rb. Lagnadeild hefur nú starf-
að við Rb. frá því apríl 1991. Hlut-
verk deildarinnar er öðrum þræði að
vera samnefnari þeirra fjölmörgu
smáu hópa sem að lagnamálum
starfa. (I'r frcttatilkynningu)
Vélskóli Islands:
Skrúfudagnrinn er í dag
Úr vélasal skólans.
ARLEGUR kynningar- og nem-
endamótsdagur skólans, Skrúfu-
dagurinn, verður haldinn hátíð-
legur í dag, laugardaginn 29.
febrúar, kl. 13.00-16.30 í Sjó-
mannaskólahúsinu við Háteigs-
veg.
Þennan dag gefst væntanlegum
nemendum og vandamönnum þeirra
kostur á að kynnast nokkrum þátt-
um skólastarfsins. Nemendur verða
við störf í verklegum deildum skól-
ans og veita þeir upplýsingar um
kennslutækin og skýra gang þeirra.
Auk þess halda þeir sýningu á
kennslubókum og öðrum kennslu-
gögnum. Bókasafn skólans verður
opið en þar er mikið úrval af tækni-
bókum og tímaritum sem tengjast
vélstjórastarfinu. Ýmis fyrirtæki
verða með sýningu á vélbúnaði og
tækjum.
Nemendur Vélskólans eru að búa
sig undir hagnýt störf í þágu fram-
leiðsluatvinnuvega þjóðarinnar og
er því að vænta að marga, bæði
yngir og eldri, fýsi að kynnast því
með hvaða hætti þessi undirbúning-
ur fer fram og hvernig búið er að
nemendum.
Skólinn telur mikilvægt að halda
tengslum við fyrrverandi nemendur
og álítur það vera til gagns og
ánægu fyrir báða aðila. Kvenfélagið
Keðjan Verður með kaffiveitingar í
matsal Sjómannaskólans frá kl.
14.00. Að Skrúfudeginum standa
þessir aðilar: Skólafélag Vélskól-
ans, Kvenfélagið Keðjan, Vélstjóra-
félag íslands og Vélskóli íslands.
Grafarvogskirkja.
Grafarvogssókn:
Mesta fólksfjölg-
unin í Grafarvogi
SÓKNARBÖRNUM Grafarvogssóknar hefur fjölgað um þrjú þúsund
og þrjú hundruð síðustu þrjú árin, eða yfir eitt þúsund á ári hverju.
Nú þegar íbúar Iteykjavíkur eru orðnir eitt hundrað þúsund er ljóst
að lang mesta fjölgunin hefur orðið í Grafarvogi en sú þróun mun
halda áfram á næstu árum.
Hin mikla fjölgun sóknarbarna
ýtir mjög á það að söfnuðurinn eign-
ist sína kirkju. Síðastliðið haust
hófust framkvæmdir við Grafar-
vogskirkju en framkvæmdum hefur
miðað mjög vel áfram einkum
vegna hagstæðs veðurfars á liðnum
mánuðum.
Það er von sóknarnefndar að
starf á fyrstu hæð kirkjunnar geti
hafist upp úr næstu áramótum. Til
að það takist verður söfnuðurinn
að lyfta grettistaki. LJóst er hve
mikilvægt er að hin ytri aðstaða
safnaðarins sé til staðar svo að
safnaðarstarf sem er orðið svo fjöl-
þætt í dag fái að blómgast.
Sóknarbörn eru nú um sjö þús-
und. Ef fjclgun sóknarbarna verður
eins og áætlanir sýna, verður sókn-
in innan tíðar fjölmennasta sókn
landsins. Slík fjölgun kallar á að
kirkjubyggingunni verði hraðað
sem kostur er.
Á næstunni mun sóknarnefnd
leita til safnaðarfólks og fyrirtækja
í sókninni um aðstoð, það verður
gert með hækkandi sól að lokum
páskum, þegar að von og gjöf pásk-
anna skapar á meðal okkar bjart-
sýni og trú á lífið sem sigraði dauð-
ann í Jesú Kristi.
Vigfús Þór Árnason
SUÁJ
jarlínn
•VE/TINGASTOFA-
SPRENCISANDI
F ALLE
Fimmta kynslóðin af Civic hefur
litið dagsins Ijós. Við fyrstu kynni
vekja glæsilegar línurnar athygli,
nánari kynni upplýsa um tækni-
lega kosti og yfirburðahönnun.
Civic árgerð 1992 er til sýnis að
Vatnagörðum 24, mánudaga til
föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar eru veittar í
sfma 68 99 00
Verð frá: 969.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
■'Mr
■ FÉLAGIÐ Heimsljós, Krip-
alujóga á Islandi flytur í nýtt
húsnæði í Skeifunni 19, 2. hæð
2. mars nk. Starfsemin verður í
tengslum við líkamsræktarstöðin
World class. Heimsljós stendur
fyrir jógatímum svo og ýmiss kon-
ar námskeiðum. Næsta byijenda-
námskeið í jóga hefst um miðjan
mars. Sunnudaginn 8. mars verður
opið hús frá kl. 14-16 þar sem
starfsemi félagsins verður kynnt.
Þeim sem hafa áhuga á að kynn-
ast Kripalujóga er einnig boðið
endurgjaldslaust í jógatíma vikuna
9.-14. mars.
(Fréttatilkynning)
■ SIGRÍÐUR Lillý Baldurs-
dóttir eðlisfræðingur veltir upp
spurningum um vísindi og leitar
svara í laugardagskaffi Kvenna-
listans, í dag, 29. febrúar. Hún
fjallar um hvort vísindi séu einka-
svið karla, hvort þau lúta eigin lög-
málum eða eru í stöðugri víxlverkun
við samfélagið, hvort það skipti
máli hvort vísindamaðurinn er karl
eða kona og hvers vegna vísindin
séu jafn lokuð fyrir áhrifum kvenna
og raun ber vitni. Laugardagskaffið
hefst kl. 11.00. Aðgangur er ókeyp-
is.
■ SAMFÉS, samtök félagsmið-
stöðva, stendur fyrir dansleik í
Hinu húsinu, 3. mars kl. 21.00-
1.00. Ný dönsk mun flytja létt lög
og eins verða óvæntar uppákomur.
Þessi dansleikur er fyrir unglinga
í 8., 9. og 10. bekk og eru miðar
einungis seldir í félagsmiðstöðvum.
Barnaboxin vinsælu
m/hamborgara, frönskum og kók
ásamt ofurjarlablöðrum og sælgæti
kr. 480,-
••
FJOLSKYLDUHATIÐ
hjá Jarlinum
laugardag og sunnudag
Safaríkar nautagrillsteikur
m/meðlæti og eftirrétti samkvæmt vali
kr. 790,-
BESTU KAUPIN í STEIKUM
i
i