Morgunblaðið - 29.02.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRUAR 1992
37
Próf. Einar B. Páls-
son — Afmæliskveðja
Einar Baldvin Pálsson, prófess-
or, heiðursdoktor og verkfræðing-
ur er áttræður í dag. Reyndar er
dagurinn í dag, hlaupársdagur,
aðeins sá tuttugasti frá 1912,
fæðingarári Einars, og lætur það
ekki ólíklega þar sem maðurinn-
er sprækari en flestir jafnaldrar
hans og margir miklu yngri menn
mega hafa sig alla við að fylgja
honum á göngu, að ég segi ekki á
spretti. Það var undirrituðum um-
hugsunarefni að eiga fullt í fangi
með að fylgja eftir á göngum og
stigum Háskólans helmingi eldri
manni þar sem Einar var og standa
næstum á öndinni frammi fyrir
nemendum sem hann var nýbúinn
að kynna mig fyrir. Það að Einar
hefur alla tíð verið svona ungur
má kannski rekja til þess að hann
var manna yngstur í skóla, stúdent
aðeins nýorðinn átján ára. Hann
mun enn í augum skólafélaganna
úr Menntaskólanum vera „strákur-
inn“. Að þessu leyti fetaði hann í
fótspor mætra verkfræðinga svo
sem Geirs Zoéga, vegamálastjóra,
og Emils Jónssonar, ráðherra, en
þeir urðu stúdentar mjög ungir.
Að stúdentsprófi loknu hélt Ein-
ar til Þýskalands til verkfræðin-
áms, fyrst til Darmstadt og síðar
Dresden, en þar lauk hann diplom-
prófi í byggingarverkfræði árið
1935. Hann varð að loknu prófi
aðstoðarmaður hjá prófessor dr.
Ing. K.Beyer við tækniháskólann
í Dresden. Dresden var á þeim tíma
ein fegursta borg Evrópu og voru
þar stórfallegar og glæsilegar
byggingar frá barokk- og rókókó-
tímanum. Fyrir fagurkera hefur
dvöl þar verið hreinasta unun því
auk arkitektúrsins var Dresden
mikil lista- og menningarborg
bæði í tónlist og leiklist. En blikur
voru á lofti og tæpast hefur verið
gaman fyrir Einar að fylgjast með
þeirri uggvænlegu þróun á stjórn-
málasviðinu sem á endanum leiddi
til annarrar heimsstyijaldarinnar.
Enda flutti hann heim til íslands
þegar árið 1936 og hóf störf við
sitt fag hér í Reykjavík. í Þýska-
landi kynntist Einar því sem fremst
var í verkfræði í heiminum á þeim
tíma en einnig eignaðist hann vini
sem síðar urðu þekktir menn. Má
þar nefna prófessor Leussink, sem
síðar varð rektor tækniháskólans
í Karlsruhe, og margir íslenskir
námsmenn þar kynntust, og enn
síðar samgöngumálaráðherra
Sambandslýðveldisins. íslenskir
stúdentar í Karlsruhe villtust
stundum á rektomum og löndum
sínum og áttu til að slá á öxlina
á honum og segja t.d. „eigum við
ekki að líta við á knæpu“, eða eitt-
hvað þvílíkt. Ástæða þessa var sú
að Leussink hafði eignast eina af
þeim frægu íslandsúlpum, sem þá
var einkennisbúningur íslenskra
stúdenta í Karlsruhe. Aldrei munu
þá hafa orðið nein eftirmál þess
konar mistaka.
Þegar heim var komið tök við
starf hjá bæjarverkfræðingnum í
Reykjavík, fýrst hjá Valgeiri
Bjömssyni en síðan Bolla Thorodd-
sen. Á þeim tíma, sem stóð yfir í
aldarfjórðung, gegnum heimsstyij-
öldina, uppbygginguna í Reykjavík
eftir stríð og allt fram í verkfræð-
ingaverkfallið mikla, var Einar oft
staðgengill bæjarverkfræðings, og
þegar Bolli lét af störfum árið
1961 var búist við að Einar tæki
við embætti borgarverkfræðings.
Það var þó ekki og gerðist hann
þá ráðgefandi verkfræðingur
næstu árin eða allt þar til hann
varð prófessor við Háskólann árið
1974. Sem ráðgefandi verkfræð-
ingur vann hann að mörgum verk-
efnum sem telja má til stórvirkja,
svo sem aðalskipulagi Reykjavíkur
og Akureyrar, leiðakerfi fyrir
strætisvagna Reykjavíkur og um-
sjón hafði hann að undirbúningi
breytingar yfir í hægri umferð
1968. Einar mun fyrstur hafa
kynnt hérlendis meginreglur um-
ferðarskipulags með flokkun gatn-
akerfís og aðgreiningu umferðar-
innar og em margar greinargerðir
um umferð í aðalskipulögum síðan
skrifaðar eftir hans skrifum um
þau efni að breyttu breytanda.
Frá fyrstu tíð verkfræðideildar
Háskólans hefur Einar B. Pálsson
verið við hana tengdur, allt frá því
að vera í nefnd til að gera áætlun
um nám við deildina 1943 og frá
1946 til 1973 sem prófdómari í
aflfræði og burðarþolsfræði og síð-
an frá 1974 sem prófessor í svo
nefndum bæjarverkfræðigreinum.
Má segja að hann hafi litið yfir
handverk allra íslenskra
byggingarverkfræðinga sem num-
ið hafa við Háskóla Islands nema
allra síðustu árganga. Sem pró-
fessor emeritus hefur Einar síður
en svo setið auðum höndum því
orðanefnd byggingarverkfræðinga
hefur verið og er enn undir hans
stjórn. Það verður langt þangað
til menn kunna fyllilega að meta
það starf. Um fjölhæfni Einars
má segja að enn hefur ekki fund-
ist verðugur maður til að taka við
þeim kennslugreinum sem hann
hafði umsjón með og hefur verið
haft á orði að DIN-staðall um slíka
menn hafí ekki verið í brúki um
langt skeið.
Að ofantöldu mætti ráða að það
sem Einar hefur starfað væri nóg
fýrir a.m.k. einn mann, jafnvel þó
hann hefði verkfræðipróf. í félags-
málum hefur hann tekið þátt næst-
um eins og það væri fullt starf,
a.m.k. á stundum. Verkfræð-
ingafélagið hefur notið atorku
hans og tvisvar hefur hann setið
í stjóm þess, 1944-1946 og 1964-
1966 síðara tímabilið sem formað:
ur. Þá var hann formaður BVFÍ
1955-1957 og fulltrúi Verkfræð-
ingafélagsins í BHM árin 1958-
1965. Og þetta er aðeins það helsta
sem hann hefur gert fyrir félagið
því enn er hann aktífur, kemur á
fundi og tekur til máls, kennir
okkur og siðar, alltaf jafn ferskur
og skemmtilegur. Fyrir öll sin störf
í þágu Verkfræðingafélagsins kaus
það hann heiðursfélaga á sjö-
tugsafmæli félagsins og var hann
til skamms tíma sá eini sem fýllti
þann flokk félagsmanna.
Jafnvel þetta hefur ekki verið
Einari nóg. Skíðaíþróttin á honum
mikið að þakka m.a. fyrir farar-
stjórn í fyrstu ferð íslenskra
íþróttamanna á vetrarólympíuleika
árið 1948, en þá voru leikamir í
St. Moritz, og síðar á fleiri ólymp-
íuleika auk annarra starfa fyrir
íþróttina. Skíðasambandið gerði
hann líka að heiðursfélaga sínum
árið 1971 sem vonlegt er auk þess
sem hann hefur fengið gullmerki
ÍSÍ fyrir framlag sitt til íþrótta-
mála. Síðast en e.t.v. ekki síst er
vert að geta áhuga Einars á tónl-
ist. Og eins og annars staðar hefur
hann tekið virkan þátt en ekki lát-
ið sér nægja að vera einfaldur
neytandi. Um árabil var hann m.a.
í stjóm Kammermúsikklúbbs
Reykjavíkur.
I allri þessari virkni, sem líkja
má við háhitasvæði, hefur Einar
ekki staðið einn því hann hefur
verið svo lánsamur að eiga hina
ágætustu konu, Kristínu Pálsdótt-
ur, sem staðið hefur við hlið hans
og stendur enn. Þau eiga fjögur
böm. Án hennar veit ég ekki
hvernig Einar hefði orðið, kannski
bara eins og við hinir.
Á þessum heiðursdegi Einars
B. Pálssonar viljum við verkfræð-
ingar færa honum heillaóskir og
þakkir fyrir það sem hann hefir
gert á liðnum ámm. Og þegar liti^
er til baka finnst okkur mörgum
að ef til vill höfum við verið og
eram enn nemendur hans. Megi
hann lengi enn verða kennari okk-
ar.
F.h. Verkfræðingafélags íslands,
Þorsteinn Þorsteinsson.
MINNUM A
AFSLÁTTINN
Á SKÍÐAVÖRUM
KRINGLU
Borgarkringlan, sími 67 99 55
Aðalfundur
Aðalfundir Samvinnutrygginga g.t. og eignar-
haldsfélagsins Andvöku g.f. verða haldnir í
Ármúla 3, Reykjavík, þriðjudaginn 31. mars
nk. og hefjast kl. 16.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf og tillaga um breyt-
ingar á samþykktum.
Stjórnir félaganna.
20 ára afmæli
öldungadeildar MH
20 ára afmælishátíð öldungadeildar Mennta-
skólans við Hamrahlíð verður haldin
20. mars nk. á Hótel Borg.
Gamlir nemendur og kennarar eru hvattir til
að mæta. Glæsileg hátíðardagskrá.
Miðar verða seldir í skólanum 9.-11. mars
milli kl. 19.00 og 20.30. Miðaverð kr. 1.500,-.
Nánari upplýsingar í símum 24764, Ásta og
15162, Hafdís.
Framsóknarvist Reykjavík
Framsóknarvist verður spil-
uð sunnudaginn 1. mars nk.
í Danshúsinu, Glæsibæ,
kl. 14.00.
Áslaug Brynjólfsdóttir,
fræðslustjóri, flytur stutt
ávarp í kaffihléi.
Veitt verða þrenn verðlaun
karla og kvenna. Aðgangseyrir kr. 500 (kaffi-
veitingar innifaldar).
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
KENNSLA
Lærið vélritun
6 vikna námskeið hefst 2. mars
Vélritunarskólinn, sími 28040.
□ GIMLI 599202037 - 1 Frl.
□ MlMIR 599203027 = 1.
KFUK
KFUM
Fræðslustund
í aðalstöðvunum við Holtaveg
kl. 10.30-12.00.
Þúsund ára ríkið.
Umsjón Einar Sigurbjörnsson.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S 11798 19533
Fjölbreyttar sunnu-
dagsferðir 1. mars
1. Kl. 10.30 Skíðaganga á
Hengilssvæðinu.
Gengið milli hrauns og hlíða um
Hengladali og áð í skálanum (
Innstadal.
2. Kl. 13.00 Skíðaganga um
Hellisheiði
Komið með Feröafélaginu í
skemmtilegar skíðagöngur,
nægur snjór.
3. Kl. 13.00 Þjóðleið 2:
Varðaða leiðin á Hellisheiði.
Ekiö austur á Helllshelöi og
gengið þaðan með gömlu vörð-
uðu leiöinni. Áð við Hellukofann
(gamalt sæluhús hlaðið úr
hraunhellum) og gengið um Hell-
isskarð að Kolviöarhóli.
Safnið þjóðleiðum.
4. Skarðsmýrarfjall (597 m)
Hressandi fjallganga.
Verð í hverja ferð er kr. 1.100,-.
Brottför frá Umferðarmiöstöð-
inni, austanmegin (stansað við
nýbyggingu F( í Mörkinni 6).
Gangið ( Ferðafélagið.
Munið aðalfund Ferðafélags-
ins, miðvikudaginn 4. mars
kl. 20 í Sóknarsalnum, Skip-
holti 60a.
Missiö ekki af vetrarfagnaðin-
um laugardaginn 7. mars i
Bðsnum f Efstalandi, Ölfusi.
Brottför fró Mörkinni 6
kl. 18.00.
Ferðafélag íslands,
félag allra landsmanna.
Ljósheimar
ísl. heilunarfélagið
Fyrri áfangi vetrarnámskeiös
Ljósheima, ísl. heilunarfélags-
ins, veröur endurtekinn helgarn-
ar 7.-8. og 28.-29. mars. I þess-
um fyrri áfanga veröur m.a.
kennt um innri líkama mannsins,
áruna og orkustöðvarnar, um
sjálfsvernd og farið í grundvall-
aratriði hugleiðslutækni.
Skráning er hafin í símum
624464 og 674373. Skrifstofan
er opin á Hverfisgötu 105 alla
miðvikudaga frá kl. 14-15.30.
El ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sími 14606
DagsferAir sunnud. 1. mars
Kl. 13.00 Þingvellir.
Gengið verður frá Leirunum að
Skógarkoti og þaðan að Þingvalla-
bænum. Létt og skemmtileg
ganga fyrir alla fjölskylduna og
ef snjóalög leyfa er upþlagt að
hafa gönguskíðin með í för. Brott-
för frá BSl bensínsölu, stansað
við Árbæjarsafn og Kaupf. í Mos-
fellsbæ. Verð kr. 1.400/1.250,-.
Frítt fyrir börn 15 ára og yngri í
fylgd með fullorönum.
Laugardaginn 29. febrúar.
í tilefni hátíðarhalda Reykjavíkur-
borgar vegna 100 þús. íbúans
verður Útivist með göngu um
miðborgina, lagt af stað kl. 15.00
frá Austurvelli.
Útivistarfélagar fjölmennið!
Sjáumst!
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar
framundan:
Sunnudagur: Sunnudagaskóli
kl. 11.00. Almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðumaður: Hafliði
Kristinsson.
Miðvikudagur: Biblíulestur
kl. 20.30.
Föstudagur: Almenn samkoma
kl. 20.30.
Ræðumaður: Reuben Sequeira.
Laugardagur: Dagur fyrir þig.
Kl. 13.30 er biblíufræðsla.
Ræðumaður: Reuben Sequeira.
Kl. 16.00 er biblíufræðsla.
Ræðumaður: Reuben Sequeira.
Kl. 18.00 verður kvöldverður.
Audbrekka 2. Kdpm'Oijtir
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Bernie Sanders predikar.