Morgunblaðið - 29.02.1992, Síða 53
i MA0ÍJH3M M íl'IDÁ([J!A!)MÁ.I friffÁJHV! jnjfuM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
53
íslensk hönnun og verkkunnátta
frá Rafni Ben. Rafnssyni:
NÝLEGA voru birtar niðurstöður úr
könnun meðal danskra húsgagna-
og innréttingaframleiðenda um
helstu ástæður fyrir velgengni þar-
lendra fyrirtækja. Danskir framleið-
endur voru sammála um að ein aðal-
ástæðan væri sú staðreynd að þeir
byggju við mjög JÁKVÆÐAN en
um leið kröfuharðan heimamarkað.
Danskir kaupendur legðu metnað
sinn í að kaupa danskar vörur væru
þær á boðstólum.
íslenskir húsgagna- og innrétt-
ingaframleiðendur hafa búið við
Hvar er barnið þitt
að leika sér?
fulla samkeppni við erlenda fram-
leiðslu um langt árabil. Framleiðend-
ur hafa aðlagað sig að þessum að-
stæðum með sameiningu fyrirtækja,
almennri hagræðingu og ekki síst
aukinni samvinnu sín á milli og við
erlenda íhlutaframleiðendur. Þá er
ónefndur sá þáttur, sem skilað hefur
fyrirtækjum hvað mestum árangri,
en það er samvinna þeirra við arki-
tekta og hönnuði í vöruþróun og
nýhönnun.
Aðgerðir stjómvalda í atvinnu-
málum á íslandi hafa reynst útflutn-
ings- og samkeppnisiðnaði mjög
þungbærar. Þetta hefur orsakað að
iðnaður, sem byggir á íslensku hrá-
efni, er annaðhvort gjaldþrota eða á
leiðinni í gjaldþrot.
Húsgagna- og innréttingafram-
leiðendur flytja inn sitt hráefni og
geta því aðlagað sig að síversnandi
rekstrarskilyrðum með aukinni sam-
vinnu við erlenda íhlutaframleiðend-
ur. Með þessu er hægt að halda
áfram vöruþróun og nýhönnun þann-
ig að íslensk hönnun leggist ekki
af og við endum allir sem umboðs-
menn og töskuheildsalar fyrir er-
lenda hönnun og vörur.
Viðhorf íslenskra arkitekta, sem
ráðgefandi aðili við kaup á húsgögn-
um og innréttingum, skiptir veru-
legu máli þegar við veltum fyrir
okkur þeirri þróun, sem nefnd hefur
verið hér að ofan. Með jákvæðu við-
horfí kaupenda og arkitekta til ís-
lenskrar hönnunar og íslensks iðnað-
ar er hægt að byggja upp öflug fýrir-
tæki þar sem nýhönnun og vöruþró-
un gegnir iykilhlutverki. Jákvæður
heimamarkaður skapar þau skilyrði,
sem íslenskir hönnuðir og framleið-
endur þurfa til þess að flytja út ís-
lenskt hugvit og verkþekkingu.
Félag húsgagna- og innanhúss-
arkitekta stendur fyrir hönnunar-
sýningu í Perlunni 27. febrúar til
8. mars. Þar munu 32 félagsmenn
sýna allt það nýjasta, sem er að
gerast í íslenskri hönnun. Þetta
framtak er mjög lofsvert og virkar
sem eilítið ljós nú á tímum mikillar
svartsýni.
Það er von okkar að sem flestir
sýni þessu hagsmunamáli hönnuða,
framleiðenda og starfsfólks í hús-
gagnaiðnaði áhuga. Með jákvæðu
viðhorfi og samhentu átaki erum við
þess fullvissir að íslenskur hús-
gagna- og innréttingaiðnaður getur
lagt sitt af mörkum í öflun gjaldey-
ristekna og í verðmætasköpun fyrir
íslenskt þjóðfélag.
RAFN BEN. RAFNSSON
Formaður Félags húsgagna- og
innréttingaframleiðenda.
Suðurlandsbraut 27 Reykjavík
VELVAKANDI
OFNOTUÐ ORÐ
Ellen Stefánsdóttir:
ÉG VIL taka undir með þeim sem
bent hafa á að orðið niðurskurður
er ofnotað. Upphafleg merking
þess er að skera niður bústofn og
maður sér fyrir sér menn með
hnífana blikandi á lofti. Mætti
ekki tala um skerðingu í staðinn?
Eins finnst mér að orðalagið
að eitthvað sé í burðarliðnum sé
ofnotað. Flestir vita sjálfsagt hvað
það merkir. Það er hægt að tala
um að eitthvað sé í undirbúningi,
komið á fremsta hlunn, sé væntan-
legt o. s. frv.
SELNINGUR
Pétur Pétursson:
ÞAÐ ER misskilningur hjá Þor-
leifí Kr. Guðlaugssyni að nafnið
selningur hafi ekki fyrr og síðar
verið notað um sendling. í ritgerð
um fugla fjallar Jónas Hallgríms-
son t.d. um selningakyn og kallar
selninginn einnig fjallafælu og
fjölmóður. í Orðsifjabókinni segir
um selning: selningur; sérstakur
fugl, staðbundin framburðarmynd
af sendlingur.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Hanna Þ. Svavarsdóttir:
ÉG VIL þakka fyrir lipra og góða
þjónustu hjá skreytingadömunni í
Blómastofunni í Kringlunni, Þjón-
ustan hjá henni er alveg sérstak-
lega góð.
GÓÐ FYRIR-
GREIÐSLA
Bergþóra Bergþórsdóttir:
ÉG VIL þakka Flugleiðum fyrir
ákaflega góða fyrirgreiðslu. Fyrir
skömmu urðum við, hópur skíða-
fólks, strandaglópar í Saltzburg.
Végna mikillar umferðar á vegun-
um í Austumki náðum við ekki á
flugvöllinn í tæka tíð enda tók
ferðin frá skíðasvæðinu fimm
tíma. Flugvélin var því farin þegar
við komum enda átti hún að koma
við annars staðar áður en haldið
var heim og því ekki hægt að láta
hana bíða. Flugleiðir buðu okkur
öllum í mat á flugvellinum en
sendu okkur siðan til Frankfurt.
Þar var okkur komið fyrir á hót-
eli en síðan vorum við send heim
daginn eftir í gegn um Kaup-
mannahöfn. Þetta gerðu Flugleiðir
allt á sinn kostnað en þó var töfin
sem við urðum fyrir engan veginn
þeirra sök. Ég vil þakka Flugleið-
um fyrir góða fyrirgreiðslu.
LJÓT ORÐ
Skúli Einarsson:
ÉG VAR að hlusta á þáttinn Á
landsímanum hjá Bylgunni fyrir
skömmu. Þar talaði Regína frá
Selfossi og hafði mjög ljót orð
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Þarna var um slíkan munnsöfnuð
að ræða að undarlegt var að heyra
slíkt í útvarpi, sama hvort þau
hefðu verið höfð um forsætisráð-
herra eða einhvern annan. Bylgju-
menn ættu ekki að hleypa fólki
sem ekki kann mannasiði í símann
hjá sér.
HRADLESTRARNÁMSKEIÐ...mei óbyrgi!
★ Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn?
★ Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrarhraða og
bættri námstækni?
★ Vilt þú lesa meira af góðum bókum?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestrar-
námskeið sem hefst fimmtudaginn 5. mars nk.
Skráning í síma 641091.
Ath.: Óbreytt verð frá síðasta vetri. VR og flest önnur félög
styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðunum.
HRAÐLESTRARSKOLINN
| |?r | ■
GEFÐU DOS TIL HJALPAR!
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 14.00 og við sækjum.
ÞJÓÐÞRIF
V3EV £?
i**™™ LANDSBJÖRG
Dósakúlur um allan bæ.
HUSGAGNAUTSAIA
Sfiistu lagai ftsWaaaai
Bjóðum örfá svört leðursófasett 3+2+1
á aðeins kr. 169.000,- stgr.
Hornsófar klæddir leðri, leðurlíki eða áklæði.
OpiD í dag, laugarúag, frá kl. 10 til 16.
ARMULA 8 - SIMAR 812275 og 685375
VfSA*
raðgreiðslur
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
VETRARTILBOÐ
á kuldaskóm
Verd kr. 3.995,-
Domus Medica,
Egilsgötu 3, sími 18519.
Kringlunni,
sími 689212. •
* i
Litur. Brúnn
Stærðir: 36-41
Sóli: Grófur og stamur
Framleiðsluland: Spánn
Ath.: Nýkomin sending af fótlagainniskóm
frá Táp, Óla-skóm og Rohde.
Póstsendum samdægurs
5% staðgreiðsluafsláttur