Morgunblaðið - 07.04.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1992
17
fyrir álagningu 3% vaxta á námslán,
að nágrannar okkar Danir krefjist
9,5% vaxta af námslánum til þar-
lendra námsmanna. Þrenns var látið
ógetið. í fyrsta lagi er þarna um að
ræða nafnvexti en ekki raunvexti
eins og íslenska frumvarpið gerir ráð
fyrir. I öðru lagi greiðir Daninn að-
eins vexti af u.þ.b. þriðjungi að-
stoðarinnar, styrkurinn er auðvitað
styrkur. í þriðja lagi er þess ógetið,
að vextir þeir er Daninn greiðir eru
100% frádráttarbærir frá skatt-
stofni. Þijú lýsandi dæmi um vill-
andi málflutning.
Það er forkastanlegt að umræður
á Alþingi skuli byggjast á röngum
upplýsingum sem þessum. Þetta
dæmi sem hér var tekið er aðeins
eitt af mörgum um vitleysur og/eða
rangfærslur í fylgiskjölum frum-
varpsins. Hver veit hvaða vitleysur
leynast í samanburðinum sem gildir
fyrir hin Norðurlöndin? Verða al-
þingismenn ekki að gera þá lág-
markskröfu að upplýsingar sem
gefnar eru í fylgiskjölum frumvarpa
séu réttar?
Á hátíðum og tyllidögum talar
utanríkisráðherra íslands íjálglega
um að ísland verði að tryggja sér
farseðil inn í framtíðina. Ef þetta
eru kjörin sem þjóðin ætlar að bjóða
sonum sínum og dætrum er ekki
ólíklegt að þau verði farþegar hjá
erlendu flugfélagi.
30. mars 1992, f.h. íslenskra
námsmanna í Álaborg,
Eggert Tryggvason,
Gunnar Guðlaugsson,
Klemens Hjartar.
Höfundar stundn nám ! verkfræði
við Aalborg Universitetscenter i
Álaborg.
Sr. Friðrik Friðriksson
Magnús Baldvinsson
Ný hljómsnælda með
söngwm séra Friðriks
KFUM HEFUR gefið út hljómsnældu með 17 söngvum eftir séra Frið-
rik Friðriksson. Magnús Baldvinsson, ungur bassasöngvari, syngur
lögin við undirleik Olafs Vignis Albertssonar. Magnús hefur stundað
nám í Bandaríkjunum og víðar og er nú ráðinn óperusöngvari í San
Francisco.
Upptakan var gerð í desember sl.
er hann var hér í stuttri heimsókn
og fór hún fram í Langholtskirkju.
Ilann kynntist sjálfur mörgum þess-
ara söngva á yngri árum og syngur
þá hér á látlausan og hrífandi hátt,
segir í frétt frá KFUM.
Söngvar séra Friðriks eru fleiri
en svo að tölu verði á þá komið með
góðu móti. Margir þeirra eru vel
þekktir, ekki síst þeir sem eru í
sálmabók kirkjunnar. Aðrir eru ekki
eins kunnir utan vébanda þeirra fé-
laga, sem séra Friðrik stofnaði og
veitti forstöðu til æviloka, KFUM og
KFUK. Hann var fundvís á falleg lög
við söngva sína og sálma, sem flytja
jafnframt þann boðskap sem var
honum hjartans mál og kristin kirkja
hefur flutt frá öndverðu.
Unnt er að fá hljómsnælduna á
skrifstofu KFUM og K við Holtaveg.
Má einnig panta hana í síma félag-
anna. Auk þess er hún seld í Kirkju-
húsinu við Kirkjutorg, Jötunni, Há-
túni 2, og nokkrum hljómplötuversl-
unum.
Utgáfan er einnig til styrktar
byggingu aðalstöðva KFUM og K
við Holtaveg.
Stórafsláttur af hvítum fataskápum
Vönduð íslensk framleiðsla.
Verðdæmi:
Skápur100x210x62 cm
Áður: 27.373 kr.
Páskatilboð: 22.104 kr. stgr.
Stakir skápar
---1---------------1---
Skápur 300x248x62 cm
=K
Aður: 117.620 kr.
Páskatilboð: 89.979 kr. stgr.
Einingar milli veggja
AXIS HÚSGÖGN HF.,
A YI C SMIÐJUVEGI9, KÓPAVOGI,
/VVl J SÍMI43500
m
ÚLPU
dágu
20-50^
5.-15. APRÍL
Raðgreiðslur
Póstsendum samdægu
Ss
.MORRABIWA60SÍM11Z0Æ
r—*