Morgunblaðið - 07.04.1992, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1992
fólk i
fréttum
GEÐVEIKI
Weltman ofsækir
Witt ei meir
Starfsstúlkurnar úr Hraðfrystistöð Þórshafnar í góðu yfirlæti í pottinum góða ásamt Hilmari Þór Hilm-
arssyni verksmiðjustjóra og Olsen, starfsmanni verkmiðjunnar.
ÞÓRSHÖFN
I nuddpotti í Loðnuverksmiðjunni
Þórshöfn.
að var heldur óvenjuleg sjón
sem mætti fréttaritara um
daginn þegar hann leit inn í Loðnu-
verksmiðjuna. Það voru fjórar kon-
ur í heitum nuddpotti á gólfínu í
vistinni þar. Þarna voru komnar
fjórar starfsstúlkur Hraðfrysti-
stöðvarinnar til að slaka á eftir
vinnudaginn og fengu þær með
ljúfu geði afnot af potti verksmiðju-
manna. Sögðu konurnar þetta vera
bestu heilsubót eftir vinnudaginn
og þó að dálítil bræðslulykt liggi í
loftinu þá lætur sannur Þórshafnar-
búi það ekki á sig fá.
Hreinlætið í vélarsalnum er til
fyrirmyndar enda ráða þar ríkjum
mikil snyrtimenni. Funheitt er í
Loðnuverkmiðjunni þegar verið er
að bræða og mikil afgangsorka svo
starfsmönnum datt í hug að koma
sér upp heilsuhorni. Þeir suðu sam-
an tvö gömul stór fiskikör og fóðr-
uðu síðan að innan með plasti. Nóg
var af heitu vatni og þar með var
potturinn tilbúinn. Loftslangan var
síðan sett ofan í annað veifíð til að
nudda mannskapinn. Góðar sturtur
eru til staðar og ágæt hreinlætisað-
staða að öllu leyti.
Hilmar Þór Hilmarsson verk-
smiðjustjóri sagði pottinn vera hið
mesta þarfaþing í vélasalnum og
ekki bæri á því að afköst í verk-
smiðjunni minnkuðu við tilkomu
hans, en búið er að bræða 24.000
tonn frá áramótum. Potturinn er
vinsæll og fær kvenþjóðin úr frysti-
húsum stundum afnot af honum
eins og núna má sjá. Ekkert sagð-
ist þó Hilmar skilja í því að engin
kvennanna hefur þegið boð þeirra
verksmiðjustjóra um nudd og aðra
þjónustu við pottinn góða!
- LS
Búið er að leiða til lykta máls-
höfðun skautadrottningarinn-
ar og kynbombunnar Katarinu Witt
gegn atvinnulausum geðklofa að
nafni Harry Weltman sem ofsótti
hana á árunum 1990 og 1991.
Weltman var dæmdur í allt að 30
ára fangelsi og var dómurinn svo
stífur vegna þess að sönnunargögn
staðfesti rökstuddan grun um að
Weltman hafi verið með það næst
á dagskrá sinni að myrða Witt. Síð-
ustu bréf hans af mörgum innihéldu
augljósar vísbendingar um ásetning
hans og það varð til þess að banda-
ríska alríkislögreglan lét til skarar
skríða gegn honum.
Weltman fékk Witt á heilann og
áreitti hana linnulaust. Hann sendi
Katarina Witt á ísnum.
henni um hundrað bréf sem flest
hver voru klámfengin og full af
nákvæmum lýsingum á því hvað
Weltman ætlaðist fyrir er hann
kæmist yfir Witt. Hann sendi henni
og klúrar nektarmyndir af sjálfum
sér. Kvað svo rammt að ofsóknum
Weltmans, að er Witt fór til sum-
ardvalar í foreldrahús í Altenhof í
Þýskalandi, seldi Weltman það eina
í eigu sinni, forláta pallbifreið, til
þess að kaupa sér farmiða fram og
til baka. Síðan hreiðraði hann um
sig nærri húsakynnum Witt-fjöl-
skyldunnar og barði utan dyr og
rúður á öllum tímum sólarhringsins
öskrandi „Ég elska þig Katrín, ég
elska þig.“
Alltaf fór offorsið vaxandi og
þegar eitt bréfið barst, var lögregl-
unni loks nóg boðið. Þar stóð m.a.
-vertu ekki hrædd þegar guð leyfír
mér að fjarlægja þig úr líkama þín-
um og vefja þig örmum. Þá muntu
kynnast þyí að til er líf utan líkam-
ans.“ Og fleira miður kræsilegt var
þarna að finna. Witt sagði í réttin-
um að hún óttaðist Weltman mjög,
hún hefði þrábeðið hann að láta sig
í friði og hún tryði því að hann
hefði ætlað að myrða sig. Dómarinn
var henni sammála.
Harry Weltman, 47 ára gamall.
SAMYO SAMSTÆÐAN
• 16 aðgerða þráðlaus
fjarstýring.
• Magnari; 2x60W með 5
banda tónjafnara.
• Útvarp; FM/AM/LW, 24
stöðva minni og sjálfvirkur
stöðvaleitari.
• Segulband; tvöfalt með
hraðupptöku, Dolby B og
samtengdri spilun.
• Plötuspilari; reimdrifinn,
hálfsjálfvirkur.
• Geislaspilari; með tvöfaldri
„digital/analog" yfirfærslu,
16minni, lagaleit o.fl.
• Hátalarar. 80 Watta,
þriggja átta.
Umboðsmenn um land allt
Gunnar Asgeirsson hf.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Reykjavfk, Heimilistæki hf. Sætúni 8, Frístund, Kringlan, Rafbúð Sambandsins, Holtagörðum, Kaupstaður I Mjódd
■ Akranes, Skagaradió • Borgarnes, Kaupfélag Borgfirðinga ■ ísafjörður, Póllinn hf. • Sauðárkrókur, Ratsjá •
Ólafsfjörður, Valberg • Akureyrl, Radiónaust • Húsavfk, KÞ Smiðjan • Vestmannaeyjar, Brimnes • Selfoss, Kf.
Árnesinga • Keflavfk, Radfókjallarinn.
COSPER
- Rétt hjá þér, pabbi, láttu hann fá stóra vatnsgusu.
Dömu- og herrapennar
í miklu úrvali,
Penni er góð gjöf.
MONT
BLANC
ÝPARKER
VISA • KREDITKORT ■ SAMKORT * PÓSTKRÖFUR
Laugavegi 118 við Hlemm, sími 19768,