Morgunblaðið - 07.04.1992, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Maki þinn tekur hugmyndum
þínum vel og þið leggið á ráðin
um að fara í svolítið sérstakt
ferðalag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ástarsamband þitt dýpkar og
þróast ört um þessar mundir.
Þér vegnar vel í starfinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) Æ*
Þ'ú ættir að forðast hvers kyns
áhættu í fjármálum núna og
þá verðwrdagurinn hinn nota-
íegasti. Þú blómstrar í ákveðnu
hugmyndastarfi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú kaupir eitthvert þarfaþing
til heimilisins núna og gengur
frá ýmsum lausum endum.
Skapandi hugsun er aðal þitt
þessa dagana.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú kannt að þurfa að fresta
fundum sem stóðu fyrir dyrum
í dag, en þú átt mjög auðvelt
með að koma skoðunum þínum
á framfæri við annað fólk. Þú
kaupir eitthvað af dýrari gerð-
inni.
Meyja
(23. ágúst - 22. septcmberl<j&J
Þó að þú eigir auðvelt með að
afla ljár í dag, kannt þú að
eyða helst til miklu núna. Þú
vinnur að skapandi viðfangs-
efni, en ættir að gæta þín á
of mikilli áhrifagimi á róman-
tíska sviðinu.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Það sem gerist á bak við tjöld-
in kemur sér vel fyrir þig fjár-
hagslega. Ákveðið vandamál
heimafyrir er enn óleyst, en
hjólin fara að snúast þér í hag
núna.
Sþorddreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^[0
Orðrómur sem stafar af mis-
skilningi veldur þér leiðindum
núna. Vináttubönd þín við ein-
hvern styrkjast að miklum
mun. Þú hefur heppnina með
þér þegar þú leggur síðustu
hönd á ákveðið verkefni.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Þú hefur í mörgu að snúast í
félagsstarfi þínu um þessar
mundir og færð skemmtilegt
ferðatilboð. Það sem gerist á
bak við tjöldin kemur þér vel.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Kraft.ur þinn og dugnaður gera
þér kleift að koma óvenju miklu
í verk núna. Reyndu að vera
sjálfstæðari í afstöðu þinni til
samverkamanna þinna. Pjár-
málahorfurnar fara batnandi.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þér tekst að vinna hálfvonlausu
verkefni brautargengi. Þú skip-
uleggur skemmtiferð. Maki
þinn leggur fyrir þig stórsnjalla
tillögu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þér bjóðast ný atvinnutæki-
færi, en vinir og peningar fara
ekki saman í dag. Hjónum
finnst þau vera nátengd hvort
öðru. Breytingar heima fyrir
ganga snurðulaust.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Spdr af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
LJOSKA
\
HER. ER LEIKSTJORINN
OKK4R 40Se&J/l GALDM.
L.'EKMMLVH B&W&t&t
X
GALOR/tLjeKN/NUAI
VIROIST EKK!
SKE/H/HT
X
þarr/j ER E6 AB
SETJM LEIKSTJefRANN
OK&HZ íSKyeiWASAHH
PPPHIMAMH
rtnUIIMMIMU
SMAFOLK
I THINK I REMEMBER
50METMIN6 ABOUT
A FAN6 FAIRV..
lannálfinn?
Ég held ég muni eitthvað um vígt-
annaálf...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vandamál suðurs í 6 hjörtum
er að tímasetja spilamennskuna
rétt.
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 3
¥ K74
♦ ÁK10765
*K107
Suður
♦ Á62
¥ Á8652
♦ 2
♦ ÁG98
Vestur Norður Austur Suður
— 1 tígull Pass 1 hjarta
Pass 2 tíglar Pass 3 lauf
Pass 3 hjöilu Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 4 hjörtu
Pass 4 grönd Pass 5 spaðar
Pass 6 hjörtu
Útspil: spaðagosi.
Hvernig er best að spila?
Að því gefnu að hjarta falli
3-2 er aðalverkefni sagnhafa
að komast hjá svíningu í laufi.
Sem er ekkert vandamál ef tíg-
ullinn fellur flatur, en í 4-2 leg-
unni þarf að nýta innkomur
blinds skynsamlega. Rétta tíma-
setningin er að spila tígli á ás í
öðrurn slag og trompa tígul.
Taka síðan ÁK í hjarta og leggja
niður tígulás:
Norður
♦ 3
¥ K74
♦ ÁK10765
+ K107
Vestur Austur
♦ G10984
¥D9
♦ G8
♦ D654
♦ KD75
¥ G103
♦ D943
♦ 32
Suður
♦ Á62
¥ Á8652
♦ 2
♦ ÁG98
Þegar legan skýrist er tígull
trompaður, spaði trompaður og
frítígli spilað. Austur fær á
hæsta trompið sitt þegar hann
kærir sig um, en svíningin í laufi
er óþörf.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
I deildarkeppni Skáksambands
Islands um helgina kom þessi
staða upp í 2. deild í viðureign
þeirra Ottars Felix Haukssonar
(1.880), C-sveit Taflfélags
Reykjavíkur, sem hafði hvítt og
átti leik, og Sigurðar Ólafssonar
(1.870), Skáksamband Vestfjað-
arar, B-sveit. Svartur lék síðast
11. f7 — f5?
12. Bxc7! - De8 (12. - Dxc7
er auðvitað svarað með 13. Rxe4,
svo svartur hefur misst peð, auk
þess sem staðan hrynur) 13. Bf4
- Rdf6, 14. Rg5 - Dd7, 15.
Rgxc4 — Rxe4,16. Rxe4 — fxe4,
17. Hc7 og hvítur vann.
Taflfélag Garðabæjar varð Is-
landsmeistari Taflfélaga eftir að
hafa sigrað Skákfélag Akureyrar
5-3 f hreinni úrslitaviðureign. 15
ára einokun Taflfélags Reykjavík-
ur á keppninni lauk þar með, sveit-
ir þess Urðu í 3. og 4. sæti.