Morgunblaðið - 07.04.1992, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1992
55
ttttiimintinffitttttftn
SUBURBAN COMMANDO
Eldf jörugur spennu/grínari meö Hulk Hogan (Rocky
III), Christopher Lloyd (Back to The Future)
og Shelly Duvall.
Hulk kemur frá öðum hnetti og lendir fyrir slysni
á )örðinni. Mynd sem skemmtir öllum og kemur
á óvart.
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Ekki fyrir yngri en 10 ára.
Stórmyndin meö Robert
DeNero og Nick Nolte í
aðalhlutverkum. Gerö
eftir samnefndri úrvals
bók.
Sýnd í B-sal kl. 5, 8.55
og 11.10. Kl.6.50 íC-sal.
Bönnuð innan 16 ára.
BARTON FINK
★ ★ ★ ‘/1 Gullpálmamyndin
frá Cannes 1991.
★ ★★Mbl.
Sýnd í C-sal
kl. 9 og 11.10.
PRAKKARINN 2
Bráðf jörug
gamanmynd.
Sýnd í C-sal kl. 5.
Breytt miðaverð - kr. 300 — fyrir 60 ára og eldri á allar sýn-
ingar og fyrir alla á 5 og 7 sýningar. Kr. 300 alla þriðjudaga.
IA
ISL ANOSKLU KKAN
eftir Halldór Laxness
Sýn. fós. I0. apríl kl. 20.30, lau. 11. apríl kl. 20.30, mið.
15. apríl kl. 20.30, fim. 16 apríl, skírdagur, ld. 20.30, lau.
18. apríl kl. 20.30, mán. 20. apríl, 2. í páskum, kl. 20.30.
Miðasalan er í Samkomuhúsinu, Hafnarstræti 57. Miðasalan
er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og sýning-
ardaga fram að sýningu. Símsvari allan sólarhringinn.
Greiðslukortaþjónusta. Sími í miðasölu (96) 24073.
STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÞRÚGUR REIÐINNAR
byggt á sögu JOHN STEINBECK.
Leikgcrð: FRANK GALATI.
Fim. 9. apríl, uppselt.
Fös. 10. apríl, uppsclt.
Lau. 11. apríl, uppsclt.,_
Mið. 22. april, uppselt.
Fös. 24. apríl, uppselt.
Lau. 25. apríl, uppselt.
Þri. 28. ajaríl, uppselt.
Fim. 30. apríl, uppselt.
Fös. 1. maí, uppselt.
Lau. 2. maí, uppselt.
Þri. 5. maí, uppselt.
Fim. 7. maí, uppselt.
Fös. 8. maí, uppselt.
Lau. 9. maí, uppselt.
Þri. 12. maí, aukasýn.
Fim. 14. maí, fáein sæti.
Fös. 15. maí, uppselt.
Lau. 16. maí uppselt.
Fim. 21. maí.
Fös. 22. maí, uppselt.
Lau. 23. maí, uppselt.
Fim. 28. maí.
Fös. 29. maí.
Lau. 30. maí, fá sæti.
ATH. Sýningum lýkur 20. júní.
Miðar óskast sóttir fjórum dögum fyrir sýningu, annars seldir
öðrum.
ÓPERUSMIÐJAN
Reykjavíkur:
• LA BOHÉME
eftir Giacomo Puccini
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00
Frumsýning mið. 8. apríl. Sýn. sunnud. 12.
Sýn. þri. 14. apríl.
Sýn. annan páskadag 20. apríl.
Miöasalan opin alla daga frá kl. 14-20 nema mánudaga frá
kl. 13-17. Miðapantanir í síma alla virka daga frá kl. 10-12,
sími 680680. Myndscndir 680383
NÝIT! Leikliúslínan, sími 99-1015.
Munib gjafakortin okkar. Tilvalin tækifærisgjöf!
Greiðslukortaþjónusta.
BORGARLEIKHÚSIÐ
sýnir í samvinnu við Leikfélag
april.
Félagsheimili Kópavogs
V SONUR
SKÓARANS
& DÓTTiR
BAKARANS
Wilft
eftir Jökul Jakobsson
i kvöld kl. 20.
Fimmtud. 9. apríl uppselt.
Föstud. 10. apríl
Síðasta sýning.
Sýningar hefjast kl. 20.
Miðapantanir í síma 41985.
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 300 Á ALLAR MYNDIR NEMA „LÉTTLYNDU RÓSU“
c
uiHitríi'i
Króm thc director ot
"Driving Miss Daisy
comcs an cpic
‘ advcnturc ahout_
couragc, hopc.
survival. and an
cxUaördinarv man.
KOLSTAKKUR
Menn setur hljóða
þegar þeir hor f a á
þetta meistaraverk
BRUCE BERESFORD
(Driving Miss Daisy).
Jesúítaprestur fer
inn í óbyggðir Nýja-
Frakklands til þess
að kristna heiðna
indíána.
Myndin hefur fengið
frábæra dóma alls
staðar í heiminum.
Sýnd kl. 5, 7,9og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
LÉTTLYNDA KASTALIMÓÐUR HOMOFABER EKKISEGJA
RÓSA MINNAR ★ ★ ★ ★ Helgarbl. MÖMMU
Sýndkl.5,7,9 ***SV Mbl. Sýnd kl. 9 og 11. Sýnd kl. 5, 7, £
og 11. Sýnd kl. 5 og 7. og 11.
FOÐURHEFND - Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. Stranglega bönnuð innan 16 ára.
REGNBOGINN SÍMI: 19000
M-hátíð að hefjast í Garðinum;
Hlín Pétursdóttir á ljóðatónleikum
Þrátt fyrir að M-hátíð hafi ekki verið verið formlega sett
í Garðinum verður fyrsta atriði henni tengt nk. fimmtu-
dagsköld í Sæborgu kl. 20.30. Þetta eru ljóðatónleikar sem
Tónlistafélag Garðahrepps óf M-hátíðarnefnd standa fyr-
ir. Það er ung söngkona, Hlín Pétursdóttir, sem lýkur ein-
söngvaraprófi í vor sem syngur við undirleik píanóleik-
arans Krystynu Cortes.
Hlín Pétursdóttir hóf tón-
listarnám sitt í Tónlistarskóla
Árnessýslu, þar sem hún lærði
á píanó og fiðlu. Seinna lá
leiðin í Hamrahlíðarkórinn og
haustið 1986 hóf hún nám við
söngdeild Tónlistarskólans í
Reykjavík, hjá Sieglinde Kah-
mann. Árið 1990 hlaut Hlín
námsstyrk úr Námunni og fór
á söngnámskeið til Vínar, til
hinnar heimsþekktu söng-
konu Ileana Cotrubas. Hún
Iýkur einsöngvaraprófi frá
Tónlistarskólanum í vor, og
heldur þá til Þýskalands.
Þær Krystyna hafa starfað
saman innan Tónlistarskólans
sl. 3 ár, og á tónleikunum
flytja þær m.a. sönglög eftir
Mozart, Hugo Wolf, Rodrigo,
Pál ísólfsson og Ernest
Chausson.
Krystyna Cortes er fædd í
Englandi og er af ensk-pólsk-
um ættum. Hún stundaði nám
á Watford School of Music
um 10 ára skeið, með Jean
Merlow sem aðalkennara.
Eftir að hafa unnið til náms-
styrks við Royal Academy og
Music í London stundaði hún
þar nám í 4 ár hjá Max Pjir-
ani og lauk einleikaraprófi
R.L.A.M. með hæsta vitnis-
burði. Síðustu 20 ár hefur
Krystyna átt heimili sitt á
íslandi og starfað sem píanó-
leikar og kennari.
Aðgangur er ókeypis, en
veitingar verða seldar í
hléi,
(Fréttatilkynning-)
Ofvirkni og misþroski
SVEINN Már Gunnarsson
heldur fyrirlestur á vegum
Foreldrafélags misþroska
barna um efnið „Ofvirkni og
misþroski“ í Æfingardeild
Kennaraháskólans í dag,
þriðjudag 7. apríl* klukkan
20,30. Eftir fyrirlesturinn
verða fyrirspurnir og al-
mennar umræður.
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
3. - 6. apríl 1992
Einungis ein líkamsmeið-
ing var tilkynnt til lögregl-
unnar um helgina, en hún
er sögð hafa átt sér stað á
bílaþvottastöð um ’miðjan
dag á föstudag. Meiðsli
munu hafa verið óveruleg.
Alls voru 75 ökumenn
kærðir fyrir umferðarlaga-
brot, flestir fyrir að aka of
hratt. Alls eru 11 ökumenn
grunaðir um að hafa ekið
undir áhrifum áfengis. Tveir
af þeim höfðu áður lent í
umferðaróhöppum.
I 28 umferðaróhöppum
meiddist einn gangandi
vegfarandi lítilsháttar. Það
var um kl. 4.10 aðfaranótt
laugardags á Túngötu við
Garðastræti. Þar lenti maður
fyrir hvítri fólksbifreið, en
bifreiðinni var ekið á' brott
eftir óhappið. Ökumaðurinn
og vitni eru beðin um að
hafa samband við slysaraþn-
sóknadeild lögreglunnar sem
fyrst.
Tilkynnt var um 11 inn-
brot og 14 þjófnaði. Mest
bar á að farið væri inn í bíla
og verðmætum stolið úr
þeim.
Á laugardagskvöldið var
tilkynnt um eld í bíl í Örfíris-
ey. Þegar lögreglumenn
komu á staðinn var bíllinn
alelda. Hann var læstur, en
lögi-eglumennirnir sáu grilla
í mann inni í honum. Þeim
tókst að brjóta giugga, opna
bílinn og bjarga manninum
út. Hann var fluttur á slysa-
deildina til aðhlynningar. Á
laugardagskvöld var einnig
tilkynnt um eld í húsi á Ás-
unum. Búið var að slökkva
eldinn þegar slökkvilið og
lögregla komu á vettvang,
en töluverðan reyk lagði um
stigagang og íbúð.
Aðfaranótt laugardags
þurfti að flytja mann á slysa-
deild eftir að hann hafði
klemmst á milli stafs og
hurðar og skaddast verulega
á fingrum. Óljóst er um
málsatvik, en talið er að
maðurinn hafi átt í útistöð-
um við kvenmann, sem hafí
skellt svona hressilega á
hann hurðinni.
Á sunnudagskvöld var til-
kynnt um eld í húsi við Ing-
ólfsstræti. Eldur hafði komið
upp í milligólfi á 1. hæð.
Nokkuð seinlega gekk að
ráða niðurlögum eldsins.
Litlar skemmdir urðu af
völdum elds, en meiri af
völdum reyks.
Á sunnudagskvöld veittu
lögreglumenn á eftirlitsferð
athygli bíl við bensínstöð í
Breiðholti. Þrír piltar stóðu
við bílinn og voru þeir að
búa sig undir að taka bens-
ín. Þegar piltarnir urðu lög-
reglunnar varir tóku þeir til
fótanna, en skildu bílinn eft-
ir. Einn þeirra náðist fljót-
lega og viðurkenndi að hann
ásamt félögum hefði stolið
bílnum við höfnina i Hafnar-
firði fyrr um kvöldið. Bíllinn
var óskemdur.
Um helgina voru einnig
nokkrir ungir piltar hand-
teknir eftir að hafa tekið bíl
ófrjálsri hendi við Þverholt.
Þeir voru allir undir áhrifum
áfengis og viðurkenndu að
hafa á vikutíma tekið a.m.k.
sex aðra bíla traustataki og
skemmt einn þeirra. Að
þessu sinni voru þeir á leið
til Þingvalla og höfðu gert
sér það að leik að aka niður
vegstikur á nokkurra kíló-’*
metra kafla. Talsvert tjón
varð á bíinum.