Morgunblaðið - 27.11.1992, Blaðsíða 15
SeGMQHQMNBmÐIB: FÖKMJEA3HÖ0 2W(3)}CKIKMBBBM992
Ml5
eða „the human capital", en sá
höfuðstóll telst yera nokkuð vel á
sig kominn á íslandi. í þessum
skilningi má kalla álitsgerð OECD
hugarlaust eða höfuðlaust skjal-
gagn, því að manneskjan er hér
orðin að þess konar undirstöðu-
þætti sem við teljumst geta gengið
út frá nokkurn veginn áhyggju-
laust, og í því sambandi er hugurinn
eða sálin varla til. Manneskjan er
gefín stærð í reikningsdæmi. Það
er hætt við að það geti reynzt
hættuleg villa að gefa sér þessa
stærð, því að mannshugurinn er
hvikull, og manneskjan getur geng-
ið af göflunum, ef hún fær ekki það
efni til þekkingar og hugsunar sem
hún getur lifað af í andlegri tilveru
sinni og fundizt hún hafa tök á
sjálfri sér og á stöðu sinni í heimin-
um. Það gæti reynzt harla varasamt
að reikna með þeim þætti sem fastri
stærð í reikningsdæminu sem ef til
vil er í eðli sínu mestur breytiþáttur-
inn af öllum atriðum þess. Á tímum
hraðra og róttækra breytinga eins
og núna, reynir mikið á í þessu
efni, og manneskjunni verður hætt.
Merki slíks í nútímanum eru svo
augljós, að ekki ætti að þurfa að
hafa orð á þeim.
6. Um þá villu að einrækta
afturpartinn
Við höfum lært, að eftir höfðinu
dansi limirnir, og líka, að orð séu
til alls fyrst. Hugsun (í höfði og
orði) er vafalaust dýrmætasta eign
mannsins. Hugurinn er með sínum
hætti upphaf alls fyrir okkur, i hon-
um verður úrvinnsla allra skyn-
hrifa, sem annars yrðu okkur að
alls engu, og á þá úrvinnslu orkar
með nokkrum hætti það sem áður
er numið, einnig og ekki sízt málið.
Í huganum er því upphaf allra vís-
inda, hveiju nafni sem þau kunna
að nefnast. Og engin vísindi geta
án þess verið að átta sig á sjálfum
sér, á almennu máli eða sértæku.
Að þessu leyti eru öll vísindi hugvís-
indi. í ljósi þessa hlýtur allt tal um
vísindi, sem ekki játar þessar undir-
stöður, að virðast sprottið af tak-
mörkuðum skilningi. Þann van-
skilning ætla ég að vísu ekki mats-
mönnum OECD. Það sem þar ræður
ferðinni er löngu orðin hefð á öld
efnishyggju og raunvísindahyggju.
Á margan hátt er verk þeirra vel
unnið, að mínu viti, og vonandi er
að af því auðnist að láta leiða það
gott og nauðsynlegt sem efni
standa til. En það breytir engu um
hugarleysi eða höfuðleysi álitsgerð-
arinnar.
í rauninni mætti líkja þeim vis-
indum, sem álitsgerðin virðir viðlits,
við afturpart stórrar skepnu sem
væri vísindin öll. Afturparturinn af
búskepnum er sem kunnugt er
holdabetri en hinn. Sú saga var
sögð í Eyjafírði, að læknir einn
hafði samið við bónda um að kaupa
af honum afturpart af kú til bús
síns. Á haustdögum fór læknirinn
að ganga eftir kaupunum, en þá
leit bóndi við honum og spurði:
Hvað á ég þá að gera við frampart-
inn? Læknirinn svaraði: Láttu hann
lifa, láttu hann bara lifa. Bóndi
skildi auðvitað, að þetta var ekki
gott ráð. En eiginlega er það sama
ráðið sem stjórnvöld í landi hér
hafa í reynd löngum hneigzt til að
hegða sér í samræmi við um rækslu
vísinda: að reyna að hlúa að þeim
greinum sem þeim sýnast fljótt
geta orðið til frálags, matar eða
söluvöru, en láta aðrar eiga sig,
þ.e. „láta þær bara lifa“ sem bezt
þær megi af sjálfum sér án þess
að.veija til þeirra öðru en því sem
einhver „þrýstingur" gerir þeim
óhjákvæmilegt. En skepna vísind-
anna er ein, og aðeins ein, og það
er tómt mál og hættulegt að vilja
rækta afturpartinn sérstaklega.
Þessi búskepna má vel heita sann-
heilög kýr, að minnsta kosti í þeim
grundvallarskilningi, að partar
hennar geta ekki dafnað né lifað
lausir frá hinum pörtunum. Hún
lifír ekki nema heil sé, allir partar
í réttu samhengi, samkvæmt al-
mennu lögmáli lífsins. Frampartur-
inn verður að fá sinn skerf af lífs-
næringu, og höfuðið með.
Höfundur er kennari í íslensku við
Háskóla íslands ogfulltrúi íhug-
og féiagsvísindadeild Vísindaráðs.
MEG frá ABET
UTAN ÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
<c§ Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
NOKOKW HVAÐ ÆTLAR
4?
flQ
CÁ
o:
%
o?
sr
ÁFENGISVARNARÁÐ
@BÚNAÐARBANKI (SLANDS
LANDSSAMBANDIÐ
GEGN
ÁFENGISBÖLINU
RAUÐI KROSSINN
UMDÆMISSTÚKA
SUÐURLANDS NR. 1
VINABÆR
PINGSTÚKA
REYKJAVÍKUR
GERA?
- Veist þú að með tilkomu bjórsins jókst heildarneysla
13-19 ára stúlkna á áfengum drykkjum um 6%?
- Veist þú að með tilkomu bjórsins jókst heildarneysla
13-19 ára drengja á áfengum drykkjum um 63%?
- Veist þú að með tilkomu bjórsins hefur upphafsaldur
áfengisneyslu lækkað með ógnvænlegum hraða?
- Veist þú að þriðja hver fjölskylda á um sárt að binda
af völdum áfengisneyslu einhvers eða einhverra í
fjölskyldunni?
- Er ekki tímabært að staldra við á Bindindisdegi
fjölskyldunnar og spyrja sig: Hvaða framtíð kýs ég
börnum minum? Hver er framtíð fjölskyldunnar?
Árleg söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar hefst á
Bindindisdegi fjölskyldunnar.
Hvernig væri að halda upp á daginn með því að
gefa andvirði einnar bjórkippu í söfnunina?
Bindindisdagur fjölskyldunnar - ekki bara í dag!
I. O. G. T.
STÓRSTÚKA ÍSLANDS
<Sír
HJALPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
UNGMENNAFÉLAG
ÍSLANDS
Nýtt tilbob í ríkisvíxla
fer fram mibvikudaginn
2. desember
Næstkomandi mibvikudag fer fram 3. tilboð í
ríkisvíxla. Um er að ræða 3. fl. 1992 í eftirfarandi
verðgildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til 3 mánaða, með gjalddaga
5. mars 1993. Þessi flokkur verður skráður á
Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki ríkisvíxlanna.
Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomu-
lagi. Lágmarkstilboð samkvæmt tilteknu tilboðs-
verði er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í meðalverð
samþykktra tilboða er 1 millj. kr.
Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum
kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt
tilteknu tilboðsverði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru
hvattir til að hafa samband við framangreinda
aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og
veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim
sjálfum heimilt ab bjóða í vegið mebalverð
samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með
fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn
2. desember. Tilboðsgögn og allar nánari
upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins /
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.
GOTT FÓLK t SlA