Morgunblaðið - 27.11.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.11.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1992 Áhrif EES-samningsins á íslenskan sjávarútveg eftir Halldór G. Eyjólfsson Mikilvægi sjávarútvegsins á ís- landi er meira en hjá flestum öðrum þjóðum. Árið 1991 nam útflutning- ur sjávarafurða 80% alls útflutnings og sama ár öfluðu sjávarafurðir 57% gjaldeyristekna þjóðarinnar. Með 57% gjaldeyristekjur af sjávar- útvegi skiptir fríverslun með físk íslensku þjóðina gríðarlega miklu. Bókun 9 við samninginn um evr- ópska efnahagssvæðið íjallar um samkomulag um viðskipti með sjáv- arafurðir og er íslendingum sérlega mikilvæg. Bókun 9 mun bæta stöðu íslenskra sjávarafurða á mörkuðum Evrópubandalagsins til muna. Markaður EB er sá mikilvægasti í dag Markaður Evrópubandalagsins fyrir íslenskar sjávarafurðir hefur aukist mjög á undanfömum ámm, einkum á kostnað Bandaríkjamark- aðs. Fyrir 10 árum, 1982, fór 31% verðmæti sjávarafurða til Banda- ríkjanna en 48% til landa EB. Árið 1991 var hutfallið þannig að 71% verðmæti afurðanna fór á markað EB en einungis 14% til Bandaríkj- anna. Markaður Evrópubandalags- ins er því orðinn mikilvægast mark- aður íslenskra sjávarafurða, 5 falt verðmeiri en Bandaríkjamarkaður. Tvær megin ástæður em fyrir þess- ari miklu breytingu. Annars vegar er það innganga Spánar og Portúg- als í Evrópubandalagið árið 1986, útflutningur til þessara þjóða í dag nemur 16% af útflutningi til EB- landa og hins vegar er það lækkun dollarans miðað við evrópskan gjaldmiðil. Ef skoðaðar era breyt- ingar Bandaríkjadollars miðað við þýskt mark kemur í ljós að á 7 áram, frá 1985 til 1991, hefur doll- arinn lækkað um 44% miðað við þýska markið. Þessi mikla lækkun dollarans hefur orðið til þess að ís- lenskur sjávarútvegur hefur þurft að leita nýrra markaða og efla þá sem betur standa. Þetta hefur ís- lenskum aðilum í sjávarútvegi tek- ist og það þrátt fyrir vemdartolla og styrkveitingar Evrópubanda- lagsins til eigin sjávarútvegs. Fleiri kostir en tollalækkanir Við upphaf samningana um evr- ópskt efnahagssvæði var stefnt að fríverslun með físk. Þessu hafnaði Evrópubandalagið alfarið. Opinber- ir styrkir verða því áfram vð lýði innan bandalagsins með sömu nei- kvæðu áhrif á sjávarútveginn hér á landi og hingað til. Fríverslun með físk fékkst sem sagt ekki og er það ósigur fyrir okkur íslend- inga. Engu að síður náðist samning- ur sem tryggir okkur niðufellingu 96% sjávarafurðatolla á markaði EB-ríkja, þar af falla 767% tollanna niður við gildistöku samningsins 1. janúar 1993. Á undanfömum áram hafa tollgreiðslur til Evrópubanda- lagsins farið vaxandi og nema nú rúmum 2 milljörðum króna á ári hveiju. Þessar tollgreiðslur hafa valdið því að íslenskar sjávarafurðir hafa ekki staðið jafnfætis í sam- keppninni. Með EES-samningnum „Með EES-samningnum verður íslendingum tryggður að stærstum hluta hindrunarlaus að- gangur að mikilvæg- asta útflutningsmark- aði okkar. Þetta er skref í rétta átt og er okkur Islendingum mjög mikilvægt." verða tollar bandalagsins ekki al- varleg viðskiptahindrun og mun þróun fiskvinnslunnar hér á landi því ekki ráðast af tollastefnu EB, heldur markaðsaðstæðum hveiju sinni. Með tilkomu EES-samnings- ins er því stigið skref í átt að hindr- unarlausum aðgangi að mikilvæg- asta útflutningsmarkaði okkar. í samningnum eru fleiri kostir en tollalækkanir. Reglur um með- ferð sjávarafla, eftirlit með fram- leiðslu og markaðssetningu þeirra verða þær sömu fyrir EES-svæðið. Þetta hefur mikla þýðingu fyrir ís- lensk fyrirtæki sem ekki verða háð leyfum Evrópubandalagsins til að fá að selja sjávarafurðir innan þess. Reglumar munu því auðvelda að- gang íslenskra sjávarafurða að mörkuðum EB og um leið verða kostnaðarminni fyrir íslensku fyrir- tækin. Samningurinn felur einnig í sér að erlendum aðilum er óheimilt að íjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. Otti við að erlendir aðilar eignist íslenska útgerð og framvinnslu er því ástæðulaus. EES-samningurinn er áfangasigur en ekki fullnaðarsigur Með EESsamningnum hefur áfangasigur náðst en ekki fullnað- arsigur. Ýmsar afurðir hafa enn talsverðan toll, t.d. saltsíld, og aðr- ar afurðir hafa einnig toll sem skipt- ir máli í harðri samkeppni. Mikil- vægt er að barist verði áfram fyrir fullri fríverslun með fisk og „fimmta frelsið", fríverslun með sjávarafurðir, verði að veraleika. Það hlýtur að vera sanngimi og réttlætismál fyrir íslendinga að meðan Evrópubandalagið hefur frí- verslun fyrir sínar iðnaðarvörar til íslands að það sama gildi fyrir ís- lenskar „iðnaðarvörar", sjávaraf- urðir, til Evrópubandalagsins. Mik- iívægt er að Evrópubandalagið láti af öllum verndartollum og ríkis- styrkjum til sjávarútvegsins, sem í dag nema gífurlegum fjárhæðum. Ef íslenskum sjávarútvegi væri veittur samsvarandi styrkur næmi hann 17 milljörðum á ári. Þetta era Menntun í sjávarútvegi EFNA- HORNIÐ Ódýr vefnaðarvara Ný sending frá París Tískuefni í hvers konar fatnað á ótrúlegu verði Sendum í póstkröfu EFNAHORNIÐ Ármúla 4 - s: 813320 opió 10-18 laugardaga 10-12 eftirJón Þórðarson Menntun á fyrst og fremst að búa einstaklingana undir líf og starf í þjóðfélaginu, og sérhvert þjóðfélag miðar menntun þegna sinna að ein- hveiju marki við þær þarfir sem fyrir hendi era. íslenskt þjóðfélag hefur fram á þennan dag ekki lagt sérstaka áherslu á að mennt þegna sína fyrir störf á sjávarútvegi eða hvetja hina hæfustu til að leita sér framtíðar í þeirri atvinnugrein. íslenskt þjóðfélag hampar ekki þeim sem hafa valið sér lífsstörf í framframleiðslugreinunum að með menntun sinni. Af og til mætti ætla að þetta væra nánast meindýr með þjóðinni, samanber ummæli ýmissa áhrifamanna í þjóðfélaginu um fiskifræðinga síðastliðið haust. Þykir einhveijum trúlegt að umræð- an verki hvetjandi á hið besta af okkar unga fólki að velja sér fram- tíð í fiskifræðinni? Aftur á móti er menningarsnobb- ið og íþróttaremban á svo háu stigi að ætla að mætti að þar sé hin ei- lífa sæla fyrir ungt fólk í leit að framtíðarstörfum. Fjöldi þeirra sem sækir í listgreinar er ekki í neinu samhengi við íslenskt þjóðfélag eða þann markað sem hér er en allt þetta unga fólk virðist trúa því að þess bíði lifíbrauð við listsköpun, ef ekki hér heima þá a.m.k. erlend- is. Tökum sem dæmi að ef eitthvað af okkar ágæta tónlistarfólki fær vinnu að loknu námi erlendis þá er það umsvifalaust frétt í aðalfrétta- tíma ríkissjónvarpsins og ef það er nú ráðið lengur en í viku þá er ein- att gerður sérstakur þáttur um við- komandi. Hvenær var seinast frétt um að einhver hefði lokið prófi í fískifræði og fengið vinnu við hæfí, eða þá í einhveiju öðru tengdu sjáv- arútvegi? Ég minnist þess ekki að hafa sér hvetjandi frétt í sjónvarpi eða orðið var við hana í öðrum fjöl- miðlum, frétt sem draga mætti af þann lærdóm að atvinnugreinin sjávarútvegur væri eitthvað sem ungt fólk ætti að velja sér sem framtíð. Nú er það alls ekki svo að fjöl- miðlum verði eingöngu kennt um hina neikvæðu ímynd sjávarútvegs- ins. Þeir endurspegla líklega þá umræðu sem fer fram í þjóðfélaginu og ekki síst þá mynd sem talsmenn sjávarútvegsins gefa. af greininni. Það er nefnilega alls ekki svo að talsmenn hagsmunasamtaka og stofnana í sjávarútvegi séu sérlega jákvæðir í umfjöllun sinni útávið. Ef taka ætti púlsinn á atvinnugrein- inni eftir málflutningi hagsmuna- samtakanna mætti ætla að stjóm- völd á íslandi og önnur hagsmuna- samtök hefðust það helst að að reyna að klekkja á sjávarútvegin- um. Nú í seinni tíð heyrist þó minnst á að fyrst og fremst þurfi að taka á vandamálunum með beitingu skipulegra vinnubragða innan at- vinnugreinarinnar og kannski sér í lagi innan einstakra fyrirtækja. Óðurinn til fáfræðinnar er þrátt fyrir allt á undanhaldi. Sjávarútvegurinn er ein grein matvælaframleiðslu í heiminum. Jón Þórðarson „Það skiptir því höfuð- máli að við séum sam- keppnisfær á matvæla- mörkuðum heimsins í framtíðinni. Til að svo megi verða þurfum við að auka þekkingu okk- ar og verða skrefi á undan keppinautun- um.“ Okkur íslendingum gengur oft erf- iðlega að átta okkur á því að við eram fyrst og fremst matvælafram- leiðendur og lútum þar sömu lög- málum og aðrir sem selja matvæli á alþjóðlegum markaði. Við höfum fram á þennan dag verið mest upp- tekin af hráefnisöfluninni eða fisk- veiðunum. Þar hafa líka verið mest- ir möguleikar á góðum tekjum og jafnvel að komast í talsverð efni á stuttum tíma. Tekjur af sjávarútvegi koma ekki til með að aukast á næstu áram vegna aflaaukningar, flest bendir raunar til þess að botnfiskafli muni dragast saman fram yfír aldamót. Auknar tekjur fást því eingöngu með hærra verði fyrir þann afla sem Halldór G. Eyjólfsson miklir fjármunir og á meðan þessir styrkir era við líði mun sjávarútveg- urinn í EB hafa forskot á íslenskan sjávarútveg. Niðurfelling 96% sjáv- arafurðatolla er því einungis mikil- vægur áfangasigur í 'baráttunni fyrir fríverslun með físk. Lokaorð Með EES-samningnum verður íslendingum tryggður að stærstum hluta hindranarlaus aðgangur að mikilvægasta útflutningsmarkaði okkar. Þetta er skref í rétta átt og er okkur íslendingum mjög mikil- vægt. Ef íslendingar staðfesta ekki samninginn á sama hátt og Norð- menn hafa gert er hætta á að af- koma sjávarútvegsins versni til muna. Höfundur er starfsmaður samstarfsnefndar atvinnurekenda í sjávarútvegi. við höfum. Til að svo megi verða þarf að stórauka tengsl framleiðslu- fyrirtækjanna við markaðinn. Þeir sem vinna í framleiðslunni þurfa að fá miklu meiri þekkingu á því efni sem þeir hafa í höndunum og þeim möguleikum sem markaðirnir bjóða uppá á hveijum tíma. Þróun- arvinna þarf að verða eðlilegur hluti af starfsemi hvers fyrirtækis. Það hlýtur að vera höfuðmark- mið fyrir íslenskan sjávarútveg að hámarka arðsemi auðlindarinnar á hveijum tíma miðað við ríkjandi ytri aðstæður. Til að ná hámarks arðsemi þarf að beita skipulögðum vinnubrögðum á grundvelli þekk- ingar á viðfangsefninu. Eða með öðram orðum: Við þurfum að auka þekkingu okkar á öllum stigum frá auðlindinni (físki og dýrastofnum í sjó) til neytandans sem að endingu greiðir fyrir framleiðsluna frá okk- ur. Þetta gerist einungis ef íslensk- ur sjávarútvegur kemst á sama þekkingarstig og þeir sem við eig- um viðskipti við og eram í sam- keppni við. Það er ekki einungis þörf fyrir marga sjávarútvegsfræð- inga með alhliða menntun í grein- inni, það er einnig þörf fyrir mat- vælafræðinga, verkfræðinga og aðra sérfræðinga. Ef við berum okkur saman við keppinautana, t.d. stóra matvælarisana í Evrópu, og skoðum hvað þeir era með hátt hlut- fall af tækni- og háskólamenntuðu fólki í sinni þjónustu, þá kemur í ljós að það er að minnsta kosti u.þ.b. 10-20% af mannafla. Til að standa jafnfætis þarf íslenskur sjávarút- vegur að fá 1.000 til 2.000 tækni- og háskólamenntaða starfsmenn á næstu árum. Ekkert bendir til þess nú að ein- hver arftaki sjávarútvegsins sem helstu fyrirvinnu þjóðarinnar sé á næsta leiti. Það skiptir því höfuð- máli að við séum samkeppnisfær á matvælamörkuðum heimsins í framtíðinni. Til að svo megi verða þurfum við að auka þekkingu okkar og verða skrefi á undan keppinaut- unum. Ungt fólk þarf að fá hvatn- ingu til að velja sér framtíð í sjávar- útvegi. Okkar landslið nr. 1. á að vera í sjávarútveginum. Höfundur er forstöðumaður sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.