Morgunblaðið - 05.01.1993, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.01.1993, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993 Hækkun á leigu- bflum yfírvofandi FRAMI, félag leigabílstjóra, hef- ur sótt um leyfi til gjaldskrár- hækkunar til verðlagsstjóra. Umsóknin hefur ekki verið af- greidd, en gæti orðið um 4-5 prósent. Sigfús Bjarnason for- Dómí í kókaín- máli áfrýjað STEINN Ármann Stefánsson, sem var dæmdur fyrir að hafa flutt inn til landsins í söluskyni 1,2 kíló af kókaíni, hefur áfrýjað dóminum til Hæstaréttar. Steinn Ármann var sakfelldur fyrir öll ákæruatriði í héraðsdómi, þ. á m. ofsaakstur sem hafði í för með sér almannahættu og leiddi til stórfellds heilsutjóns lögreglu- manns og að leggja til Iögreglu- manns með skærum. Hann hlaut þyngsta dóm, sem kveðinn hefur verið upp í fíkniefnamáli hér á landi, eða sjö ár. maður Frama segir hækkun óhjákvæmilega vegna aðfanga- hækkana, sem mest stafi af opin- berum álögum. í samtali við Morgunblaðið sagði Sigfús að leigubílstjórum þætti leitt að fara fram á gjaldskrárhækkun, en þeir sæju enga aðra leið. Bensín hefði hækkað um sautján prósent á árinu, en helmingur bflanna gengi fyrir bensíni. Hinn helmingurinn gengur fyrir díselolíu. Á henni hvíl- ir þungaskattur, sem hefur hækkað um sjö prósent. Sigfús sagði að mestu munaði um hækkanir á nýjum bflum vegna efnahagsaðgerða hér, gengislækk- unar og verðbólgu erlendis. Á móti kæmi þó að aðstöðugjald hefði ver- ið fellt niður. Það næmi um átján þúsund krónum árlega á bfl og vægi ekki þungt. Hann sagði að hækkunin væri ekki endanlega ákveðin, en hún yrði líklega í kring- um ijögur prósent. Aðeins hefði verið sótt um til verðlagsstjóra, sem síðan skæri úr um málið. MorgunDiaoid/lngvar Beltin björgnðu Annar bílanna úr árekstrinum í Hrútafirði. Báðir bíl- arnir eru gjörónýtir eftir áreksturinn og þótti mesta mildi að ekki skyldi fara verr. Það er rakið til þess að ökumenn og farþegar voru allir með öryggisbelti. Efri myndin sýnir er þyrlan kemur með ökumann og farþega úr öðrum bílnum á Borgarspítalann. Morgunblaðið/Magnús Gíslason VEÐUR 1/EÐURHORFUR I DAG, 31. DESEMBER YFIRUT: Sunnan af Jan Mayen er 960 mb lægð og hreyfist hún norð- norðaustur, en langt suðsuðvestan í hafi er vaxandi 975 mb djúp lægð og hreyfist hún norðaustur í stefnu ó Færeyjar. ( nótt myndast dáiítil kuldahæð yfir landinu. SPA: Á morgun verður hæglætisveður á landinu víðast hvar. Yfirleitt bjartviðri og talsvert frost, einkanlega inn til landsins. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðaustanótt, sumstaðar nokkuð hvöss. Slydda eða snjókoma sunnan- og vestanlands en úrkomulítiö norðaustan til. Hiti 0—4 stig. HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðlæg átt, víða hvöss, eínkum um landið norðanvert. Éljagangur noröanlands en víða léttskýjað sunnan til. Frost 2-6 stig á fímmtudaginn en 5-12 stig á föstudag. Nýir veðurfregnatfmar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30.Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað r r r * / * r r * r r r r r * r Rigning Slydda Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V V Skúrír Slydduél * * * * * * * * Snjókoma V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka ítig-. FÆRÐA VEGUM: oa 17.30 ígæri Fært er um vegí í nógrenni Reykjavíkur. Um Suðurnes, Hellisheiði og Þrengsli. Vegir á Suðurlandi eru flestir færir og fært með Suðurströnd- inni til Austfjarða en þar eru flestir vegir færir. Fært er fyrir HvalfjÖrð og um vegi ( Borgarfirði og Snæfellsnesi. Einnig er fært í Dalasýslu um Heydal og til Reykhóla. Brattabrekka er ófær. Frá Brjánslæk er fært til Patreksfjarðar og þaðan til Bíldudals. Þá er rært á milli Þingeyrar og Flateyrar en Breiðdals- og Botnsheiðar ófærar. Ráðgert er að moka þær á morgun. Fært er um Holtavörðuheiði og til Hólmavíkur og þaðan áfram til ísafjarðar og Bolungarvikur. Vegir á Norðurlandi eru flestir færir. Svo sem til Siglufjarðar, Akureyrar og Olafsfjaröar. Einnig um Þingeyjarsýslur í Mývatnssveit og einnig með ströndinni til Vopnafjaröar. Víða er hálka á vegum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veöur AKureyri +6 snjóél Reykjavík +4 snjóél Bergen 1 alskýjað Helsinki +1 heiöskfrt Kaupmanrvahöfn +1 iéttskýjaö Narssarssuaq +22 iéttskýjað Nuuk vantar Ostó +1 skýjað Stokkhölmur +1 heiðskírt Þórshöfn 6 skúr Afgarve 12 skýjaS Amsterdam +4 mistur Barcelona 7 mistur Berlín 10 mistur Chicago 7 rigning Feneyjar 2 heiöskírt Frankfurt +6 skýjaö Glasgow 7 skýjaö Hamborg +7 mistur London 4 þokumoða LosAngeles 6 léttskýjaö Lúxemborg +7 skýjað Madríd 1 þokumóða Malaga 14 heiðskírt Mallorca 11 léttskýjað Montreal 1 rigníng NewYork vantar Oriando vantar Paris vantar Madelra vantar Róm vantar Vín +4 heiðskfrt Washington 7 léttskýjað Winnipeg +27 heiðskírt IDAG kl. 12.00 Heimtld: Veðurstofa fslands (Byðgf ú veðurapá kl. 16.15 í gær) Fimm slösuðust í hörðum árekstri FIMM slösuðust, þar af tveir alvarlega, þegar tveir fólksbílar skullu saman í Hrútafirði, á móts við Reykjaskóla, á laugardag. Maður og kona, sem slösuðust mest, voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunn- ar á Borgarspítalann í Reykjavík, þar sem þau gengust undir að- gerð. Þau voru talin úr lífshættu, samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Blönduósi. Slysið varð um kl. 15.30 á laug- ardag. Éljagangur var og hálka þar sem bílarnir tveir mættust, en ekki er vitað nánar um tildrög slyssins að svo stöddu. Þrír voru í öðrum bílnum, en tveir í hinum og slösuð- ust allir. Áreksturinn var mjög harður. Ökumaður og farþegi úr öðrum bílnum, maður og kona, slös- uðust alvarlega, ökumaðurinn hlaut m.a. höfuðmeiðsli og fótbrot, en farþeginn var með innvortis blæð- ingar. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á slysstað og hélt þaðan með hina slösuðu kl. 17.15 áleiðis á Borgarspítalann. Hinir þrír voru fluttir á sjúkrahúsið á Hvamms- tanga. Einn var handleggsbrotinn og nefbrotinn og fékk að fara heim eftir að gert hafði verið að meiðsl- unum. Hinir tveir voru síðar sendir til Reykjavíkur með sjúkrabifreið, þar sem gert var að beinbrotum þeirra. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Blönduósi voru ökumenn og farþegar í báðum bílunum með öryggisbelti og hefði annars farið mun verr. Báðir bílarnir eru gjör- ónýtir. Annað óhapp átti sér stað á slys- staðnum, þegar jeppa var ekið aftan á vörubíl, sem hafði stöðvað vegna slyssins. Engin meiðsli urðu á fólki, en jeppinn stórskemmdist. Frumraun Kristjáns í Vínaróperunni Syngur í tveimur sýningum á Toscu KRISTJÁN Jóhannsson þreytti í gærkvöldi frumraun sína í Vínaró- perunni. Þar söng hann hlutverk Cavaradossis í Toscu eftir Pucc- ini. Seinni sýningin af tveimur fyrirhuguðum verður 9. janúar. í öðrum aðalhlutverkum eru ít- fer með hlutverk Scarpia. Báðir alska söngkonana Mara Zampieri, þessir söngvarar eru vel kunnir sem fer með hlutverk Toscu og og hafa um árabil sungið við helstú Juan Pons frá Puerto Rico, sem óperuhús heims. Innláii hjá sparisjóð- unum jukust um 9% INNLÁN hjá sparisjóðunum jukust að meðaltali um 9% á síðasta ári og um 9,8% þegar verðbréfaútgáfa var talin með. Mesta inn- lánaaukningin var hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, 14,9% með verðbréfum. Að sögn Baldvins Tryggvasonar sparisjóðsstjóra SPRON nam inn- lánaaukning sjóðsins 13,4% en 14,9% með verðbréfum. Innlán með verðbréfaútgáfu jukust um 13,1% hjá Sparisjóði vélstjóra, um 11,3% hjá Sparisjóði Hafnarfjarð- ar, um 6,6% hjá Sparisjóði Kefla- víkur og um 5,3% hjá Sparisjóði Mýrasýslu. Útlánaaukning SPRON nam 7,7% á árinu, að sögn Baldvins, en hann hafði ekki handbærar tölur frá öðrum sparisjóðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.