Morgunblaðið - 05.01.1993, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993
49
Nafn Islands
Frá Jóni Magnússyni:
Ekki er ástæða til þess að amast
við því, að enskumælandi þjóðir
noti nafið Iceland um landið okkar.
En þegar íslendingar sjálfir kalla
landið sitt því nafni er of langt
gengið. En hvers vegna enska heit-
ið? Eru ekki danska, norska og
sænska heitið (Island,) eða franska
(Islande), þýzka (Island) eða
spænska (Islandia) eins góð? Ég
fínn ekki að því, að útlendingar
nefni landið okkar, hver á sinni
tungu eftir sinni siðvenju, eins og
við nefnum þeirra lönd á okkar
tungu eftir okkar siðvenju. En þeg-
ar íslenzkir íþróttamenn ganga inn
á íþróttaleikvang Ólympíuleika í
búningum merktum „Iceland“, eins
og sást í sjónvarpinu á dögunum,
er alltof langt gengið. Hvergi mun
vera til land með því nafni, byggt
fullvalda þjóð. Hvers vegna merkja
„strákana okkar“ landi, sem ekki
er til? Og þó að enskir þýði nafn
landsins okkar á sína tungu, er það
ekki vegna þess, að þeir geti ekki
borið það fram á íslenzku. Þess eru
ótal dæmi í ensku, að bókstafímir
Is séu bomir fram eins og þeir em
skrifaðir. Ekki er heiti trúarbragð-
anna borið fram „ælam“ á ensku,
þó að það sé ritað Islam. Og þótt
island sé borið fram æland á ensku,
í merkingunni eyja, og þó að Ísland
sé eyja, er það ekki afsökun fyrir
því að kalla landið Iceland. En látum
þá ensku um það. Hitt vil ég árétta,
að það nær engri átt að íslendingar
sjálfir kalli landið sitt Iceland, og
með öllu óskiljanlegt að þeir, sem
telja sig vera í forustu um þjóðemis-
legan metnað íslendinga skuli
ganga fram í því. Ef stolt þeirra
er ekki meira en það, að þeir telji
við hæfí að merkja íslenzka íþrótta-
menn landi, sem ekki er til, er illa
farið. Það sæmir okkur ekki, sem
frjálsri og fullvalda þjóð, að nota
enskt heiti um fóstuijörðina. Hætt-
um því. Berum nafn gamla Fróns,
ísland, með stolti.
JÓN MAGNÚSSON,
Bókhlöðustíg 7,
Stykkishólmi
Pennavinir
Frá írlandi skrifar 38 ára tékk-
nesk kona, þýðandi og tónlistar-
kennari, sem þar er búsett. Auk
annarra margvíslegra áhugamála
kveðst hana langa til að heimsækja
ísland:
Vera Taslova,
5 Loreto Crescent,
Rathfarnham,
Dublin 14,
Ireland.
LEIÐRÉTTINGAR
2.983 börn fædd-
ust 1992
í frétt blaðsins sunnudaginn 3.
janúar sl. var sagt að 2.913 böm
hefðu fæðst á árinu 1992 en hið
rétta er að fæðingamar vom 2.913
en börnin urðu alls 2.983 talsins.
Nafn gagnrýn-
anda féll niður
Þau mistök urðu í Morgunblaðinu
sl. sunnudag að nafn Ragnars
Björnssonar féll niður með gagn-
rýni hans um Drengjakór Laugar-
neskirkju. Hlutaðeigandi em beðnir
velvirðingar á mistökunum.
VELVAKANDI
PENNI-
HANSKAR
PENNI og loðfóðraðir hanskar
fundust fyrir jól í verslunini
Búsáhöld og leikföng í Hafnar-
firði. Upplýsingar í síma 50919.
ÓRÉTTMÆTUR
SKATTAAF-
SLÁTTUR
Konráð Friðfinnsson, Þórhóls-
götu la, Neskaupstað:
AUGLÝSINGAR í Sjónvarpi þar
sem fjármagnsfvrirtæki buðu
skattaafslátt vöktu athygli um
áramótin. Boðinn var afsláttur
allt að 200 þúsund krónur
o.s.frv. Mér fínnst þetta vera
svolítið einkennilegt að tímum
niðurskurðar að það sé hægt að
fá skattaafslátt bara fyrir það
að kaupa þetta eða hitt bréfíð.
Gera menn sér ekki grein fyrir
af hveiju niðurskurður ríkis-
stjórnarinnar stafar - hann staf-
ar einfaldlega af því að ríkissjóð-
ur hefur ekki peninga til þess
sem fólkið væntir af honum.
Þetta er eitt af meinunum í dag
- að keisarinn fær ekki það sem
honum ber frá fólkinu. Það er
orðið meira en nauðsynlegt að
Alþingi og stjórnvöld taki af
skarið og hætti að veita svona
afslátt. Það getur verið að réttl-
átt að veita skattaafslátt en þá
verður líka að vera um áhættu
að ræða en ekki gulltrygg bréf.
Þetta ættu menn að hugleiða í
fullri alvöm.
STÍGVÉL
GALLONSTÍGVÉL voru tekin í
dagvist Sjálfsbjargar fyrir jól en
leðurstígvél skilin eftir. Sá sem
stígvélin tók er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 12720.
JAKKI
UNGUR námsmaður varð fyrir
því að tapa leðuijakka aðfara-
nótt sunnudagsins 27. desember
í miðbæ Reykjavíkur, líklega í
grennd við Bíóbarinn við Hverf-
isgötu. Jakkinn er dökkbrúnn
með óvenjulegu sniði (kóresk
framleiðsla). I vösum jakkans
vour tvær minnisbækur, bók á
japönsku, sólgleraugu o. fl. Ef
einhver veit um þennan jakka,
vinsamlegast hringið í síma
43513.
STUTTBUXUR
RAUÐAR terlín stuttbuxur
töpuðust frá Norðurbrún í
Reykjavík að Laugardalslaug
eða á leið þaðan í Garðabæ.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 656544.
SIGUNGASKOUNN
Námskeið til
30 TONNA RÉTTINDA
hefst 11. janúar og lýkur í byrjun mars.
Kennsla fer fram mánudags- og
miðvikudagskvöld kl. 19.00 - 23.00.
Námskeið til
HAFSIGLINGA
(Yachtmaster Offshore)
hefst 12. janúar og lýkur 4. mars.
Kennt þriðjudags- og fimmtudagskvöld kl. 19.00 - 23.00
Innritun á sumarnámskeiö í skútusiglingum
er hafin svo og skútusiglinganámskeiö
Siglingaskólans iEyjahafinu (milli Grikklands
og Tyrklands - paradís siglingamanna) með
bækistöð í Marmaris í Tyrklandi.
Lýsing á öllum námskeiöum sem skólinn
býður er send þeim sem þess óska.
Upplýsingar og innritun í
síma 91-68 98 85 og 31092
SIGUNGASKÓLINN LíGMúm 7
-meölimur I Alþjóöasambandi siglingaskóla (ISSA) miSmm
Námsstyrkir
M ENNTABRAUT
Námsmannaþjótiusta íslandsbanka
íslandsbanki mun í tengslum við Menntabraut,
námsmannaþjónustu íslandsbanka,
veita sjö námsstyrki á árinu 1993.
Námsstyrkirnir veröa veittir í apríl og er hver þeirra
að upphæð 100.000 kr. Allir námsmenn,
18 ára og eldri, geta sótt um styrkina, hvort sem
þeir erut námi hér á landi eða erlendis.
Styrkirnir eru óháðir skólum og námsgreinum.
í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um
nafn, heimili, símanúmer, námsferil og
framtíöaráform í stuttu máli.
Umsóknir skal senda til:
íslandsbanki hf.
Markaösdeild (Námsstyrkir)
Kringlunni 7
155 Reykjavík
< Umsóknarfrestur er til 15. mars 1993
x
<
CD
tfí
o
z
w
o
Ul
o
I ÍSLAN DSBAN Kl