Morgunblaðið - 20.04.1993, Síða 2
2
táORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
Ekið á miklum hraða á kyrrstæðan bíl í gærkvöldi
Morgunblaðið/Sverrir
Onýtur eftir ákeyrslu
FÍAT Uno bíllinn er talinn ónýtur eftír að amerískum bíl var ekið á miklum hraða aftan á hann.
Handteknir á hlaup-
um við Hverfisgötu
TVEIR menn, sem voru í bíl sem ekið var á miklum hraða
aftan á kyrrstæða bifreið á Hverfisgötu í gærkvöldi, voru
handteknir er þeir reyndu að forða sér á hlaupum undan
lögreglunni. Mennirnir, sem hafa oft áður komið við sögu
lögreglunnar, voru fluttir á slysadeild þar sem blóðsýni
voru tekin úr þeim, en þeir eru grunaðir um að hafa ekið
undir áhrifum áfengis.
Lögreglunni barst tilkynning
laust fyrir kl. 21 í gærkvöldi um
að amerískum bíl, í eigu annars
mannsins, hefði verið ekið á
miklum hraða aftan á kyrrstæða
bifreið á móts við Hverfísgötu
103. Bíllinn, sem ekið var á, er
af gerðinni Fiat Uno.
Fíatinn ónýtur
Lögregla kom fljótt á staðinn
og náði að handsama mennina
er þeir reyndu að forða sér á
hlaupum. Fíatbíllinn er talinn
ónýtur.
Mennirnir eru báðir vistaðir í
fangageymslum lögreglu.
Sjónarvottar voru að árekstrin-
um, en málið er ekki að fullu
upplýst, að sögn aðalvarðstjóra
lögreglunnar í Reykjavík.
Endurfjármögnun verksmiðju Islenzka járnblendifélagsins á Grundartanga
Háskólaráð frest-
ar styrkveitingu til
Félagsstofnunar
HÁSKÓLARÁÐ afgreiddi síðastliðinn fimmtudag áætlun um
ráðstöfun happdrættisfjár Háskólans, með þeirri undantekn-
ingu að ákvörðun um styrkveitingu til Félagsstofnunar stúd-
enta var frestað. Ráðið samþykkti að óska eftir greinargerð
um fjárreiður stofnunarinnar. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins komu fram á fundi Háskólaráðs áhyggjur af
skyndilegri brottvikningu framkvæmdasljóra FS, en meiri-
hluti Röskvumanna í stjórn fyrirtækisins hefur sagt honum
upp störfum og óskað þess að hann vinni ekki út umsaminn
uppsagnarfrest.
Að sögn Sveinbjöms Bjömsson-
ar, rektors Háskóla íslands, var
rætt um að veita FS fimm milljóna
króna styrk á þessu ári til bygging-
ar stúdentagarða. Samþykkt styrk-
veitingarinnar var frestað vegna
þess að á fundi Háskólaráðs var
óskað eftir að „ráðinu berist grein-
argerð um fjárreiður, tekju- og
greiðsluáætlun Félagsstofnunar."
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins komu fram á fund-
inum áhyggjur sumra fulltrúa í
Háskólaráði af skyndilegri uppsögn
Amars Þórissonar, framkvæmda-
stjóra Félagsstofnunar stúdenta, en
Röskvumenn sögðu honum upp síð-
astliðinn fimmtudag, meðal annars
vegna hugmyndafræðilegs ágrein-
ings um rekstur fyrirtækisins, eins
og það var orðað. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins er upp-
sagnarfrestur Arnars samkvæmt
ráðningarsamningi eitt ár, en meiri-
hluti Röskvumanna í stjórn FS ósk-
aði eftir því að hann hætti þegar
störfum hjá fyrirtækinu. Meðal
annars var rætt í Háskólaráði
hversu hár biðlaunareikningur
stofnunarinnar yrði af þessum sök-
um.
Ekkí frekari mannabreytingar
Meirihluti stjómar Félags-
stofnunar stúdenta hélt í gær fund
með starfsfólki fyrirtækisins. Að
sögn Helgu Magnúsdóttur, for-
manns starfsmannafélags FS, var
þar greint frá uppsögn fram-
kvæmdastjórans og jafnframt að
ekki væm aðrar mannabreytingar
fyrirhugaðar hjá fyrirtækinu.
Hrafnhildur Jónsdóttir
Lést eftir
bílveltu
TVÍTUG stúlka, Hrafnhildur
Jónsdóttir, lést þegar bíll sem
hún var farþegi í valt á veginum
skammt sunnan við Sauðárkrók,
aðfaranótt sunnudagsins.
Bíllinn, sem var Subaru, var á
leið í átt að Sauðárkróki. í honum
vom þrír farþegar, auk ökumanns.
Þegar bíllinn valt kastaðist stúlkan
út úr honum og er talið að hún
hafí látist samstundis, að sögn lög-
reglu. Ökumaður og hinir farþeg-
amir tveir sluppu ómeiddir að kalla.
Að sögn lögreglu benda ummerki á
vettvangi til þess að bílnum hafí
verið ekið greitt.
Hrafnhildur Jónsdöttir var til
heimilis í foreldrahúsum á Víði-
gmnd 26, Sauðárkróki. Hún var
fædd 1. júní 1972.
Elkem reiðubúið að taka
þátt í hlutafjárauknmgu
NORSKA fyrirtækið Elkem, sem á 30% hlut í íslenzka járn-
blendifélaginu, hefur gefið íslenzkum stjórnvöldum vilyrði
fyrir því að taka þátt í hlutafjáraukningu í félaginu. Talið
er að auka þurfi hlutaféð um 560 milljónir króna til að
tryggja rekstur Járnblendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga, en ekki er ljóst hvort Elkem er tilbúið að leggja
fram 30% skerf af þeirri upphæð.
Jámblendiverksmiðjan er að 55%
í eigu íslenzka ríkisins, að 30% í
eigu Elkem og japanska fyrirtækið
Sumitomo á 15% hlut. Reksturinn
hefur gengið mjög illa undanfarin
ár vegna lágs verðs á kísiljámi á
heimsmarkaði. Tap á rekstri verk-
smiðjunnar varð 600 milljónir á síð-
asta ári og 487 milljónir árið þar á
undan. í lok síðasta árs varð ríkis-
sjóður að lána verksmiðjunni 100
milljónir króna til að hún gæti stað-
ið í skilum.
Bætt afkoma á þessu ári
að fínna fjárhagsgrundvöll og þar væri í sölumálum verksmiðjunnar
með rekstrargrundvöll fyrir fyrir- og sennilega myndu Kínveijar
tækið.“ draga úr undirboðum sínum á Jap-
Jón sagði að heldur bjartara útlit ansmarkaði.
Hlíf samþykkti samninga í álverinu
102 sögðu já en
45 voru á mótí
í dag
Eðlileg afgreiðsla___________
Knútur Hallsson fyrrverandi ráðu-
neytisstjóri segir að bréf sitt til
Norræna kvikmyndasjóðsins hafí
verið eðlileg afgreiðsla 22
Endurreisnarbanki Evrópu
Mörg aðildarríki vilja losna við for-
seia bankastjórnarinnar 27
Umhverfismál
Hreinsistöðin hf. hefur eyðingu á
framköllunarefnum 30
Leiðari
íþróttir
► ÍR og FH mætast í undanúr-
slitum í handknattleik. Bjarni
Friðriksson kvaddi með 15.
Ríkissjóður og kjarasamningar sigrinum í röð. Einvígi Manc-
26 hester United og Aston Villa.
Reksturinn hefur gengið betur á
þessu ári eftir uppsagnir um 40
starfsmanna og harðar sparnaðar-
aðgerðir og sýnir verksmiðjan lítils
háttar hagnað á fyrsta þriðjungi
ársins. Stjómendur Járnblendifé-
lagsins telja að 560 milljóna króna
hlutafjáraukningu þurfi til þess að
halda megi rekstri fyrirtækisins
gangandi miðað við óbreyttar að-
stæður næstu tvö árin.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
sagðist í samtali við Morgunblaðið
fagna bréfi því, sem borizt hefði frá
Elkem varðandi hlutafjáraukningu,
en vildi ekki ræða efnisatriði þess
frekar. Sumitomo, hinn japanski
eigandi, hefur áður gefíð afsvar um
hlutafjáraukningu. Aðspurður
hvort svar Elkem gæti ýtt undir
þátttöku Sumitomo í hlutafjáraukn-
ingu, sagði Jón: „Ekki ætti það að
hindra það. Á grundvelli þessa svars
verður nú haldið áfram að reyna
FÉLAGAR tíu verkalýðsfélaga sem starfa í álverinu í Straums-
vík samþykktu nýgerðan kjarasanming við Vinnuveitenda-
sambandið og ISÁL í atkvæðagreiðslu sem fram fór í gær.
102 verkamenn Hlífar í Hafnarfirði samþykktu samninginn
en 45 voru á móti, tveir atkvæðaseðlar voru auðir og ógild-
ir. Af um 500 starfsmönnum álversins eru nokkuð á þriðja
hundrað félagsmenn í Hlíf og sagði Sigurður T. Sigurðsson,
formaður félagsins, að sér hefði þótt eðlilegt að þátttakan
yrði meiri i jafn alvarlegu máli. Fundir voru haldnir í öllum
tíu verkalýðsfélögum starfsmanna álversins í gær þar sem
samningarnir voru samþykktir með miklum mun.
Þessi félög eru auk Hlífar Félag
járniðnaðarmanna, Félag bygging-
ariðnaðarmanna, Félag rafeinda-
virkja, Félag blikksmiða, Félag raf-
virkja, Verkakvennafélagið Framtíð-
in, Félag matreiðslumanna, Verslun-
armannafélag Hafnarfjarðar og Fé-
lag málmiðnaðarmanna.
Sigurður sagðist ekki vera
ánægður með þessa kjarasamninga
en þessari lotu væri nú lokið. „Þetta
er samningur sem var gerður í al-
gerri varnarstöðu og ef hann hefði
verið felldur hefði verið boðað til
vinnustöðvunar eins og verkamenn
hjá ÍSAL höfðu ákveðið fyrir
skömmu,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að ef samningurinn
hefði verið felldur hefði stjórn og
trúnaðarmannaráð strax í gærkvöldi
tekið ákvörðun um vinnustöðvun 1.
maí og sent VSÍ og stjórn ÍSAL til-
kynningu um það í dag.
I