Morgunblaðið - 20.04.1993, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
Samdráttur í sölu
áfengis og tóbaks
SAMDRÁTTUR varð í sölu áfengis og tóbaks fyrstu þrjá
mánuði ársins, miðað við sama tíma í fyrra. Heildarsaia
áfengis nam 1.500.888 lítrum eða 172.757 alkóhóllítrum
og er þá bjór meðtalinn. Samdrátturinn frá 1992 nemur
5,43% í lítrum og 8,64% í alkóhóllítrum.
Heildarsala nef- og munntóbaks
nam 3.228 kílóum, sem er 4,79%
minna en fyrstu þijá mánuðina í
fyrra. Af reyktóbaki seldust 3.261
kíló, sem er 13,94% minna en í
fyrra.
áfengis og tóbaks, sem áhafnir
skipa og flugvéla flytja inn í land-
ið, eða þess magns, sem ferða-
menn taka með sér frá útlöndum
eða kaupa í fríhöfn.
Minna selt af áfengi og tóbaki
Breytingar í söiu
ÁTVR á tóbaki
og áfengi
-8,74%
Sterkir
drykkir
-11,63%
fyrstu þrjá
mán.1992
og 1993 '7'42%
-8,91%
-13,94%
Létt vín
Bjór
Portvín, sérrí o.fl
Sterkir drykkir
Áfengi,
Nef- og
munntóbak
Vindlar
Vindlingar
Reyktóbak
Selt magn af
meginfiokkum
áfengis í
aikóhóliítrum
fyrstu þrjá mán.
1992 og 1993
Létt vín
-----— 20
Portvín,
serrí o.fl.
'92 ’93 ’92 '93 ’92 '93 ’92 '93
Knútur Hallsson um bréf sitt til Norræna kvikmyndasjóðsins vegna Hinna helgu véa
Fullkomlega eðlileg afgreiðsla
„ÞETTA var fullkomlega eðlileg afgreiðsla á þessu erindi
Hrafns,“ sagði Knútur Hallsson, fyrrum ráðuneytisstjóri
menntamálaráðuneytis, aðspurður um bréf það sem hann
fyrir hönd menntamálaráðherra sendi Norræna kvik-
myndasjóðnum eftir að sjóðsstjórnin hafði hafnað að styrkja
gerð myndar Hrafns Gunnlaugssonar, Hin helgu vé. Knút-
ur sagði ráðherra hafa falið sér að afgreiða erindi Hrafns.
Töluverður samdráttur varð
einnig í sölu á sígarettum, eða
8,91%. Núna seldust 91.600 mille,
en í hveiju mille eru 50 pakkar,
svo alls seldust 4,580 milljónir
pakka.
í fyrra seldust 100.559 mille,
eða rúmar 5 milljónir pakka. Af
vindlum seldust nú 2.651.700
stykki, en í fyrra 2.864.315 stykki.
Samdráttur í sölu vindla nam
7,42%.
Meira hvítvín
Mismikill samdráttur varð í sölu
áfengis eftir tegundum. Þannig
varð 1,20% aukning á sölu hvítvíns
í lítrum talið, einu tegunda. Mest-
ur samdráttur varð í sölu koníaks,
armaníaks og sénevers, eða rúm
16%. Rúmlega 14% samdráttur
varð í sölu aperitífa, vodka og gins
og rúmlega 12% samdráttur í sölu
rósavíns og vermúta.
Við samantekt þessara sölu-
talna er ekki tekið tillit til þess
„í raun var bréf Hrafns til ráð-
herra sent sjóðsstjórninni til um-
sagnar eða athugunar. Við lögðum
engan dóm á hvort Hrafn hefði rétt
fyrir sér eða ekki eða hvort veita
ætti honum einhvem styrk en svo
gerðu þeir það og það bendir nú til
þess að þeim hafi eitthvað fundist
athugavert við fyrri afgreiðslu,"
sagði Knútur. „Bréf eins og okkar
þar sem ekkert er lagt til annað en
að málið sé rætt hefur enga þýð-
ingu,“ sagði hann og sagði fráleitt
að um þrýsting á styrkveitingu til
Hrafns hafi verið að ræða.
Klögumál á hendur sjóðnum
Knútur sagði að aðdragandi
málsins hefði verið sá að Hrafn
hefði skrifað ráðherra langt bréf og
reifað það að hann teldi að sjóðs-
stjórnin hefði svikið loforð um að
styrkja mynd sína. „Hann var í raun
og vem með klögumál á hendur
þessum sjóði og fór þar að mínu
mati rétta boðl^ið; við vomm það
stjómvald sem á aðild að þessum
sjóði,“ sagði Knútur. „Það sem við
gerðum var að taka upp innan gæsa-
lappa aðalatriðin úr skýrslu Hrafns
og bæta því við að við fæmm þess
á leit að þetta mál yrði tekið upp á
næsta fundi og farið yrði með það
eins og önnur hliðstæð mál. Við
höfðum fengið fréttir af því að fleiri
væm að kvarta undan því að hafa
fengið vilyrði sem ekki hefðu stað-
ist,“ sagði Knútur Hallsson.
Hann sagði að sig minnti að þetta
bréf hafi ekki verið sýnt ráðherra
enda ekki venjan þegar verið væri
að framsenda kvartanir með þessum
hætti. Hins vegar hefði verið fjallað
um málið á fundi í ráðuneytinu með
fulltrúum sjónvarpsstöðva og þeirra
íslenskra aðila sem greiði til sjóðs-
ins. Þar hefði bréf ráðuneytisins
verið lagt fram og samþykkt að
afgreiða málið með þessum hætti.
Misminni hjá ráðherra
Aðspurður um þau orð Ólafs G.
Einarssonar menntamálaráðherra í
Morgunblaðinu á laugardag að hann
hefði hafnað tilmælum ráðuneytis-
stjórans að ræða málið á fundi nor-
rænna menntamálaráðherra sagðist
Knútur telja að um misminni væri
að ræða hjá ráðherra. Ráðherrann
hefði haft gögn um málið í farteski
sínu á leið á fundinn og rætt hefði
verið um að víkja e.t.v. orðum að
málinu í óformlegum samræðum en
ekki hefði til þess komið.
íslenskur sigurá Stórmeistaramóti Mjólkursamsölunnar á sunnudag
Helgi vann Júdit örugglega
Skák
Margeir Pétursson
HELGI Ólafsson vann alla
þijá andstæðinga sína á Stór-
meistaramóti Mjólkursamsöl-
unnar í sjónvarpinu mjög ör-
ugglega. Þeirra á meðal var
yngsti stórmeistari heims, hin
16 ára gamla ungverska
stúlka Júdit Polgar, sem
hlotnast hefur frægð langt út
fyrir raðir skákáhugamanna
með glæsilegum árangri upp
á síðkastið. Júdit varð í öðru
sæti á mótinu með tvo vinn-
inga, en hinir tveir keppend-
urnir á mótinu, þeir Jóliann
Hjartarson og Margeir Pét-
ursson, hlutu hálfan vinning.
Sigrar Helga voru með ólíkind-
um sannfærandi. Þrátt fyrir að
umhugsunartíminn væri aðeins 25
mínútur á skákina lenti hann
aldrei í tímahraki. Helgi náði mikl-
um stöðuyfirburðum snemma í
miðtaflinu í öllum skákunum
þremur. Það verður ekki sagt að
erlendir gestir á sjónvarpsmótum
hafi sótt gull í greipar Helga.
Þess er skemmst að minnast að á
Búnaðarbankaatskákmótinu á
Stöð 2 í haust gerði hann 1-1
jafntefli við Jan Timman í atskák
og vann hann síðan í síðan úrslita-
hraðskák.
Mótið á sunnudag var sýnt í
beinni útsendingu í Ríkissjónvarp-
inu og þótti heppnast vel. Her-
mann Gunnarsson var kynnir og
stjórnandi, Jón L. Árnason sá um
skákskýringar og naut aðstoðar
gesta, skákstjórar voru þeir Guð-
mundur Arnlaugsson og Ólafur
Ásgrímsson, alþjóðlegur skák-
dómarar.
Það var mjög vandað til þessa
hraðmóts og vel til fundið að fá
Júdit Polgar til keppni eftir alla
Júdit Polgar og Helgi Ólafsson.
velgengni hennar að undanfömu.
Hún kom fyrst hingað til lands
árið 1988 á Reykjavíkurskákmótið
í febrúarmánuði, þá aðeins 11 ára
gömul. Um sumarið sama ár kom
hún aftur og tók þátt í móti á
Egilsstöðum þar sem hún vann
sinn fyrsta sigur á alþjóðlegu
skákmóti.
Helgi Ólafsson gerði sér lítið
fyrir gegn Júdit Polgar og beitti
á hana kóngspeðsbyijun, sem er
sjaldgæft að sjá hjá Helga. Líklega
hefur hann náð að giska rétt á
það hvernig hún myndi meðhöndla
byijunina:
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Júdit Polgar
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rc3 -
e6 6. Be3 - a6 7. Dd2 - b5 8.
f3 - Rbd7 9. 0-0-0
Langalgengast í stöðunni er 9.
g4 — h6, en Helgi hefur nýja
hugmynd á pijónunum.
9. t- Bb7 10. g4 - Rc5 11. g5
r Rfd7 12. b4!?
í fijótu bragði virðist þetta vera
glæfraleg veiking á kóngsstöð-
unni, en svartur verður að taka á
sig tvípeð á a-línunni og hvítur
nær að byggja upp nýtt vígi.
12. — Ra4 13. RJia4 — bxa4 14.
c3 - Dc7 15. Kb2 - Re5 16. a3
- g6 17. h4 - Bg7 18. h5 - Hc8?
Svörtu mennimir á kóngsvæng
verða nú gagnslausir og komast
aldrei í spilið. Júdit varð að leika
18. — 0-0, því eftir 19. hxg6 —
hxg6 20. Dh2 — Hfe8 er ekki að
sjá að opin h-línan sé svarti mjög
hættuleg.
19. h6! - Bf8 20. Dc2 - Dd7
21. Bf4 - Rc4+ 22. Bxc4 -
Hxc4 23. Re2
23. - Dc6
Mistök, en Júdit átti ekki full-
nægjandi svar við óþægilegri hót-
un Helga, 24. Dd3 með þrýstingi
á d-peðið. 23. — Be7 var eðlilegri
Ieikur, en þá getur hvítur svarað
með 24. Dd3 - Hc6 25. Dd4! og
ef 25. — Hg8 þá 26. Dg7! og vinn-
ur.
24. Dd3 - d5 25. Be5 - Hg8
26. Rf4
Það standa öll spjót á svörtum
og úrslitin era ráðin.
26. - Db5 27. exd5 - Hc8 28.
dxe6 - fxe6 29. Hhel - Be7
30. Bf6 - Dxd3 31. Hxd3 - Hc6
32. Bxe7 - Kxe7 33. Rd5+ -
Kf7 34. Rf6 og ungverska stúlkan
varð að játa sig sigraða.
Júdit Polgar var ekki sérlega
ánægð með taflmennsku sína. Hún
var aldrei nálægt því að yfirspila
andstæðingana í stöðubaráttu,
báðum vinningsskákunum sneri
hún sér í vil í tímahraki andstæð-
inganna. Jóhann hafði um tíma
vænlegt endatafl en lék svo af sér
heilum hrók í jafnteflisstöðu. Gegn
undirrituðum misheppnaðist byij-
un Júditar og hún varð að láta
peð af hendi rakna. Eftir miklar
sviptingar stóð hún svo uppi með
gertapað tafl í þessari stöðu:
Svart: Margeir Pétursson
Hvítt: Júdit Polgar
Svartur hefur skiptamun yfir
fyrir tvö peð og menn hvíts eru
bundnir við að valda hveijir aðra.
Með 43. — Rc6! vinnur svartur
heilan mann og verður þá hróki
yfir fyrir aðeins tvö peð. I staðinn
varð framhaldið:
43. - Rxc4? 44. dxc4 - Dd8?
Yfírsést svar hvíts, sem kippir
öllu í liðinn og í tímahraki verða
umskiptin snögg. 42. — Hd8 hefði
haldið góðum vinningsmöguleik-
um.
45. Da4! - Db8? 46. Bd6! - Dc8
47. c5 - De6 48. e5! - Hc8 49.
Rf3 - h6 50. De4 - Db3 51.
Hd3 - Dc2 52. Rh4 - Hb3 53.
Rxg6+ - Kh7 54. Rf8++ - Kg8
55. Dh7-l— Kf7 56. e6+ og svart-
ur gafst upp, því mátið blasir við.