Morgunblaðið - 20.04.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
51
Tilþrifainiklir takt-
ar í vélsleðaakstri
Útivera að
vetrarlagi
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Tæplega 100 keppendur tóku
þátt í íslandsmóti tímaritsins 3T
og Pólarisklúbbsins í vélsleðaakstri
í Bláfjöllum um helgina, en keppt
var í sjö flokkum, eftir vélarstærð-
um og útbúnaði sleðanna. Norðan-
menn voru sigursælir að vanda,
unnu fjallarallið sem var erfiðasta
grein mótsins og áttu marga gull-
verðlaunahafa í einstaklings-
keppni. Polaris vann tíu gullverð-
laun, Ski-doo og Arctic þrenn og
Yamaha ein, en mikil keppni var í
mörgum flokkum, líklega hefur
aldrei jafnmörgum hlekkst á í akst-
ursíþróttakeppni hérlendis, veltur
voru fjölmargar og hamagangurinn
mikill.
Fjallarallið var fyrsta grein
mótsins og sex sveitir tóku þátt,
en eknar voru tvær umferðir í tæp-
lega 30 km langri braut, sem lá
um íjallasalina. Árangur tveggja
fljótustu ökumannana í þriggja
manna sveitum gilti til sigurs og
norðlensku félagamir Finnur Aðal-
björnsson og Amar Valsteinsson
reyndust fljótastir. Munaði aðeins
einni sekúndu á þeim eftir 25 mín-
útna langan akstur, en Gunnar
Hákonarsson ók sem þriðji öku-
maður sveitarinnar og tryggðu þeir
sveit Polaris umboðsins og 3T sig-
ur, en sveit H.K. þjónustunnar kom
næst og Ski-doo menn náðu þriðja
sæti. „Fjallarallið var gífurlega erf-
itt og hratt. Hliðin sem við ókum
í gegnum vora heldur þröng og
leiðin var orðin mjög grafin á köfl-
um. Við unnum á því að fara með
réttu hugarfari í rallið, en það þarf
bæði hraða og útsjónarsemi til að
ná árangri," sögðu þeir Finnur og
Amar.
Báðir náðu góðum árangri í ein-
staklingskeppni, Arnar vann þrenn
gullverðlaun á mótinu, vann auk
fjallaralisins bæði flokkasigur í
braut og spyrnu. Hann sýndi einn
glæsilegasta akstur keppninnar,
þegar hann vann upp forskot Jó-
hanns Eysteinssonar í úrslita-
keppni í samhliða braut. Jóhann
náði forystu, en eknir voru tveir
hringir um mjög erfíða og hlykkj-
ótta braut. Amar saxaði jafnt og
þétt á forskot Jóhanns og skaust
framúr á síðustu metrunum, fyrir
framan áhorfendur sem fylgdust
límdir með aðförum kappanna.
„Þetta er það svakalegasta sem
ég hef upplifað. Ég var alltaf stað-
ráðinn í að ná honum. Mér tókst
vel upp á lokakaflanum og á ferð
gegnum erfíða stökkkafla. Það var
mikil sæla að skríða framúr á síð-
ustu stundu,“ sagði Arnar.
Ofkeyrði
Finnur var ekki eins lánsamur í
brautarkeppninni, tapaði úrslita-
ferðinni fyrir Sigurði Gylfassyni á
Ski-doo Mach 1. „Égofkeyrði bara,
tók upp gamla og að ég hélt
gleymda takta,“ sagði Finnur, „Ég
endastakk sleðanum og Jcútveltist
og var síðan svo æstur að ég stökk
á sleðann, óð af stað og fór aftur
á hausinn. Hins vegar hélt ég ró
minni betur í snjókrossinu og tókst
að vinna flokk stærri sleða. Þá óku
margir sleðar í brautinni í einu og
þetta er það sem koma skal, þarna
reynir verulega á ökutækið og öku-
menn“ sagði Finnur.
Gunnar Hákonarsson vann flokk
minni sleða í snjókrossinu eftir
góðan akstur, en hann vann einnig
sinn flokk í brautarkeppninni.
Vantar kvenfólk til keppni
í spyrnunni vann Þórir Ófeigsson
tvo flokka á Ski-doo sleðum, Mach
1 og Pjus X, en tvennum gullverð-
launum náði einnig Guðlaugur
Halldórsson á Polaris sleða, vann
bæði í braut og spyrnu. Eini kven-
maðurinn sem hefur látið að sér
kveða í sleðamótum vann silf-
urverðlaun á mótinu, Siv Franks-
dóttir. Hún háði harða keppni í
spymunni og þurfti þrjár ferðir í
úrslitum áður en Þórir Ófeigsson
náði að leggja hana að velli. „Þetta
var æsispennandi keppni, en mér
tókst að vinna þrjá keppendur áður
en kom að úrslitum. Það var gam-
an að ná þessum árangri, sérstak-
lega af því manninum mínum, Þór
Daníelssyni gekk líka vel, náði í
silfur í braut og spymu. Við höfum
ferðast mikið á vélsleðum, en eram
ekkert sérstaklega að æfa okkur
saman fyrir keppni. Það vantar
fleira kvenfólk í keppni, en konur
era farnar að ferðast mun meira
um hálendið upp á síðkastið," sagði
Siv.
Næsta mót til íslandsmeistara í
vélsleðaakstri er áætlað á Akur-
eyri, en í byijun maí verður stór-
mót á ísafirði, þar sem liggur nærri
að annar hver maður eigi vélsleða
eða hafi eitthvert álíka áhugamál.
Ætla keppendur og áhorfendur alls
staðar af landinu að fjölmenna á
mótið, enda mun það ráða úrslitum
í meistarakeppninni, en þrjú mót
af fjóram munu gilda til lokastiga.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Eini kvenkeppandinn
EINA konan í keppninni, Siv Franksdóttir, vann til silfurverð-
launa. Á myndinni er hún ásamt eiginmanni sínum Þór Daníels-
syni og Þóri Ófeigssyni, sem hirti af henni gullverðlaun í úrslita-
spyrnu eftir mikla keppni.
Hamagangur
HAMAGANGURINN var oft mikill, hér svífur Finnur Aðalbjörns-
son áfram til sigurs í snjókrossinu.
Borgarhólsskóli og Tónlistarskóli Húsavíkur
Norsk og íslensk
böm sýna söngleik-
inn Lifandi skóg
SÖNGLEIKURINN Lifandi skógur verður sýndur í Borgar-
hólsskóla á Húsavík á fimmtudag, sumardaginn fyrsta.
Nemendur 7. bekkjar Borgarhólsskóla, nemendur Tónlist-
arskóla Húsavíkur og börn frá Vestur-Noregi, alls um 120
börn, vinna saman að uppsetningunni.
Söngleikurinn Lifandi skógur
varð til í samvinnu norsku skóg-
ræktarinnar og Thor Karseth. Hann
kemur á skemmtilegan og áhrifa-
mikinn hátt á framfæri upplýsing-
um um umhverfismál og náttúru-
vemd, segir í fréttatilkynningu frá
Borgarhólsskóla og Tónlistarskóla
Húsavíkur. Söngleikurinn hefur
verið settur upp í Þýskalandi, Sví-
þjóð og á Spáni, auk Noregs.
Fræðst um umhverfismál
Um 110 Norðmenn, þar af 70
böm úr skólum í Nordfjoreid og
Hjelli í Sogn og Fjordane-fylki í
Vestur-Noregi, era nú á Húsavík
og dvelja þar á heimilinum hús-
vískra pennavina sinna. Þau hafa
flutt Lifandi skóg heima hjá sér og
vöktu sýningamar athygli í Noregi.
I undirbúningi fyrir íslandsferðina
hafa þau lært söngvana á íslensku,
auk þess sem þau hafa fræðst um
landið og umhverfismál hér. Auk
þess að æfa og taka þátt í sýningum
á söngleiknum munu norsku bömin
vinna margvísleg umhverfisverk-
efni með aðstoð Landgræðslunnar
og Skógræktar ríkisins.
Norsku börnin fara í skoðunar-
ferð að Mývatni í dag, þriðjudag. Á
miðvikudag býður Húsavíkurbær
Borgardætur
ANDREA Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónas-
dóttir kalla sig Borgardætur og syngja lög í anda Andrews-systra
á Hótel Borg að kvöldi sumardagsins fyrsta.
Tónlist „ástands-
ára“ á Hótel Borg
Á SUMARDAGINN fyrsta verður boðið upp á söngskemmt-
un á Hótel Borg. Þar flytur söngtríóið Borgardætur,
Andrea Gylfadóttir, Ellen Krisljánsdóttir og Berglind Björk
Jónasdóttir, tónlist í anda Andrews-systra.
þeim í skoðunarferð um bæinn og
að Hveravöllum í Reykjahverfi.
Húsgull og Landgræðslan standa
fyrir fræðslufundi fyrir gesti og
gestgjafa. Norsku börnin fá að
kynnast íslenska hestinum og einn-
ig mun Skógrækt ríkisins bjóða
þeim í grillveislu. Á sumardaginn
fyrsta verða sýningar á Lifandi
skógi í sal Borgarhólsskóla klukkan
14 og 16.30. Föstudaginn 23. apríl
fara Norðmennirnir til Akraness
ásamt hljómsveit Tónlistarskóla
Húsavíkur og sýna söngleikinn þar
á laugardag ásamt nemendum úr
Brekkubæjarskóla á Akranesi.
íbúar allra íbúðanna nema einnar
vora komnir fram á ganginn í hús-
inu þegar slökkviliðið kom á vett-
vang, braut upp hurðina á íbúðinni
og sótti konuna inn í húsið. Hún
hafði sofnað út frá heitri eldavélar-
Undirleik annast Setuliðið, sem
er sextett skipaður Eyþóri Gunn-
hellu og var flutt á slysadeild með
reykeitran. Mikill reykur myndaðist
í stigaganginum og íbúðinni en hún
skemmdist lítið. Enginn reykskynj-
ari var í íbúðinni.
arssyni á píanó, Þórði Högnasyni
á kontrabassa, Matthíasi M.B.
Hemstock, á trommur, Sigurði
Flosasyni, á saxófón og klarinett,
Yeigari Margeirssyni á trompet og
Össuri Geirssyni básúnuleikara.
Innifalið í miðaverði, kr. 2.980,
er tveggja rétta kvöldverður ásamt
kaffi og konfekti.
Húsið opnar klukkan 19. Borð-
hald hefst klukkan 20.
Forsala aðgöngumiða er á Hótel
Borg milli klukkan 16 og 20 dag-
ana fram að sýningu. Borða-
pantanir í síma Hótel Borgar.
Aðeins þessi eina sýning er fyrir-
huguð.
(Fréttatilkynning)
Kona var flutt á slysa-
deild með reykeitrun
SLÖKKYILIÐIÐ í Reykjavík var kallað að fjölbýlishúsinu við Kötlu-
fell 11 á sjötta tímanum aðfaranótt laugardags. Gömul kona hafði
sofnað útfrá heitri eldavélarhellu í einni íbúðinni og var hún flutt
á slysadeild með reykeitrun.
■ Á RAUÐA LJÓNINU síðasta
vetrardag kveður hljómsveitin SÍN
og Anna Þorsteins veturinn.
Hljómsveitina skipa þeir Guð-
mundur Símonarson sem leikur
á gítar og syngur og Kristinn
Rósantsson sem leikur á hljóm-
borð og syngur. Þeir hafa fengið
til liðs með sér söngkonuna Önnu
Þorsteins og hafa þau nú spilað
vítt og breitt undanfarna mánuði.
Þetta er í annað skiptið sem þau
spila á Rauða ljóninu en síðast vár
húsfýllir. Lagaval hljómsveitarinn-
ar er að meiripartinum íslenskir
slagarar og danslög sem allir geta
sungið með og slett úr klaufunum.
SÍN og Anna Þorsteins verða líka
föstudags- og laugardagskvöld á
Rauða Ijóninu.
(Úr fréttatilkynningu)
—efþú spilar til að vinna!
| 15. lelkvilm , 17, - 18. aprÐ 1993 ~
Nr. Leikur:_________________Röðin:
1. Brage-öster - - 2
2. Degerfoss - Halmstad - X -
3. Helsingborg - örebro 1 - -
4. HScken - Norrköplng 1 - -
5. Trelleborg - Göteborg 1 - -
6. Aston Vilia - Man. Qty 1 - -
7. Leeds - C. Palacc - X -
8. Liverpool - Coventry 1 - -
9. Man. Utd. - Cheisea 1 - -
10. ShefT. Utd. - Blackbura - - 2
11. Southampton - Everton - X -
12. Tottenham - Oidham 1 13. Wimbledon - Nott’m For. 1 " * H
Heildarvinningsupphæöin:
131 milljón krónur 1
13 réttir: | 496.110 kr.
12 réttir: 9.210 kr.
11 réttir: 840 kr.
10 réttir: 240 tr-