Morgunblaðið - 20.04.1993, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
Vinnumarkaðskönmm Hagstofunnar mælir 5,2% atvinnuleysi
Atvinnuleysi jókst um
0,7% frá síðustu könnun
ATVINNULEYSI í marsmánuði var 5,2% af mannafla á
vinnumarkaði ef marka má vinnumarkaðskönnun Hag-
stofu íslands og hafði aukist um 0,7 prósentustig frá því
í nóvember árið 1992 er síðasta könnun var gerð. Sam-
bærilegar tölur yfir skráð atvinnuleysi frá vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneytisisns er 4,4% atvinnuleysi
og er það samkvæmt skráningu á vinnumiðlunarskrif-
stofum.
Könnunin náði til fólks á
aldrinum 16-74 ára og var úrtak-
ið valið af handahófi úr þjóðskrá.
Hringt var í 4.098 einstaklinga
og fengust svör frá 3.722, sem
er 92,6% svörun þegar tillit hefur
verið tekið til þeirra sem eru látn-
ir, veikir eða búsettir erlendis.
Af þeim sem svöruðu voru 81,8%
á vinnuamrkaði og 18,2% ekki á
vinnumarkaði. Þetta er fimmta
vinnumarkaðskönnun Hagstof-
unnar, en þær eru framkvæmdar
tvisvar á ári í apríl og nóvember.
Fyrsta könnunin yar framkvæmd
í apríl 1991 og taldist atvinnu-
leysið vera 1,9%. Það hefur stöð-
ugt vaxið síðan, var 2,7% í nóv-
ember 1991, 3,0% í apríl 1992,
4,5% í nóvember og 5,2% nú.
Lengri vinnutími út á landi
Samkvæmt könnuninni voru
86,7% karla á vinnumarkaði og
76,9% kvenna. Atvinnuþátttaka
var mjög svipuð eftir búsetu eða
rétt rúm 80%. Atvinnulausir voru
5,3% á höfuðborgarsvæðinu,
3,7% í kaupstöðum og bæjum
og 7,3% í öðrum sveitarfélögum.
Heildarvinnutími karla í launuðu
starfi að meðaltali er talsvert
lengri en kvenna eða 50,1 stund,
samanborið við 34,6 stundir hjá
konum. Vinnutíminn er stystur
á höfuðborgarsvæðinu 41,3
stundir, 44,3 stundir í kaupstöð-
um og bæjum, en lengstur í öðr-
um sveitarfélögum 47,3 stundir.
Atvinnulausir
eftir aldri í marslok 1993
í könnuninni kemur fram að
atvinnuleysi er mest meðal yngra
fólks. Það er 12,9% meðal 16-19
ára, 8,4% meðal 20-29 ára og
fer síðan stiglækkandi þar til í
aldurshópnum 60-69 ára að það
fer vaxandi aftur og er 4,1%.
600 kærð-
ir fyrir
hraðakstur I
UM 600 ökumenn hafa verið
kærðir fyrir hraðakstur síðan
sameigfinlegt átak lögreglul-
iða á höfuðborgarsvæðinu
hófst á miðvikudag. Þá hafa
39 ökumenn verið kærðir fyr-
ir réttindaleysi fyrir akstur á
sama tíma.
Lögreglan hefur sérstakt eftirlit
með þessum tveimur þáttum um-
ferðarmála í þessu átaki sínu.
39 réttindalausir ökumenn,
ýmsist þeir sem aldrei hafa öðlast
ökuleyfi eða hafa verið sviptir
þeim vegna hraðaksturs eða ölv-
unaraksturs hafa á þessum tíma
verið kærðir auk þess sem um 600
ökumenn, þar af um 350 í Reykja-
vík hafa verið kærðir fyrir akstur
á óhóflegum hraða.
ÍDAGkl. 12.00
t VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 3 skýjað Reykjavík 6 rigning
Björgvin 6 léttskýjað
Helslnki 4 skúr
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Narssarssuaq +3 alskýjað
Nuuk +6 alskýjað
Ósló 5 hátfskýjað
Stokkhólmur S slyddué!
Þórshöfn 4 skýjað
Atgarve 20 léttskýjað
Amsterdam 10 súld
Barcelona vantar
Berlín 9 hólfskýjað
Chicago 11 skýjað
Feneyjar 17 þokumóða
Frankfurt 14 skýjað
Glasgow 7 rigningogsúld
Hamborg 9 skýjað
London 14 skýjað
LosAngeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 11 skýjað
Madríd 20 heiðskírt
Malaga 19 heiðskirt
Mallorca 20 heiðskirt
Montreal 8 skúr
New York 12 skýjað
Orlando 16 heiðskirt
París 16 skýjað
Madelra 18 skýjað
Róm 16 léttskýjað
Vin 16 skúr
Washington 12 alskýjað
Winnipeg +8 heiðskirt
Landbúnaðarráðherra um álagningu
verðjöfnunargjalda á kjötvörur
Afdráttarlaus skoðun
ríkisstjómar að jöfnun-
argjöldin séu leyfileg
HALLDÓR Blöndal landbún-
aðarráðherra segir að það sé
afdráttarlaus skoðun ríkis-
stjórnarinnar að samkvæmt
samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið verði heimilt
að leggja verðjöfnunargjöld á
matvæli unnin úr kjötvörum.
Hann segist hafa spurst fyrir
um þá yfirlýsingu fulltrúa
Evrópubandalagsins á sér-
fræðingafundi EB og EFTA
í lok mars um að ekki verði
heimilt að leggja á jöfnunar-
gjöld, og þau svör sem hann
hafi fengið verið eindregin
um að hann þurfi ekkert að
óttast í þessum efnum.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu um helgina hefur Búnaðar-
félag íslands óskað skýringa land-
búnaðarráðherra á því misræmi
sem upp væri komið milli greinar-
gerðar fimm ráðuneyta til landbún-
aðamefndar Alþingis, þar sem fram
kemur að álagning jöfnunargjalda
verði heimil, og siðan kröfu fulltrúa
EB frá í lok mars um að breyting
yrði gerð á skrá yfir þau hráefni
sem falla undir verðjöfnun.
Afdráttarlaust
Halldór Blöndal sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að um þetta
mál væri ekki annað að segja en
það, að skilningur ríkisstjómarinn-
ar sé afdráttarlaus, en hún teldi að
samkvæmt samningunum væri full
heimild til að leggja verðjöfnun-
argjöld 4 innflutt kjöt.
„Sá er skilningur þeirra ráðu-
neyta sem áttu í þessum viðræðum,
þ.e. fjármálaráðuneytisins og utan-
ríkisráðuneytis. Ég hef síðan rætt
þetta við ijármálaráðuneytið og
skilningur þess er afdráttarlaus í
þessum efnum. Það hefur ekkert
komið upp í ríkisstjórninni sem gef-
ur vísbendingu um annað,“ sagði
Halldór.
------» ♦ ♦-----
Fliig’völlur-
inn ófær
vegna leðju
Siglufirði.
FLUGVÖLLURINN hér í Siglu-
firði var ófær um helgina og
ekki unnt að lenda á honum sök-
um aurleðju. Þó er brautin um
1.200 metra löng.
Þegar svo háttar til verða flugfar-
þegar að lenda á Sauðárkróki, þar
sem hvorki Beechcraft-vélar íslands-
flugs né Dornier-vélin geta lent í
aurleðjunni. Áður fyrr gátu Twin-
Otter-vélarnar oft athafnað sig við
slíkar aðstæður, því að unnt var að
setja undir þær stærri hjólbarða, svo
að þær sykkju síður í aurinn.
Siglfirðingar bíða nú spenntir eft-
ir því hvenær Flugmálastjórn ákveð-
ur að setja varanlegt slitlag á flug-
brautina hér í Siglufirði, svo sem
víða hefur verið gert annars staðar.
MJ.
Brotist inn á heimili
samgöngnráðherra
BROTIST var inn á heimili Halldórs Biöndals, samgöngu- og
landbúnaðarráðherra, í fyrrinótt. Meðan ráðherrann, eiginkona
hans og sonur sváfu var farið inn um ólæstar dyr úr garði og
stolið örbylgjuofni ásamt seðlaveski með greiðslukortum og
þremur yfirstrikuðum ávísunum upp á lágar fjárhæðir. Ekki
er vitað hverjir voru að verki.
„Þeir fóru mjög hljóðlega og hafa manna íslenska ríkisins væri nægi-
greinilega ekki átt annað erindi en lega gætt: „Það eina sem ég hef
þetta,“ sagði Halldór. Aðspurður verið að hugsa um er að reyna að
neitaði hann því að við þessa muna eftirleiðis að læsa útihurðum
reynslu hefðu vaknað hjá sér hugs- og gluggum þannig að óviðkomandi
anir um það hvort öryggis æðstu eigi ekki greiða leið inn í húsið.“