Morgunblaðið - 20.04.1993, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
9
Geirmundur, Berglind Björk, Guðrún Gunnarsdóttir.Ari jónsson, Maggi Kjartans
Kynnar: Þorgeir Ástvaldsson og Margrét Blöndal.
MatscSiil:
‘Rjómasúpa rPrwcess m/fuglakjöti
£.amba- oq qrísasteik m/ ijómasveppum og rósmarínsósu
SXpficlsínms m/ súkkulaSisósu-
Lifandi tónlist fyrir matargesti: Stefán E. Petersen, pianó
og Arinbjörn Sigurgeirsson, bassi.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi
Þríréttaður
kvöldverður kr. 3.900
Verð á dansleik kr. 1.000
Þú sparar kr. 1.000
SfMI 687111
Miðasala og borðapantanir daglega milli kl. I4-I8 á Hótel íslandi
Listræn
hönnu
Dönsku ELFA háfarnir eru glæsilegir,
stílhreinir og sönn eldhúsprýði.
Við bjóðum nú nýjar gerðir af þessum
vinsælu háfum í 16 mismunandi litum, stáli eða kopar.
///" Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartún 28 S 622901 og 622900
□ERTZEN
STORVIRKAR
HÁÞRÝ STIDÆLUR
FRÁDERTZEN®
Getum boðið þýsku OERTZEN háþrýstidælurnar fyrir verktaka og aðra aðila, sem þurfa
kraftmiklar dælur, t.d. til húsahreinsunar, skipahreinsunar og sandblásturs.
Dælur og dælustöðvar fyrir sjávarútveginn.
Sérstakar rörahreinsidælur sem losa og hreinsa úr stífluðum rörum.
Óháð félagshyggjublað
Formaður Framsóknarflokksins boðaði það um helgina, að stofnað
verði hlutafélag um rekstur dagblaðsins Tímans. í framtíðinni á
blaðið að vera málsvari félagshyggjufólks í stað flokksblaðs. Ráð-
gert er, að Framsóknarflokkurinn eigi ekki meira en 20% hlutafjár.
Ánúllinu
Tíminn birti sl. laugar-
dag viðtal við formann
útgáfufélags blaðsins,
Steingrím Hermannsson,
þar sem hann skýrir frá
því, að nýkjörin stjórn
þess hafi það meginhiut-
verk að efna til hlutafjár-
útboðs, þar sem útgáfu-
félaginu verði breytt í
almenningshlutafélag.
Blaðið hætti að vera
flokksmálgagn, en verði
í staðinn málsvari, frétta-
miðill og umræðuvett-
vangur islenzks félags-
hyggjufólks hvar í flokki
sem það stendur.
Stein^rímur segir, að
afkoma Tímans sé á núll-
inu og sé það fyrst og
fremst að þakka góðu
starfsliði blaðsins. Tekizt
hafi að lækka rekstrar-
kostnað verulega, en
dreifing og áskrifenda-
ijöldi hafi staðið í stað.
Rekstrargrundvöllur sé
þvi fyrir blaðið og leitað
verði til félagshyggju-
fólks, hvar í flokki sem
það kann að standa, til
að gefa það út.
Ekki lengur
grundvöOur
fyrir flokks-
blað
Steingrímur Her-
mannsson segir in.a. í
viðtalinu:
„Við álítum, að al-
mennt séð sé ekki lengur
grundvöllur fyrir flokks-
blöð. Hins vegar tejjum
við mjög mikla þörf fyrir
blað félagshyggju- og
umbótasinnaðs fólks —
miðjublað, sem hefur
fullkomlega sjálfstæða
ritstjórn.
í samræmi við þessa
skoðun var ákveðið á
fyrmefndum aðalfundi
sl. miðvikudag að breyta
útgáfufélaginu Tímanum
hf. í almenningshlutafé-
lag. Við munum á næstu
dögum bjóða bæði kaup-
endum Timans og öðrum
einstaklingum að taka
þátt í því að auka hlutafé
félagsins verulega.
Ég hef orðið var við
það að í þessu samhengi
staldra menn gjaraan við
NT-ævintýrið og ég vil
leggja mjög þunga
áherslu á að hér er síður
en svo ætlunin að endur-
taka það. Við teljum okk-
ur hafa lært alvarlega
lexíu af þvi ævintýri og_
brennt bam forðast eld-
inn.
Með NT var meiningin
að gleypa bæði Morgun-
blaðið og DV í einum bita.
Við ætlum því að byggja
hægt og sígandi á þeim
grunni sem nú hefur ver-
ið lagður í rekstri og út-
gáfu Tímans og skapa
fyrirmyndarblað félags-
hyggju- og umbótasinn-
aðs fólks sem verður óháð
og sjálfstætt — óháð öðr-
um en lesendum sínum.“
Öháð flokkum
„Framsóknarflokkur-
inn verður ekki útgefandi
Tímans. Fiokkurinn á
hins vegar nú vissan hlut
í rekstri biaðsins, svo sem
ýmsan tæknibúnað og
viðskiptavild sem felst i
áskrifendum, tækjum og
fleim. Þetta hefur verið
metið af fagmönnum og
flokkurinn er tilbúinn að
leggja þetta fram sem
hlutafé í útgáfufélag
blaðsins.
Við gerum okkur fulla
grein fyrir því að tími
flokksmálgagna er liðinn
og til þess. að dagblaðið
Timinn verði trúverðug-
lega óháð pólitískum
flokkum megi Framsókn-
arflokkurinn alls ekki
eiga yfir 20% hlutafjár
og við þá tölu höfum við
sett hámarkið.
Stjómin sem nú hefur
verið kjörin er að okkar
mati bráðabirgðastjóm
með það höfuðverkefni
að ná fram þeim mark-
miðum sem ég hef áður
lýst. Við teljum að fram-
tíðarstjóm blaðsins verði
síðar meir kosin af þeim
nýju hluthöfum sem
munu nú koma inn.
Þá leggjum við áherslu
á að bæði núverandi
stjóm og framtíðarstjóm
blaðsins eigi ekki að fjalla
um ritstjóm þess eða rit-
stjómarstefnu heldur um
rekstur þess fjárhags-
lega. Það verður eitt
verkefna stjómar að velja
ritstjóra sem fengin
verða mjög mikil völd.
Ititstjórinn mun ráða efn-
istökum og efnismeðferð
blaðsins. Ritstjórinn verð-
ur starfsmaður stjómar-
innar og verði hún ekki
sátt við sinn mann mun
hún geta skipt um rit-
stjora.
Þannig er ætlunin að
reka þetta sem fyrirtæki
á viðskiptaiegum
grunni."
Útbob ríkisvíxla
fer fram mibvikudaginn 21. apríl
Nýtt útboö á ríkisvíxlum fer fram á
morgun. Um er aö ræöa 8. fl. 1993 í
eftirfarandi verögildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til þriggja mánaöa
meö gjalddaga 23. júlí 1993. Þessi
flokkur veröur skráöur á Verðbréfa-
þingi íslands og er Seðlabanki íslands
viöskiptavaki ríkisvíxlanna.
Ríkisvíxlarnir veröa seldir meö
tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboö
samkvæmt tilteknu tilboðsveröi er 5
millj. kr. og lágmarkstilboð í meðal-
verð samþykktra tilboöa er 1 millj. kr.
Löggiltum veröbréfafyrirtækjum,
veröbréfamiölurum, bönkum og
sparisjóöum gefst einum kostur á aö
gera tilboö í ríkisvíxlana samkvæmt
tilteknu tilboösveröi.
Aðrir sem óska eftir aö gera tilboð í
ríkisvíxla eru hvattir til að hafa
samband viö framangreinda aöila,
sem munu annast tilboðsgerö fyrir þá
og veita nánari upplýsingar. Jafnframt
er þeim sjálfum heimilt aö bjóöa í
vegið meðalverö samþykktra tilboöa
(meðalávöxtun vegin meö fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa aö hafa
borist Lánasýslu rjkisins fyrir kl. 14,
miðvikudaginn 21. apríl. Tilboðsgögn
og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
Athygli er vakin á því aö 23. apríl
nk. er gjalddagi á 2. fl. ríkisvíxla
sem gefinn var út 22. janúar 1993.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.