Morgunblaðið - 20.04.1993, Síða 11

Morgunblaðið - 20.04.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993 11 „Syndir feðranna...“ Bækur_______________ Pétur Pétursson Arni Þór Hilmarsson: Að losna úr fjötrum fortíðar. Uppkomin börn alkóhólista. Almenna bókafélagið 1993. Höfundur þessarar bókar hefur háskólagráðu í sálfræði og fram- haldsmenntun í ráðgjöf og hefur sem slíkur sinnt bæði einstaklingum og fjölskyldum. Hann hefur haldið nám- skeið fyrir uppkomin böm alkóhól- ista. Hann kynnir hér erlendar rann- sóknir og kenningar um það hvernig reynsla bama af alkóhólisma í upp- vexti getur haft afdrifaríkar afleið- ingar fyrir viðkomandi þegar hann eða hún er komin á fullorðinsár. Við- fangsefnið setur hann fram á ljósan og eftirtektarverðan hátt og dæmin sem hann tekur em ljóslifandi og sannfærandi. Sést þar að hér skrifar sá sem styðst við reynslu og raun- verulegar ævisögur en ekki eingöngu dæmi úr erlendum fræðibókum. Aðalvandamál uppkominna bama alkóhólista kemur í ljós þegar að því kemur að mynda og viðhalda varan- legu og nánu sambandi við annan aðila, einkum maka. Þá sýnir það sig oft að tilfínningalífið hefur brenglást og má rekja það til þeirra aðstæðna sem bömin þurfa að laga sig að og lifa við með foreldri eða foreldmm sem misnota áfengi eða annað vímu- efni. Bresturinn liggur í vöntun á varanlegum viðmiðunum í samskipt- um og tilfinningatengslum við annað fólk. Til þess hreinlega að lifa af og komast í gegnum lífíð verða börnin að brynja sig á ýmsan hátt t.d. með því að einangra sig tilfínningalega og félagslega. En síðar á ævinni gera þessir varnarhættir þau vanhæf til að fínna eðlilegt jafnvægi milli sinna eigin óska og þarfa og tilfinn- inga og þarfa annarra. Sérstaklega eiga þau erfítt með að bregðast rétt Árni Þór Hilmarsson við eigin tilfínningum og boðum ann- arra — viðmiðin eru óörugg og þetta kemur fram í skertri sjálfsmynd upp- kominna barna alkóhólista. I áttunda kafla bókarinnar em talin upp helstu einkenni þessa og þau útskýrð nán- ar. Þar á meðal er það að uppkomin börn alkóhólista giska á hvað sé eðli- leg hegðun. Uppkomin börn alkóhól- ista em mjög trygglynd, jafnvel gagnvart þeim sem eiga ekki tryggð þeirra skilið. Þau hafa ýmist mjög mikla ábyrgðartilfinningu eða em mjög kæmlaus. Þau segja ósatt við kringumstæður þar sem jafnauðvelt væri að segja satt og svo mætti áfram telja. Höfundur sýnir fram á hvemig niðurbijótandi hlutverka- mynstur og sjálfskaparvítin verða til þegar barnið getur ekki treyst for- eldrunum sem það elskar og vill umfram allt virða og að aðrir virði. Það gengur inn í hlutverk eins og „áreiðanlega barnið“, „hetjan", „ka- meljónið", „trúðurinn", „friðarboð- inn“ og „sektarlambið". Þegar bamið verður smám saman að viðurkenna að það getur ekki virt foreldra sína þá er einnig sjálfsvirð- ing þess í hættu. Þau vamarmunstur sem það myndar geta virst skotheld út á við en fyrr en varir kemur í ljó að þau em byggð á sandi vegna þess að gmrmur þeirra er ekki gagn- kvæmt traust og virðing. Bam sem veit það af biturri reynslu að ekki er hægt að treysta hinum fullorðna og verður að byggja allt á sér sjálfu. Það getur virst sjálfstætt og getur verið mikill styrkur fyrir aðra þegar það sjálft er fullorðið, en fyrr eða síðar kemst einstaklingurinn í þrot í samskiptum sínum við annað fólk, einkum sína nánustu. Þegar viðkom- andi fínnur að hann getur ekki allt einn verður það áfall sem getur leitt út í sjálfsblekkingu og notkun áfeng- is eða annarra vímuefna. Þannig gengur „sjúkdómurinn“ að erfðum þó á sálfræðilegum og félagslegum forsendum sé, en ekki líffræðilegum. Uppalendur sem vilja gera böm sín að ábyrgum og sjálfstæðum ein- staklingum sem kunna að bera virð- ingu fyrir öðmm og sjálfum sér og geta sýnt öðrum umhyggju og tillits- semi verða að öðru jöfnu sjálfír að hafa notið virðingar og tillitsemi þeg- ar þeir vom að alast upp og vom upp á aðra komnir. Þetta em bæði gömul og ný sannindi sem virðast einföld og augljós en sem því miður of margir virða að vettugi og kom- ast upp með það. Það virðist öfugsnúið að samfélag sem byggir á sjálfræði og ábyrgð einstaklingsins virðist oft blint fyrir þeim uppeldislegu forsendum sem það hvílir á og hylmir jafnvel yfír með þeim sem naga rætur þessa sama samfélags á þeim forsendum að virða beri frelsi og friðhelgi einka- lífsins. Um Islandsáhuga fyrr og síðar Dr. Andrew Wawn háskólakennari í Leeds Árnesingurinn Þorleifur Repp var uppi á fyrri hluta 19. aidar. Hann var fræðimaður, kennari, fornminja- og bókasafnari, stjórn- máiamaður og blaðamaður. Upp- hefð hans varð töluverð; hann var mikill málamaður, bjó 12 ár í Bret- landi og setti mark sitt á menning- arlíf Edinborgar. En eins og hjá mörgum andans manninum í út- löndum varð fall hans mikið; hann dó í sárri fátækt í Kaupmanna- höfn, hjá þeirri þjóð sem hann hataði. Andrew Wawn heitir sá sem hefur gerst rannsakað ævi og starf þessa forvitnilega en tiltölulega lítt kunna íslendings. Eftir hann hefur komið út bókin The Anglo Man í ritröðinni Studia Islandica árið 1991 og í Skírni sama ár birtist eftir hann ritgerð um Þorleif Repp: „Skarlatsbúinn væringi. Þorleifur Repp, Sir Walter Scott og Færey- inga saga. Á námsárum sínum hneigðist hugur Wawns m.a. að íslensku. Hann vildi læra talaða íslensku og var svo heppinn að kynnast íslend- ingi sem nennti að tala við hann. Andrew lauk doktorsprófí í forn- enskum bókmenntum í Birming- ham og hugðist leggja fyrír sig kennslu. Þegar hann þurfti að svara því hvað hann hygðist kenna eða hefði mestan áhuga á að starfa við svaraði hann eins og út í hött: „Forn-íslensku“. Með þessu var stefnan tekin og eftir þetta segist Andrew hafa lát- ið kylfu ráða kasti. Eitt leiddi af öðru þar til Repp varð á vegi hans. — Hvaða þýðingu hefur forn- norræn menning fyrir sögu Eng- lands? „Það vill oft gleymast að rætur enskrar menningar liggja að stór- um hluta í forn-norrænni menn- ingu. Örnefni í Englandi, sem eru að stórum hluta norræns uppruna, ættu t.d. að rifja þetta upp. Sá frægi sagnamaður J.R.R. Tolkien var einmitt prófessor við háskól- ann í Leeds, þar sem ég kenni, og hann jós úr forn-norrænum sagna- brunni í sögur sinar — eins og flestir eflaust vita. Það má segja að forn-norrænar menningarrætur séu til staðar í Englandi. Fólk er einungis búið að gleyma því.“ — Hvernig er ástandið innan háskólanna — er íslenska almennt kennd við enska háskóla? „Nútíma-íslenska er ekki kennd sem sérstök grein við enska há- skóla. Ólíkt því sem gerist t.d. í Þýskalandi eru almennt ekki nein- ar sérstakar norrænar deildir við enska háskóla. Forn-íslenska er hins vegar kennd við marga há- skóla en þá sem hluti af forn- ensku. Meðal þeirra má nefna Oxford, Cambridge, London, Birmingham, Nottingham og Newcastle. Þeir eru mjög fáir stúd- entarnir sem nema íslensku sem sérstaka grein, en þeir eru til og þá hygg ég aðallega við háskólann í London þar sem er lektorsstaða kennd við Halldór Laxness.“ — Er aðgengilegt safn ís- lenskra bóka við háskólann í Le- eds? „Já, það held ég megi segja. Við eigum stórt safn íslenskra bóka. Stofninn er bókasafn Boga Melsteðs sem keypt var til safns- ins. Við kaupum reglulega bækur og höfum til þess fé sem er auðvit- að alltof naumt skammtað. Það væri auðvitað gaman að geta keypt sem allra mest af íslenskum ritum, jafnvel þessi flottu glanstímarit sem úir og grúir af, en við neyð- umst til að takmarka kaupin við þessa flokka í þessari forgangsröð: fornbókmenntir, fornbókmennta- fræði, nútímabókmenntir, fræðileg tímarit og ferðabækur.“ — Hvaða rannsóknir ertu nú með á prjónunum? Má búast við einhveiju meira um karlinn Þorleif Repp? „Eg tel mig hafa lokið við Repp. Raunar hef ég fengið mig fullsadd- an af honum í bili. (Hlátur.) Helst kysi ég núna að láta kylfu ráða kasti. Eg hef markað mér ákveðið efni sem hefur fengið þann tvíræða titil „The Vikings and the Victor- ians“. Ég spyr: Hvers vegna varð Bretland forusturíki heimsins um aldir? Er það hugsanlega vegna þess að Englendingar voru í raun víkingar? Mönnum voru þessi tengsl við fortíðina' miklu ljósari á seinustu öld en nú á dögum. Mið- stýringarvaldið í London varð ekki til fyrr en á 19. öld. Fram að þeim tíma voru borgir eins og Liverpo- ol, Manchester og Hull auðugar iðnaðar- og menningarborgir sem héldu fram fornri arfleifð víkinga. Þetta er eitthvað sem ég vona að geti skýrt tengsl íslenskrar og enskrar menningar." Ingi Bogi Bogason Sinfóníuhlj óm- sveit áhugamanna _________Tónlist____________ Jón Ásgeirsson Sinfóníuhljómsveit áhuga- manna, sem stofnuð var 1990 og hefur starfað undir stjórn Ingvars Jónssonar lágfíðluleikara, hélt tón- leika sl. laugardag í Háteigskirkju. Það hafa verið gerðar nokkrar til- raunir undanfarin ár til að koma á laggirnar áhugamannahljómsveit, en hingað til hafa þær tilraunir allar runnið út í sandinn. Nú virð- ist tiltækið hafa heppnast og til þessa starfs hafa safnast ýmsir þeir sem lært hafa nokkuð til tón- íistar en valið sér annan starfsvett- vang, svo og nemar og starfandi tónlistarmenn, sem að þessu sinni léku á önnur hljóðfæri en þeir gera annars. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna er þarft fyrirtæki og á tónleikunum sl. laugardag var leikur hennar oft ágætlega útfærður undir stjóm Olivers Kentish, sem stjómaði sveitinni að þessu sinni. Á efnis- skránni vom verk eftir Rossini, Puccini, Sigvalda Kaldalóns, Atter- berg og Mozart. Tónleikarnir hóf- ust á forleiknum að óperunni ít- ölsku stúlkunni í Alsír eftir Ross- ini, sem var á köflum vel leikinn. Þar gat að heyra ágætan óbóleik hjá Guðrúnu Másdóttur og Birna Bragadóttir flautuleikari átti einnig vel leiknar stófur. Þorgeir Andrésson söng tvær aríur úr Toscu eftir Puccini og Hamraborgina eftir Sigvalda Kaldalóns. Söngur Þorgeirs var glæsilegur, en nokkuð virtist hljóm- sveit og stjórnandi vera hikandi í að fylgja söngvaranum. Anna Ing- varsdóttir fíðluleikari og Ingvar Jónasson lágfiðluleikari léku ein- leik í svítu eftir Kurt Attenberg. Undirritaður hefur ekki áður heyrt Önnu leika, en hún starfar í Sví- þjóð og var leikur hennar og Ing- vars vel útfærður og samleikur þeirra mjög góður. Lokaverk tónleikanna var sin- fónía í D-dúr nr. 31 eftir Mozart og svo sem vera ber var sannur áhugamannasvipur á flutningi verksins. Leikur sveitarinnar vakti upp gamlar endurminningar, frá þeim ámm er menn vom að koma upp sinfóníuhljómsveit, og var sam- anburðurinn hagstæður fyrir Sinf- óníuhljómsveit áhugamanna og því rétt að hvetja þá sem þama eiga hlut að máli að hér sé þarft verk að vinna og ekki að vita nema með tíð og tíma verði Sinfóníuhljóm- sveit áhugamanna hin frambæri- legusta hljómsveit í alla staði og eigi eftir að gegna merku hlutverki í tónlistariðkun áhugamanna og þeirra sem em að feta sinn veg að atvinnumennsku. Morgunblaðið/Árni Sæbere: Hvílíkir tímar Æft fyrir Brecht-Weill kvöld. Kristinn Örn, Ingveldur Ýr og Thomas. Sólon Islandus 21.-25. apríl Farið í smiðju Brechts og Weills „Hvílíkir tímar“ er yfirskrift Brecht-Weill kvölda á efri hæð kaffihúss- ins Sólons íslandus 21.- 25. apríl og hefst dagskráin kl. 20.30 hvert kvöld. Fluttir verða söngvar úr Túskildingsóperunni, Upprisu og falli Mahagonnyborgar, Góðum endi og Sveik í síðari heimsstyrjöldinni. Flytjendur eru Ingveldur Ýr Jónsdóttir, Thomas Frank og Kristinn Orn Kristinsson undirleikari. Ingveldur stundaði nám í Söng- skólanum í Reykjavík, Tónlistarskól- anum í Vínarborg og Manhattan School of Music í New York. Hún hefur tekið þátt í mörgum óperusýn- ingum í Mið-Evrópu og haldið ljóða- tónleika bæði hér á landi og erlendis. Thomas Frank er Vínarbúi og lauk námi í Tónlistarskóla Vínarborgar. Hann hefur bæði sungið og skrifað kabarettsýningar og tekið þátt í rok- kóperum og söngleikjum í Austur- ríki, New York og Moskvu. Kristinn Örn stundaði nám í Tón- listarskólanum á Akureyri, Tónlistar- skólanum í Reykjavík, í Southern Illionis háskólanum og við St. Louis tónlistarskólanum. Kristinn Örn er starfandi píanóleikari og kennari í Reykjavík. HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN Laufásvegi 2 - simi 17800 Leikbrúéugerð V Kennari: Helga Arnalds. 29. apríl - 20. maí. Fimmtudaga kl. 19.30- 22.30. Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga -fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800. >

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.