Morgunblaðið - 20.04.1993, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
13
Utanríkisþj ón-
usta í hálfa öld
eftir Davíð Ölafsson
Undanfarin 3-4 ár hefi ég orðið
þess áskynja að Pétur Thorsteins-
son, sendiherra, hefur verið að vinna
að bók um utanríkisþjónustu Is-
lands. Fljótlega varð ljóst að þetta
mundi verða allmikið verk og kom
þar til að Pétur er vandvirkur og
nákvæmur í öllu sem hann tekur
sér fyrir hendur og efnið, sem fjall-
að er um er mikið ef því eru gerð
rækilega skil.
Og nú er verkið fullunnið og bók-
in komin út og er þó ekki hægt að
tala um hana í eintölu því bindin
urðu þijú og blaðsíðurnar 1.436 að
tölu.
í formála er gerð nokkur grein
fyrir tilefni þess að þetta verk var
unnið, en það var að 1987 óskaði
þáverandi utanríkisráðherra Matt-
hías Á. Mathiesen eftir því við Pétur
í tilefni af 50 ára afmæli utanrík-
isþjónustunnar að hann tæki að sér
„að safna gögnum, undirbúa og rita
bók um íslenska utanríkisþjónustu,
er úti komi sumarið 1990“.
Það þarf engan að undra þegar
litið er á bindin þijú þó tímaáætlun-
in hafi ekki staðist en hvað um það
aðalatriðið er að bókin er komin út.
Heiti verkefnisins var eins og
áður segir utanríkisþjónustan og
mætti þá ætla að hugsað hafi verið
um uppbyggingu og þróun þessa
þáttar stjórnkerfisins. En þetta varð
meira eins og kemur fram í titli
bókarinnar, sem er „Utanríkisþjón-
usta íslands og utanríkismál, sögu-
legt yfirlit".
Höfundur hefur vafalaust spurt
sig þeirrar spumingar þegar hann
hóf þetta verk hvar skyldi byija.
Það gat verið álitamál. Eg tel að
hann hafi gert rétt í því að fara
aftur til þjóðveldistímabilsins þó þá
hafí engin utanríkisþjónusta verið
til því þá urðu til fyrstu skipti íslend-
inga við erlenda aðila og ýmis at-
vik, sem telja má til utanríkismála
og þetta verk væri ekki fullunnið
nema það væri gert. Finnst mér sá
hluti verksins ekki sístur, fróðlegur
og skemmtilegur.
íslenska stjómkerfíð er ungt að
ámm, verður eiginlega ekki til fyrr
en fyrsti íslenski ráðherrann kemur
árið 1904 og stjórnarráðið verður
til. Þar komu utanríkismálin lítið eða
ekki við sögu og það var ekki fyrr
en með sambandslögunum árið
1918 að „þjóðin fékk í hendur yfír-
stjórn utanríkismálanna eins og
annarra þátta ríkisvaldsins" eins og
segir á bls. 79 í fyrsta bindinu.
Danmörk fór „með utanríkismál ís-
lands í umboði þess“ segir í sam-
bandslagasamningnum. Ennfremur
segir „Ymsir þættir í meðferð utan-
ríkismálanna færðust í hendur ís-
lendinga í vaxandi mæli þegar leið
á sambandslagatímabilið". Um
þetta tímabil fjallar um þriðji hluti
fyrsta bindisins. Er þar sýnt hvern-
ig íslendingar gera sig meira gild-
andi í meðferð utanríkismálanna og
þá fyrst og fremst á sviði viðskipta-
málanna, sem var þá eins og jafnan
síðan hið þýðingarmesta.
Áfangar í þessari þróun voru t.d.
þegar Alþingi setti á stofn utanrík-
ismálanefnd árið 1928 og árið 1938
þegar utanríkismáladeild stjómar-
ráðsins var sett á stofn.
En þetta 'tímabil varð styttra en
upphaflega var gert ráð fyrir og
umskiptin urðu sneggri. Aðfaranótt
10. apríl 1940 þegar Þjóðveijar
höfðu hertekið Danmörku var settur
fundur í sameinuðu þingi og sam-
þykkt einum rómi: „Vegna þess
ástands er nú hefur skapast, getur
Danmörk ekki rækt umboð til með-
ferðar utanríkismála íslands sam-
kvæmt 7. gr. dansk-íslenskra sam-
bandslaga né landhelgisgæslu sam-
kvæmt 8. gr. téðra laga, og lýsir
Alþingi þessvegna yfír því að ísland
tekur að svo stöddu meðferð mála
þessara að öllu leyti í sínar hend-
ur.“ Á því hefur síðan engin breyt-
ing orðið og tæplega 3 mánuðum
síðar voru sett lög „um utanríkis-
þjónustu erlendis". Við það er miðað
upphaf utanríkisþjónustunnar. Öll
er þessi saga hin merkilegasta og
gerð góð skil í fyrsta bindi.
En hver hafa verið viðfangsefni
utanríkisþjónustunnar gegnum tíð-
ina? Um það virðast oft vera skringi-
legar hugmyndir uppi, jafnvel hjá
þeim sem ættu að vita betur. Ekki
er óalgengt að heyra að samkvæm-
islífið sé meginþáttur í starfí utan-
ríkisþjónustunnar. Auðvitað hefur
starfsfólk utanríkisþjónustunnar
Pétur Thorsteinsson.
margvísleg samskipti við stjómkerfí
og þá fyrst og fremst utanríkisráðu-
neyti þeirra landa, þar sem hún er
staðsett og sömuleiðis við utanríkis-
þjónustu annarra landa, og því fylg-
ir samkvæmislíf. En þá er þess að
gæta að vel skipulagt samkvæmislíf
er ómetanlegt tæki til að kynnast
umhverfi sínu og komast í persónu-
leg kynni við fólk, sem nauðsynlegt
er til að ná árangri í starfí í utanrík-
isþjónustunni. En þetta er aðeins
einn þáttur í starfsemi þjónustunn-
ar, en samtvinnaður henni. Ýmis
stórmál hafa komið upp og krafíst
mikils og vandasams starfs af utan-
ríkisþjónustunni þau 50 ár, sem lið-
in eru frá stofnun hennar. Nægir
þar að minna á landhelgismálið,
Norðuratlantshafsbandalagið og
varnarmálin yfírleitt, Sameinuðu
þjóðimar og starf á þeirra vegum
og yfirleitt öll starfsemi í tengslum
við alþjóðastofnanir, sem ísland er
aðili að. Og svo er það auðvitað sá
þáttur, sem alltaf hefur verið lang-
þýðingarmestur en það em við-
skiptamálin. Á öllum þessum sviðum
hefur utanríkisþjónustan unnið
ómetanleg störf.
Þetta rennur allt upp fyrir þeim,
sem les þetta mikla ritverk og marg-
ur fróðleikurinn er í bókinni. Eg
vissi a.m.k. ekki hvar lágu fyrstu
rætur Norðuratlantshafsbandalags-
ins. Frá því segir skilmerkilega á
bls. 337 í 1. bindi hvernig hugmynd-
in varð til snemma í heimsstyijöld-
inni síðari og það var Trygve Lie,
sem þá var utanríkisráðnerra í-
norsku útlagastjórninni í London,
sem kom hugmyndinni á framfæri
við bresk stjórnvöld. Það er í sjálfu
sér ekki undarlegt að einmitt hann
skyldi eiga hér hlut að máli kominn
frá þjóð, sem lent hafði undir
hrammi þýska nasismans. Hann fór
snemma að velta því fyrir sér hvern-
ig hægt væri að koma í veg fyrir
að þær hörmungar, sem styijöldin
leiddi yfír föðurland hans og alla
Evrópu endurtækju sig.
Sá mikli fróðleikur sem þarna er
samankominn og hvernig hann er
fram settur gerir bókina auðlesna
og skemmtilega aflestrar. En þess
utan er þama um að ræða söguleg-
ar heimildir um einn merkasta þátt-
inn 5 íslenska stjórnkerfinu, sem
sagnfræðingar seinni tíma geta aus-
ið af.
En vi lifum á miklum breytinga-
tímum og einmitt á sviði utanríkis-
mála standa nú þær breytingar fyr-
ir dyrum, sem óhjákvæmilega munu
hafa í för með sér miklar breytingar
á skipulagi og verkefnum utanríkis-
þjónustunnar. Um það mun næsti
kaflinn í sögu utanríkisþjónustunnar
fjalla.
Það er ástæða til að óska höfundi
til hamingju með þetta mikla ritverk
og utanríkisþjónustunni að hafa
eignast svona vandaða umfjöllun
um fyrstu 50 árin í sögu sinni.
Að lokum má ekki gleyma að
geta þess að það eykur mjög á gildi
bókarinnar að í lok þriðja bindis
fylgja vönduð heimildaskrá, tilvis-
anaskrá, skrá yfir mannanöfn, skrá
um atriðisorð og heiti og skrá um
myndir.
Höfuadur erfv. Seðlabankasljóri.
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. • ÁRMÚLfl 13, SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
VERÐ RÐEINS
FRÁ KR.
784.000
Einn best útbúni bíllinn
í sínum flokki.
Framhjóladrifinn og öflugur.
Leitið nánari upplýsinga
og reynsluakið
þessum skemmtilega bíl.
OPIÐ LAUGARDAG 10-14
pnny
ÖRKfJ 2114-69-21