Morgunblaðið - 20.04.1993, Page 15

Morgunblaðið - 20.04.1993, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRIL 1993 15 Dísætt íþróttafólk eftir Magnús R. Gíslason í könnun sem nýlega var gerð fyrir tilstuðlan heilbrigðis- og rannsóknaráðs íþróttasambands íslands í samvinnu við Manneldis- ráð kom í ljós að gosdrykkir og sælgæti eru of stór hluti af neysl- unni hjá fjölda íþróttafólks. Þetta kemur ekki á óvart þegar skoðaðir eru þeir möguleikar sem íþróttafólk hefur til að afla sér hollrar fæðu og drykkja í íþrótta- húsum og sundstöðum landsins. Á flestum þessara staða er hægt að fá sjoppufæði, sælgæti og sæta drykki, en aftur á móti er óvíða hægt að fá vatn að drekka nema með því að fara inn á sal- emi, snúa höfðinu um 180° og setja munninn undir krana. Fyrir fáum árum benti Tann- verndarráð í samvinnu við Banda- lag íslenskra skáta á ágæti vatns og hvatti til aukinnar vatnsneyslu. Bæjar- og sveitarstjórnum voru m.a. skrifuð bréf og þær hvattar til þess að koma upp aðstöðu til vatnsdrykkju í skólum og íþrótta- húsum. Því miður virðast þessi til- mæli ekki hafa skilað tilætluðum árangri. í öðrum löndum, t.d. Bandaríkj- unum, þykir slíkur útbúnaðir sjálf- sagður í skólum, íþróttahúsum og víðar. Ekki er um dýr tæki að ræða, en áætlað er að kostnaður sé álíka og við að setja upp hand- laug. Hið opinbera fjármagnar að stórum hluta byggingu skóla og íþróttahúsa og ætti því að gera þá kröfu að í þeim sé lágmarksað- staða til að fá holla næringu, t.d. vatn, en ekki eingöngu gos og sælgæti. Slíkt er áreiðanlega góð fjárfesting, sem skilar sér aftur í betri heilsu. Sjoppur eru ótrúlega margar hérlendis. Víða ein fyrir hverja 200 íbúa. Þær em á ýmsum stöðum en þó helst í eða við skóla, íþrótta- Kripalujóga Byrjendanámskeið hefst 26. apríi. Kennt mánudaga og miðvikudaga kl, 20.00-21.30. lógastöðin Heimsljós, Skeifunni 19,2. hsó, s. 679181 (kl. 17-19). T——T—.' W ' v: v.' s 1' t ■V-« > :■ :i i •/'■fev.’Aít v vv k' ‘. v ' ../ • VJ'. ',-, GÆÐAPLÖTUR FRÁ SWISS pavaroc LOFTA PLÖTUR OO LÍM Nýkomin sending , EINKAUMBOÐ £8 Þ.Þ0RGRIMSS0N Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 HÓITIRDI Shöfum gæða HÓPBIFREH FRA 12 Tl L 65 FARÞEGA , JLEITID UPPLÝSINGA . HÓPFERÐAMIÐSTÖDIN Bíldshöfða 2a, sfmi 685055, Fax 674969 hús, sundstaði og sjúkrahús. Oft er reksturinn réttlættur með því að ágóðanum sé varið til að fjár- magna góðgerðarstarfsemi hér heima eða erlendis. Jafnvel til að kaupa lækningatæki, t.d. tann- lækningatæki, svo að lækna megi sjúkdóma sem rekja má til óhollrar fæðu. Það er vart hægt að segja að tilgangurinn helgi „meðalið" þótt svona rekstur hjálpi til við að greiða fyrir sum „meðul“, ef hann gerir um leið önnur nauðsynleg. íslendingar drekka meira af gosdrykkjum en aðrar þjóðir eða „Hið opinbera fjár- magnar að stórum hluta byggingu skóla og íþróttahúsa og ætti því að gera þá kröfu að í þeim sé lágmarks- aðstaða til að fá holla næringu, t.d. vatn, en ekki eingöngu gos og sælgæti.“ Magnús R. Gíslason að meðaltali um 140 lítra hver maður á ári, þegar miðað er við framleiðslutölur. Til samanburðar má nefna að hver Svíi drekkur aðeins um þriðjung af því magni. í einni venjulegri gosdós eru u.þ.b. 30 grömm af sykri eða sem .svarar allt að 15 sykurmolum. í gos- drykkjum innbyrðir því hver ís- lendingur á hveiju ári að meðal- tali um 12 kg af sykri. Við þetta bætist að hver íslend- ingur borðar að meðaltali yfir 20 kg af sælgæti á hveiju ári eða um 2 kg í hverjum mánuði, svo að skiljanlegt er að fleiri tennur skemmast hjá okkur en t.d. hinum Norðurlandaþjóðunum. Ýmislegt annað getur fylgt, t.d. offita. Höfundur er yfirtannlæknir í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. ÓSKAÍ&LÍFEYRIR ab þínu volil SVEIGJANLEGUR sameignar- eöa séreignarfyrirkomulagi Óskalífeyrir leggur áherslu á sveigjanlegt lífeyrisfyrirkomulag. Hann hjálpar þér me6 einföldum en markvissum sparnabi aö styrkja lífeyrisrétt þinn og r * * s s leggur þannig grunn aö öruggri afkomu á efri árum. I Oskalífeyri getur þú hafiö lífeyristöku 60 ára og þú átt val um á hve löngum tíma þú tekur út þinn lífeyri. ÓSKALÍFEYRIR býöur upp á eftirtalda lífeyrismöguleika sem velja má úr einn eöa fleiri. Ævilífeyrir er greiddur mánaöarlega frá lífeyrisaldri til dánardags. Tímabilslífeyrir er greiddur mánaöarlega í ákveöinn tíma. Lágmarkstími er 5 ár en hámark 20 ár. Eingreiðslulífeyrir greiöist í einu lagi á lífeyrisaldri. Eingreiðslusöfnun er séreignarfyrirkomulag og greiöist í einu lagi á lífeyrisaldri. ÓSKALÍFEYRIR - NÝJUNG í LÍFEYRISMÁLUM! Þú færb nánari upplýsingar hjá tryggingarráðgjöfum Sameinaba Irftryggingarfélagsins hf. Haföu samband! Sameina&a líftryggingarfélagib hf. Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Sími 91- 692500 í eigu Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Tryggingamiðstöövarinnar hf. SA/0 V~

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.