Morgunblaðið - 20.04.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRIL 1993
RAYNOR SHOWOASE
BÍLSKÖRSHURÐIR
ravKior
GARAGE DOORS
Hágæða amerískar
bílskúrshurðir.
Stál, galvaniserað að
utan og innan.
47,6 mm einangrun.
Tvöfalt lag af innbökuðu
lakki.
Galvaniserað stál í
brautum og búnaði.
Tværgerðiraf
fulningum eða sléttar.
Úrval gluggamöguleika.
Hafið samband og fáið
senda bæklinga eða
tilboð.
VERKVER
Skúlagötu 61A,
sími 621244/fax 629560.
Mistök við skipan
samkeppnisráðs
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
eftir Steingrím J.
Sigfússon
Sú víðtæka samstaða sem að
lokum tókst um afgreiðslu frum-
varps til nýrra samkeppnislaga var
fagnaðarefni. Ein meginbreytingin
með tilkomu laganna frá því sem
var í gömlu verðlagslögunum
gengur í þá átt að leggja af öll
afskipti opinberra aðila af viðskipt-
um og verðlagningu þar sem sam-
keppni er næg. Fagleg og við-
skiptaleg sjónarmið eru hafin til
öndvegis.
Efnahags- og viðskiptanefnd
vann mikið starf við afgreiðslu
frumvarpsins og tókst að ná sam-
komulagi um allmiklar breytingar
á því þar sem tekið var tillit til
ýmissa athugasemda og sjónar-
miða sem fram höfðu komið, þar
á meðal breytingartillagna sem
undirritaður hafði lagt fram. Ekki
leikur vafi á því að vinna nefndar-
innar stórbætti frumvarpið, enda
féllst Alþingi einróma á breyting-
artillögumar með þeirri frægu
undantekningu er Bjöm Bjamason
lagðist gegn bráðabirgðaákvæði
um úttekt á einkennum hringa-
myndunar í íslensku viðskiptalífí.
Skipan samkeppnisráðs
Ein breytingin sem efnahags-
og viðskiptanefnd varð sammála
um varðaði skipan samkeppnis-
ráðs.
í fmmvarpinu eins og það var
lagt fram af viðskiptaráðherra var
gert ráð fyrir því að samkeppnisráð
yrði skipað með eftirfarandi hætti,
sbr. 6. gr.:
„í samkeppnisráði eru fimm
menn. Skipar ráðherra þrjá
þeirra, þ.e. formann ráðsins án
tilnefningar, einn samkvæmt til-
nefningu Alþýðusambands ís-
lands og einn samkvæmt tilnefn-
ingu Vinnuveitendasambands
íslands. Hæstiréttur íslands
skipar tvo menn í ráðið sem
skulu hafa þekkingu á sam-
keppnis- og viðskiptamálum og
vera óháðir fyrirtækjum eða
samtökum sem lögin taka til.
Varamenn skulu skipaðir á
sama hátt. Skipunartími sam-
keppnisráðs er fjögur ár í senn,
en við ríkisstjórnarskipti getur
ráðherra fellt niður skipun for-
manns og varamanns hans og
skipað nýja menn í þeirra stað
til loka skipunartíma samkeppn-
isráðs er þá situr.“
MORGUN
BLAÐSINS
Akstursíþróttir
Þriðjudagsblaði Morgunblaðsins, 27. apríl nk., fylgir blaðauki sem heitir
Akstursíþróttir. Þetta blað verður helgað akstursíþróttum sumarsins og gefur
áhugamönnum gott yfirlit yfir það, sem verður að gerast í einstökum greinum
akstursíþróttanna. Sagt verður frá undirbúningi ýmissa aðila fyrir keppni
sumarsins, fjallað um öryggismál o.fl.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekiö
er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 þriðjudaginn 20. apríl.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Guðmundsdóttir, starfsmaður
auglýsingadeildar, í síma 69 1111 eða símbréf 69 1110.
- kjarni málsins!
Sem sagt ráðið yrði sambland
af óháðum fulltrúum skipuðum af
Hæstarétti og fulltrúum hags-
munaaðila, stærstu samtaka á
vinnumarkaðinum.
Þetta kemur skýrt fram ef skoð-
uð er umsögn um 6. gr. frumvarps-
ins en þar segir eftirfarandi:
„í frumvarpinu er mælt fyrir
um skipun og tilnefningu í sam-
keppnisráð. Lagt er til að við-
skiptaráðherra skipi formann
samkeppnisráðs án tilnefningar
en Alþýðusamband íslands og
Vinnuveitendasamband íslands
tilnefni hvort sinn fulltrúa. Hlut-
lausa aðild að samkeppnisráði
er reynt að tryggja með því að
fela Hæstarétti Islands að skipa
tvo menn og með því að krefj-
ast þess að þeir skuli vera óháð-
ir hagsmunum atvinnulífsins.
Þeir eiga að hafa alhliða þekk-
ingu á samkeppnis- og við-.
skiptamálum. Jafnmargir vara-
menn séu skipaðir á sama hátt
og aðalmenn.
' Lagt er til að ráðherra geti
skipt um formann og varamann
hans við ríkisstjórnarskipti."
Eftir vandlega skoðun ákvað
efnahags- og viðskiptanefnd að
breyta skipan ráðsins. Allt ráðið
skyldi skipað á faglegum forsend-
um og allir ráðsmenn skyldu upp-
fylla kröfur um „sérþekkingu á
samkeppnis- og viðskiptamálum
og vera óháðir fyrirtækjum eða
samtökum sem lögin taka til“.
M.ö.o. horfið var frá fyrri hug-
myndum um einskonar blöndu full-
trúa hagsmunaaðila (ASÍ/VSÍ) og
óháðra fulltrúa með sérþekkingu.
Að breytingartillögu efnahags-
og viðskiptanefndar samþykktri
lítur 6. gr. laganna svo út:
„Ráðherra skipar fimm menn
í samkeppnisráð og jafnmarga
til vara. Skulu þeir hafa sér-
þekkingu á samkeppnis- og við-
skiptamálum og vera óháðir fyr-
irtækjum eða samtökum sem
lögin taka til. Ráðherra skipar
formann og varaformann ráðs-
ins.
Skipunartími samkeppnisráðs
er fjögur ár í senn. Látist aðal-
eða varamaður í/ráðinu eða for-
fallist varanlega skal skipa nýj-
an mann til loka skipunartíma
ráðsins.
Nú er aðalmaður vanhæfur
til meðferðar einstaks máls sök-
um tengsla við málsaðila og tek-
ur varamaður þá sæti hans. Sé
þess ekki kostur getur ráðherra
að ósk formanns samkeppnis-
ráðs skipað mann í ráðið til að
taka þátt í umfjöllun þess um
málið.“
Framkvæmdastjóri VSÍ
skipaður í samkeppnisráð
í ljósi þess sem að framan segir
kom það því eins og þruma úr
heiðskíru lofti að viðskiptaráðherra
skyldi skipa framkvæmdastjóra
VSÍ í samkeppnisráð. Þar hafa átt
sér stað alvarleg mistök, sem bæði
viðskiptaráðherra og viðkomandi
einstaklingi væri fyrir bestu að
leiðrétta strax.
Rökin gegn þessari skipan eru
mörg og eiga það sameiginlegt að
hafa ekkert með persónu eða hæfni
viðkomandi einstaklings að gera:
1. Erfitt er að sjá að fram-
kvæmdastjóri VSÍ uppfylli skil-
yrði um að vera óháður „fyrir-
tækjum eða samtökum sem lög-
in taka til“.
2. Skipan framkvæmdastjórans,
sem áður sat í verðlagsráði sem
fulltrúi VSÍ, gengur þvert á þá
efnisbreytingu sem Alþingi að
Steingrímur J. Sigfússon
„í ljósi þess sem að
framan segir kom það
því eins og þruma úr
heiðskíru lofti að við-
skiptaráðherra skyldi
skipa framkvæmda-
stjóra VSÍ í samkeppn-
isráð. Þar hafa átt sér
stað alvarleg mistök,
sem bæði viðskiptaráð-
herra og viðkomandi
einstaklingi væri fyrir
bestu að leiðrétta
strax.“
tillögu efnahags- og viðskipta-
nefndar gerði á frumvarpinu
og samrýmist á engan hátt
þeirri hugsun sem að baki lá.
3. VSÍ sem félagsskapur, saman-
stendur af blöndu félaga og ein-
stakra fyrirtækja, en um 60
fyrirtæki eiga beina eða sjálf-
stæða aðild að VSÍ, þar á með-
al nokkur helstu stórfyrirtæki
landsins með markaðsráðandi
stöðu á sínu sviði. Fram-
kvæmdastjóri VSÍ er því að
hluta til starfsmaður þessara
fyrirtækja beint. Eins og kunn-
ugt er fara áhrif fyrirtækjanna
innan VSÍ eftir stærð þeirra eða
umfangi heildarlaunagreiðslna
og þannig hafa stærstu fyrir-
tækin mest áhrif.
4. í framhaldi af breytingartillög-
um sem undirritaður flutti og
vörðuðu hættuna á fákeppni og
hringamyndun, náðist um það
samstaða að eitt af hlutverkum
hins nýja samkeppnisráðs skuli
vera að gera á fyrstu tveim
starfsárum sínum úttekt á ís-
lensku viðskiptalífi, eða eins og
segir í ákvæði til bráðabirgða II:
„Samkeppnisráð skal á árun-
um 1993 og 1994 gera úttekt
á stjórnunar- og eignatengslum
milli fyrirtækja er starfa á ís-
lenskum markaði. Skal þetta
gert í því skyni að kanna hvort
í íslensku viðskiptalífi sé að
finna alvarleg einkenni hringa-
myndunar, óæskilegra tengsla
eða valdasamþjöppunar ...
o.s.frv."
Ég leyfi mér að halda því fram
að það sé ekki heppilegt að gera
framkvæmdastjóra VSÍ, starfs-
mann stórfyrirtækjanna, að hluta
til að verkstjóra í slíkri jjttekt.
Þessi skipan mála eru mistök,
draugur úr fortíðinni, sem kveða
þarf niður. Vera framkvæmda-
stjórans í ráðinu skapar augljósa
hættu á vanhæfismálaferlum og
fleira mætti telja.
Ég hvet menn til að sjá að sér
og það hafa neytendasamtökin og
fleiri gert. Vonandi verður það.
Höfundur er varaformaður
Alþýðubandalagsins ogsiturí
efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis.