Morgunblaðið - 20.04.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
Eru
þeir að
fá 'ann
HlUlWsA Nordisk
twjUjíjJÍM Forskerutdanningsakademi
Norræna umhverfis-
rannsoknaverkefnid
Gunnar Sigvaldason og Dorg-
veiðifélag íslands efndu á
sunnudaginn til dorgveiði-
keppni á Úlfsvatni á Arnar-
vatnsheiði. Gunnar sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
keppnin hefði vart getað
heppnast betur. „Það var
rjómalogn og glampandi sól
og hiti. Mér skilst að það hafi
hvergi verið gott veður á land-
inu nema á Arnarvatnsheiði.
Þátttakendur í keppninni
voru um 40 talsins, en fleiri
voru að veiðum þótt þeir
skráðu sig ekki. Svo var
margt um manninn, heilu fjöl-
skyldumar, þannig að þetta
hafa verið svona 100 manns
allt talið. Og veiðin var geysi-
Ieg, það fékk varla nokkur
maður færri en 10 til 12 fiska
og margir miklu meira“ sagði
Gunnar.
Keppt var í þremur flokkum,
verðlaun voru veitt fyrir mestu
veiðina, stærsta fískinn og jöfn-
ustu og fallegustu veiðina. Oskar
Pálsson hreppti verðlaun fyrir
flesta fískana, dró 37 urriða og
bleikjur. Magnús Þór Sigmunds-
son fékk verðlaun fyrir jöfnustu
og fallegustu veiðina, en Norð-
maðurinn Harald Christensen
dró stærsta fískinn, 4 punda
urriða. Óskráður veiðimaður einn
fékk enn stærri fisk, tæplega 5
punda og að minnsta kosti tveir
veiðimenn misstu mjög stóra
fiska sem slitu 30 punda línu.
Var annar kominn með hausinn
upp úr er línan brast. Mikil átök
geta orðið í dorgveiði og athuga
verður, að engin er veiðistöngin
til að milda átökin milli manns
og físks. Flestir veiðimanna not-
Sigurvegarar
Óskar Pálsson hampar sigurbikarnum, við hlið hans er Magnús
Þór Sigmundsson.
Dorgað
ÞAÐ er ekki fyrir kuldaskræfur að dorgveiða. Þama er Hildur
Gunnarsdóttir kappdúðuð á ísnum með veiðiprikið í hönd.
sleðunum, en um leið og bloti
kemur og snjóbráð verður örðugt
fyrirjeppamennina. Sjálfurhefur
hann flogið inn eftir og lent á
ísnum. Sagði Gunnar að bændur
í Veiðifélagi Amarvatnsheiðar
væru með stór áform á pijónun-
um að bæta við og auka aðbúnað
allan fyrir veiðimenn á þessum
slóðum þannig að vetrarveiði af
þessu tagi gæti aukist fremur
en hitt. „Þetta er mikið ævintýri
og Amarvatnsheiðin er mikil
gullkista," sagði Gunnar að lok-
um.
uðu rækju að sögn Gunnars.
Gunnar sagði mikla umferð
inn á Arnarvatnsheiði um þessar
mundir, lengi mætti skrölta á
Norðlenskir hestadagar
Eyjólfur og Skrúð-
ur með frábærar
fimiæfingar
_________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
Norðlendingar mættu nú öðru
sinni suður í höfuðborgina með
mikinn hestaflota og settu upp
mikla sýningu undir heitinu
Norðlenskir hestadagar í Reið-
höllinni í Viðidal. Komu þar fram
stóðhestar, hryssur og gæðingar
auk annarra sýningaratriða þar
sem hesturinn var að sjálfsögðu
miðpunkturinn. Boðið var upp á
þijár sýningar að þessu sinni en
yfirleitt, ef ekki alltaf, hafa verið
fjórar sýningar þegar haldnir
hafa verið hestadagar í Reiðhöll-
inni. Virðast þrjár sýningar á svo
stuttum tima vera yfirð nóg fyr-
ir hrossin í það minnsta þau sem
mest mæðir á.
Norðlendingamir voru komnir suð-
ur um síðustu helgi með hrossaflot-
ann og byrjaðir æfíngar á mánu-
dag. Var mikið æft á hveijum degi
og haldnir fundir og bundu margir
því miklar vonir við þessar sýning-
ar. Urðu margir fyrir vonbrigðum
því í heildina séð var sýningin held-
ur slök og þótt ekki hafí hestakost-
urinn verið slæmur má segja að
breiddina hafí vantað. Þá féllu
Norðlendingar í sömu gryfju og
margir aðrir sem þama hafa staðið
fyrir sýningum að stilla ekki lengd
sýninganna í hóf. Tæplega þriggja
stunda löng dagskrá af misgóðum
atriðum er of löng dagskrá og þurfa
menn að gera sér betur grein fyrir
mismun á hugtökunum magn og
gæði. Aðsókn að sýningunum var
ágæt enda auglýsinga- og kynning-
arþátturinn í góðu lagi hjá Norð-
lendingum. Húsfyllir var á laugar-
dagskvöldinu sem þýðir að um
1.200 manns hafí þá komið en eitt-
hvað færra á föstudag og sunnu-
dag. Má gera ráð fyrir að eitthvað
á þriðja þúsundið hafi sótt sýning-
arnar sem er ágæt útkoma.
Eitt atriði sýninganna bar af sem
gull af eiri en þar átti hlut að máli
Eyjólfur ísólfsson reiðkennari á
Hólum er hann mætti með gæðing-
inn Skrúð frá Lækjarmóti og sýndi
á honum hlýðni eða fimiæfingar í
hæsta gæðaflokki. Að því loknu tók
hann hnakkinn af og lét klárinn
leggjast og því næst reisa sig upp
að framan þannig að hann sat eins
og hunda er siður. Hefur þessi æf-
ing aldrei verið framkvæmd fyrr
opinberlega hérlendis. Ekkert ann-
að atriði vakti sérstaka athygli fyr-
ir utan að fram komu mörg athygl-
isverð hross og bar þar hæst gæða-
hryssuna Hrafntinnu frá Dalvík
með allar sinar níur fyrir hæfíleika.
Kom hún fram bæði í hryssusýning-
unni og einnig í sóló sýhingu í lok-
in. Þá var ræktunarsýning hrossa-
búsins að Þverá í Skíðdal athyglis-
verð og þá sérstaklega hryssan
Saga undan Kjarval frá Sauðár-
króki og Nótt frá Leifsstöðum, að-
eins fímm vetra gömul en nú þegar
stórglæsileg á gangi og í allri fram-
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
Hestagullið Hrafnhetta frá Dalvík og Baldvin Ari fóru á kostum á
sýningunni.
Vísindanámskeið 1994
NorFA, Nordisk Forskerutdanningsakademi býður norrænum vísindamönnum og
rannsóknastofnunum til að sækja um styrki til að halda vísindanámskeið innan
ramma norræna umhverfisrannsóknaverkefnisins á árinu 1994.
Námskeiðin ber að tengja við eitthvað þemasviða umhverfisrannsóknaverkefnisins:
Rannsóknir á loftlagsbreytingum.
Umhverfisrannsóknasamvinna á Eystrasaltssvæðinu.
Flinar samfélagslegu forsendur umhverfismálastefnunnar.
Umsóknarfrestur rennur út 1. júní 1993.
Upplýsingar um hvernig sækja ber um styrk sem og umsóknareyðublöð er hægt
að fá í upplýsingabæklingi NorFA „Grenselos forskerutdanning". Bæklinginn er
hægt að fá hjá háskólum, rannsóknastofnunum og rannsóknaráðum eða á skrif-
stofu NorFA:
Nordisk Forskerutdanningsakademi - NorFA,
Sandakerveien 99,
N-0483 Ósló.
Sími: 90 47 22 15 70 12.
Telefax: 90 47 22 11 58.
Skrifstofan veitir einnig allar nánari upplýsingar
Opið hús hjá FÍ
OPIÐ hús er nýjung í starfi Ferðafélagsins, en aðstaða fyrir slíkar
samkomur skapaðist þegar flutt var í nýja félagsheimilið í Mörkinni
6 og hafa félagsmenn nýtt sér þessa aðstöðu og sýnt þessari nýjung
mikinn áhuga.
í vetur hefur verið haft opið hús
nokkrum sinnum til þess að kynna
ferðir og annað sem félagið hefur á
sinni stefnuskrá.
í kvöld, þriðjudaginn 20. apríl kl.
20.20, verður næsta opna hús í Mörk-
inni 6 (risi). Þá verða kynntar Hom-
strandaferðir félagsins í sumar. Far-
arstjórar koma og svara spumingum,
kynna gönguleiðir á svæðinu o.fl.
Heitt verður á könnunni og hvetjum
við þá sem hug hafa á Hornstranda-
ferðum Ff að koma í kvöld og fá
upplýsingar um búnað og tilhögun
ferðanna.
Það eru allir velkomnir á opið hús
hjá Ferðafélaginu, félagar og aðrir.
(Fréttatilkynning)
HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
Prjóntækni
Kennari: Ragna Þórhallsdóttir.
27. apríl - 18. maí. Þriðjudaga kl. 19.30- 22.30.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga
-fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800.
y
0
>