Morgunblaðið - 20.04.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
21
Galdur frá Sauðárkróki var einn stóðhestanna sem vakti athygli,
gangrúmur og myndarlegur hestur. Knapi er Eiríkur Guðmundsson.
göngu. Af stóðhestum mætti nefna
Galdur frá Sauðárkróki sem er und-
an Höfða Gusti og Hrafnhettu frá
Sauðárkróki, myndarlegur og
gangrúmur hestur. Þá var gaman
að sjá stóðhestinn Hug frá Hofstað-
aseli sem er móvindóttur en illa
hefur gengið að finna frambærileg-
an stóðhest með þessum lit og nú
er það spurningin hvort Hugur
standist ekki byggingar og hæfi-
leikakröfur því óneitanlega gaf
hann góðar vonir í höllinni. Fleiri
góð hross mætti hér til taka en
þetta skal látið nægja að sinni.
Vissulega var ferð þeirra norðan-
manna þess virði að hún væri farin
en hinsvegar er það orðið spurning
hversu lengi það gengur að bjóða
upp á sýningar í reiðhöllinni þar sem
gert er út á meðalmennskuna og
gamlar hugmyndir. Þótt þetta sé
nefnt hér á þetta við um margar
aðrar sýningar sem boðið hefur
verið upp á í Reiðhöllinni. Hrossin
standa alltaf fyrir sínu að því er
virðist en eitthvað virðast mennirn-
ar orðnir hugmyndasnauðir. En
þrátt fyrir þennan aðfinnslu- eða
nöldurtón vil ég þakka Norðlend-
ingum fyrir sýninguna, víst er að
ekki leiddist mér á henni. Og svona
aukreitis má ekki gleyma því að
fjöldi manns leggur á sig mikla
vinnu og fórnar dýrmætum tíma til
að sýning sem þessi verði að veru-
leika og eiga þeir sem þarna komu
við sögu þakkir skildar.
Næsta sýning í Reiðhöllinni verð-
ur 7. til 9. maí n.k. er Fákur og
Sunnlendingar halda sína hesta-
daga. Verður fróðlegt að sjá hvort
þeim tekst að rífa sig upp úr meðal-
mennskunni og bjóða upp á eithvað
nýtt og skemmtilegt.
Henta á svalir - verandir og til útstillinga.
Breidd: 150 cm, 200 cm og 400 cm.
Tennis-grasteppi kr. 980,- pr. fm.
Má nota úti sem inni allt árið.
Við sníðum eftir þínu máli.
Opið virka daga kl. 9-18,
laugardaga kl. 10-14.
Nýtt stangarmál hann-
að fyrir ráðunauta BI
TEPPABUDIN
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S-91 681950
Nýlokið er hönnun á nýju ís-
lensku stangarmáli en eins ogi
kunnugt er verður nú og fram-
vegis farið að nota eingöngu
stangarmál við mælingar á kyn-
bótahrossum. Hönnuðurinn
Höskuldur Hildibrandsson sem
sjálfur fæst við hrossarækt auk
þess að vinna við ýmiskonar
málmsmíði hannaði tækið í sam-
vinnu við ráðunauta Búnaðarfé-
lags íslands, þá Þorkel Bjarnason
og Kristip Hugason.
Höskuldur segir að þeir félagar
hafi ekki verið fulkomlega sáttir
við þau stangarmál sem í boði voru
og því leitað til hans um að hanna
og smíða annað og betra stangar-
mál. Stangarmálið er úr áli sem er
rafbrynjað í grænum lit Búnaðarfé-
lagsins og með merki hrossaræktar-
innar. Mælikvarðar á stangarmál-
inu eru þrír, þ.e. eftir því hvort
mæld er hæð, lengd eða breidd
hestsins. Segir Höskuldur að von
bráðar verði hafist handa um fram-
leiðslu á stangarmálinu sem hvar-
vetna hafi vakið mikla athygli
hestamanna þar sem það hefur ver-
ið sýnt og kynnt. Þykir hún létt og
þægileg í notkun og sérstaklega
stöðug þegar tekin eru hæðarmál.
Stangarmálið verður selt á almenn-
um markaði og jafnvel að hugað
verði að útflutningi.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
143 á herðakamb segir hönnuðurinn Höskuldur Hildibrandsson sem
hér bregður stangarmálinu nýja á hest frá Sigurbirni Bárðarsyni
og þeir Sigurður Sæmundsson, Erling Sigurðsson, Hafliði Halldórs-
son og Gunnar Arnarsson fylgjast spenntir með.
Myndakvöld hjá Utivist síðasta vetrardag
SÍÐASTA myndakvöld vetr-
arins verður síðasta vetrar-
dag, miðvikudaginn 21. apríl
og hefst sýningin kl. 20.30 í
Iðnaðarmannahúsinu á Hall-
veigarstíg 1.
Hörður Kristinsson, formaður
Náttúrufræðistofnunar Norður-
lands kemur frá Akureyri og sýnir
myndir frá stórkostlegu svæði
Austfjarða sem teknar voru í sum-
arleyfisferð Útivistar um eyðifirði
Austfjarða árið 1991 og úr eigin
ferðum Harðar, en myndirnar
spanna svæðið frá Borgarfirði
eystri og allt suður í Vaðlavík.
Að auki verða sýndar myndir frá
Héðinsfirði og úr Hvannadölum
en sl. sumar var gönguferð hjá
Útivist um þetta svæði frá Siglu-
firði yfir í Olafsfjörð.
Innifalið í aðgangseyri er hlað-
borð kaffínefndar. Allir eru boðnir
velkomnir.
(Fréttatilkynning)
„Peeping Tom“ sýnd hjá
Hreyfimyndafélaginu
HREYFIMYNDAFÉLAGIÐ sýnir bresku myndina „Peeping
Tom“ frá 1960, í leikstjórn Michaels Powells. Myndin er sýnd
miðvikudaginn 21. apríl kl. 21 og mánudaginn 25. apríl kl. 17.
Myndin, sem framleidd var á sínu og þjáist af óstjórnlegri gægi-
sjöunda áratugnum, er uppáhald þörf.
leikstjórans Martins Scorsese, en Þetta er síðustu sýningar
hann stóð fyrir því að myndin var Hreyfimyndafélagsins í vor en
endurútgefin. _ fímmmiðakortin munu gilda áfram
Myndin fjallar um mann sem í haust.
er ákaflega skaddaður af uppeldi (Fréttatiikynning)
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Hvað í ósköpunum erlögreglan aðgera
héma fyrir utan... ???