Morgunblaðið - 20.04.1993, Side 23
23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri Sjómannasambandsins
Líðum ekki braskið lengur
og ætlum að stoppa það
ÞRJÚ af stærstu samtökum sjómanna hafa lýst yfir harðri
andstöðu við núverandi fyrirkomulagi á framsali kvóta og
sent frá sér sameiginlega ályktun þess efnis eins og greint var
frá í Morgunblaðinu um helgina. Hólmgeir Jónsson fram-
kvæmdastjóri Sjómannasambands Islands segir að samtökin
líði ekki braskið sem viðgengst í núverandi kerfi og ætli sér
að stoppa það. Helgi Laxdal formaður Vélstjórafélags íslands
segir að í núverandi mynd sé kerfið að breytast í ófreskju og
Guðjón Á. Kristjánsson formaður Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins segir að kvótasalan sé að eyðileggja hlutaskipta-
kerfi sjómanna.
Hólmgeir Jónsson segir að Sjó-
mannasamband íslands hafi ætíð
verið fylgjandi kvótakerfinu í stórum
dráttum þótt þeir hafi á sínum tíma
verið andvígir framsalsákvæðum
þess. „Nú eru þessi viðskipti orðin
yfirgengileg og útgerðarmenn eru
að eyðileggja þetta kerfi með allskon-
ar braski," segir Hólmgeir. „Þrátt
fyrir yfírlýsingar um annað halda
útgerðarmenn áfram að neyða sjó-
menn til að taka þátt í kvótakaupum
með sér en slíkt er brot á kjarasamn-
ingum sjómanna. Og ef sjómenn
andmæla þessu er þeim einfaldlega
sagt að þeir geti farið.“
Hólmgeir segir að lítið réttlæti sé
í því að þegar útgerðarmenn selji
kvóta haldi þeir sjálfir heildar and-
virðinu en þegar þeir kaupa kvóta
eru sjómennirnir neyddir til að taka
þátt í kostnaðinum við slíkt. Hann
nefnir dæmi um 15 manna áhöfn sem
látin var setja hluta af kaupi sínu í
kvótakaupasjóð alla vertíðina. Þegar
vertíðinni lauk hafí heimingnum af
áhöfninni verið sagt upp og skipið
sent á aðrar veiðar. „Við líðum ekki
braskið lengur og ætlum að stoppa
það,“ segir Hólmgeir.
Aðspurður um hvernig þeir telji
að bæta megi úr þessu svarar Hólm-
geir að í fyrsta lagi hafi þeir sagt
að ef skip geti ekki veitt kvóta sinn
eigi það að skila afganginum til sjáv-
arútvegsráðuneytisins sem síðan
Hafsteinn Kristins-
son forsijóri látinn
HAFSTEINN Kristinsson, forstjóri
Kjöríss hf. í Hveragerði, lézt að
morgni sunnudagsins 18. apríl af
völdum heilablóðfalls, 59 ára að aldri.
Hafsteinn var fæddur 11. ágúst
1933 að Ámesi á Selfossi, sonur
Kristins Vigfússonar húsasmíða-
meistara og Aldísar Guðmundsdóttur
frá Litlu-Sandvík. Hann nam mjólk-
urfræði við Mjólkurbú Flóamanna,
stundaði framhaldsnám í Danmörku
og lauk námi við Landbúnaðarhá-
skóla Kaupmannahafnar 1960. Var
við framhaldsnám í mjólkurfræði við
Landbúnaðarháskólann í Ási í Noregi
1961-62 sem Rotary Fund styrk-
þegi.
A árunum 1961-66 var hann
ráðunautur i mjólkurfræði hjá MBF,
Osta- og smjörsölunni og Búnaðar-
félagi Islands. Fluttist 1966 til
Hveragerðis og hóf þar rekstur osta-
gerðar, sem hann breytti 1968 í ís-
gerð, Kjörís hf., og var framkvæmda-
stjóri hennar síðan.
Hafsteinn hóf fljótlega afskipti af
opinberum málum í Hveragerði og
átti sæti í hreppsnefnd og bæjar-
stjóm í 15 ár. Var oddviti hrepps-
nefndar 1974-78 og 1982-87 og
var kjörinn fyrsti forseti bæjarstjóm-
ar 1987 og átti þar sæti til 1989.
Hafsteinn Kristinsson forstjóri.
Hann sat í stjóm Landsvirkjunar
1987-1991. í Lionsklúbbi Hvera-
gerðis frá stofnun hans 1971.
Eftirlifandi eiginkona Hafsteins
er Laufey S. Valdimarsdóttir frá
Hreiðri í Holtum og eru böm þeirra
fjögur uppkomin.
myndi endurúthluta honum. Og í
öðm lagi sé það baráttumál að allur
afli sé seldur í gegnum fískmarkaði.
Sjómönnum ekki blandað í
kaupin
Helgi Laxdal formaður Vélstjóra-
félagsins segir að félagið hafi hingað
til verið meðmælt kvótakerfínu og
framsali á kvóta. En þau sjónarmið
hafí byggst á því að sjómönnum
væri ekki blandað í sölu eða kaup á
kvótum. „Við höfum dæmi um að
við hlutaskipti séu 15% dregin af
sjómönnum og látin renna til kvóta-
kaupa,“ segir Helgi. „Annað dæmi
um skerðingu á kjarasamningum sjó-
manna eru veiðar sem kallaðar hafa
verið tonn á móti tonni. Þá fær físk-
verkun bát til að veiða fyrir sig afla
og lætur á móti sama magn í veiði-
heimildum. í slíkum dæmum eru
30-40 krónur fyrir kíló dregnar af
sjómönnum áður en til hlutaskipta
kemur. Þarna er einfaldlega verið
að lækka skiptakjörin og slíkt getum
við_ ekki sætt okkur við.“
í máli Helga kemur fram að Vél-
stjórafélagið styðji áfram kvótakerfið
en að núverandi útfærsla þess gangi
ekki upp nema hægt sé að halda
hlut sjómanna utan við það brask
sem viðgengst í kerfínu. „í núver-
andi mynd er þetta kerfí að breytast
í ófreskju," segir Helgi.
Hvað lausnir varðar segir Helgi
að í félaginu sé unnið að ýmsum
hugmyndum en hann nefnir að for-
senda þess að sjómenn sætti sig við
framsal á kvótum sé að allur afii fari
í gegnum fískmarkaði. „Með þeim
hætti myndum við fá upplýsingar um
söluverðmæti aflans og gætum auð-
veldlega séð hveijum bæri að fá hvað
í sinn hlut,“ segir Helgi.
Notfæra sér atvinnuástandið
Guðjón Á. Kristjánsson segir að
kvótabraskið sé stöðugt að vaxa og
með því sé verið að brjóta samninga
sjómanna slag í slag. „Það sem er
einnig alvarlegt er að útgerðarmenn
virðast notfæra sér það atvinnu-
ástand sem við búum við í dag og
vaxandi atvinnuleysi," segir Guðjón.
„Það kemur þannig út að þeir sjó-
menn sem ekki sætta sig við að taka
þátt í kvótakaupum er sagt að finna
sér annað pláss. Svona vinnubrögð
getum við ekki sætt okkur við.“
Guðjón segir að Farmanna- og
fiskimannasambandið hafí aldrei ver-
ið sátt við núverandi kvótakerfí þó
dregið hafí úr andstöðunni á síðustu
árum. Framsalsákvæðin í núverandi
mynd séu hinsvegar óásættanleg og
það sé furðulegt ef ekki sé hægt að
fínna fiskstjórnunarkerfí sem geti
gengið án þess að menn séu að mis-
nota sér viðskiptareglur í því.
Annar formanna Tvíhöfðanefndar
Kvótakerfið gert
að blóraböggli
VILHJÁLMUR Egilsson, annar formanna Tvíhöfðanefndarinnar,
segir að andstaðan við framsal á veiðiheimildum sé að hans mati
á þeim nótum að verið sé að gera kvótakerfið að blóraböggli
fyrir viðleitni útgerðarmanna til að ná niður hjá sér launakostn-
aði. „Það er ljóst að fijálst framsal á kvótum er algert grundvall-
aratriði fyrir hagkvæmni kvótakerfisins," segir Vilhjálmur.
í fundaherferð þeirri sem sjávarút-
vegsráðuneytið stendur nú fyrir víða
um land til kynningar á sjávarút-
vegsstefnunni hafa þessi mál m.a.
komið til umræðu. Vilhjálmur segir
að fijálst framsal á kvóta sé nauð-
synlegt svo hægt sé að minnka flot-
ann en það sé einnig spurning um
möguleika útgerða til sveigjanleika
og sérhæfingar í rekstri.
„Til dæmis myndi bann við við-
skiptum með kvóta kollvarpa þeirri
hagkvæmni sem nú er til staðar í
kerfinu og ef viðskiptin yrðu ekki
leyfð væri einungis leitað annarra
leiða til að lækka kostnaðinn," segir
Vilhjálmur.
Stöðugleiki
Aðspurður um hvort sjónarmiðið
um að allur afli færi í gegnum físk-
markaði hafí verið íhugað af Tví-
höfðanefndinni segir Vilhjálmur svo
vera. „Það var ekki fallist á það sjón-
armið og ástæðan sú að töluvert
væri gefandi fyrir stöðugleika og
langtímasamninga um viðskipti,"
segir Vilhjálmur. „Það er ljóst að ef
allur fískur færi um fiskmarkaði
væri nær ófært fyrir fiskvinnsluna
að starfa eðlilega. Hún gæti ekki
gert langtímasamninga um fiskkaup
og stöðugleiki í rekstrinum væri eng-
inn.“
Bílcwiarkaóurinn
Toyta Corolta XL '89, 5 dyra, 5 g., sjálfsk.
á vél. V. 650 þús.
Fiata Duna 70 Berlína '88, rauður, 5 g.,
ek. aðeins 39 þ. V. 290 þús. stgr.
Daihatsu Charade TX '91, rauður, 5 g.,
ek. aðeins 9 þ. V. 620 þús.
MMC Colt GLX '89, rauður, 5 g., ek. 72
þ. Rafm. í rúðum o.fl. V. 630 þ.
Suzuki Vitara JLX '90, hvítur, 5 g., ek.
68 þ. Ýmsir aukahlutir. V. 1050 þ. Sk. ód.
Nissan Sunny SLX 1.6 Sedan, brúnsans,
sjálfsk., ek. 16 þ. rafm. íöllu o.fl. V. 890 þ.
Toyota 4Runner ’90, 5 g., ek. 73 þ., álfelg-
ur, sóllúga o.fl. V. 2 millj.
Honda Civic GL ’90, sjálfsk., ek. 19 þ.,
sóllúga, rafm. í rúðum o.fl. V. 800 þús.
Mazda 323 LXi Sedan '92, 5 g., ek. 20
þ. V. 950 þús.
MMC Pajero turbo diesel (langur) '91, 5
g., ek. 50 þ. V. 2.3 millj.
Toyota Hi Ace 4x4 Combi Special '91,
5 g., ek. 60 þ. V. 1480 þús. (Stöðvarleyfi
getur fylgt).
Subaru Legacy 2000 station '92, 5 g.,
ek. 5 þ. V. 1700 þús.
Subaru Justy J-12 '87, 5 g., ek. 55 þ.
V. 400 þús.
Subaru 1800 Coupe 4x4 '87, 5 g., ek.
100 þús. V. 650 þús.
MMC Pajero turbo diesel '89, 5 g., ek.
63 þ., álfelgur, hiti í sætum, rafm í rúöum
o.fl. V. 1780 þús. stgr.
Nissan KingCap 4x4 m/húsi '91,
grár/svartur, 5 g., ek. 34 þ. Toppeintak
(vsk. bill). V. 1290 þ. stgr.
Bíll fyrir vandláta: Pontiac Bonneville LE
'88, grásnas, 6 cyl., sjálfsk., ek. 68 þ.,
sóllúga, rafm. í öllu. Óvenju gott eintak.
V. 1480 þús.
Toyota Corolla Liftback XL '88, stein-
grár, 5 g., nýuppt. vél. Fallegur bíll. V. 680
þús.
Cherokee Laredo 4L '88, 2ja dyra,
sjálfsk., ek. 38 þ. mílur. V. 1400 þús.
Odýrir bílar:
V.W. Golf '84, 5 g., ek. 98 þ. Gott eintak.
V. 280 þús.
Ford Escort CL '86, ný skoð. (94), gott
ástand. V. 240 þús. stgr.
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
S71800
1
£
AEG VORTILBOÐ
Hjá Bræðrunum Ormsson
bjóðast þér nú þýsk gæða
heimilistæki frá AEG
á sérstöku tilboðsverði.
Þú hleypir ekki hverjum
sem er í húsverkin.
Upplýsingar um
umboðsmenn
fást hjá
62 62 62
■4 kæliskápur Santo, 3200 kg., 170x60x60
Verð áður kr. 73.303. Tilboð kr. 61.900 stgr.
Þvottavél lavamat, 645 w, 1200 sn/pr. min
Verð áður kr. 99.381. Tilboð kr. 79.900 stgr.
Umboðsmenn um land allt.
R Æ Ð U R N I R
ORMSSON HF
Lágmúla 8, slmi 38820.
örbylgjuofn HC, 125 w, digital, 850 w
Verð áður kr. 34.180. Tilboð kr. 27.900 stgr.