Morgunblaðið - 20.04.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
33
Foreldrar mót-
mæla nestísbanni
á gæsluvöllum
„VIÐ undirritaðir foreldrar barna sem sækja gæsluvelli
Akureyrarbæjar viljum hér með lýsa yfir mikilli óánægjy.
með þá ákvörðun að leyfa börnum okkar ekki lengxir að
hafa með sér nesti á gæsluvellina,“ segir í haus undirskrift-
arlista sem nú liggur frammi á gæsluvöllum bæjarins og
verður afhentur fljótlega.
Þá kemur einnig fram að foreldrar
mælast til þess að önnur ráð verði
höfð uppi til að leysa þann vanda
Loðnuveiði á Pollinum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
LOÐNA gengur inn á Pollinn á Akureyri á
hveiju vori og þá nota trillukarlamir tækifærið
og ná sér í beitu. Þessir tveir höfðu lagt net
fyrir loðnuna eitt kvöldið, nánast uppi í land-
steinum, og fylgdist fjöldi fólks með aflabrögð-
unum úr landi.
Þokkaleg afkoma Kaupfélags Eyfirðinga á síðasta ári
Hagnaður af rekstri
nam 12 minjónum kr.
UM 12 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Kaupfélags
Eyfirðinga á liðnu ári þegar ekki er tekið tillit til áhrifa
dótturfyrirtækja félagsins, en samtals nam tap af rekstri
dótturfyrirtækja þess tæpum 230 milljónum króna. Þetta
kemur fram í ársreikningum KEA fyrir árið 1992 sem kynnt-
ir verða á aðalfundi félagsins í næstu viku. Sljórn félagsins
leggur til við aðalfund að greiddur verði 15% arður af nafn-
verði samvinnuhlutabréfa í B-deild stofnsjóðs og jafnframt
er lagt til að greiddir verði 5,3% viðbótarvextir af stofn-
sjóði félagsmanna í A-deild.
til að ætla, en afkoman hafi versnað
mjög á síðustu mánuðum liðins árs
og valdi gengistap þar mestu.
Gatnagerð og Listasafn
Samið var
við lægst-
bjóðendur
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt
að taka tilboði frá Ýtunni í
gatnagerð og lagnir í hluta
af þriðja áfanga Giljahverfis.
Ýtan átti lægsta tilboð af sex
sem bárust, rúmar 7,9 millj-
ónir, sem er 81,4% af kostn-
aðaráætlun.
Þá hefur bæjarráð samþykkt
að ganga til samninga við
lægstbjóðanda, Blikk og tækni-
þjónustuna um fyrsta áfanga
Listasafns í Grófargili, en fimm
tilboð bárust í verkið. Tilboð
Blikks og tækniþjónustunnar
er upp á um 24 milljónir króna,
eða 88,6% af kostnaðaráætlun.
sem kallaði á nestisbannið, en að
sögn Einars Sveins Ólafssonar tals-
manns foreldra bama sem sækja
gæsluvelli er'bannið til komið í kjöl-
far þess að ekki var nægt pláss á
einum gæsluvalla bæjarins til að
unnt væri að bjóða upp á nestistíma.
Orþreytt og svöng
„Við teljum það brýnt að börnin
megi áfram koma með sitt mikilvæga
og vinsæla nesti á gæsluvellina, ekki
síst vegna þess að börnin sjálf munp
sakna þess mjög að mega ekki leng1-
ur hafa með sér svolítið nesti á leik-
völlinn," stendur ennfremur í haus
undirskriftarlistans.
„Mér finnst þetta einföld leið til
að leysa vandamál á gæsluvelli. Þetta
er nánast það sama og ef einn rauð-
hærður strákur á Leiruvelli tæki upp
á að bíta og í kjölfarið yrði öllum
rauðhærðum drengjum bannað að
koma á gæsluvelli bæjarins," sagði
Einar Sveinn. „Börnin eru úti allan
daginn og í stað þess að hafa fengið
stund til að slappa af og næras^
koma þau nú örþreytt og svöng heim
af gæsluvöllunum og eins þykir
mörgum börnum ekkert gaman að
fara á vellina lengur, því hluti af
ferðinni var að fara með nestið sitt
í töskunni."
Brúttóvelta Kaupfélags Eyfirð-
inga og dótturfyrirtækja var 9.756
milljónir króna á liðnu ári og lækk-
aði um 6% frá fyrra ári. 1 aðal-
rekstri félagsins var veltan 8.269
milljónir, en samdráttur varð á öllum
sviðum, langmestur þó í fiskvinnslu
og útgerð, en einnig verulegur hjá
sláturhúsi og mjólkursamlagi. Tekj-
ur drógust saman um 6% og rekstr-
argjöld lækkuðu um 7%, en hagnað-
ur af rekstrinum fyrir fjármagnsliði
var 360 milljónir króna á móti 241
milljón króna árið á undan.
Fjármagnsgjöld 333 milljónir
Þrátt fyrir að skuldir félagsins
hafi lækkað á árinu hækkuðu fjár-
magnsgjöld að frádregnum fjár-
magnstekjum um 19% á milli ára
og voru 333 milljónir króna. Hagn-
aður af reglulegri starfsemi var 27
milljónir borið saman við tap af
reglulegri starfsemi árið áður að
upphæð 39 milljónir króna. Hagnað-
ur af sölu fastafjármuna var um 3
milljónir á móti 90 milljónum árið á
undan. Að teknu tilliti til skatta
varð hagnaður af rekstri móðurfé-
lagsins um 12 milljónir, en var 31
milljón árið 1991.
Kaupfélag Eyfirðinga á meiri-
hluta í 9 starfandi hlutafélögum og
einu sameignarfyrirtæki og er af-
koma og efnahagur þessara fyrir-
tækja nú í fyrsta skipti hluti af reikn-
ingum KEA. Þessi fyrirtæki eru
Utgerðarfélag Dalvíkinga sem tap-
aði rúmlega 112 milljónum, Akva
sem tapaði tæpum 44 milljónum,
Hafnarstræti 87-89 sem tapaði um
34 milljónum króna, Dagsprent sem
tapaði um 7 milljónum, Efnaverk-
smiðjan Sjöfn sem skilaði 3,7 millj-
óna króna hagnaði, Garðræktarfélag
Reykhverfinga sem hagnaðist um
1,2 milljónir, Kaffibrennsla Akur-
eyrar var rekin með 6,5 milljóna
króna hagnaði, Vöruborg tapaði um
9 milljónum og Þórshamar um 1,4
og dótturfélög sameinuð KEA töp-
uðu rúmum 33 milljónum.
Afkoman versnaði
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að niðurstaðan varðandi af-
komu dótturfélaga sé mun verri en
milliuppgjör á síðasta ári gáfu tilefni
HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN
Laufásvegi 2 - simi 17800
Utskuréur
Kennari: Bjarni Kristjánsson.
8. maí - 29. maí. Laugardaga kl. 10.00- 13.00.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga
-fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800.
I
*
. J
FRÍR ÞVOTT
1T 643660
SMURSTOD
ÞVOTTASTOD
PUSTÞJONUSTA
UNDIRVAGNSRYDVORN
...FYRIR ÞÁ SEHII
N0TA EINA AF HINNI
FJÖLBREYTTU
ÞJÓNUSTU LÖÐURS.
Hjá Löðri er jafnan góð og greið aðkoma,
næg bílastæði, rjúkandi kaffi og gott
afdrep á meðan beðið er eftir bílnum
Settu sumardekkin undirl
VESTURVOR-KOPAVOGI