Morgunblaðið - 20.04.1993, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
Arndís Haralds-
dóttir — Minning
Fædd 6. desember 1959
Dáin 11. apríl 1993
Sorgartár svíða
sárt er þann að kveðja
sem að var ávallt og öllum kær.
Okkur langar að minnast kærrar
vinkonu okkar, Amdísar Haralds-
dóttur. Vinátta sem á sér rætur í
bemsku er ætíð mikils virði, hún
stendur af sér flest moldviðri lífs-
ins. Þannig var það hjá okkur stöll-
unum. Addý var okkur ætíð mikils
virði. Hún var svo staðföst, heil og
trú í því sem hún tók sér fyrir hend-
ur. Við minnumst þess sérstaklega
hversu stóran sess dætur hennar
áttu í huga hennar — stolt hennar
og gleði í einu og öllu.
Sætum af blundi
sóldýrð guðs þig vekur
þar, sem að enginn er þjáning til.
Vel þú á jörðu
verk af hendi leystir
á meðan entist aldur til.
Hjartfólgnar þakkir,
hjartans vinur góði,
fylgja þér héðan í friðarlönd.
Sælt verður síðar
sælan þig að finna
á sumarlandsins sólskinsströnd.
(Hulda)
Kæra Sísí og Rut og aðrir að-
standendur, við vottum ykkur okkar
innilegustu samúð. Guð veiti ykkur
styrk í sorg ykkar.
Hvíli hún í friði.
Fríða Ingimars
og Guðrún Jóns.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MAGNDÍS GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR,
Þórsgötu 4,
Patreksfirði,
lést á gjörgæsludeild Landakotsspítala T6. apríl.
Gestur Ingimar Jóhannesson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móðursystir mín,
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
frá Veturliðastöðum,
andaðist laugardaginn 17. april á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 23. apríl
kl. 13.30
Stefán Karlsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HREINN SIGURÐSSON,
Engihlíð 14,
lést sunnudaginn 18. apríl.
Unnur Krístín Sumarlíðadóttir,
Sigurgeir Ernst, Birna Baldursdóttir,
Viktoría Sigurgeirsdóttir, Unnur Kristfn Sigurgeirsdóttir.
t
Bróðir minn,
JÓN GUÐMUNDSSON
fyrrv. bústjóri á Keldum,
lést sunnudaginn 18. apríl á vist- og hjúkrunarheimilinu
Kumbaravogi. ~
Steinn Guðmundsson.
t
Ástkær eiginmaður minn
HAFSTEINN KRISTINSSON
forstjóri Kjörís hf.,
Hveragerði,
lést í Landsspítalanum 18. apríl 1993.
Fyrir hönd vandamanna,
Laufey S. Valdimarsdóttir.
Mig langar með þessum fátæk-
legu orðum að heiðra minningu
Arndísar æskuvinkonu minnar og
þakka og minnast margra gleði-
stunda sem við áttum saman.
Það er svo margt sem mér kem-
ur í hug, svo sem árin í Alftamýrar-
skóla, leikhúsferð með þér og
mömmu þinni, veiðitúrinn upp í
Veiðivötn með pabba þínum,
skemmtiferð í Landmannalaugar,
safnferðir, kvöldið sem þú kynntist
Villa, þegar þú eignaðist stelpumar
Sísí og Rut. Og öll þau ótal kvöld
sem við sátum saman og leystum
öll vandamál heimsins.
Ég vil þrátt fyrir sorg mína reyna
að vera glöð, glöð vegna þess að
ég fékk að upplifa vináttu þrna og
að sambandið okkar á milli hélst
alltaf óbreytt þrátt fyrir langan
aðskilnað. Takk fyrir allt, Addý.
Ég votta stelpunum þínum, Sirrý
og Rut, og Villa, mömmu þinni og
pabba,_ systkinum þínum, Stein-
unni, Óla og Þórami, mína dýpstu
samúð.
Guðrún Másdóttir,
Krokstadelva, Noregi.
Hún brosti svo fallega þegar hún
kvaddi mig og sagði: „Ég hlakka
svo til að sjá ykkur." Þetta vom
síðustu orðin sem Addý systurdóttir
mín talaði til mín í þessu lífi. Ákveð-
ið var að hittast tveim dögum seinna
við fermingu Rutar dóttur hennar.
En daginn eftir var mér tilkynnt
að Addý væri látin. Við þessa fregn
var eins og kuldabylgja fyllti hjart-
að og tíminn stæði í stað. Ég var
meðvituð um að sorgin hafði náð
völdum í þetta sinn hjá elsku litlu
dætmm hennar, Sísí og Rut, for-
eldrum hennar, systkinum, ættingj-
um og vinum. Á meðan tárin mnnu
yfir þessum stóra missi vöknuðu
einnig góðar minningar um yndis-
lega frænku og það var ekki hægt
annað en að þakka fyrir að hafa
fengið tækifæri til að fylgjast með
henni frá því að hún fæddist í þenn-
an heim. Minningamar komu skýrt
upp í hugann og það er einmitt
þeirra sem mig langar að geta hér.
t
Ástkær móðir okkar,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Álfaskeiði 64E,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu sunnudaginn 18. aprfl sl.
Sigríður Sigurðardóttir,
Ólafur Sigurðsson,
Sigurður T. Sigurðsson.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SVANFRIDA. DIEGO,
lést á heimili sínu, Laufásvegi 8, laugar-
daginn 17. apríl.
Sonja Diego, Sverrir Gauti,
Erla Diego, og Kolbrún Diego,
Dóra Diego,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
LILJA EIRI'KSDÓTTIR,
Skólavöllum 2,
Selfossi,
lést 17. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju
laugardaginn 24. apríl kl. 13.
Eirfkur Brynjólfsson, Valgerður Björnsdóttir,
Valdimar Brynjólfsson, Jakobína Kjartansdóttir,
Elfsabet Brynjólfsdóttir, Steinþór Þorsteinsson,
Helga Brynjólfsdóttir, Hjörtur Hjartarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín,
SÆUNN TÓMASDÓTTIR
frá Helludal,
Sæbóli, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í dag, þriðjudaginn 20. aprfl,
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Björn Bjarnason.
Þegar ég leit Addý fyrst augum
var hún aðeins nokkurra daga göm-
ul. Hún lá við bijóst hamingjusamr-
ar móður sinnar og bræður hennar,
Ólafur og Þórarinn, horfðu hug-
fangnir á. Stóra systir, Steinunn,
var á ísafirði, en var búin að biðja
mig að kyssa litlu systur á ennið
fyrir sig og sá koss var okkar fyrsta
snerting. Alltaf var ég velkomin á
heimili Döggu, systur minnar, og
Halla og átti þar óteljandi' gleði-
stundir með þeim og litlu systur-
bömum mínum. Addý var fljót að
læra að tala. Tveggja ára gömul
talaði hún og söng tandurhreint og
fallega inn á segulband fyrir mig
sem afi, amma á ísafirði og systir
hennar, Steinunn, höfðu gaman að
fá sem kveðju.
Það var sérstaklega gaman að
lesa fyrir Addý litlu og segja henni
sögur. Hún hlustaði svo vel og
spurði svo skemmtilega um persón-
urnar í sögunum og átti það til að
segja áframhaldandi sögur af þeim
sem hún bjó til jafnóðum. Þegar
ég, stóra frænkan, fór til útlanda
til náms tók Addý mín oft penna í
hönd og skrifaði mér og sagði frá
áhugamálum sínum. Mér fannst
hún alltaf eiga svo fallegar óskir
sem voru fullar af bjartsýni.
Þegar ég fluttist aftur til íslands
var Addý orðin ástfangin unglingur
og allt ljómaði í kring um hana.
Hún og Villi giftust og eignuðust
tvær yndislegar dætur, Sísí og Rut.
Við bjuggum nálægt hvor annarri
um tíma og hittumst næstum dag-
lega. Nokkrir mánuðir voru á milli
Rutar og Önnu, yngstu dóttur
minnar, svo að nú gátum við Addý
farið í alvöru mömmuleik á hveijum
degi. Við töluðum mikið saman en
þó sérstaklega um börnin og upp-
eldismál. Hún var líka alltaf tilbúin
að hlusta og það var gott að treysta
henni fyrir hveiju sem var. Stund-
um þegar maður var orðinn of al-
varlegur brosti hún fallega brosinu
sínu sem gaf hugrekki án orða. Hún
var sérstaklega umhyggjusöm móð-
ir og hugaði vel að farsæld bama
sinna. Samskipti þeirra voru svo
einlæg og sönn. Hún bar einnig
sterkar tilfinningar til ættingja
sinna og vina sem einnig elskuðu
hana af öllu hjarta.
Fyrir nokkrum ámm fór Addý
að fínna fyrir þeim sjúkdómi sem
að lokum leiddi hana yfir „landa-
mærin miklu“. Engan grunaði samt
að Addý mundi fara í blóma lífsins.
Á svona stundum er erfitt að skilja
þetta lögmál fæðingar og dauða,
en um leið gott að vita að þessi
tilvist er tímabundið líf í alheims-
geimi og að sálin er ódauðleg. Addý
birtist mér í draumi fyrstu nóttina
eftir fráfall hennar. Mér fannst ég
fljúga inn um stjömur og tungl.
Allt í einu kom ljómandi andlit
hennar á móti mér og hún brosti
til mín hughreystandi brosi sem
sagði mér að henni liði vel.
Elsku Addý hefur fengið annað
hlutverk á öðm tilvemstigi og ég
veit að hún mun hlakka til að sjá
okkur öll á réttum tíma.
Tökum að okkur
erfidrykkjur í
ný uþpgerðum
Gyllta salnum.
Hlaðborð og
nýlagað kaffi
kr. 790,-
Hótel Borg
sími 11440.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
perlan sími 620200