Morgunblaðið - 20.04.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
MnMíb
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
A JÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG A RÁÐHÚSTORGI
fólk í
fréttum
Morgunblaðið/Þorkell
Þrír af fjórum eigendum Gullborgar, f.v. Arnþrúður Soffía Ólafsdóttir, Tryggvi Leósson og Ágúst
J. Magnússon.
VEITINGAHÚS
Af sjónum í veitingarekstur
Þeir Erik Lindner yfirbruggmeistari Löwenbrau í Miinchen og
Heimir Fjeldsted mættu til að kanna kráarstemmninguna.
Nýr veitingastaður, Gullborg,
var opnaður síðastliðinn
föstudag á Laugavegi 78, þar sem
áður var Kjötbúðin Borg. Eigend-
ur eru hjónin Tryggvi Leósson og
Amþrúður Soffía Ólafsdóttir,
Ágúst J. Magnússon og Esterlida
P. Bunaventura. „Hugmyndin er
að á daginn verði kaffihúsa-
stemmning með léttum veitingum
í hádeginu, en á kvöldin kráarand-
rúmsloft," sagði Tryggvi Leósson.
Veitingastaðurinn er á tveimur
hæðum og verðu sú efri aðeins
opin um helgar. Tryggvi og Ág-
úst voru báðir til sjós, en lentu
báðir í slysum, annar fyrir þremur
árum en hinn flórum. Sagði
Tryggvi að sér hefði ekki gengið
nógu vel að fá starf við hæfi og
því hefði þeim dottið í hug að
koma á fót eigin atvinnurekstri.
TONLISTARMENN
Sögnsagnir um
dauða Pauls
ganga enn
Þeir sem eru komnir um miðjan
aldur muna eftir sögusögnun-
um um dauða Paul McCartneys þeg-
ar platan Abbey Road kom út fyrir
rúmum 20 árum. Það sem ýtti með-
al annars undir sögusagnirnar voru
atriði eins og að Paul var sá eini sem
var berfættur, þ.e. eins og lík, Ge-
orge Harrison var klæddur eins og
grafarinn og John Lennon leit út
eins og útfarfarstjóri. Á plötuum-
slaginu var mynd af bíl og á númera-
plötunni stóð IF 26, en Paul varð
26 ára á þessu sama ári,. Eitt af
lögunum á plötunni hét He’s Dead
eða Hann er látinn og væri plötunni
snúið rangsælis átti að heyrast vís-
bending sem rökstyddi enn frekar
sögusagnirnar.
Paul stendur enn í ströngu við
að svara spurningum fólks um plötu-
umslagið og hvers vegna hann hafi
verið berfættur. „Það var hreinlega
svo heitt þennan dag,“ útskýrir
hann. „Eg var í sandölum og spark-
aði þeim af mér. Þannig stóð á því!“
Hann segist gera sér grein fyrir,
að erfitt sé að kveða niður orðróm-
inn, jafnvel ennþá. Fyrir stuttu seg-
ist hann hafa hitt litla stúlku, sem
sagði við hann: „Ef þú snýrð plöt-
unni rangsælis þá heyrir þú...“ Paul
segist hafa reynt að sannfæra hana
um að hann hefði verið á staðnum
og þættist ekki hafa verið dáinn.
„Nei, það er ekki rétt hjá þér,“ sagði
hún með sigurbrosi á vör.
Paul
McCartney
VÁKORTALISTÍ
Dags.20.4.1993. NR. 127
5414 8300 1028 3108 .
5414 8300 1064 8219
5414 8300 1130 4218
5414 8300 1326 6118
5414 8300 2728 6102
5414 8300 2814 8103
5414 8300 3052 9100
5421 72**
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka berúrumferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORTHF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4300 0004 4817
4507 3900 0003 5316
4507 4300 0014 8568
4543 3700 0007 3075
4548 9000 0042 4962
4548 9018 0002 1040
Algreiðslufólk vinsamlegast takiö ofangreind
kort úr umferö og sendið VISA íslandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
v/SA IV
mrnrn
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavik
Sími 91-671700
V^terkurog
k./ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
kvikmyndahSið
Erland besti karlleikarinn
ANorrænu kvikmyndahátíðinni í
Rouen í Frakklandi hlaut
sænski leikarinn Erland Josephson
verðlaunin sem besti karlleikarinn í
norrænu keppnismyndunum. Það
var um leið og unga íslenska leik-
konan Sólveig Amarsdóttir hlaut
verðlaunin fyrir besta norræna
kvenhlutverkið, jafnframt því sem
myndin Ingaló eftir Ásdísi Thorodd-
sen var af dómnefnd valin besta
kvikmyndin. Það þótti að sjálfsögðu
tíðindum sæta hér meðaí íslendinga,
sem vom stoltir af sínum sigmm.
En kannski var það einmitt þess-
vegna sém gleymdist að Erland Jos-
ephson var sá sem sigraði í sam-
keppni karlleikara. Það sýnir þó að
þama var við heimskunna oggamal-
reynda leikara að keppa. Verðlaunin
hlaut Erland Josephson fyrir hlut-
verk sitt í kvikmyndinni Sophie, sem
íslenskum kvikmyndagestum gafst
r einmitt færi á að sjá á Norrænu
kvikmyndavikunni í Reykjavík. En
myndin fjallar um gyðingafjölskyldu
í Danmörku í lok 19. aldar. Þetta
er fyrsta myndin sem norska kvik-
myndaleikkonan Liv Ullman gerir,
en hún var einmitt
lengi ein af kvik-
myndasfjörnum Ingi-
mars Bergmans, eins
og Erland Josephson.
Bæði hafa kvikmynda-
gestir séð í mörgum
Bergmansmyndum.
Erland Josephson lék
líka á sviði í sýningu
Bergmans á Brúðu-
heimili Ibsens. Á löng-
um ferli hefur hann
komið víðavið. T.d.
muna íslenskir sjón-
varpsáhorfendur eflaust
eftir honum í sjónvarps-
þáttunum Vesturfararn-
ir.
Um leið má geta þess
að auk aðaiverðlaunanna
til Inguló, kusu kvik-
myndahúsgestir sænsku myndina
Hús englana eftir Colin Nutley bestu
myndina, en á hátíðinni í fyrra völdu
þeir Börn náttúrunnar eftir Friðrik
Þór. Og unga fólkið valdi nú í Rúðu-
borg myndina Eyðslusami sonurinn
eftir Finnann Veikko Aaltonen, en
Erland Josephson
glugga.
í myndinni Bak við byrgða
þau verðlaun komu í fyrra í hlut
Lárusar Ýmis Óskarssonar fyrir
Ryð. Pressuviðurkenning kom í hlut
myndar frá Litháen, Skepnan rís
úr hafínu eftir Vytautas Zalakevic-
ius og sænsku myndarinnar Hús
englanna eftir Colin Nutley.