Morgunblaðið - 20.04.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRIL 1993
47
SÍMI 320 75
Lögregtumaður á um tvo kosti að velja: Hætta í iöggunni eða smygla
sér inn í hættulegustu mótorhjólaklíku Bandaríkjanna og fletta ofan
af vopna- og eiturlyfjasölu hennar.
Einhver magnaðasta mynd síðan „EASY RIDER“.
Handrit og leikstjórn: Larry Ferguson, sem færði okkur „Beverly
Hills Cop ll“, „The Presido" og „Highlander".
Aðalhlutverk: Charlie Sheen og Linda Fiorentino.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Charlie
SHEEN
Linda
FIORENTIMO
FIXING THE
MYND LARRYS FERGUSOIM
(„The Hunt For Red October", „Highlander", „Beverly Hills
Cop 2“, „The Presidio")
ÞRIÐJUDAGS-
TILBOÐ
MIÐAVERÐKR. 350
Á ALLAR MYNDIR
TVÍFARINN
Æsispennandi tryllir
með Drew Barrymore.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
NEMÓLITLI
★ ★★ Al Mbl.
Frábœr teiknimynd
m/íslensku tali.
Sýnd kl. 5.
Miðaverð kr. 350
SVALA VERÖLD
Mynd í svipuðum dúr og
Roger Rabbit. Adalhlv.:
Kim Basinger.
Sýnd kl. 7,9 og 11.
Bönnuð innan 10 ára.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
16. - 19. apríl
Umferðarátak lögregl-
unnar á Suð-Vesturlandi
heldur áfram. Athyglinni
er sérstaklega beint að
ökuhraða og réttindum
ökumanna. Frá því að
átakið hófst 14. apríl sl.
hefur lögreglan á svæðinu
haft afskipti af tæplega
600 ökumönnum. Kæra
hefur þurft u.þ.b. helming
þeirra o'g svipta hefur
þurft 10 ökumenn ökurétt-
indum fyrir að aka allt of
hratt. Það sem af er hafa
afskipti verið höfð af tæp-
lega 40 ökuréttindalaus-
um_ ökumönnum.
Á föstudag var tilkynnt
um eld í íbúð við Vestur-
berg. Þar reyndist hafa
kviknað í pottalepp á elda-
vélarhellu. Tjón varð lítið.
Aðfaranótt laugardags
féll ökumaður og farþegi
af bifhjóli á Laugavegi
gegnt húsi nr. 138 eftir
að hjólið hafði lent þar á
sandi og óhreinindum.
Flytja varð fólkið á slysa-
deild, en meiðsli þess eru
ekki talin alvarlegs eðlis.
Mannmergð í miðborg
Talið er að um 2.500
manns hafí verið í mið-
borginni þegar mest var
aðfaranótt laugardags.
Talsverð ölvun var meðal
fólksins og varð að færa
12 einstaklinga á lögreglu-
stöðina sökum ölvunar-
ástands.
Um miðjan dag á laug-
ardag var tilkynnt um eld
í ruslageymslu við barna-
heimili við Bústaðaveg.
Tókst að slökkva eldinn
áður en stórfellt tjón hlaust
af.
Þá varð umferðarslys á
Kringlumýrarbraut gegnt
Nesti. Kona, sem hlaupið
hafði áleiðis yfir götuna,
lenti þar fyrir jeppabifreið,
sem ekið var til suðurs.
Konan var talin alvarlega
slösuð.
Um miðjan laugardag
var einnig tilkynnt um
óviðkomandi mann í húsi
nálægt miðborginni. Á
staðnum kom í ljós að
maðurinn hafði brotist þar
inn einhvem tíma nóttina
áður, en þreytan og Bakk-
us borið hann ofurliði.
Maðurinn hafði því sofnað
og ekki rumskað fyrr en
líða tók á daginn, en þá
hafði fólkið í húsinu þegar
orðið vart við hann og kall-
að á lögreglu. Maðurinn
var færður í fangageymslu.
Unglingsstúlka féll af
hestbaki og rotaðist á
Heiðmerkurvegi við Elliða-
vatnsbæinn á laugardag.
Hún var komin til meðvit-
undar þegar lögregla kom
á vettvang, en til öryggis
var hún flutt með sjúkra-
bifreið á slysadeild Borgar-
spítalans.
Eldur í rusli
Á laugardagskvöld var
tilkynnt um eld í ruslafötu
við Landsbankann í
Mjódd. Augsýnilega hafði
verið kveikt í fötunni, en
eldurinn hafði ekki magn-
ast að ráði og því tiltölu-
lega auðvelt með slökkvi-
starf.
Aðfaranótt sunnudags
var tilkynnt um umferð-
aróhapp við Eiðistorg. Þar
hafði verið ekið á mann-
lausa bifreið og vöknuðu
grunsemdir um að öku-
maðurinn væri undir áhrif-
um áfengis. Mann brást
illur við afskiptum lög-
reglu, en hún hafði sín ráð
við afgreiðslu málsins. Um
helgina þurfti lögreglan
að hafa afskipti af 12 öku-
mönnum grunuðum um
ölvun við akstur. Aðeins
er vitað til þess að einn
hafi lent í umferðaróhappi
áður en til hans náðist.
Skömmu síðar voru þrír
menn staddir í kyrrstæðri
bifreið á Snorrabraut við
Flókagötu þegar þrír
gangandi menn komu að
bifreiðinni og rifu upp bíl-
stjórahurðina. Gerði einn
þeirra sér það að leik að
ógna þeim sem sat undir
stýri með hnífi, en gekk
síðan ásamt félögum sín-
um áfram sína leið. Lög-
reglan handtók mennina
skömmu síðar og þurfti
að vista hnífsmanninum í
fangageymslunum, en
hinir fengu að fara frjálsir
ferða sinna.
Ungir innbrotsþjófar
Snemma á sunnudags-
morgun var tilkynnt um
tvo unga menn sem væru
að bijótast inn í verslanir
í miðborginni. Um var að
ræða alþekkta síbro-
taunglinga. Lögreglumað-
ur sem kom á vettvang
náði þegar öðrum þeirra,
gat handjárnað hann og
heft för hans á meðan
hann hljóp hinn uppi, en
sá hafði þegar lagt á
flótta. Lögreglumaðurinn
náði þeim dreng skömmu
síðar og voru drengirnir
síðan vistaðir hjá Ungl-
ingaheimili ríkisins. Grun-
ur er um að drengirnir
hafi brotist inn í sömu
verslanir í miðborginni
aðfaranótt föstudags, en
þá hafði verið stolið þar
einhveiju af skiptimynt.
Það er von lögreglumanna
fýrir hönd íbúa starfs-
svæðis hennar að bama-
verndaryfirvöld megi tak-
ast að nota þau vistunar-
úrræði sem tiltæk em
þessum drengjum til
handa, sjálfum þeim og
öðrum til hagsbóta. Alls
var tilkynnt um 17 innbrot
um helgina, auk 11 þjófn-
aða. Gmnur er um að
drengirnir eigi þar dijúgan
hlut að máli.
■ Á TVEIMUR VINUM
Að kveldi sumardagsins
fyrsta verður haldin Kara-
oke keppni. Um er að ræða
Elvis Karaoke keppni sem
upphaflega átti að vera í
síðustu viku en var frestað
um viku. Keppt verður um
besta Elvissöngvarann og
einnig veitt verðlaun þeim
sem þykir líkjast Elvis
gamla mest í klæðaburði og
framkomu. í karaokekerfi
Tveggja vina eru yfir 30
Elvislög og er þar að finna
flesta af _ hans frægustu
smellum. Á föstudagskvöld-
ið kveður við annan tón. Þá
mætir á sviðið Bogomil
Font ásamt Milljónamær-
ingunum sínum og ætla
þeir að hefja sumardagskrá
Vinanna með sólartónlist,
sveiflu og sjóðheitri bað-
strandarsömbu. Laugar-
dagskvöldið er svo komið
að Helga Björnssyni ásamt
vinum hans í SSSól. Silfur-
tónar eru svo komnir með
splúnkunýtt dansprógramm
og eru búnir að fá til liðs
við Birgi Bragason sem
kemur úr Sálinni hans Jóns
míns sem nýlokið hefur
störfum.
(Fréttatilkynning)
SÍMI: 19000
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350 Á ALLAR MYINIDIR
H0NEYM00N IN VEGAS
Ferðin til Las Vegas
Ein besta gamanmynd allra
tíma sem gerði allt vitlaust í
Bandaríkjunum.
Nicolas Cage (Witd at Heart,
Raising Arizona), James Caan
(Guðfaðirinn og ótal fleiri)
og Sara Jessica Parker (L.A.
Story).
Bono (U2), Biily Joel, Brian
Ferry, John Mellencamp
o.fl. flytja Presley-lög í nýjum
og ferskum búningi.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ENGLASETRIÐ
★ ★ ★ Mbl.
Mynd sem sló öll aðsóknarmet í
Svíþjóð. - Sæbjörn Mbl. ★ ★ ★
„Englasetrið kemur hressilega
á óvart.“
Sýnd kl. 5,9 og 11.10.
NÓTTÍNEWYORK
NIGHT ANDTHECITY
CHAPLIIM
Aöalhlv.: ROBERT DOWNEY
JR. DAN AYKROYD, ANTH-
ONY HOPKINS, KEVIN
KLINE. Tónlist: JOHN BARRY
(Dansar við úlfa).
Sýnd kl. 5 og 9.
* * * Mbl.
Frábær spennumynd þar sem
Robert De Niro og Jessica Lang
fara á kostum. Leikstjóri Irwin
Winkler (Guilty by Suspicion).
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11 -
Lokasýning.
Bönnuð innan 14 ára
MIÐJARÐARHAFIÐ
MEDITERRANEO
Stórkostleg
Óskarsverðlaunamynd.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Markaðsdagur Lions
haldinn á Lækjartorgi
Markmið Lionshreyfingarinnar er að leggja lið
LIONSKLÚBBURINN
Viðarr heidur Markaðsdag
á Lækjartorgi sunnudag-
inn 13. júní 1993. Tilgang-
urinn er að afla fjár til
styrktar barnastarfsemi
Stigamóta, en það eru
samtök sem aðstoða fórn-
arlömb kynferðisofbeldis,
bæði þolendurna sjálfa og
einnig aðstandenur þeirra.
Markmiðið er að safna
1,5-2 milljónum króna sem
varið verður til að bæta
starfsaðstöðu Stígamóta sér-
staklega með tilliti til barna-
starfseminnar en þar hefur
orðið mikil meðferðaraukn-
ing og að styrkja útgáfu-
starfsemi Stígamóta um efni
varðandi kynferðislega mis-
notkun bama. Hjá Stígamót-
um er til mikil þekking en
ekki fjármagn til að koma
henni á prent. .
Á markaðsdeginum verða
til sölu munir sem safnað
verður frá fyrirtækjum tækj-
um og almenningi. Einnig
verður vönduð skemmtidag-
skrá með allskyns uppákom-
um.
Vilja Lionsmenn hvetja
almenning til að duga vel
góðu málefni, athuga hvort
ekki leynast notuð skrifborð,
stólar, lampar, reiðhjól ofl. í
bílskúrnum eða öðrum
geymslum sem safna þar
ryki og verður á endanum
hent. Koma frekar hlutunum
núna til Lionsmannanna sem
standa fyrir þessari íjáröflun
og slá tvær flugur í einu
höggi; styrkja gott málefni
og taka til fyrir sumarið.
Tekið verður á móti á
Tekið á móti húsgögnum
EINN félagi í Lionsklúbbnum Viðarri tekur á móti hús-
gagni til nota á Markaðsdeginum 13. júní nk.
munum milli kl. 13 og 17 hæð í Hafnarhúsinu. Einnig
alla laugardaga á annarri verða hlutir sóttir.
Opinn fyrirlestur um
ástandið í Rússlandi
SENDIHERRA Rússlands á íslandi, Jouri A. Rechetov,
flytur almennan fyrirlestur á vegum Alþjóðamála-
stofnunar Háskólans þriðjudaginn 20. apríl kl. 17 í
Lögbergi, stofu 101, undir yfirskriftinni: Hvað er fram-
undan?
Fundur-
inn er hald-
inn vegna
þeirra ör-
lagaríku
þróunar
sem nú á
sér stað í
Rússlandi
og mun Jouri A.
sendiherrann m.a. fjalla um
afleiðingar þjóðaratkvæða-
greiðslunnar sem þar fer
fram 25. apríl.
Að fyrirlestrinum loknun)
munu þeir Árni Bergmann,
ritstjóri og Bjöm Bjarnason,
alþingismaður, taka þátt í
pallborðsumræðunum með
sendiherranum. Fundar-
stjóri verður Gunnar G.
Schram, formaður Alþjóða-
málastofnunar.