Morgunblaðið - 20.05.1993, Page 2

Morgunblaðið - 20.05.1993, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993 Ljósmynd/Jón Svavarsson Fjölskylduskemmtun OPNUÐ var í gær sýningin Vor ’93 í Hafnarfirði. Alls taka tæplega eitt- hundrað fyrirtæki þátt í sýningunni, sem er samstillt átak bæjaryfirvalda, atvinnufýrirtækja og verkalýðshreyfingar í því augnamiði að vekja athygli á hafnfirskri vöru og þjónustu. Margt verður um að vera fyrir alla fjöl- skylduna sýningardagana og gefur hér að líta einn sýningarbásanna. Fimm umsækjendur mn sjónvarpsrásimar FIMM umsækjendur sendu inn umsóknir um sjónvarpsrekstur sem myndi krefjast samtais 56 rása en aðeins eru 23 til ráðstöfunar. Út- varpsréttarnefnd fjaliaði um umsóknirnar í gær. Þær voru frá íslenska útvarpsfélaginu, Háskóla íslands, Frjálsri fjölmiðlun, Útvarpsfélagi Seltjarnarness og Hans Kristjáni Arnasyni. „Útvarpsréttarnefnd þarf að setja sér nýjar matsreglur til þess að af- greiða umsóknir sem lagðar hafa verið fyrir nefndina og F'jarskiptaeft- irlitið um afnot af rásum til dreifing- ar sjónvarpsefnis hérlendis,“ sagði formaður útvarpsréttarnefndar, Ingvar Gíslason, í samtali við Morg- unblaðið. „Starf útvarpsréttarnefnd- ar byggist á gildandi útvarpslögum en það mun taka sinn tíma að taka ákvörðun í þessu tiltekna máli. Við munum skapa okkur reglur til þess að taka á þessum umsóknum. Eg á ekki von á reglugerð frá ráðherra þar að lútandi og það hefur ekki verið rætt um útboð í þessu sam- bandi,“ sagði Ingvar Gíslason.“ Ekki ákveðið um gjaldtöku Halldór Blöndal samgönguráð- herra sagði að engar ákvarðanir hafí verið teknar varðandi gjaldtöku fyrir afnot af örbylgjurásunum en það væri hins vegar sjónarmið Fjar- skiptaeftirlitsins og Pósts og síma að eðlilegt væri að taka gjald fyrir. Sagði hann þetta mál verða rætt á fundi hans og póst- og símamála- stjóra á morgun, föstudag. Aðspurður um hvort til greina kæmi að bjóða sjónvarpsrásimar út sagði Halldór að það væri ekki á valdi ráðuneytisins að úthluta rásun- um heldur væri það útvarpsréttar- nefnd sem veitti rekstrarleyfið. „Við höfum ekki rætt þennan möguleika og ég held að við getum ekki tekið ákvörðun um þetta nema eftir nákvæma athugun innan nefnd- arinnar," sagði Ingvar Gíslason. Sjá bls. 31: „Brýnt að ...“ Hækkun lánskjara- vísitölu um 0,06% 1 maí Lánskjaravísitala hækkaði um 0,06% frá maí til júní eftir þvi sem segir í fréttatilkynningu frá Seðlabanka íslands. Þegar breytingin hefur verið umreiknuð til árshækkunar kemur í ljós að hún hefur verið 0,7% síð- asta mánuð, 0,9% síðustu 3 mán- uði, 2,5% síðustu 6 mánuði og 2,2% síðustu 12 mánuði. Vísitala byggingarkostnaðar og launavísitala maímánaðar er óbreytt frá fyira mánuði. Rætt um að Olíufélagið gerist hluthafi í Borgey FULLTRÚAR Borgeyjar hf. á Höfn i Homafirði hafa átt fundi með helstu lánardrottnum fyrirtækisins í Reylqavík, þar sem fulltrúar Landsbanka íslands og Atvinnutryggingadeildar Byggðastofnunar hafa lagt að forsvarsmönnum fyrirtækisins að óska þegar í stað eftir greiðslustöðvun, til þess að unnt verði að undirbúa nauðasamn- inga. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er það nú til skoðun- ar hjá Oliufélaginu hf. hvort fyrirtækið verði við þeim óskum Borg- eyjar að breyta að ákveðnu marki vanskilaskuldum Borgeyjar í hluta- fjáreign í Borgey. Þriðjastigsvorpróf Stýrimannaskólans Ástrali dúx í íslensku ÁSRALSKUR nemandi hlaut hæstu einkunn á nýloknum þriðja- stigsvorprófum hjá Stýrimannaskóla íslands. Martin Harris Avery, sem búsettur er í Vestmannaeyjum, tók 16 próf á 12 dögum og dúxaði meðal annars í íslensku. Martin, sem á ættir að rekja til Muswellsbrook í Ástralíu, kom hingað til lands sem ferðamaður árið 1985. Honum var boðin vinna hjá ísfélagi Vestmannaeyja og ílentist því í Vestmannaeyjum. Gaman á sjó Aðspurður um ástæður þess að hann gerðist nemandi í Stýri- mannaskólanum sagði Martin að sér þætti gaman á sjó, hann væri hins vegar ekki laginn við vélstjóm og því hefði legið beinast við að gerast stýrimaður. Martin fékk meðal annars níu í íslensku og sagði í samtali við Morgunblaðið að þettahefði verið bókmenntapróf og því væri ekkert að marka þetta, hann hefði ekki orðið svona hár í málfræði. Martin kvaðst að vonum ánægð- ur en sagðist ekki hafa búist við því að sér myndi ganga svo vel. Þrátt fýrir árangurinn ætlaði hann ekkert að gera sér dagamun enda var hann á leið til sjós þegar Morg- unblaðið náði tali af honum í gær- kvöldi. „Það bitnar mjög á fjárhag fjölskyldunnar þegar fyrirvinnan er við nám. Mér var boðið að leysa af í einum túr og ákvað að drífa mig af stað. Kannski held ég upp á þetta næsta sumar,“ sagði hann að lokum. Heimildir Morgunblaðsins herma að forsvarsmenn ESSO hafi óskað eftir því að fá svör og áætlanir við ákveðnum grundvallarspurningum, áður en tekin verður ákvörðun úm það hvort orðið verður við óskum Borgeyjar um niðurfellingu skulda og framjagningu nýs hlutafjár. Greiðslustöðvun þegar á morgun? Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er líklegt að forsvarsmenn Borgeyjar óski eftir greiðslustöðvun þegar á morgun, en Pálmi Guð- mundsson stjórnarformaður Borg- eyjar vildi í samtali við Morgunblað- ið í gær ekki staðfesta að svo yrði. „Það var engin niðurstaða á fundi okkar með lánardrottnum," sagði Pálmi, „og það er mjög margt sem þarf að fara yfir, áður en ákvörðun verður tekin um að óska eftir greiðslustöðvun." Olíufélagið mun sama sinnis og aðrir stórir lánardrottnar, að fyrir- tækið verði að óska eftir greiðslu- stöðvun, til þess að hægt verði að endurskipuleggja starfsemina og endurfjármagna, áður en gengið verður til nauðasamninga. Sú af- staða Olíufélagsins mun hafa komið fram á ofangreindum fundi lánar- drottna með forsvarsmönnum Borg- eyjar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er það sameiginlegt mat helstu lánardrottna, að Borgey takist ekki að koma rekstrinum í viðunandi horf, án þess að selja bæði fiskiskip og kvóta. Breska tónlistarblaðið Melody Maker vikunnar FYRSTA smáskífan af væntanlegri breiðskifu Bjark- ar Guðmundsdóttur var valin smáskífa vikunnar í breska tónlistarblaðinu Melody Ma- ker. í síðasta blaði var Björk í fjögurra síðna forsíðuviðtali. í Melody Maker, sem dagsett er 22. maí, fær smáskífan, sem heitir Human Behaviour, mjög lofsamlega dóma og það er með- al annars talið plötunni til tekna að tónlistin sé sérkennileg og óvænt blanda, þó rödd Bjarkar ríði baggamuninn. í næsta blaði á undan var Björk í fjögurra síðna forsíðuviðtali, en einnig var við hana forsíðuviðtal í tískublaðinu I-d fyrir stuttu. Breiðskífa Bjarkar, Debut, kem- ur út 7. júlí ytra, en viku fyrr hér á landi. Björk með smáskífu Ljósmynd/Paul Such Aflabrögð mjög góð á úthafskarfaveiðum NÍU íslenskir togarar voru á úthafskarfaveiðum um 60 sjómílur vest-suðvestur af Franshól í gær og voru aflabrögð mjög góð, að sögn Guðmundar Kjalars Jónssonar, skipsljóra á Sjóla HF. Hátt í tíu erlendir togarar voru á þessum slóðum fyrir um viku en þeir fóru af veiðisvæðinu þegar veður tók að versna. BJoronublnöiÍi mmm Heilsuvikan erhafin fltargitiiMflfrift í dag Garðar Cortes _________________ Ágreiningur um listrænt mat 22 Leikþættir um alnæmi___________ Hlín Agnarsdóttir hlaut fyrstu ‘ verðlaun í samkeppni Landsnefnd- ar um alnæmisvarnir 26 Heilbrigðismál_________________ Hátt lyfjaverð meginorsök hárra útgjalda á íslandi, segir OECD 23 Leiðari________________________ EB andar léttar 30 Dagskrd ► Kvikmyndir vikunnar - Stjöm- ur í þáttum Roseanne - Ofbeldi í kvikmyndum fordæmt - Allt látið flakka í viðtalsþáttum - Þátttöku- kvikmyndir Viðskipti/Atvinnulif Deilt um þátttöku Iðnlánasjóðs í rekstri Óss - Taugagreining hyggst auka hlutafé - Fátæku ríkin ríkari en menn ætluðu - Dregið úr völdum bankaráða Heilsuvikan ► Seinkum ellinni - Göngudagur - Heilsuvikan víða um land - Sund- dagurinn - Hversdagsleikamir - Hreyfing og mataræði - Hjóla- dagur - Rétt álag við þjálfun Guðmundur Kjalar sagði að ekki væri lengur hægt að tala um mok- veiði, en það væri engu að síður góð veiði. í síðastu veiðiferð fyllti Sjóli sig á 20 dögum og afrakstur- inn var 700 tonn af karfa upp úr sjó, og 350 tonn af afurðum. Draga allan sólarhringinn „í augnablikinu erum við að fá nóg fýrir vinnsluna en við þurfum að draga allan sólarhringinn. Með- an mesta mokið var drógum við í mesta lagi 2-3 klukkutíma á sólar- hring,“ sagði Guðmundur Kjalar. Sjóli hefur verið á miðunum í tólf daga og er kominn með um 500 tonna afla upp úr sjó. Nokkur skip eru á sömu slóðum og Sjóli, m.a. Baldvin Þorsteinsson, Venus, Har- aldur, Ýmir, Snæfugl, Júlíus Geir- mundsson, Ottó Wathne og Snorri Sturluson. Örfirisey hélt heim á leið í fyrradag með góðan afla, að sögn Guðmundar Kjalars. 1 § » I I I k i i \ \ \ \

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.