Morgunblaðið - 20.05.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.05.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993 21 20. maí 1993 Siglufjarðarkaupstaður 7 5 ára Siglufjörður fékk kaup- staðarréttindi á 100 ára verzlunarafmæli staðarins, 20. maí 1918, eftir langa og stranga baráttu. Baráttuna leiddi þáverandi sóknar- prestur Siglfirðinga, sr. Bjarni Þorsteinsson, prófess- or og tónskáld, sem var and- legur og veraldlegur leiðtogi þeirra um áratugaskeið. Siglfirðingar halda í dag, 20. maí 1993, upp á 75 ára afmæli kaupstaðarréttinda. Bæjarstjórn gengst fyrir kaffísamsæti fyrir bæjarbúa á Hótel Læk síðdegis í dag. Og ef vel viðrar verður harmonikuball á sérsmíðuðu síldarplani um kvöldið. Þá verður Siglfirðingafélagið í Reykjavík og nágrenni með fjöldskyldukaffi í dag. Sjávarsveit, þorp, kaupstaður Dönsku einokunarverzluninni var aflétt árið 1788. Þá hófst svokallað fríhöndlunarskeið. Þetta ár var stofnuð fyrsta verzl- unin í Siglufirði. Þrjátíu árum síðar, 20. maí 1818, löggilti kon- ungur Siglufjörð sem verzlunar- stað. Með þeirri löggildingu var grundvöllurinn lagður að þétt- býli í Siglufirði. I kjölfar siglf- irzkrar verzlunar og vaxandi síldveiða fylgdu þær hræringar í atvinnu- og menningarlífi þessa litla sveitarfélags, sem gerðu það að miðstöð veiða og vinnslu síld- ar þegar á öldina leið. Hreppsnefnd, sparisjóður og framfarir Árið 1873 var stofnaður Sparisjóður Siglufjarðar, sem mun elzta enn starfandi lána- stofnun í landinu. Hreppsnefnd var fyrst kjörin í Siglufirði árið 1874. Þetta tvennt braut ís að framförum og þróun byggðar í Siglufirði. Sveitarfélagið þróaðist skref af skrefi til vaxandi þéttbýlis. Héraðslæknir var skipaður árið 1879, skipuleg barnafræðsla hófst 1883, vatnsveita var tekin í notkun 1911, rafveita var byggð 1913. Þannig mætti áfram rekja öra þróun þessa sér- stæða og skemmtilega sjávar- pláss á fyrstu áratugum aldar- innar. Síldin yfirtekur sveitarfélagið Árið 1880 var stofnað félag um síldveiðar með nót við land, það er í svonefnda síldarlása. Árið 1903 hefja Norðmenn síld- veiðar í hringnót og reknet og bráðlega rísa síldarplön, sfldar- bræðslur, tunnuverksmiðja o.s.frv. Árið 1907 var sett hafnar- reglugerð fyrir Siglufjörð og hafnarsjóður stofnaður. Og fljót- lega varð Siglufjörður, lífhöfn sæfarenda frá landsnámstíð, ein helzta fiskveiði- og útflutnings- höfn landsins. Framundan var vöxtur byggð- arlags, sem fagnaði aðkomnum hvaðanæva af landinu, sem þar settust að. Staðurinn tengdist og náið umheiminum í sam- og viðskiptum við síldveiði- og síldarneyzluþjóðir. Þar blómstr- aði fjölbreytt, þjóðlegt og alþjóð- legt félags- og menningarlíf. Siglufjörður var í áratugi mið- stöð síldariðnaðarins, sem telja verður með drýgri tekjulindum þjóðarinnar lungann úr öldinni. 75 ára kaupstaðarafmæli Síðasta og stærsta málefnið, sem hreppsnefnd Hvanneyrar- hrepps (en svo hét sveitarfélagið fram að kaupstaðarréttindum) hafði afskipti af, var baráttan fyrir löggjöf um bæjarstjórn og kaupstaðarréttindi. Sú barátta var um margt söguleg, en verður ekki rakin að sinni. Það vóru ekki sízt þingmennirnir Stefán Stefánsson frá Fagraskógi og Einar Árnason á Eyrarlandi sem héldu fram málstað Siglfirðinga á Alþingi. Kaupstaðarréttindin unnust um síðir eins og hér að framan er rakið. í bókinni Siglu- fjörður eftir Ingólf Kristjánsson, rithöfund, sem út kom á 50 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar árið 1968, segir m.a.: „Það var hámark hátíðarhalda dagsins þegar séra Bjami Þor- steinsson skýrði mannfjöldanum frá því, að á þessu 100 ára af- mælisdegi verzlunarstaðarins (20. maí 1918) hefði Siglufjörður öðlast kaupstaðarréttindi." Á þeim 75 árum, sem síðan eru liðin, hafa bæði skin og skúr- ir leikið um Siglfirðinga. Þannig er nú einu sinni lífsbaráttan á mörkum hins byggilega heims. En í dag er tilefni til að fagna merkum áfanga í siglfirzkri sögu. -sf. GENGURMENNTA VEG/NN LEIKENDUR: Tinna Gunnlaugsdóttir og Arnar Jónsson. Aukasýningar vegna fjölda áskorana í kvöld 20. maí kl. 20.30, fáein sæti laus Sunnudag 23. maíkl. 20.30, fáein sæti laus Miðvikudag 26. maí kl. 20.30 Föstudag 28. maí kl. 20.30 Ath.: Aóeins þessar fjórar sýningar! Miðasala: sími 11200 ÞJOÐLEIKHUSIÐ Góöa skemmtun! ríta. EFT/R WILLY RUSSELL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.