Morgunblaðið - 20.05.1993, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 20.05.1993, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993 Innilegar þakkir sendi ég œttingjum og vinum, sem minntust mín á 85 ára afmœli mínu 4. maí sl. með skeytum, blómum, gjöfum og símtölum. Sérstakar þakkir fœri ég börnum og tengda- börnum mínum fyrir allt sem þau gerðu mér til ánœgju í tilefni dagsins. Guð blessi ykkur öll. Kœr kveðja. Magnús Ingvason frá Minna-Hofi. tfe Fjárfestingar #• 1 ferdaþjónustu á íslandi Ráðstefna á vegum samgönguráðuneytisins í samvinnu við Byggðastofnun 24. maí 1993 kl. 09-17 á Hótel KEA, Akureyri. Ráðstefnustjóri verður Birgir Þorgilsson, ferðamálastjóri. Dagskrá: Kl. 09.00 Ráðstefnan sett: Birgir Þorgilsson. 09.09 Ávarp samgönguráðherra, Halldórs Blöndal. 09.15 Erindi: Sigurborg Kr. Hannesdóttir, ferðamála- fræðingur, Byggðastofnun: Fjárfesttingar í ferðaþjónustu á íslandi, afkoma greinarinnar, mismunur á stöðu ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. 09.40 Gunnar Karlsson, hótelstjóri, Hótel KEA: Fjárfestingar í hótelrekstri, samspil framboðs og eftirspurnar, verðlags og afkomu. 10.05 Paul Richardsson, framkvæmdastjóri Ferðaþjón- ustu bænda: Er markaður fyrir FB? Á að vera heilsárs- eða sum- arþjónusta? Hvert er stefnt? Hve mikið hefur verið fjárfest í FB, hvernig var fjármagnað? Er þessi fjár- festing arðbær? Er þörf fyrir nýja fjárfestingu? 10.20 Arngrímur Hermannsson, framkvæmdastjóri ADDÍS: Dreifing fjárfestingar, ha^nýting fjárfestingar sem fyrir er. Markaðssetning: „Varan" sýnd á erlendum markaði, mat á árangri. 11.35 Magnús Oddsson, markaðsstjóri Ferðamálaráðs íslands: Vöruþróun íslenskrar ferðaþjónustu, hvað er átt við þegar talað er um að fjárfesta í afþreyingu? Er markaðssetning hluti fjárfestingar. 11.50 Pétur J. Eirfksson, framkvæmdastjóri markaðs- sviðs Flugleiða hf.: Hvar er þörf nýsköpunar og nýrra fjárfestinga í ís- lenskri ferðaþjónustu? 12.05 Kjartan Lárusson, framkvæmdastjóri Ferðaskrif- stofu íslands hf.: Skipt nýting fjárfestingar, sumarnot/vetrarnot í Ijósi reynslu. Er æskilegt að leiða saman tvo eða fleiri sem starfa á ólíkum sviðum til sameiginlegrar fjár- festingar og skipta nýtingu eftir t.d. árstíðum? 12.20 Þórhallur Jósepsson, aðstoðarmaður samgönguráðherra: Staða íslands í samanburði við önnur lönd, nauð- syn nýsköpunar í íslenskri ferðaþjónustu, undirbún- ingur ákvarðanatöku um fjárfestingar. 12.35 Hádegisverður. 14.00 Pallborðsumræður og fyrirspurnir. Þátttakendur, auk frummælenda, Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar og Jóhann- es Torfason stjórnarformaður framleiðnisjóðs: Fjallað verður m.a. um bætta nýtingu fjárfestingar, mat á forsendum í lánsumsóknum, áætlanagerð og ákvarðanatöku um fjárfestingar, markaðssetn- ingu og hlut hennar í stofnkostnaði, leiðir til fjár- mögnunar, hlutverk ferðaþjónustu í byggðaþróun, framtíðarhorfur og nauðsynlegar breytingar á áherslum í uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu. 15.30 Kaffihlé. 15.50 Pallborðsumræður, frh. 17.00 Ráðstefnuslit. Ráðstefnugjald er 2.000 kr. og innifelur hádegis- < <í o> , kaffi og meðlæti, auk ráðstefnugagna. Þátttaka óskast tilkynnt í samgönguráðuneytinu eða Hótel KEA. Siglufjarð- arkaupstað- ur 7 5 ára Siglufirði. Siglufjarðarkaupstaður held- ur upp á 75 ára afmæli sitt í dag, fimnitudaginn 20. maí. Af því tilefni býður bæjarstjórnin til kaffisamsætis í Hótel Læk frá kl. 14-17. Óli J. Biöndal flytur hátíð- arræðu og verður dansað frá kl. 17 við undirleik Sturlaugs' Kristjánsson- ar á síldarplaninu við smábátahöfn- ina, ef veður leyfir. Kvennakór Siglu- fjarðar mun koma fram ásamt harm- onikkusveit. Bæjarstjórn Siglufjarð- ar hvetur alla bæjarbúa til þess að gera sér dagamun og taka þátt í V erðlaunahafar Morgunblaðið/Kristinn hátíðarhöldunum. Matthías ■ RÁÐSTEFNA um neyðarsím- svörun og samræmt neyðarnúmer verður haldin laugardaginn 22. maí í Borgartúni 6, í tilefni af því að í maímánuði eru tuttugu ár liðin frá stofnun samtaka slökkviliðsmanna. Fyrir skömmu skipaði dómsmálaráð- herra nefnd til að meta kosti og galla samræmds neyðarnúmers. Til ráð- stefnunnar hefur verið boðið öllum þeim aðilum er tengjast þessu mikil- væga máli á einhvern hátt og er hún opin öllu áhugafólki um málefnið. VERÐLAUNAHAFARNIR í leikþáttasamkeppni Landsnefndar um al- næmisvarnir. F.v. Hreinn S. Hákonarsson, Hlín Agnarsdóttir og Val- geir Skagfjörð. Viðurkenningar fyrir leikþætti um alnæmi Hlín Agnarsdóttir hlaut fyrstu verðlaun LEIKÞÁTTURINN Alheimsferðir eftir Hlín Agnarsdóttur hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni Landsnefndar um alnæmisvarnir og eru verðlaun- in 150 þúsund krónur. Önnur verðlaun hlaut Valgeir Skagfjörð, fyrir leikþáttinn Ut úr myrkrinu, og þriðju verðlaun Hreinn S. Hákonarsson fyrir leikþáttinn Þú velur. Hlutu þeir hvor um sig 50 þúsund krónur í verðlaun. Umsagnir dómnefndar voru kynntar á blaðamannafundi sem Landsnefnd um alnæmisvamir efndi FASTEIGNAMAT RIKISINS BORGARTÚNI 21 - 105 REYKJAVÍK Ný simanúmer hjá Fasteignamati ríkisins Frá og með 20. maí 1993, þegar ný símaskrá tekur gildi, breytast símanúmerin hjá Fasteignamati ríkisins: Skiptiboró 614211 Fax614636 Upplýsingar um beint innval eftir lokun skiptiborðs kl. 16.00 er að firma í nýju símaskránni. Geymið auglýsinguna Fasteignamat ríkisins til. Um Alheimsferðir Hlínar segir m.a. að leikþátturinn sé prýðilega vel skrifaður og boðskapur verksins áleitinn. Persónusköpun sé skýr og framvindan líkleg til að gera verkið eftirminnilegt í hugum áhorfenda, einkanlega þar sem höfundur bregði á það snjallræði að gefa áhorfendum . tækifæri til að yrkja svolítið sjálfum. Fræðslustarf Landsnefnd um alnæmi vinnur nú að úrvinnslu á niðurstöðum könnunar á kynhegðun og smitleiðum alnæmis. Niðurstöður verða birtar í fylgiritum við heilbrigðisskýrslur, í fimm ritum alls og mun hið fyrsta koma út á næstunni. Af öðrum störfum Landsnefndar- innar má nefna samstjirf og ráðgjöf vegna frumkvæðis FRAMA, félags leigubifreiðastjóra, að taka upp vetjusölu í leigubílum. Þá gengst nefndin fyrir fræðslufundum hjá ýmsum félagssamtökum og skólum. I undirbúningi er sérstakt samstarf með vinnuhópi og fræðslufundir vegna sameiginlegs átaks gegn al- næmi sem íslenska Útvarpsfélagið, Hard Rock Café, World Class og Ingólfskaffi hafa í hyggju að hrinda af stað.. Markhópurinn verður ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára. Sveitadagar í Kolaportinu um helgina Stórsýning á annað hundrað aðila af landsbyggðinni sem sýna og selja fjölbreytta, skemmtilega, forvitnilega og nýstárlega hluti úr sveitinni. Sjáumst á Sveitadögum í Kolaportinu! BÆNDASAMTOKIN - KOLAPORTIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.