Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Tilboð sem þú færð liggur
ekki nógu ljóst fyrir og
þarfnast frekari athugunar.
Ræddu málin við fjölskyld-
una.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver reynir að blekkja
þig. Vertu varkár. Vinur
reynist þér vel í kvöld. Va-
rastu heimiliseijur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Farðu ekki út í öfgar í
skemmtanaleit í kvöld. Við-
ræður við ráðamenn veita
þér brautargengi og fram-
tíðin lofar góðu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Misskilningur getur komið
upp milli vina. Eyðslusemi
bams veldur áhyggjum.
Leitaðu ráða hjá þeim sem
til þekkja.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki gjna við gylliboði sem
þér_ berst. Dómgreind þín
er góð í peningamálum.
Dylgjur ættingja vekja
gremju þína.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)<3£í
Þú þarft að einbeita þér í
vinnunni í dag og varast
að vera með hugann við það
sem við tekur að vinnudegi
loknum.
Vog .
(23. sept. - 22. október) (J
Reyndu að forðast deilur
um peninga við vin. Fundur
með ráðamönnum skilar
árangri. Sinntu fjölskyid-
unni í kvöld.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Ágreiningur getur komið
upp í dag. Haltu þér utan
við deilur. Kvöldið verður
ánægjulegt og ástvinir eiga
góðar stundir.
Bogmaður
(22. nóv. -21. desember) m
Láttu ekki truflanir draga
úr afköstum þínum í vinn-
unni í dag. Hagsmunir ljöl-
skyldunnar hafa forgang í
kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki hugann reika um
of í vinnunni í dag. Ástvin-
um semur vel, en samband-
Jð við vin getur verið eitt-
hvað erfitt.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Láttu ekki draumóra ráða
ferðinni í ástamálum. Þú
metur stöðuna rétt í vinn-
unni, en einhver reynir að
maka krókinn.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú þarft að yfirstíga smá
erfiðleika í vinnunni í dag.
Þú gætir heimsótt góða vini
o g átt með þeim ánægjulegt
kvöld.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
uKb 1 1 IK
T/^n/in/ii Ar' miuiui
1 O!WSIVÍ1 Uu JLNIMI
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
Ég hef ekki gengid í skólann í langan tíma. Afi segir að hann hafi alltaf gengið í skólann ... Fimm mílur! í hita
við frostmark! í djúpum snjó! Upp brekku!
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Hver væri ekki sæll og glaður að
taka upp á höndina spil af þessu
tagi, á hættu gegn utan:
Norður
♦ ÁDG2
¥ ÁK763
♦ -
+ ÁG62
Þetta eru glæsileg spil og hug-
myndin er að opna á hjarta og keyra
þetta í geim eða slemmu eftir við-
brögðum makkers. Sú áætlun kafnar
hins vegar strax í fæðingu. Austur
opnar óvænt á 4 spöðum. Tvö pöss
fylgja í kjölfarið og svo á norður
leikinn. Hvað á hann að segja?
Þetta væri svo sem lítið vandamál
ef doblið væri hreinrækuð sekt. En
reynslan sýnir að það er mun oftar
hagkvæmara að leyfa makker að
taka út úr slíku dobli ef hann á
niikla skiptingu. í flestum pörum
sýnir því doblið góð spil, bæði til
sóknar og vamar. Og þá felur do-
blið [ sér þá augljósu hættu að makk-
er segi 5 tígla. Hann er bersýnilega
stuttur í spaða og tígull er vafalítið
besti liturinn hans.
Norður
♦ ÁDG2
¥ ÁK763
♦ -
♦ ÁG62
Vestur
♦ -
¥ DG10852
♦ G109532
* 9
Austur
♦ K1098653
¥ -
♦ K
♦ 7543
Suður
♦ 7
¥94
♦ ÁD8764
♦ KD108
Þannig var spilið í heild þegar það
kom upp við 6 borð á landsliðsæf-
ingu um síðustu helgi. Allir austur-
spilaramir vöktu á 4 spöðum. Síðan
tók splið sjáflstæða stefnu á hveiju
einstöku borði. Tölurnar lentu allar
í dálki AV: þrisvar 200, og síðan
800, 1100 og 1600. Sem segirokkur
þá sögu, að það sé ekki alvitlaust
að passa niður 4 spaða og taka inn
250.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Sex gamalreyndir skákmenn
tefla nú við sex sterkar skákkonur
á Waltzer-mótinu í Vínarborg.
Þessi staða kom upp í fyrstu
umferð í viðureign Zsuzsu Polgar
(2.560), stórmeistara, sem hafði
hvítt og átti leik, og heimamanns-
ins Ducksteins (2.375), sem er
alþjóðlegur meistari.
27. Bxg5! - Hxal, 28. Bxf6 (Hót-
ar nú 29. Hg7 og Hg8 mát) 28.
- Hfl, 29. g5 - Hd8!T, 30. Bf7+
- Kf8, 31. Bc4 - Hxf6, 32. gxf6
- Bd5, 33. Kf4 - Bxc4, 34.
Hxc4 og ungverska stúlkan vann
síðan hróksendataflið örugglega.
Zsuzsa byrjaði vel á mótinu, vann
einnig Friðrik Ólafsson í annarri
umferð. Meðalstig kvennanna eru
2.473. Í liðinu eru systumar
Zsuzsa og Soffía Polgar, Arakh-
amia og Tsjíburdanidze, Georgíu,
Galljamova, Úkraínu (eiginkona
ívantsjúks, 3.-4. stigahæsta
skákmanns í heimi) og Xie Jun,
frá Kína, heimsmeistari kvenna.
Meðalstig „öldunganna" eru hins
vegar 2.498. Þeir eru Friðrik
Ólafsson, Bent Larsen, Ivkov,
Serbíu, Smyslov og Geller, Rúss-
landi, og Duckstein. Eftir tvær
umferðir höfðu skákkonumar tek-
ið nauma forystu, G'/z—5'/2.