Morgunblaðið - 11.06.1993, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK
SÍMI 091100, SÍMBRÉF 691131, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HA FNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Reykjavík-
urhöfn að-
ili að mark-
aðsátaki í
Rússlandi
HAFNARSTJÓRN Reykjavíkur
hefur undirritað samstarfssamn-
ing við Stálsmiðjuna hf., Fiskaf-
urðir hf. og Formax hf., um mark-
aðsátak i Rússlandi. Iðnlánasjóður
hefur styrkt verkefnið með um
þriggja milljón króna framlagi en
áætlaður kostnaður er á bilinu 5
til 6 milljónir.
„Við höfum Verið að vinna að
^narkaðssetningu fyrir Reykjavík-
' urhöfn sem þjónustumiðstöð fyrir
sjávarútveg í Norður-Atlantshafí og
laða að erlend sem innlend fiski-
skip,“ sagði Hannes J. Valdimarsson
hafnarstjóri. „Við tökum þátt í sam-
starfi nokkurra fyrirtækja hér við
höfnina um að fá hingað fleiri skip.“
Greitt fyrir með afla
Þegar hefur tekist að fá þijá
rússneska togara til breytinga hjá
Stálsmiðjunni, þar sem sett hefur
verið upp vinnsludekk. Fiskafurðir
— hf. hafa keypt af þeim fisk og hefur
hluti andvirðisins farið í greiðslu fyr-
ir breytingarnar.
í greinargerð með samningnum
kemur fram að rússnesku togaramir
séu flestir vanbúnir hvað varðar
vinnslu- og veiðibúnað og að fyrir-
tækin nýti hluta af gjaldeyri sínum
til að endumýja flotann. Hugmyndin
sé að selja íslenska tækniþekkingu
til NV-Rússlands með áherslu á end-
urbyggingu á vinnsludekki skipanna
í þeim tilgangi að auka aflaverð-
mæti og mæta heilbrigðiskröfum á
vestrænum mörkuðum. Jafnframt að
afla frekari viðhaldsverkefna.
Hópur erlendra ferðamanna kom að Ófærufossi í Eldgjá í gær
0
Ofærufoss
FLEIRI verða vart til að dást að steinboganum yfir Ófærufossi. Á myndinni til vinstri sést boginn eins og hann var áður en á myndinni
til hægri er hann horfinn.
Steinboginn brotinn
TÍU erlendir ferðamenn urðu varir við
að steinboginn yfir Ófærufoss hafði
brotnað þegar þeir gengu um Eldgjá í
Vestur-Skaftafellssýslu í gær. David
Pelly, kanadískur blaðamaður, hefur eftir
bónda á þessum slóðum að boginn hafi
verið heill fyrir tveimur vikurm. Hann
álítur að vatnsflaumurinn hafi sorfíð bog-
ann í sundur vinstra megin og fellt hann.
David kom hingað til lands til þess að
skrifa grein um gönguleiðir á íslandi í kana-
díska tímaritið Equinox. Hann hafði ásamt
félögum sínum verið á ferðalagi í nokkra
daga þegar komið var að fossinum og ljóst
varð að ekki var allt með felldu. „Við gerð-
um okkur grein fyrir því vegna þess að
Paul Stevens, leiðsögumaðurinn okkar, sem
ferðast hefur um landið að sumarlagi í fjöl-
mörg ár, vissi auðvitað að svona ætti þetta
ekki að'vera. Svo höfðum við auðvitað sjálf séð
kynstrin öll af myndum af þessum fræga fossi
á póstkortum, í bókum og bæklingum um ís-
land,“ sagði David. Hann sagði að hópurinn
hefði hitt bónda einn á leið sinni og hefði sá
sagt að boginn hefði verið heill fyrir tveimur
vikum. Hann vissi ekki til að aðrir hefðu komið
að fossinum í millitíðinni.
Erfitt að ná sambandi
Bent er á að erfitt sé að ná sam-
bandi við fyrirtækin í Rússlandi og
að reynslan sýni að persónuleg sam-
bönd skipti öllu máli. Því er gert ráð
fyrir mánaðarlegum heimsóknum
næstu sex mánuði til útgerðarfyrir-
tækja á svæðinu. Tæknimenn verða
sendir til Rússlands til að fylgja eft-
ir verkefnum sem lengra eru komin
auk þess sem Rússum verður boðið
til Islands í sama tilgangi.
Til að byrja með er talað um sex
mánaða samstarf en með þeim ásetn-
ingi að því verði haldið áfram næstu
18 mánuði.
Fjárlagarammi næsta árs verður kynntur í ríkissljórn á þriðjudag
Ná þarf halla ríkíssjóðs úr
18 milljörðum í 8 nulljarða
Ekki er búið að reikna þorskaflabrest inn í ríkissjóðsdæmið
STEFNT er að því að kynna drög að fjárlagaramma fyrir næsta ár
á ríkisstjórnarfundi næstkomandi þriðjudag. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins lítur ramminn nú þannig út, að fjárlagahallinn hljóð-
ar upp á rúma 18 milljarða króna, en markmið ríkisstjórnarinnar er
að ná honum niður fyrir 10 milljarða króna, helst niður í 8 milljarða.
Samkvæmt sömu heimildum á dæmið enn eftir að versna, þar sem
áætlanir sem nú liggja fyrir og útreikningar taka ekki mið af þeim
aflabrest sem fyrirsjáanlegur er.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurgangan stöðvuð
Guðmundur G. Gíslason, Framari, fagnar fyrsta marki liðsins í 4:2 sigri
gegn Islandsmeisturum IA í 1. deildinni í knattspyrnu. Sjá bls. 55.
Til stóð að kynna fjárlagaramm-
ann í ríkisstjórn á fundi í dag, en
vegna þess að tveir ráðherrar ríkis-
stjómarinnar hverfa úr stjórn næst-
komandi mánudag, og tveir nýir
koma inn í staðinn, var horfið frá
þeirri fyrirætlan og ákveðið að bíða
með kynninguna þar til á ríkisstjórn-
arfundi næstkomandi þriðjudag.
Ríkisstjórnin stendur því frammi
fyrir því að skera niður ríkisútgjöld
og auka tekjur ríkissjóðs um upp-
hæð sem samtals nemur um 10
milljörðum króna. Enn liggur ekkert
fyrir um það hvaða ákvörðun verður
tekin um þorskveíðiheimildir fyrir
næsta fiskveiðiár, en ljóst þykir að
sjávarútvegsráðherra muni ekki
gera tillögu um meira en 175 þús-
und tonna þorskveiðar.
I kjölfar ríkisstjómarfundar á
þriðjudag, verða síðan gerðar tillög-
ur fyrir hvert ráðuneyti um sig, og
fjárlagavinna, eftir að samkomulag
hefur náðst um útgjalda- og tekju-
markmið ráðuneytanna, fer síðan
fram í fagráðuneytunum, hveiju um
sig á næstu vikum. Búist er við því
að vinna við undirbúning fjárlaga
standi fram á haust.
Mikil vinna óunnin
Fjárlagaramminn sem hér um
ræðir, verður lagður fram til þess
að ná samkomulagi um hann og þau
markmið sem ríkisstjórnin setji sér
áður en vinna við fjárlagafrumvarp-
ið í sinni endanlegu mynd hefst.
Ríkisstjórnin setur sér ákveðin
markmið að því er varðar rekstrar-
útgjöld og markar ákveðinn ramma
í þeim efnum; annar rammi tekur
til ákveðinna rekstrartilfærslna; og
þriðji ramminn tekur til stofnkostn-
aðar og viðhalds. Ljóst er að sá hluti
fjárlagarammans á eftir að aukast
að vöxtum, vegna nýgerðra kjara-
samninga, sem setur ríkisstjórninni
þar af leiðandi því þrengri skorður,
að því er varðar tvo fyrmefndu ram-
mana.
Sólrík helgi
framundan
BÚAST má við sólríkri helgi
víðast hvar á landinu og hita
á bilinu 10-15 gráður.
Að sögn Guðmundar Haf-
steinssonar veðurfræðings verð-
ur þó svalara við sjóinn og þá
sérstaklega fyrir norðan. Spáð
er austanstrekkingi og rigningu
syðst á landinu í dag, en í kvöld
og í nótt hægist um.
„Mér sýnist að þetta verði
ósköp meinlaus og þægileg helgi
fyrir flesta landsmenn.