Morgunblaðið - 13.06.1993, Page 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
131. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hálf milljón
heimspekmga
„ER raunveruleikinn alltaf raunveruleg-
ur?“ „Hver hefur rétt til að segja „þú
átt“?“ „Er ávallt unnt að greina á milli
vinnu og skemmtunar?" 562.000 mennta-
skólanemendur í Frakklandi sátu yfir
þessum spurningum og öðrum álíka í
fjórar klukkustundir á föstudag en þá
hófust prófin hjá stúdentsefnunum.
Fyrsta prófið er ávallt í heimspeki og
hefur svo verið allt frá dögum Napó-
leons. Það verða allir að þreyta til að
komast í háskóla. Eru nemendur mis-
hrifnir af prófinu eins og gengur en
franskur almenningur bíður hins vegar
eftir því á hveiju vori af mikilli eftir-
væntingu. Eru spurningarnar og hugsan-
leg svör við þeim ny'ög vinsælt umræðu-
efni á kaffihúsum og krám og annars
staðar þar sem fólk kemur saman.
Ætti Moskva
að heita Kútsja?
„AÐEINS fáfróðir og þröngsýnir smá-
borgarar geta unnið slík menningarleg
skemmdarverk,“ segja menningarfröm-
uðirnir í Moskvu, sem eru æfir út af
þeirri ákvörðun borgaryfirvalda að end-
urskira götur sem hingað til hafa verið
kenndar við rússneska skáldið Alexander
Sergejevítsj Púshkin og rithöfundinn
Anton Tsjekhov. Borgaryfirvöldin
ákváðu í vikunni sem leið að breyta nöfn-
um 76 gatna, sem flestar voru kenndar
við „hetjur kommmúnismans". Áður
hafði nöfnum 70 gatna verið breytt og
margir Moskvubúar hafa fengið sig
fullsadda á ruglingnum sem breytingarn-
ar valda. Samt ekki allir því i lesenda-
bréfi í Moskovskaja Pravda er spurt
hvort ekki sé „pólitískt rétt“ að endur-
skíra Moskvu „Kútsja“ eftir aðalsmanni
sem sagður er hafa sest þar að áður en
Júrí prins hinn handalangi stofnaði borg-
ina árið 1147.
Hætta talin á
kjamorkuslysi
VÍSINDAMENN við eina af helstu
kjarnavopnastöðvum Rússlands hafa
sent stjórn landsins opið bréf þar sem
þeir vöruðu við því að versnandi aðbún-
aður þeirra gæti leitt til álíka alvarlegs
kjarnorkuslyss og í Tsjernobyl. Frétta-
stofan Itar-Tass sagði visindamennina
hafa kvartað yfir því að þeir hefðu ekki
enn fengið laun fyrir apríl og maí. Mat-
væli væru af skornum skammti og að-
búnaður smánarlegur. Skapaði það mikla
hættu á því að kjarnorkuvísindamenn
flykktust til útlanda og Rússar glötuðu
þannig sérfræðiþekkingu þeirra. Órygg-
ismálin í kjarnavopnastöðvunum yrðu
þá í lamasessi.
múmm
Knálega róið
Morgunblaðið/Ámi Sséberg
Áhugi á kajakróðri hefur vaknað á ný hér á landi, eftir margra ára hlé. Félagar í Kajakklúbbnum stunda æfingar á straumvatns-
bátum sínum í Ytri-Rangá.
Sjá nánar greinina „Einn á báti“ á bls. B 16.
Snörp refsiaðgerð hersveita Sameinuðu þjóðanna í Mogadishu
Vopnabúr og útvarpsstöð
eyðilögð í ákafri árás
Mogadishu. Reuter.
HERSVEITIR Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) eyðilögðu fern vopnabúr
og útvarpsstöð helsta stríðsherrans
í Sómalíu, Mohammeds Farah Aide-
eds, í ákafri en tiltölulega stuttri
árás á stöðvar hans í fyrrinótt.
Gæsluliða hefnt
Hernaðaraðgerðin var gerð til þess- að
refsa Aideed fyrir árás á friðargæsluliða
fyrir viku, sem kostaði 23 Pakistana lífíð.
Aideed vísaði í fyrradag á bug ásökunum
Sameinuðu þjóðanna um að hann bæri
ábyrgð á dauða Pakistananna. Hann var-
aði við miklu blóðbaði ef SÞ reyndu að
hefna þeirra.
Liðsmenn Aideed veittu litla mótspyrnu
Reuter
Aflsmunur
SKRIÐDREKAMAÐUR úr sveitum Aid-
eeds í Sómalíu á flótta undan banda-
rískri Cobra-árásarþyrlu í gærmorgun.
og voru margir teknir til fanga en hersveit-
ir SÞ beittu öflugum árásarþyrlum og öðr-
um flugkosti í aðgerðinni, sem bandarískur
embættismaður sagði að verið hefði áköf
en skammvinn. Stóð árásin í innan við
klukkustund.
Flutt á brott
Hundruð starfsmanna hjálparstofnana
höfðu verið flutt á brott frá Mogadishu
vegna hugsanlegra hernaðaraðgerða og
aðeins þrettán eru þar enn.
Obreyttir borgarar mótmæltu árásinni
á stöðvar Aideed á götum úti í Mogadishu
og héldu sjónarvottar því fram að pakist-
anskir friðargæsluliðar hefðu skotið á fólk-
ið með þeim afleiðingum að einn maður
beið bana.
ER VOR ELLI
18
EDVARD
GRIEG
10
JlRNMlDONNlNe^
FJ0.SKYLDUMAÐURIHN
PEWGAR
PAPAMIA