Morgunblaðið - 13.06.1993, Side 17

Morgunblaðið - 13.06.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JUNI 1993 17 næstbesta ef þau gætu ekki komist í það besta, og vel gæti farið svo að það næstbesta yrði á endanum það besta. Ég spyr hvort hún hafi talað af reynslu þar? „Já, ég ráðlagði þeim að læra það næstbesta ef þau lærðu ekki það besta og vera svo ekki að fár- ast yfír því. Mig langaði að verða læknir, en ég held að pabbi hafi nú haft áhrif á mig í þeim efnum. Honum fannst líklega læknanám vera alltof langt fyrir stúlkur. En ég fékk það næstbesta og það sem meira var, ég fékk besta manninn! Það hafði nú líka heilmikið að segja að fara til útlanda að læra, það var svo spennandi. En pabbi sagði alltaf að ég yrði að velja mér starf þar sem ég væri minn eigin herra.“ „Og nú er hún minn herra,“ seg- ir Pétur hæglátlega, en fram að þessu hefur hann lítið haft sig í frammi. - Nafn ykkar er nokkuð sér- stakt, la Cour, hvaðan kemur það? „Það er franskt," segir Anna. „Forfeður Péturs voru húgenottar sem flýðu og lentu í Danmörku." „Eins og Anna,“ segir bóndinn lágt. Þegar Anna var lent í Danmörku á nýjan leik byijaði hún á því að leysa af ritara Sveins Björnssonar fyrrum forseta, sem þá var sendi- herra í Kaupmannahöfn. „Það var gaman að vinna með Sveini. Arið 1940 ruddust fyóðverjar inn í Dan- mörku og það var ákveðið að senda íslendinga heim. Við söfnuðum saman íslenskum ríkisborgurum frá mörgum löndum og sendum þá af stað til Stokkhólms, áleiðis til Pets- amo við íshafíð í Finnlandi. Þjóð- veijar tóku hins vegar Esjuna við Noreg og það kom í minn hlut að semja við þá til bráðabirgða. Jóni Krabbe tókst það að lokum en þá hafði fólkið verið hálfan mánuð í Stokkhólmi með aðeins tíkall í vas- anum.“ Hjólar í rúminu Þetta sama ár lauk Anna prófi. „Ég baslaðist áfram fyrstu árin. Vann fjögur ár á skrifstofu og þýddi á kvöldin. Mér gekk vel að fá verk- efni, menn mæltu með mér hver við annan og ég þýddi fyrir lækna, dýralækna, tannlækna og lyfjaverk- smiðju. Ég þýddi úr dönsku, öðrum Norðurlandamálum og þýsku, yfír á ensku. Ég þýddi líka kennslubók sem pabbi hafði skrifað á dönsku yfir á ensku, og alls hef ég nú þýtt yfír 200 bækur, eða doktorsritgerð- ir og 10 þúsund greinar. Þegar eldri dóttir okkar Péturs fæddist fór ég að vinna heima og hef gert síðan.“ - Leiddist þér aldrei að sitja svona ein heima yfír þýðingum? „Jú líklega," segir hún ákveðið, „og þess vegna sækist ég eftir að vera með fólki núna. Ég sagði við nýstúdentana um daginn að þeir skyldu ætíð gæta þess að blanda geði við fólk og að eignast nýja vini fram eftir aldri, því aðrir fara.“ - Þú sagðir líka við unga fólkið að ellin væri alls ekki hrörleg eins og segir í stúdentasöngnum, en menn þyrftu að undirbúa ellina vel og þá væri gaman að vera gamall? „Já, mér finnst ég ekkert gömul og mér fínnst gaman að lifa. Ég vil vera sem lengst hérna megin, hef engan áhuga á að vera hinum megin. Ég sagði að þau yrðu að hugsa vel um skrokkinn á sér. Hreyfa sig í minnst kortér til hálf- tíma á dag, gera leikfimi eða fara í sund. Þegar ég var ung hérna heima spilaði ég tennis. Þá voru tveir tennisvellir þar sem nú er Þjóðar- bókhlaðan. Við Ágústa Snæland urðum meira að segja dobbelmeist- arar fyrir hundrað árum.“ Hún dregur aðeins úr tölunni og segir:,, Já, eða árið ’32. Núna byija ég hvern dag á leik- fími. Hjóla fyrst í rúminu, fer svo fram úr og tek axlaræfingar og síðan fer ég niður og geri leikfimi eftir útvarpinu. Þessa leikfimi hef ég iðkað frá því ég var fímmtug því mig langaði að lifa lengi.“ - Og gerirðu eitthvað meira? spyr ég með íþróttaferilinn í huga. „Vi drikker snaps,“ heyrist frá Dananum. Heppin að ná í Danann Með þessa góðu heilsu í huga spyr ég út í matarræðið og þau segjast borða það sem þeim sýnist en forð- ast feitmeti. „Við hættum að reykja fyrir þijátíu árum,“ segir Anna. „Svo má ekki gleyma því að húsið heldur okkur í góðu formi, það er á þremur hæðum og við erum á hlaupum upp og niður stiga allan daginn." Þau hjónin hafa bú'ið í sama hús- inu í Holte fyrir utan Kaupmanna- höfn í 46 ár, eiga tvær uppkomnar dætur og eitt barnabarn. Pétur er að sjálfsögðu líka kominn á eftir- laun en er fyrrverandi bankamaður. - Þú varst nú heppin að ná þér í Dana, þeir eru oft svo léttir og skemmtilegir? „Ég var svo heppin að ná í þenn- an Dana!“ segir hún hlæjandi og bendir á mann sinn. „Við áttum gullbrúðkaup fyrir skömmu og héldum vel upp á það með rúmlega hundrað manns. Börnin okkar höfðu meira að segja útbúið heið- urshlið úr blómsveigum sem við gengum síðan í gegnum. Mér fínnst lífsstíll Dana og ís- lendinga ólíkur að því leyti að Dan- ir eru meira gefnir fyrir halda upp á afmæli og þess háttar, það er gamall og góður siður að nota hvert tækifæri sem gefst til hátíðahalda. Þá er mikið sungið og ort.“ - Þess vegna er líklega svona létt yfír ykkur Dönum? „Það varð léttara yfír lífi mínu eftir að ég kynntist Önnu,“ segir Pétur og gefur til kynna að íslenska frúin sé ekki síður létt í lund. „Já, ég var svo heppin að eiga góðan pabba sem var léttur í skapi. Hann sagði okkur systrunum svo margt og var svo skemmtilegur,“ segir Anna. „Hann var líka hálfdanskur," segir Daninn. Halda höfðinu í lagi Ráðleggingar Önnu til handa unga fólkinu fjölluðu ekki eingöngu um viðhald skrokksins, hún sagði það ekki síður mikilvægt að halda höfðinu í lagi. Sagði þeim að leika skák, spila brids, grúska í ættfræði lesa sagnfræði eða gera eitthvað annað sem reyndi á heilann. Sjálf kenna þau hjónin öldruðum brids. í ein tiu ár hafa þau verið með annan fótinn í Bakkehuset sem er dagvist fyrir aldraða. Bakkehuset er gömul og virðuleg villa frá 1765, var timburhús en er nú veglegt steinhús, og stendur við Eyrarsund. Þar eru meðal annars saumastofur, keramikverkstæði, smíðaverkstæði, málmverkstæði, myrkraherbergi fyrir ljósmyndara, leikfímisalur, myndlistastúdíó og billjardstofa. Auk þess er búið að byggja á svæð- inu 41 þjónustuíbúð fyrir aldraða. Á þessum glæsilega stað er Anna ráðsformaður. „Nemendur okkar í brids eru all- ir á áttræðis- og níræðisaldri," seg- ir Anna. Við Pétur höfum spilað brids í mörg ár, hann byijaði nú á því að koma með karla heim til að spila og svo átti ég að gefa þeim kaffí. En þeir komust nú ekki upp með það, ég sagðist vilja vera með.“ „Svona eru íslenskar konur,“ skýtur eiginmaðurinn inn í. „Við kennum núna brids á mánu- dögum en spilum sjálf á þriðjudög- um og miðvikudögum, heldur Anna áfram. „Við höfum eignast marga nýja vini í Bakkehuset og það hafa fleiri gert en við. Ein 75 ára gömul dama sem vann mikið við keramik eignaðist vin ekki alls fyrir löngu og fluttist með honum til Mónakó! Annað heiðurshlið Þrátt fyrir langa dvöl á erlendri grundu er íslenska Önnu án hreims og segir hún að það sé vegna þess að hún hafí fengið mjög góða undir- stöðu í málinu. „Pabbi gætti þess að við systumar töluðum gott mál. Honum fannst Reykjavíkurmálið ekki nógu gott því það var fullt af dönskuslettum. Sjálfur var hann frá Sauðárkróki og þar var talað mál að hans skapi.“ - Hvar em nú ræturnar, á Is- landi 'eða í Danmörku? „Ég á heima á báðum stöðum, en ræturnar eru á íslandi. Ræturn- ar eru ætíð þar sem maður er fædd- ur og uppalinn.“ - Færðu þá aldrei heimþrá? „Nei, segir hún ákveðin. „Ég leyfi mér ekki að hafa heimþrá." - Hvað fínnst þér nú helst vera ólíkt með lífsháttum Dana og ís- lendinga? „Mér finnst fólk hér á íslandi vera yfirleitt svo vel stætt. Það er ekki óalgengt að menn eigi tvo bíla, allir eiga myndbönd og geislaspilara og svo eru húsin svo óskaplega fín, eldhúsin alveg sérstaklega." Þegar ég spyr hana hvað sé nú framundan segist hún ætla að halda áfram að þýða og svo stefni hún að því að koma hingað aftur árið ’96 þegar Menntaskólinn í Reykja- vík verður 150 ára. „Við Pétur viljum líka upplifa aldaskiptin og halda upp á annað brúðkaupsafmæli eftir átta ár, nán- ar tiltekið þann 10.10. klukkan 10.00. Það var Pétur sem ákvað þessa dagsetningu á sínum tíma.“ „Ég hafði heyrt voðalegar sögur~ af mönnum sem gleymdu ætíð brúð- kaupsdeginum sínurn," segir Pétur og horfír á konu sína eins og menn gera þegar þeir eru í tilhugalífinu. „Því ákvað ég að við skyldum gifta okkur á þessum degi og tíma til að koma í veg fyrir slíkt.“ „Já, þá eigum við demantsbrúð- kaup,“ segir frúin og endurgeldur augnráðið. „ Og kannski verður okkur gert annað heiðurshlið til að ganga í gegnum." Lágmarks orkunotkun - hámarks þægindi. = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 SJÁLFVIRKI OFNHITASTILLIRINN swRumnmhwiR Faxafeni í O (hús framtíúarinnar) Eftirtaldir aðilar selja vörur sínar: Verslunin KÓKÓ KJALLARINN NÍNA, Akranesi FLASH, Laugavegi KÓDA, Keflavík K-SPORT, Keflavík í TAKT, Laugavegi 60 THEODÓRA AKADEMÍA, Bankastræti 11 PÓSEDON, Keflavík BLÓMALIST HANS PETERSEN OG ÝMSIR HEILDSALAR OG SMÁSALAR Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 13 til 18 Laugardaga frá kl. 10-16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.