Morgunblaðið - 13.06.1993, Síða 32

Morgunblaðið - 13.06.1993, Síða 32
 ATVINNURAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR ATVl N N U A UGL ÝSINGAR Rækja - rækja Skipstjóri, vanur rækjuveiðum, óskar eftir plássi strax á rækjuveiðiskipi, helst heilsárs- skipi. Stýrimannastaða kemur einnig til greina. Getur byrjað fljótlega. Tilboð sendist til auglýsingadeildar Mbl. merkt: „R - 10922“ Frá Tónlistarskóla ísafjarðar T ónlistarkennarar Tónlistarskóli ísafjarðar óskar að ráða kenn- ara í eftirtöldum greinum fyrir næsta skólaár: Gítar. Þverflauta. Píanó. Tónfræði. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Sigríður Ragnarsdóttir, í símum 94-3010 og 94-3926. Ljósmyndavöru- verslun Fyrirtækið er umsvifamikil Ijósmyndavöru- verslun á höfuðborgarsvæðinu. Leitum eftir starfskrafti, 24 ára eða eldri, til framtíðarstarfa. Bæði kemur til greina hálft starf (vinnutími frá kl. 13.00-18.00) og fullt starf. Starfið felst í afgreiðslu á Ijósmyndavörum og þjálfunar á framköllunarvél. Þjónustulund og hæfni í mannlegum sam- skiptum nauðsynleg. Skrifleg umsókn, er greini frá menntun og fyrri störfum, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 16. júní merkt: „Ljósmyndavöruverslun - 3827". Matvælarannsóknir Deildarstjóri Hjá rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins er laus staða deildarstjóra til að hafa faglega umsjón með efnarannsóknum á matvælum. Umsækjendur þurfa að hafa menntun á sviði efnafræði, lífefnafræði, lyfjafræði eða í sam- bærilegum greinum. Helstu verkefni eru mælingar á varnarefnum í grænmeti og ávöxtum, greining litarefna og rotvarnarefna og uppsetning rannsókna- aðferða vegna nýrra þjónustuverkefna. Starf- ið krefst góðra skipulagshæfileika og frum- kvæðis í starfi. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, þurfa að berast Hollustuvernd ríkisins, Ármúla 1a, pósthólf 8080, 108 Reykjavík fyrir 15. júlí 1993. Frekari upplýsingar veitir Franklín Georgs- son, forstöðumaður rannsóknastofunnar, í síma 688848. Hollustuvernd ríkisins. Kennara vantar í almenna kennslu að grunnskóla Mosvalla- hrepps, Holtsskóla. Holtsskóli er lítill sveitaskóli á hinum fagra og sögufræga stað, Holti í Önundarfirði. Holt er staðsett stutt frá Flateyri og aðeins um 20 km til ísafjarðar. Skólinn er heimanakstursskóli og er samkennsla ríkjandi kennsluform í skólanum. Látið ekki drauminn um sveitasæl- una fram hjá ykkur fara og sækið um í Holtsskóla. Upplýsingar gefa skólastjóri, Guðrún Stella Gissurardóttir, í síma 94-7641/7284 eða for- maður skólanefndar, Sigríður Magnúsdóttir, í síma 94-7655/7660. MIÐSTÖÐ FÓLKS í ATVINNULEIT Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 14.00 til 17.00 ÁDAGSKRÁ vikuna 13. til 19. júní Miðvikudaginn ló. júníkl. 15.00: Gunnar Páll Jóakimsson, íþróttaþjálfari, ræðir um GILDI HREYFINGAR og kynnir ÍÞRÓTTIR FYRIRALLA. MIÐSTÖÐ FÓLKS í ATVINNULEIT.LÆKJARGÖTU 14A SÍMI 628180/FAX 628299 Rekstrarráðgjöf Stuðull hf. óskar eftir að ráða duglegan starfsmann til ráðgjafastarfa. Fyrirtækið hef- ur starfað að rekstrarráðgjöf um 7 ára skeið fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana. í boði er fjölbreytt en mjög krefjandi starf með góða framtíðarmöguleika. Æskilegir eiginleikar umsækjanda: • Aldur um 30 ár. • A.m.k. 2ja ára starfsreynsla. • Staðgóð þekking ífjármálafræðum, mark- aðsfræðum, stefnumótun og gæða- stjórnun. • Framhaldsnám í viðskiptafræði eða rekstrarverkfræði (Masterspróf eða sam- bærileg menntun). • Þarf að geta unnið sjálfstætt. Umsóknir skulu sendar til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 22. júní merktar: „X - 14419". Nánari upplýsingar veita Gísli S. Arason og Jóhann Magnússon í síma 622228. Umsækjendum er heitið fullum trúnaði. Stuðull hf., rekstrarráðgjöf, Skólavörðustíg 16. Teiknistofa með næg verkefni óskar að ráða nú þegar starfsmann t.d. tækniteiknara eða bygginga- fræðing. í fyrstu er um tímabundið starf að ræða en möguleiki er á framtíðarstarfi. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu í tölvuteiknun. Með allar umsóknir verður farið sem trúnaðarmál. Umsóknum er greini nafn, aldur, menntun og fyrri störf skal skila til auglýsingadeildar Mbl. fyrir kl. 17.00 miðvikudaginn 16. júní 1993, merkt: „T - 14420". Sjúlfsbjörg - landssamband fatlaðra Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, auglýsir eftirtalin störf: Fjármála- og fjár- öflunarfulltrúi Hlutverk: Hann ber ábyrgð á öllum fjáröflun- um Sjálfsbjargar og sinnir jafnframt gjald- kerastörfum. Oskað er eftir starfsmanni sem getur haft frumkvæði að nýjum fjáröflunar- leiðum. Kröfur: Menntun og reynsla af fjáröflunum er mikilvæg. Tölvukunnátta og kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er nauðsyn- leg. Æskilegt er að viðkomandi hafi einnig nokkra reynslu og áhuga á sviði félagsmála og geti hafið störf sem fyrst. Skrifstofumaður íhálft starf Viðkomandi þarf að sinna öllum almennum skrifstofustörfum s.s. frágangi á pósti, síma- vörslu, viðhaldi nafnaskráa og skjalavörslu. Hann sér um færslu bókhalds og aðstoðar við sérstakar framkvæmdir á kynningarátaki og fjáröflun. Tölvukunnátta og kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er nauðsyn- leg. Æskilegt er að viðkomandi hafi einnig nokkra reynslu og áhuga á sviði félagsmála og geti hafið störf sem fyrst. Kynning: Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, er samtök hreyfihamlaðra á íslandi. Aðildarfélögin eru 16 og félagsmenn um 2.400. Hlutverk Sjálfsbjargar er m.a. að vinna að því að tryggja hreyfihömluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélags- þegna. Skriflegum umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, ber að skila á skrifstofu Sjálfsbjargar, Hátúni 12, 105 Reykjavík, ekki síðar er 21. júní. Upplýsingar veita Tryggvi Friðjónsson og Sigurður Einarsson í síma 91-29133 á skrif- stofutíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.