Morgunblaðið - 28.09.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
+ Sambýliskona mín.
JÓHANNA MARI'A
JÓHANNESDÓTTIR,
Seijavegi 25, V ' ■'/' /'ÆB
lést að morgni 25. þessa mánaðar. Jarð-
arförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Brynjólfur Ingólfsson.
t
Móðir okkar,
ÞURÍÐUR FINNSDÓTTIR,
Dunhaga 11,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum laugardaginn 25. september.
Margrét Snorradóttir,
Hallgrfmur Snorrason,
Gunnar Snorrason,
Auður Snorradóttir,
Finnur Snorrason.
t
Ástkær faðir okkar, bróðir, fyrrv. eigin-
maður, tengdafaðir, afi og langafi,
HÁLFDÁN DAÐI ÓLAFSSON
frá Bolungarvík,
lést sunnudaginn 26. september sl.
Margrét, Hlédfs, Stefán,
Kristján, Jóna Daðey og Guðrún,
Jódfs Stefánsdóttir,
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn
og systur hins látna.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
NANNA GESTSDÓTTIR,
lést í Landspítalanum aðfaranótt mánu-
dagsins 27. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Oddný Ólafsdóttir Frederiksen, Jens Frederiksen,
Jóhannes Ólafsson,
Ges.tur Ólafsson, Monika Gudrun Koss,
Elfn Þorgerður Ólafsdóttir, Grétar Ottó Abraham Róbertsson,
Jóna Ólafsdóttir, Helgi Valdimarsson,
Yngvi Ólafsson, Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir,
Óttar Ólafsson, Sigríður Guðbjörg Valdimarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær sambýlismaður minn, faðír,
tengdafaðir, afi og bróðir,
JÓHANN EGGERT JÓHANNSSON,
Suðurgötu 46,
Keflavfk,
sem andaðist 22. september sl. verður
jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 1. október kl. 14.00.
Svanfríður Kjartansdóttir,
Haraldur Þór Jóhannsson, Eindís Kristjánsdóttir,
Hörður Ingi Jóhannsson, Ingibjörg Björgvinsdóttir,
Guðleif Harpa Jóhannsdóttir, Páll Arnason,
Gísli Hlynur Jóhannsson, Sigrfður Guðmundsdóttir,
Sigurlaug Hanna Jóhannsdóttir, Reynir Þór Reynisson.
barnabörn og systkini hins látna.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
JÓNAS GUÐMUNDSSON,
Miðstræti 26,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju mið-
vikudaginn 29. september kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er
bent á heimahlynningu Krabbameinsfé-
lagsins.
Sara Stefánsdóttir,
Ásta Marfa Jónasdóttir, Hallgrfmur Júlfusson,
Stefán Óskar Jónasson, Sigurlaug Grétarsdóttir,
Guðmundur Karl Jónasson,
Anna María Jónasdóttir, Jóhann Valdimarsson
og barnabörn.
Hans Nornmnn Han-
sen — Minning
Fæddur 22. mars 1942
Dáinn 16. september 1993
Hinn 16. september lést bróðir
okkar Hans Normann Hansen eftir
erfið veikindi.
Normann var fæddur í Mjólkur-
samlagi KEA, sonur hjónanna Inga
Arnvid Hansen og Tómasínu Vig-
fúsdóttur Hansen. Þau eru bæði
látin. Ingi var húsvörður og vélavið-
gerðarmaður hjá Mjólkursamlag-
inu.
Normann var næstelstur fjögurra
systkina. Hann ólst upp í samlaginu
og lauk gagnfræðaprófi 1959. Á
sumrin var hann í sveit á Syðri-
Bægisá í Öxnadal og kunni hann
mjög vel við sig þar. Sumrin urðu
alls sjö, en vináttuböndin, sem
mynduðust þar, rofnuðu aldrei.
Margar ferðirnar var hann búinn
að fara að Syðri-Bægisá til að við-
halda þessum vináttuböndum, síð-
ast nú í sumar eftir að hann var
orðinn veikur.
Normann byijaði að vinna hjá
smurstöð Þórshamars, en 1960 hóf
hann störf hjá Vélsmiðjunni Odda
hf. og lærði þar vélvirkjun og lauk
þaðan prófi 1964 með mjög góðum
vitnisburði. Hann vann aðallega við
að setja niður vélbúnað í báta, auk
annarra starfa. Árið 1972 bauðst
honum starf í Mjólkursamlagi KEA
og tók hann sér góðan umhugsun-
artíma áður en hann ákvað að hefja
störf þar sem viðgerðarmaður. Þar
vann hann í 20 ár, eða þar til hann
þurfti að hætta vinnu á síðasta ári
vegna veikinda.
Hinn 14. nóvember 1964 giftist
hann Sigríði (Sirrý) Gunnarsdóttur
og eignuðust þau þrjú böm. Þau
eru Kamilla, fædd 15. mars 1964,
gift Viðari Pálmasyni og eiga þau
tvö böm; Ingi Arnvið, fæddur 24.
janúar 1967, giftur Ástu Birgisdótt-
ur og eiga þau tvö börn; Gunnar
Már, fæddur 3. júní 1972.
Normann og Sirrý hófu búskap
sinn á heimili móður okkar í Vana-
byggð 2d. En árið 1967 byggðu þau
sér sitt eigið heimili í Norðurbyggð
5 og bjuggu þar öll sín hjúskapar-
ár. Þau slitu samvistum nú fyrir
nokkrum árum, en vinátta þeirra
hefur haldist fram á þennan dag.
Börnin voru honum dýrmæt, og
mikinn áhuga hafði hann á barna-
börnunum.
Normann starfaði ekki mikið að
félagsmálum, en þó var hann í
stjórn_ Sveinafélags járniðnaðar-
manna í nokkur ár. Hann starfaði
í byggingarnefnd Starfsmannafé-
lags KEA þegar sumarhúsin í
Bjarkalundi voru byggð 1985. Og
á síðasta ári kynntist hann AA-sam-
tökunum og starfaði þar af krafti
á meðan heilsan leyfði.
Normann var traustur vinnufé-
lagi og vildi leysa verk sín vel af
hendi. Vinnan var honum mikils
virði og samviskusemin í blóð borin.
Við systkinin viljum senda börn-
um hans, svo og ástvinum öllum,
innilegar samúðarkveðjur og kveðj-
um svo bróður okkar með orðum
skáldsins:
Flýt þér, vinur, í fegra heim.
Kijúptu að fótum friðarbogans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa Guðs um geim.
(J.H.)
Arnvíð, Ruth, ívar.
Við lát Normanns Hansens vakna
bjarta minningar. Fjölskyldur okkar
áttu sameiginlegan austfirskan
ættstofn. Tómasína Hansen, móðir
Normanns, var systurdóttir Sól-
veigar Einarsdóttur móður okkar.
Systurnar, Sigríður sem gekk undir
nafninu frænka hjá okkur systkin-
unum, og Sólveig móðir okkar voru
komnar af traustum stofni á Héraði.
Á æskuárum á Akureyri ríktu
náin fjölskyldutengsl á milli heimil-
is okkar á Syðri brekkunni og heim-
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓNÍNA JÓHANNSDÓTTIR BRIEM,
Sigtúni 39,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 30. september
kl. 15.00.
Páll J. Briem,
Kristín Briem, Sigurjón H. Ólafsson,
Sigrún Briem, Jón Viðar Arnórsson,
Jóhann Briem,
Jóhanna Björk Briem, Guðmundur Þorbjörnsson
og barnabörn.
ilisins í Gilinu. í leikjum og störfum
okkar krakkanna þar sem Tomma
og frænka voru einskonar kjarna-
punktar tilverunnar þróaðist vinátta
og frændsemi við systkinin fjögur,
þau Arnvid, Normann, Rut og Ivar.
Þetta voru áhyggjulaus ár, full af
gáska, lífsgleði, skíða- og beijaferð-
um, og öllum þeim ijölskylduboðum
sem nefna má.
Þrátt fyrir mikla breytingu á
högum og mismunandi búsetu lifði
vináttan og alltaf var kært að orna
sér við þessar akureyrsku minning-
ar. Nomann Hansen var alltaf
traustur félagi, góður frændi og
léttur í lund. Eins og faðir hans,
Ingi Hansen, var hann mikill völ-
undur og allt lék í höndum hans.
Því miður fækkaði samverustund:
um verulega þegara árin liðu. í
minningunni eru boðin hennar
Tommu og samskiptin við börnin
hennar fjögur á við perlur.
Nú, þegar eitt þeirra er horfið,
Normann frændi hefur kvatt okkur,
lýsir þessi minning bjartar. Með
Normanni er horfinn á besta aldri
öðlingsmaður. Við þessi leiðarlok
lifna þær æskumyndir sem aldrei
munu hverfa. Við sendum börnum
hans og fjölskyldunum öllum hlýjar
samúðarkveðjur frá frændsystkin-
um á Syðri brekkunni.
Hrefna Hannesdóttir, Heimir
Hannesson, Sigríður J. Hann-
esdóttir, Gerður Hannesdóttir.
ERFIDRYKKJUR
frá kr. 850-
ími 620200
ERFIDRYKKJUR'
^eWngahúsj^
PERLAN
+
Útför sonar míns, föður okkar, afa og bróður,
RAGNARS HALLDÓRSSONAR,
Skúlagötu 78,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 29. september kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Heimahlynningu Krabba-
meinsfélagsins.
Kristjana Jónsdóttir, María Ragnarsdóttir,
Inga Ragnarsdóttir, Gísli Ragnarsson,
Linda Ragna og Rúnar Bragi,
Guðmundur Halldórsson.
+
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐNÝ EINARSDÓTTIR
.frá Þóroddsstöðum,
til heimilis Geitlandi 6,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 30. september kl. 13.30.
Jóhann Jón Þorvaldsson,
Selma Jóhannsdóttir,
Magnús Jóhannsson, Elín Guðmundsdójttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
HÖTBL ESJA
sími 689509
Suðuriandsbraut 10
Reykjavik. Sfmi 31099
til kl. 22,