Morgunblaðið - 28.09.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.09.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993 íslensku togararnir í Smugunni Norsku strand- gæslunni meinað að mæla aflann Morgunblaðið/Ingvar Rússar grunaðir um varahlutaþjófnað GRUNUR leikur á að sjómenn á rússneskum togara sem liggur í Hafnarfjarðarhöfn eigi þátt í að stela ýmsum munum úr bílum m.a. á athafnasvæði Eimskipafélagsins og dráttarbílafyrirtækis í Hafnar- firði. Undanfarna daga hefur verið stolið úr bílum fyrir hundruð þúsunda, m.a. frá Litlu-partasölunni við Trönuhraun, þar á meðal fjölda útvarpstækja og margs konar öðrum hlutum. Rannsóknarlög- reglumenn og tollverðir fóru í gær um borð í togarann, sem er sá sami og var vísað frá í Bolungarvík í síðustu viku vegna rottu- gangs, gerðu ítarlega leit og fundu m.a. margs konar varahluti og aukahluti í bíla. Ekki lá Ijóst fyrir í gær hvort um þýfi væri að ræða eða varning fenginn í viðskiptum við bíleigendur víðs vegar um landið. Málið er til rannsóknar hjá RLR. Eftirlitsmaður hugsanlega send- ur með Stakfellinu á miðin í dag SKIPSTJÓRAR togaranna átta sem nú eru á veiðum í Smug- unni sendu í gær skeyti til LÍÚ þar sem þeir lýstu því yfir að þeir hefðu ákveðið að hleypa ekki starfsmönnum norsku strandgæslunnar um borð til frekari mælinga. Að sögn Jónas- ar Haraldssonar, skrifstofustjóra LIÚ, virðist ástæðan vera óánægja með meintar rangtúlkanir á upplýsingum strand- gæslunnar og með fregnir fjölmiðla um að smáfiskur sé í afla íslensku skipanna, sem þeir telja að gefi ekki heildar- mynd af veiðunum. Einnig er óánægja með að Halldór B. Nellet, starfsmaður Landhelgisgæslunnar, sem hefur verið með norsku strandgæslunni undanfarna viku við eftirlit með veiðunum, er nú farinn heim og hefur LÍÚ óskað eftir skýr- ingum á því í sjávarútvegsráðuneytinu. Þær upplýsingar fengust í sjávar- útvegsráðuneytinu í gær að eftir- litsmaðurinn hefði aðeins átt að vera vikutíma við eftirlitsstörfín en nú væri í athugun að annar eftirlits- maður verði sendur á miðin með Stakfellinu sem heldur af stað í Smuguna í dag.. „Það var talið að hann væri bú- inn að sinna því^ sem honum var falið að gera. Ákvörðun um að senda þarna mann var ekki tekin af Landhelgisgæslunni út af fyrir sig,“ sagði Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. „Það var mjög gott samstarf við norsku strandgæsluna um þetta alveg frá byijun og þar til hann lauk störfum," sagði hann. ef svo ólíklega vildi til að skip Gre- engeace áreitti íslensk skip teldi LÍÚ eðlilegt að Landhelgisgæslan sendi varðskip í Smuguna þeim til aðstoðar. Aðspurður hvort til greina kæmi að Landhelgisgæslan vernd- aði íslensku skipin fyrir hugsanleg- um aðgerðum grænfriðunga sagðist Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri ekki taka ákvörðun um slíkt. Skv. upplýsingum frá íslensku skipunum í Smugunni gærmorgun höfðu þau verið að fá smáreyting af góðum fiski og var enginn smá- fiskur í aflanum. Nýjar reglur um öryggi á sundstöðum í smíðum í menntamálaráðuneytinu Ekki tókst að ná sambandi við íslensku skipin í Smugunni í gær en Jónas Haraldsson sagðist leggja ríka áherslu á að eftirlitsmönnum norsku strandgæslunnar yrði leyft að mæla afla þegar þeim sýndist og sagðist ekki geta tekið undir það sjónarmið að Norðmenn væru að gera íslensku skipstjórunum vilj- andi óleik með framgöngu sinni á svæðinu. Kvaðst hann beina þeim tilmælum til skipanna að leyfa strandgæslunni að skoða afla þegar þeir óskuðu eftir. Jónas kvaðst ekki hafa áhyggjur af yfírlýsingum grænfriðunga um truflun á veiðum íslensku skipanna. Þær væru partur af áróðursstríði Greenpeace, en þau samtök væru að geispa golunni bæði fjárhagslega og félagslega og væru að leita sér að einhverri hugsjón til að beijast fyrir í örvæntingu sinni. Varðskip í Smuguna? Jónas Haraldsson sagði í gær að Hæfniskröfur hertar og úttektarmál skilgreind Sjómenn í N-Noregi styðja Grænfriðunga Osló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. SJÓMENN í Norður-Noregi hafa lýst yfir fullum stuðningi við hugsan- legar aðgerðir Greenpeace gegn íslenskum togurum í Smugunni. „Ef þeim er alvara þá fagna ég því. Ég held að grænfriðungar séu í þann mund að afla sér fjölda vina í norðurhluta Noregs,“ sagði Káre Lud- vigsen, formaður Troms Fiskarfylking um hótanir grænfriðunga. SjoIIe Nielsen, sem stjórnar aðgerð- unum um borð í Solo, skipi Grænfrið- unga, segist ekki útiloka aðgerðir gegn íslensku togurunum, en segir Solo fyrst og fremst ætla að „fylgjast með“ því sem er gerast í Smugunni. „Það er okkar skoðun að landhelg- isgæslan eigi að skera á veiðarfæri þeirra togara, sem eru að veiðum í Smugunni. Við munum hins vegar reyna að fá menn til að hætta veiðum með rökum," segir hann í samtaii við norska blaðið Aftenposten. íslensku sjómennimir virðast vera vantrúaðir á að norskir starfsbræður þeirra, séu gengnir erkióvininum Gre- enpeace á hönd. „Ef þetta reynist rétt þá hafa [norsku] sjómennimir DRÖG að nýjum reglum um öryggi á sundstöðum og kennslulaugum hafa verið sett saman. Að sögn Reynis Karlssonar, íþróttafulltrúa ríkisins, er vinna við reglurnar langt komin og gætu þær Iegið fyrir í endanlegri mynd á næstu vikum. Drögunum hefur þó þegar verið dreift á alla sundstaði landsins og að sögn Reynis starfa margir þeirra eftir þeim nú þegar. Reglurnar eru byggðar á núgildandi reglum en kröfur sem gerðar eru til starfsfólks um sund- kúnnáttu og þjálfun í lífgunaraðgerðum verða hertar auk þess sem stefnt er að því að eyða öllum vafa um hverjir eigi að taka út sundstaði með tilliti til öryggis. Starfshópur hefur unnið að nýju reglunum í u.þ.b. eitt ár. í honum eiga sæti fulltrúar íþrótta- og æskulýðsdeildar menntamálaráðu- neytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Hollustuvemdar ríkisins, Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins, Vinnueftir- lits ríkisins og Slysavamafélags íslands en allir þessir aðilar hafa með einhveija þætti öryggis á sundstöðum að gera. Stefnt er að því að einu sinni á ári verði farið yfir öll öryggisatriði í hverri laug auk þess sem starfsfólk lauganna fari í próf þar sem það sýni fram á að það geti bæði synt og kafað og kunni einföldustu atriði í lífgun úr dauðadái. í reglunum er ná- kvæmlega gerð grein fyrir hveijar kröfurnar, sem gerðar eru til starfsfólks, eru. Grá svæði erfið „Eftir að nýju reglumar taka gildi verður alveg Ijóst hvaða ör- yggisatriði heyra undir hvern að- ila,“ sagði Jens Andrésson, tækni- fulltrúi hjá Vinnueftirliti ríksisins. „Núna gera ýmis grá svæði okkur erfitt fýrir. Þá verður líka ákveðið gleymt atburðum undanfarinna ára. Það hafa margir norskir hvalveiði- menn liðið fyrir aðgerðir Greenpe- ace,“ segir útgerðarmaðurinn Krist- inn Vilhelmsson í samtali við Norsk Telegrambyrá. Á aðalfundi Troms Fiskarfylking, sem haidinn var um helgina, var „ólöglegum sjóræningjaveiðum" Ís- lendinga í Smugunni harðlega mót- mælt. Eínnig var gagnrýnt að íslensk- um eftirlitsmanni hefði verið leyft að kanna afla íslensku togaranna. „Þetta er enn eitt dæmið um eftirgjöf af hálfu norskra yfírvalda, að láta önnur ríki yfírfara störf norsku landhelgis- gæslunnar," hefur NTB eftir sjó- mönnunum í Troms. hver verður samræmingaraðili með þessum úttektarmálum, hvort það verða sveitarstjórnir í viðkom- andi sveitarfélögum, heilbrigði- seftirlit eða byggingarfulltrúi,“ sagði Jens. „Hvað vatnsrenni- brautir varðar þá starfar Vinnueft- irlitið eftir þýddum þýskum stöðl- um sem voru gefnir út af mennta- málaráðuneytinu 1991 og þar er fyrst og fremst gætt að öryggi þeirra sem notar brautirnar. Ut- tektir þessar hafa verið gerðar vegna tilmæla en tengjast í raun ekki lögum um öryggi, aðbúnað og hollustu á vinnustöðum. Sam- kvæmt þeim eigum við að gera úttektir á vinnustaðnum og þeirri aðstöðu sem tengist hinum laun- aða starfsmanni. Byggingafulltrúi á að sjá um að úttekt á mannvirk- inu fari fram og sveitarfélögin bera ábyrgð á öryggi t.d. barna í skólasundi. Sameiginleg lausn Á sundstöðum fer fram almennt sund, skólasund og þar æfa íþróttafélögin. Þar eru á ferðinni þrír hópar sem ekki hafa skírskot- un í lögin sem við störfum eftir nema kannski kennarinn, sem er launaður. Við störfum eftir okkar lögum og reynum að teygja þau eins mikið og við getum í þágu almannaheilla. Það þarf að fínna sameiginlega lausn á þessum út- tektarmálum svo menn séu ekki í einhveiju fölsku öryggi,“ sagði Jens. Slys varð við útsogsop fyrir vatnsrennibraut í Sundlaug Kópa- vogs sl. föstudag, eins og frá hef- ur verið greint í blaðinu. Ellefu ára gamall drengur kafaði niður að opinu, festist og náðist ekki upp úr lauginni fyrr en slökkt hafði verið á dælu sem dælir vatni upp í vatnsrennibrautina. Sama dag birtist í Morgunblaðinu bréf frá Þorsteini Einarssyni, fyrrver- andi íþróttafulltrúa ríkisins, þar sem hann bendir á hættuna sem getur fylgt slíkum opum. Eftir að slysið varð var renni- brautinni lokað og strax á laugar- dag voru breytingar á búnaði við dæluopið gerðar en drengurinn komst að opinu vegna þess að öryggisgrind hafði verið spennt frá. Að sögn Guðmundar Harðar- sonar, forstöðumanns sundlaugar- innar hefur verið sett stálplata með smáum götum í stað grindar- innar og hún beygð eins og tröpp- ur sem hún liggur upp að. Hijúf ræma verður síðan sett á plötuna til að gera hana stamari. Þegar hefur verið gefið leyfi til að nota rennibrautina en hún verður ekki opnuð fyrr en ræman verður kom- in á sinn stað. Að sögn Guðmundar hefur verið farið eftir nýju reglnadrögunum síðan í vor í Sundlaug Kópavogs og starfsfólk hennar þegar farið í eitt sundpróf. Allt sumarafleys- ingafólk var prófað og nýtt sund- próf verið auglýst núna í október. Starfsfólkið hefur farið á nám- skeið í lífgunaraðgerðum og þar að auki fengið fólk frá samtökum flogaveikra, LAUF, til að kenna því hvernig bregðast ætti við ef flogaveikisjúklingur fengi floga- veikikast í sundi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.