Morgunblaðið - 13.01.1994, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
l-
„Búum unga fólkið
betur undir lífið“
Tízkuskóli Johns Casablancas að hefja starf-
semi sína á Islandi fyrstu Evrópulanda
TIZKUSKOLI Johns Casablancas hefur starfsemi sína í Reykja-
vík nú um miðjan janúarmánuð. Þetta er í fyrsta sinn, sem skóli
tengdur honum er stofnsettur utan Bandaríkjanna. Það er Kol-
brún Aðalsteinsdóttir, eigandi Módelmyndar, sem hefur fengið
leyfi til skólahaldsins, en hún var við þjálfun í Bandaríkjunum
yfir hátíðirnar. Hún segir að skóli af þessu tagi geri hvort tveggja
í senn, að búa nemendur vel undir lífið og þjálfa fólk til sýningar-
starfa. Jafnframt tryggi sambandið við John Casablancas öryggi
og velferð þeirra stúlkna, sem fara héðan til að reyna fyrir sér
í tízkuheiminum ytra.
Morgunblaðið/Þorkell
Kennararnir við skólann, þau Guðrún Olafsdóttir, Róbert Róberts-
son, Eydís Eyjólfsdóttir, Hólmgeir Hólmgeirsson og Elín Guð-
mundsdóttir. Skólastjórinn, Kolbrún Aðalsteinsdóttir, var erlendis
er myndin var tekin.
„íslendingar hafa sótzt eftir
þessum heiðri, en ekki fengið fyrr
en nú,“ segir Kolbrún Aðalsteins-
dóttir. „Það er meðal annars vegna
þess að kennarar þurfa mikla
reynslu og þjálfun til að standast
þær kröfur, sem gerðar eru. Ég
fór til Bandaríkjanna í september
síðastliðnum og fór þá í gegnum
strangt „prógramm“, eins konar
stöðupróf, og að því loknu fékk
ég umboð fyrir skólann, en mestu
máli skiptir líklega að við höfum
náð mjög góðum árangri með
fyrirtæki mitt, Módelmynd, á síð-
ustu árum. Starfsemin hjá okkur
hefst 16. janúar næstkomandi en
innritun er þegar hafin.“
Engin glansímynd
„Þessi skóli er engin
glansímynd, þó John Casablancas
eigj Elite, sem er ein af stærstu
umboðsskrifstofum veraldar fyrir
sýningarstúlkur og sé meðal
annars með Lindu Evangelista og
Cindy Crawford á sínum snærum.
Ég hef rekið tízkuskólann
Módelmynd hér á landi í átta ár
og hefur þjálfun í honum og skóla
Johns Casablancas verið með
svipaðri forskrift. John Casa-
blancas-skólinn var stofnaður árið
1980 og er orðinn einn stærsti og
virtasti módelskóli veraldar. Þar
eru menn lítið gefnir fyrir
prímadonnustæla og þau módei
sem eru stór upp á sig eru
einfaldlega látin fara, svo sem
Naomi Campbell. Við leggjum ekki
heldur áherzlu á glansímyndina,
heldur á að bæta sjálfstraust
nemendanna og öryggi þeirra í
framkomu, líkamlega tjáningu og
ýmsa þætti er þessu tengjast.
Mér fínnast íslendingar vera
svolítið aftarlega í þessum málum.
Það er töluverð óregla á ungling-
um og hið almenna skólakerfi hef-
ur ekki náð að sinna þessum þætti
kennslu og uppeldis. Þar er al-
gengt að börnum sé refsað eins
og fullorðin séu og það getur tæp-
ast talizt góð aðferð. Þess vegna,
meðal annars, eru íslendingar að
jafnaði óframfærnir. Foreldrar
barnanna geta lítið verið heima
vegna mikils álags við vinnu og
lyklabörnunum fjölgar. John Casa-
blancas-skólinn byggir fólk upp,
en það ætti skólakerfið auðvitað
að gera, en til þess virðist ekki
gefast tími. Við munum meðal
annars taka á feimni og ófram-
færni og öðrum annmörkum á
framkomu barna og unglinga. Ég
hef verið töluvert með unglinga
af Dalbraut og frá Félagsmála-
stofnun, sem hafa átt erfitt upp-
dráttar. Við höfum verið að þjálfa
þá í því að þekkja sjálfa sig og
byggja upp sjálfstraust þeirra og
sjálfstæði. Það hefur gengið vel
og ánægjulegt hefur verið að fá
símtöl eftir á frá foreldrum og
forráðamönnum, sem segja að vel
hafi til tekizt. Einelti er því miður
sorglega algengt á íslandi, en börn
sem verða fyrir því missa oft
sjálfstraustið. I skólanum okkar
byggjum við börn og unglinga upp
og fullorðið fólk sömuleiðis til að
það geti betur tekizt á við tilver-
una og verkefni sín en áður. Þetta
er svo lærdómur, sem gott er að
byggja á, og taka með sér út í
heim, ef leiðin liggur þangað. Með
skólanum opnum við einmitt leið
fyrir ungar stúlkur og drengi til
útlanda, einkum Bandaríkjanna,
. og með samstarfinu við John Casa-
blancas er komin sú brú milli land-
anna sem alltaf hefur vantað fyrir
ungt sýningarfólk. Hér á landi er
mikið af fallegu fólki, en sýningar-
fólk þarf að byija snemma að
þjálfa sig og byggja upp mynd-
amöppur. Venjan er sú að ungar
stúlkur byija í Mílanó og þar hafa
stúlkur frá okkur náð langt. Þær
hafa fengið góðan undirbúning og
vita að þeim er treyst, en það er
mikilvægt að svo sé og komið fram
við þær eins og vini. Menntun er
nauðsynleg. Fyrirsæta, herramód-
el eða stelpumódel, getur ekki
verið óörugg. Undirstaðan verður
að vera góð og ekki gengur að
tala íslenzku í útlöndum. Afengi
og eiturlyf, óhollt mataræði og
óreglulegur svefn hefur allt slæm
áhrif og markar fólk.
Bryddað upp á nýjungum
Módelmynd hefur verið braut-
ryðjandi í þjálfun fólks til
sýningarstarfa og meðal annars
sést, þegar farið er yfir
auglýsingar í Morgunblaðinu, að
aðrir tízkuskólar hafa tekið upp
hugmyndir okkar um þjálfun og
námsefni. Ég hef verið dugleg við
að ferðast og kynna mér hvað er
helzt að gerast í heiminum og fyrir
vikið rutt brautina. Meðal
nýjunga, sem við höfum bryddað
upp á, má nefna sjálfsvörn fyrir
ungar stúlkur, en eins og
þjóðfélagið er orðið í dag, en öllum
ljós þörfín á því að geta varið sig.
Fyrir liggur að nauðgarar velja
fórnarlömb sín í nær öllum
tilfellum ef þau eru greinilega
óörugg í fasi eða framkomu. Þess
Cindy Crawford, ein þekktasta
fyrirsæta heims, er hjá Elite,
sem er í eigu Johns Casablancas.
vegna fórum við með stúlkumar
okkar í þjálfun í Gallerí Sport. Þar
var þeim kennt að veija sig, en
miklu máli skiptir einnig að
fyrirbyggja mögulega árás með
þjálfun í _ sjálfsöryggi og
framkomu. Á sama hátt skiptir
sjálfsöryggi miklu máli, þegar sótt
er um vinnu eða komið fram til
dæmi fyrir hönd fyrirtækis eða
vinnuveitanda.
Skólinn er fyrir börn frá fjög-
urra ára aldri og upp úr, fullorðna
fólkið líka. Kennarar eru af báðum
kynjum, sem er mikilvægt fyrir
herrana, og börnunum eru kennd
undirstöðuatriðin í framkomu og
góðum siðum. Þeim er kennt að
leggja á borð og sitja til borðs,
þeim er kennt að hugsa vel um
fötin sín og vera vel til fara, kennt
að vanda mataræði, þaú eru vöruð
við notkun áfengis og eiturlyfja,
sjálfstraustið er byggt upp og svo
framvegis. Þá er nemendum gerð
grein fyrir rétti sínum í sýningar-
heiminum, en til dæmis eru nekt-
armyndatökur bannaðar fyrr en
stúlkur hafa náð 16 ára aldri. Þá
má nefna kennslu í að rata eftir
korti og sölumennsku, en hvort
tveggja kemur sér vel fyrir fólk,
bæði í ferðalögum og atvinnulíf-
inu. Að náminu loknu eru nemend-
urnir síðan betur undir lífið búnir
en áður, hvort sem þeir leggja
sýningarstörf fyrir sig eða ekki.
Börn og unglingar geta náð langt.
En til að ná árangri þarf fólk að
sýna hvert öðru samstöðu og
styrkja hvert annað. Við erum öll
manneskjur með mismunandi
hæfileika, sem oft þarf að laða
fram og efla. Við þurfum að hugsa
vel um líkama okkar. Hver vill
ekki líta vel út, ganga rétt og
bera sig vel? Nemendur fá aðstoð
við hárgreiðslu og förðun og geta
látið sér líða vel í staðinn fyrir
Grafík, fjölbreyttir útreikningar og öflugustu aðgerðir Excel.
Námskeið sem gefur þér meira fyrir minna.
Höfum kennt á Excel frá árinu 1986.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar tiy
Grensásvegi 16 * stofnuð 1. mars 1986 (£)
Forsvarsmenn skipasmíðafyrirtækja segja aðgerðir of seint á ferð
Þegar komið á hnén
- segir Sævar Birgisson, forstjóri skipasmíðastövar Marsellíusar
FORSVARSMENN Skipasmíðastöðvar Marsellíusar á ísafirði, Skipa-
lyftunnar í Vestmannaeyjum, Slippstöðvarinnar Odda á Akureyri
og Þorgeirs og Ellerts á Akranesi eru sammála um að tillögur Sig-
hvats Björgvinssonar, iðnaðarráðherra, til að jafna samkeppnisstöðu
greinarinnar séu spor í rétta átt þó þær séu of seint á ferðinni.
Haraldur L. Haraldsson, forstjóri Þorgeirs og Ellerts á Akranesi
segir að vandi skipasmíðastöðvanna leysist ekki með þessum tillög-
um, því eftir standi gríðarlegur fjárhagsvandi fyrirtækjanna. Sig-
hvatur mun á föstudag leggja til við ríkisstjórnina að teknar verði
upp 13% niðurgreiðslur á skipaviðgerðir innanlands og jöfnunartoll-
ar á skip smíðuð erlendis. Skoðanei eru hins vegar skiptar um hvor
beri að taka upp niðurgreiðslur eða tolla.
Eitt skip er nú í smíðum hér á
landi hjá Þorgeir og Eggert. Það
er Þróunarsamvinnustofnun íslands
sem er að láta smíða það og lýkur
verkinu lok þessa mánaðar. Skipið,
sem er 22,5 metrar á lengd, verður
síðan sent til Grænhöfðaeyja.
Hjá fyrirtækinu vinna nú um 80
manns og segir Haraldur að þokka-
legar horfur séu með verkefni fram-
undan. Hann segist vona að tillögur
iðnaðarráðherra muni auka hlut-
deild skipasmíðastöðva hér á landi
í verkefnum sem skapast.
Lagt er til að niðurgreiðslurnar
nái til viðgerða sem kosta meira
en 10 milljónir króna, en slíkar við-
gerðir og breytingar fara nú að
mestu leyti fram erlendis. Haraldur
segir að sjaldgæft sé að svo stór
verkefni fáist hér. Hann segir að
ársvelta greinarinnar í heild séu
tveir milljarðar, og til samaburðar
mætti geta þess að frystitogarinn
Guðbjörg, sem er í smíðum í Nor-
egi kosti um 1,3 milljarð.
Mörg fyrirtæki þegar farin á
hausinn
Gunnlaugur Axeisson, fram-
kvæmdastjóri Skipalyftunnar segir
að tillögurnar miðist fyrst og fremst
að því að keppa við erlend fyrir-
tæki. Hann segir að helsti galli
aðgerðanna sé að þau fyrirtæki sem
þegar eru farin á hausinn, en hafa
ekki verið lýst gjaldþrota opinber-
lega, komi nú aftur inn á markaðinn
á fullum krafti og þetta geti leitt til
undirboða. Hann er svartsýnn á
framhaldið ef ekki komi til neinar
sértækar aðgerðir á fljótlega og seg-
ir að í vor verði þá aðeins 3-4 fyrir-
tæki eftir í skipaiðnaði.
Hjá Skipalyftunni vinna 58
manns og segir Gunnlaugur að
verkefnastaðan hafi verið þokkaleg,
en ekki sé mikið frartiundan. Fyrir-
tækið vann á síðasta tvö verk fyrir
70-80 milljónir hvort sem þeir fengu
eftir útboð. „Vandamálið er að
verkefnin eru verðlögð of iágt og
því er afkoma svo margra fyrir-
tækja í greininni léleg,“ segir hann.
Tollar íþyngja útgerðinni
Guðmundur Tulinius, fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar
Odda, segir að til þessara aðgerða
hefði þurft að grípa mun fyrr, jafn-
vel upp úr 1980. „Því miður er
greinin þegar hrunin, með einstaka
undantekningum,“ segir hann.
„Þessar tillögur eru góðar tii að
jafna samkeppnisstöðuna," segir
hann. „En til þess að geta nýtt sér
þessa samkeppnisjöfnun verða fyri-