Morgunblaðið - 13.01.1994, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
ATVINNUA! JCZI Y^IKIC^AR
Fjölskylda í Hlíðunum
leitar að miðaldra konu.
Við erum 5 í heimili og þurfum aðstoð við
börnin og heimilisstörfin. Vinnutími eftir sam-
komulagi. Verður að hafa bíl til umráða.
Upplýsingar í síma 688624.
Lögfræðingar
Viðskiptaráðuneytið óskar að ráða lögfræð-
ing til starfa tímabundið. Þekking á Evrópu-
rétti, banka- og fjármagnsmarkaðarlöggjöf
æskileg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist ráðuneytinu í síðasta
lagi 31. janúar nk.
Viðskiptaráðuneytinu, 1 l.janúar 1994.
Stöður
tryggingayfirlæknis
og tryggingalæknis
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
auglýsir lausar til umsóknar stöðu trygginga-
yfirlæknis og stöðu tryggingalæknis. Trygg-
ingalæknisstöðunni fylgir að vera staðgeng-
ill tryggingayfirlæknis.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipar
í báðar stöðurnar. Vegna stöðu tryggingayfir-
læknis skal leita tillagna forstjóra TR, trygg-
ingaráðs og tryggingayfirlæknis vegna stöðu
tryggingalæknis.
Umsóknum um stöður þessar skal skila til
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins,
Laugavegi 116, ásamt ítarlegum upplýsingum
um menntun og fyrri störf fyrir 10. febrúar nk.
Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins veitir
nánari upplýsingar um stöðurnarog starfskjör.
Heiibrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
W.janúar 1994.
Þjóðgarðsvörður
Náttúruverndarráð auglýsir stöðu þjóðgarðs-
varðar í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum
lausa til umsóknar.
Starfið felst einkum í umsjón með rekstri þjóð-
garðsins, móttöku ferðamanna, landvörslu og
fræðslu um náttúruvernd. Jafnframt skal þjóð-
garðsvörður hafa eftirlit með mannvirkjum og
framkvæmdum í þjóðgarðinum.
Auglýst er eftir einstaklingi sem hefur þekk-
ingu á náttúrufræðum og náttúruvernd. Við-
komandi verður að eiga auðvelt með að um-
gangast fólk og vera vanur verkstjóri. Gert er
ráð fyrir að þjóðgarðsvörður búi að Ási í Keldu-
hverfi. Staðan er veitt til ákveðins tíma eftir
nánara samkomulagi. Laun eru samkvæmt
launakjörum opinberra starfsmanna. Þjóð-
garðsvörður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist formanni Náttúruverndarráðs,
Hlemmi 3, 105 Reykjavík, fyrir 5. febrúar nk.
Náttúruverndarráð.
RADAUGl YSINGAR
Vörur og þjónusta
fyrir knattspyrnufélög
KSÍ hyggst gefa út bækling næsta vor, með
upplýsingum fyrir knattspyrnufélög, um fyrir-
tæki sem selja vörur og þjónustu fyrir íþrótta-
félög. Óskað er eftir að þeir aðilar sem selja
slíkar vörur eða þjónustu, sendi Mannvirkja-
nefnd KSÍ upplýsingar þar að lútandi fyrir
20. janúar nk. í þessu sambandi ér t.d. átt
við búninga, knetti, skó, mörk, skiltagerð,
gras, áburð, sáðvörur, byggingarefni, ferða-
möguleika, gististaði, ráðgjöf o.fl.
Knattspyrnuhús
Mörg knattspyrnufélög og sveitarstjórnir
kanna um þessar mundir möguleika á bygg-
ingu knattspyrnuhúsa. Mannvirkjanefnd KSÍ
óskar eftir upplýsingum frá framleiðendum
og innflytjendum slíkra húsa um hvað þeir
hafa á boðstólum ásamt lauslegum verðhug-
myndum.
Mannvirkjanefnd KSÍ,
Laugardal, 104 Reykjavík.
|@f ísafjarðarkaupstaður
Álagning sérstaks fast-
eignaskatts á verslunar-
og skrifstofuhúsnæði 1994
Á sfðasta ári voru samþykkt lög á Alþingi
um breytingu á lögum nr. 90/1990, um tekju-
stofna sveitarfélaga, með síðari breytingum.
í lögum þessum er ákvæði um sérstakan
fasteignaskatt, sem nema skal allt að 1,25%
að hámarki af álagningarstofni, sem heimilt
er að leggja á fasteignir sem nýttar eru til
verslunarreksturs eða skrifstofuhalds, ásamt
tilheyrandi lóð, enda þótt um leigulóð sé að
ræða. Skattskyldan nær til sömu aðila, og
samkvæmt fyrri lögum um sama efni.
Skattur samkvæmt lögum þessum rennur
óskiptur til sveitarfélaga og annast þau
álagningu og innheimtu skattsins, en geta
þó falið sérstökum innheimtuaðila innheimt-
una. Eigendur fasteigna, sem falla undir
þetta ákvæði, skulu senda sveitarfélagi skrá
yfir eignir sínar í því sveitarfélagi, ásamt
upplýsingum um síðasta heildarfasteigna-
matsverð þeirra eða eftir atvikum kostnaðar-
verð.
Ennfremur skal skrá þar upplýsingar um
notkun þeirra, svo og upplýsingar um rúm-
mál eigna sem einnig eru notaðar til annars
en verslunarreksturs eða skrifstofuhalds.
Vanræki húseigandi að senda skrá yfir eign-
ir sem þetta ákvæði tekur til, er sveitarstjórn
heimilt að nota aðrar upplýsingar til viðmun-
ar við álagningu þar til húseigandi bætir úr.
Frestur eigenda verslunar- og skrifstofuhús-
næðis á ísafirði til að skila framangreindum
upplýsingum til byggingarfulltrúa er til og
með 24. janúar 1994.
Sérstök eyðublöð til að nota í þessu skyni
munu liggja frammi á bæjarskrifstofu.
ísafirði, H.janúar 1994,
byggingarfulltrúinn á ísafirði.
Nýr silungur
Fiskkaupendur, mötuneyti, hótel og veitinga-
staðir. Slátrum silungi tvisvar í viku og keyr-
um til kaupenda. Milliliðalaus viðskipti tryggja
bæði gott verð og ferskleika vörunnar.
Upplýsingar hjá J.P. eldisstöð, Húsatóftum,
sími 92-12996 eða 92-68791.
Áramótaspilakvöld
Landsmálafélagsins Varðar verður haldið
í Súlnasal, Hótel Sögu, sunnudaginn 16.
janúar 1994 og hefst kl. 20.30.
Glæsilegir spilavinningar.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Örn
Antonsson, flytur ávarp.
Nefndin.
Sjálfstæðismenn í
Garðabæ
í samræmi við ákvörðun fundar fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í
Garaðbæ frá 14. okt. 1993 hefur uppstillinganefnd ákveðið að leiö-
beinandi skoðanakönnun, fyrir uppstillingu á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í komandi bæjarstjórnarkosningum, fari fram sunnu-
daginn 16. jan. nk. meðal fiokksbundinna sjálfstæðismanna í
Garðabæ. Skoðanakönnunin fer fram á skrifstofu félaganna Lyng-
ási 12 kl. 17-21 þann dag.Tilnefna skal fæst fjóra fulltrúa og mest
sjö fulltrúa á framboðslistann. Seðlar með færri en fjórum fulltrúum
teljast ógildir.
Mjög áríðandi er að sjálfstæðismenn f Garðabæ nýti þetta tæki-
færi til þess að hafa áhrif á uppstillingu á framboðslista flokksins
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
Uppstillingarnefnd fulltrúaráðs Sjálfstaeðis-
félaganna i Garðabæ.
Kjördæmisþing reyk-
vískra sjálfstæðismanna
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík gengst fyrir kjördæmis-
þingi reykvískra sjáifstæðismanna laugardaginn 22. janúar nk.
Allir reykvískir sjálfstæðismenn velkomnir.
Dagskrá:
Hótel Saga, Átthagasalur
Kl. 10.00 Þingið sett: Baldur Guðlaugsson, formaður Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Kl. 10.15 Kjördæmaskipanin.
Á Reykjavík að vera fleiri en eitt kjördæmi?
Málshefjandi: Böm Bjarnason, alþingismaður.
Umræður.
Kl. 11.30 Brýnustu viðfangsefnin á sviði borgarmála og landsmála.
Fulltrúar nokkurra sjálfstæðisfélaga í Reykjavík lýsa skoð-
unum sínum.
1. Þorsteinn Davíðsson, formaður Heimdallar.
2. Anna Kristjánsdóttir, formaður Hvatar.
3. Andrés Andrésson, Félagi sjálfstæðismanna í Grafar-
vogshverfi.
4. Brynhildur Andersen, formaður Félags sjálfstæðis-
manna í Vestur- og Miðbæjarhverfi.
5. Kristján Guðmundsson, formaður Óðins.
6. Ólafur Klemensson, formaður Varðar.
Kl. 12.15 Hádegishlé.
Kl. 13.00 Léttur hádegisverður.
Kl. 13-15 Borgarmál.
a) Frambjóðendur í prófkjöri til borgarstjórnar flytja stutt
ávörp.
b) Fyrirspurnir til frambjóðenda og almennar borgarmála-
umræður.
Kl. 15.00 Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Þingforseti: Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar.
Valhöll
Kl. 19.00 Þorrablót sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Þýskunámskeið Germaniu
Námskeiðin fyrir byrjendur og lengra komna
á öllum stigum hefjast 17. janúar.
Innritað verður á kynningarfundi í Lögbergi,
Háskóla íslands, stofu 103, fimmtudaginn
13. janúar kl. 20.30.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma 10705
kl. 11.30-13.00 eða kl. 17.00-19.00.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaniu.
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík
30 rúmlesta réttindanám
Innritun lýkur í þessari viku. Vornámskeiðið
hefst mánudaginn 17. janúar nk. kl. 18.00.
Námskeiðið er um 130 kennslustundir.
Þátttökugjald er kr. 22.000.
Við innritun greiðast kr. 12.000.
Námskeiðinu lýkur í byrjun mars.
Öllum er heimil þátttaka.
Upplýsingar í síma 13194.
Skólameistari.