Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 1
80 SIÐURB/C STOFNAÐ 1913 66. tbl. 82. árg. SUNNUDAGUR 20. MARZ1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Morgunblaðið/Ragnar Axelsson FÆREYSKUR FJARBONDI Páll Sigurd Christiansen í Gjógv í Færeyjum sinnir sauðfé sínu, en þar í þorpinu er lítið um atvinnu eins og annars staðar í Færeyjum. Unga fólkið hefur flutt burt frá Gjógv og líklega verður barnabarn Páls Sigurds eina barnið í skóla þorpsins næsta vetur, en síðastliðinn vetur var aðeins eitt barn í skólanum þar. Sjá „Þjóð á barmi gjaldþrots" á bls. 10 og 11. Bandarísku forsetahjónin eiga undir högg að sækja vegna Whitewater Ofmátu fjárfestingartap og greiddu of lítið í skatt Washington. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti á nú undir högg að sækja í baráttunni við repúblikana á Bandaríkjaþingi eftir að skýrt var frá því að Roger Altman að- stoðarfjármálaráðherra hefði ekki skýrt þingnefnd frá fundi sem hann átti með embættismönnum forsetans uin gjald- þrot sparisjóðs í Arkansas sem tengist Whitewater-málinu svokallaða. The New York Times hafði í gær eftir sam- starfsmönnum Clintons að forsetahjónin hefðu tapað minna fé á fjárfestingu sinni í Whitewater-fyrirtækinu en þau gáfu upp og kynnu því að hafa greitt minni skatta en þeim bar. Roger Altman minntist ekki á fundinn þegar hann kom fyrir bankanefnd öldunga- deildar þingsins og segir að umræðuefnið hafi aðeins verið hvort hann ætti að víkja sem yfirmaður stofnunar, sem rannsakar gjaldþrot sparisjóðsins, vegna hagsmuna- árekstra. Hann ákvað síðan að gera það 25. febrúar. Þingmenn repúblikana brugðust ókvæða við þessum tíðindum. Alfonso D’Amato, atkvæðamesti fulltrúi repúblikana í banka- nefndinni, kvaðst „afar mæddur“ yfir því að Altman skuli hafa „leynt“ fundinum þegar hann svaraði spurningum nefndar- innar 24. febrúar. „Ég er hneykslaður á því að framburður Altmans skuli hafa ver- ið svo ófullkominn að hann hafi þurft að breyta honum þrisvar. Allt er þegar þrennt er - og Altman ætti að segja af sér.“ Heimildarmenn The New York Times sögðust ekki vita hversu mikið forsetahjón- in hefðu ofmetið tap sitt á fjárfestingunni í Whitewater-fyrirtækinu. Þau fengu skattafrádrátt vegna tapsins og blaðið seg- ir að skuld hjónanna við skattstofuna auk vaxta kunni að nema tæpum 46.000 dölum, eða um 3,3 milljónum króna. The New York Times hafði áður skýrt frá því að Hillary Clinton hefði hagnast vel á fjárfestingum í hrávörumarkaðinum með aðstoð starfsbróður síns og Bill Clint- on varði konu sína á föstudag, sagði fjár- festingarnar „fullkomlega löglegar". Kulvísir Kanar hafðir að spotti VETURINN hefur verið langur og erf- iður fyrir Bandaríkjamenn, sem eru ekki allir vanir kuldum og fannfergi. Kanadamenn eru öllu vanari vetrar- hörkunum og kanadíska dagblaðið Tor- onto Star hefur að undanförnu birt daglega dálka um furðuleg uppátæki nágrannanna í suðri vegna kuldanna. Blaðið segir meðal annars frá því að Bandaríkjamaður nokkur hafi ekki komið bílnum sínum í gang vegna ísing- ar í bensínleiðslum vélarinnar. „Heitt bensín hlýtur að fá leiðslurnar til að þiðna,“ hugsaði maðurinn með sér og ákvað að hita nokkra lítra af bensíni á eldavélinni í eldhúsinu. Húsið brann til kaldra kola - en blaðið upplýsir ekki hvort bíllinn hafi komist í gang í öllum hitanum. Sjónvarpið dragi úr mannfjölgnn ÍBÚAR norðurhluta Fidel Ramos Filippseyja eru svo duglegir við að fjölga mannkyninu að Fidel Ramos forseti hefur ákveðið að sjá þeim fyr- ir kapalsjónvarpi þann- ig að þeir geti haft eitt- hvað annað fyrir stafni. Ramos. hélt upp á 66 ára afmæli sitt í Bontoc-héraði og kvaðst hafa áhyggjur af mikilli fjölgun íbúanna. Hann hefði því ákveðið að greiða þeim jafnvirði 7,7 milljóna króna svo þeir gætu tengst kapalsjónvarpi. „Þannig ættuð þið að geta haft eitthvað annað að gera á kvöldin, þegar dimma tekur,“ sagði forsetinn. Ibúar Filippseyja eru um 65 milljónir og þeim fjölgar um rúm 3% á ári. Drnvötn bönnuð í dýragarðinum STARFSMÖNNUM dýragarðs í Englandi hefur verið bannað að nota sterk ilmvötn eða rakspíra, að sögn breska dagblaðsins The Independent. Blaðið hefur eftir eig- andanum að ljón, hlé- barðar og apar verði „hræðilega losta- fullir" af slíkum ilmi. „Eg tel að það sé vegna gulleits ilmefnis sem kirtlar de- skattar gefa frá sér og er notað í ilm- vötn,“ sagði hann. „Það er líkt þeim þef sem dýr gefa frá sér þegar þau Iaðast hvert að öðru.“ Atvinnuleysið ógnar Evrópsku velferðinni Fjölskyldumáliii eruhörðumálín $M!GT VERDIAG ER KJÖIFESTM UNDIR JÖKLUM _ 20

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.