Morgunblaðið - 20.03.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994
7
Kirkja 119. aldar
stíl byggð í Skógum
Holti undir Eyjafjölluni.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
byggja upp nýja kirkju í 19.
aldar stíl við Byggðasafnið í
Skógum, sem myndi verða í
þágu safnsins og framhalds-
skólans í Skógum, svo og greftr-
unarkirkja í þjónustu við kirkju-
garð staðarins.
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, hefur staðfest skipu-
lagsskrá um byggingu og rekstur
Skógakirkju, en formaður bygg-
inganefndar kirkjunnar er Friðjón
Guðröðarson sýslumaður á Hvols-
velli. Hjörleifur Stefánsson arki-
tekt hefur gert frumteikningar af
kirkjunni, sem á að vera timbur-
kirkja á steyptum grunni, en ofan
jarðar með grunnhleðslu úr hraun-
grýti.
Teiknuð utan um safnmuni
Þórður Tómasson safnvörður í
Skógum hefur sagt fyrir um gerð
kirkjunnar, sem á að byggjast utan
um safnmuni sem Byggðasafnið
á, ásamt byggingarefni úr eldri
kirkjum, svo sem frá Kálfholts-
kirkju frá 1879, Eyvindarhóla-
kirkju frá 1895, Kálfafellskirkju í
Fljótshverfí sem rifin var 1895,
Stóra-Dalskirkju frá 1895, Háfs-
kirkju í Holtum, Grafarkirkju í
Skaftártungu og fleiri eldri kirkj-
um. Gluggar kirkjunnar hurðir og
ýmislegt fleira er úr þessum kirkj-
um.
Miðað er við að stærð kirkjunn-
ar verði sem næst sú sama og var
hjá Skógakirkju sem byggð var
1845 og stóð til 1890, en í Skógum
stóð kirkja frá upphafi kristni til
1890. Þar er nú kirkjugarður, sem
síðast var greftrað í 1967. Áætlað-
ur byggingarkostnaður er um 8
milljónir, sem stefnt er að fjársöfn-
un fyrir.
Byggð „gömul“
kirkja
SKÓGAKIRKJA hin nýja verður
byggð upp eins og kirkjur frá
nítjándu öld. Teikningin er af
vesturgafli hennar.
„Guð hefur látið ferð mína
heppnast“
Þegar haft var samband við
Þórð Tómasson í Skógum, aðal
hvatamann byggingarinnar, sagði
hann: „Fátt myndi auka meira veg
Skóga sem safnstaðar og skólaset-
urs en það að þessi kirkjubygging
kæmist í framkvæmd. Fyrir safn-
gesti, sem voru rúm 20 þúsund
árið 1993, myndi mikils virði að
komast í snertingu við trúarlíf
þjóðarinnar á liðnum tímum í
kirkju byggðri á aldagamalli hefði
> byggingarstíl.
Eg horfi björtum augum til þess
að ég geti í starfslok í Skógum
sagt: Guð hefur látið ferð mína
heppnast."
- Fréttaritari.
Húsnæði okkar er m. a.
hannað með tilliti til
þarfa fatlaðra með
sérstökum inngangi og
snyrtingu, auk þess sem
borð og stólar eru laus og
því hægt að hreyfa til og
hagræða eftir þörfum.
Athugið að
bílastæðin eru
upphituð.
Gerið ykkur
dagamun og fáið
ykkur góðan mat
á góðu verði.
IDAG20.MARS \
ER ALÞ JOÐADAGUR
FATLAÐRA (
TIL HAMINGJU
INN
✓
I tilefni dagsins bjóðum við fatlaða og
fjölskyldur þeirra sérstaklega velkomin
Góða skemmtun!
VEITINGASTAÐUR FJÖLSKYLDUNNAR,
SUÐURLANDSBRAUT 56
LYST
Leyfishafi McDonald's
íslensktfyrirtœki
íslenskar landbúnaðarafurðir
Sumarfargjöld SAS til Noröurlanda
15. apríl - 30. september
i
26.900 27.900 30.900 31.900
Kaupmannahöfn Stokkhólmur Stavanger Helsinki
Osló Gautaborg Bergen
Malmö
HHHHjU Æ Norrköping HHHI ■ ■ : ' ..
fm | Jönköpfng
Kalmar
Váxjö ■K—M
Vásterás Örebro ^fli
Sumaráætlun SAS 27. mars - 30. september.
Frá íslandi þriðjudaga, föstudaga og sunnudaga kl. 16:20.
Frá Kaupmannahöfn þriðjudaga, föstudaga og sunnudaga kl. 14:30.
Fljúgðu með SAS og skelltu þér í sólina og sumarlö.
Frá Kaupmannahöfn er þægilegt tengiflug til borga um öll Norðurlöndln.
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eöa feröaskrifstofuna þína.
Sölutímabll fargjaldanna nær tll 30. apríl.
Bókunarfyrlrvari 21 dagur.
Lágmarksdvöl 7 dagar, hámarksdvöl 1 mánuður.
Börn og ungllngar frá 2ja tll 12 ára fá 33% afslátt.
íslenskur flugvallarskattur 1.340 kr., danskur 720 kr.,
norskur 600 kr. og sænskur 130 kr.
/////S4S
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11
YDDA F42.67 / SlA