Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 10
I 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 Morgunblaðið/Ragnar Axelsson FORTÍÐ OG FRAMTÍÐ. Póll Sigurd í Gjógv man tímana tvenna og þó daga er úfinn sjórinn færói þá björg í bú er dugði færeysku þjóðinni. Nú horfir öðri vísi vió og framtíó litla afadrengsins, Dánial Jákups, viróist dekkri en að öllum líkindum verður hann eina skólabarnió í þorpinu næsta vetur. MÓl barmi pdprats eftir Hjört Gíslason FRÆNDUR okkar Færeyingar eiga nú við ram- man reip að draga. Fjárhagur eyjanna er afar bágur svo ekki sé meira sagt. Allt að þriðjung- ur þjóðarinnar er atvinnulaus og tíundi hluti hennar hefur flutt úr landi á síðustu árum. Ríkissjóður er rekinn með halla og hefur orðið að leita til Danmerkur eftir lánum til að greiða af erlendum skuldum og til að koma í veg fyr- ir gjaldþrot stærstu færeysku bankanna. I vax- andi atvinnuleysi minnka tekjur ríkissjóðs enn og atvinnulífið hefur ekki bolmagn til að fjár- magna atvinnuleysisbætur. Fiskistofnar undir Færeyjum hafa verið ofveiddir árum saman af allt of stórum flota og nú er fyrirséð að skipum verður að fækka mikið og ekki fæst nægur fisk- ur til að halda öllum fiskvinnsluhúsunum gang- andi. Skýringin á bágri fjárhagsstöðu Færey- inga er fyrst og fremst eyðsla um efni fram og tregða til að bregðast við aðsteðjandi vanda í tæka tíð. Eins og er bendir fátt til annars en þjóðargjaldþrots í Færeyjum. [orgunblaðið var á ferðinni í Færeyjum, þegar togara- flota landsins hafði verið lagt vegna deilna um kvótakerfí við fiskveiði- stjórnun og öll frystihús eyjanna voru lokuð vegna hráefnisskorts. Okkur lék hugur á að kynnast því hvemig stæði á því að svona væri komið fyrir þjóðinni og hvernig fólki liði við þessar aðstæður. Ekki verður betur séð en skýra megi stöðuna með ábyrgðarleysi í ríkis- fjármálum undanfarin ár. Meðal annars veittu stjórnvöld ríkis- ábyrgðir vegna kaupa á mörgum skipum, sem engin þörf var fyrir miðað við ástand fiskistofna heima fyrir og möguleika_ Færeyinga á fjarlægum miðum. Útgerðir flestra þessara skipa urðu gjaldþrota og milljarðar króna féllu á ríkissjóð. Ekkert hlustaó ó f iskifreeóinga Samgöngur eru með miklum ágætum í Færeyjum. Allir vegir eru malbikaðir og flestir tvíbreiðir. Tíðar feijusamgöngur eru milli eyj- anna og hafnir góðar. Jarðgöng eru fjölmörg og er ein eyjan, Kalsoy, gjarnan kölluð blokkflautan vegna þess þve mörg göt hafa verið boruð þar. í flestum tilfellum er um nauð- synlegar samgöngubætur að ræða, en öðrum tæpast. Ný göng sem stytta leiðina til Þórshafnar um tvo kílómetra og taka af lágan fjallveg, sem afar sjaldan teppist á veturna, virðist hæpin fjárfesting hjá þjóð á barmi gjaldþrots. Fiskifræðingar höfðu lengi lagt til að stórlega yrði dregið úr fisk- veiðum og Alþjóða hafrannsókna- ráðið lagði til algjört bann við þorskveiðum. Þrátt fyrir það má segja, að nánast fijálsar veiðar hafl verið leyfðar og þó miklum fjárhæðum hafi verið varið til úreld- ingar fiskiskipa hefur afkastageta flotans heima fyrir ekki minnkað þó skipum hafi fækkað mikið. Aldr- ei var farið að tillögum fiskifræð- inga og segir Hjalti í Jákupsstovu, forstjóri Fiskirannsóknastofunnar í Þórshöfn, að þeir hafí hreinlega hætt að gefa út tillögur um há- marksafla. Það hafí engum tilgangi þjónað. Fyrir nokkrum árum fylltust all- ar lánastofnanir í Færeyjum af lánsfé, sem varð að endurlána til að hafa af því einhverjar tekjur. Nánast allir gátu fengið lán og við það, meðal annars, hækkaði verð á íbúðarhúsnæði mikið. Nú, þegar atvinnuleysi er gífurlegt, laun hafa lækkað og skattar hækkað, getur fólk ekki lengur staðið í skilum. Vandséð er hvaða leið ríkissjóður getur farið til að rétta sig af. Alls eru erlendar skuldir um 78 milljarð- ar króna, en á næstu misserum þarf ríkissjóður að greiða miklar ijárhæðir, sem hann á ekki til. Þegar hafa langleiðina í 10 millj- arðar fengizt að láni frá Dönum til að bjarga málum en þörf mun á öðru eins til geta staðið í skilum. Með vaxandi atvinnuleysi minnka tekjur ríkissjóðs, en útgjöld hans hækka. Reynt hefur verið að sporna við með aukinni skattheimtu. Virðisauki var lagður á á síðasta ári og beinir skattar hækkaðir. Fyrir vikið hefur kaupgeta fólks hrunið og það getur ekki staðið í skilum. 011 umsvif í þjóðfélaginu minnka og skattatekjur hins opin- bera um leið. Innflutningur hefur dregizt mikið saman, verzlanir og fyrirtæki verða gjaldþrota. Einstök byggðarlög standa varla undir lög- bundinni þjónustu við íbúa sína og svo má lengi telja. Ljóst er að tekjur hins opinbera af sjávarútvegi aukast ekki svo nokkru nemi næstu árin, en sjávar- útvegur skilar eyjunum nær öllum tekjum þeirra. Sala frímerkja hefur skilað nokkru og ferðamennska sömuleiðis. Hugsanlega má fá meiri tekjur af ferðamönnum, en varla til að endurreisa fjárhaginn. Vonir eru bundnar við að olía finnist á færeyska landgrunninu, en mörg ár eru þangað til slíkur fundur getur farið að skila raunverulegum tekjum. Færeyingar hafa um ára- bil fengið árlegan styrk frá Dönum,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.