Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994
11
milljarða króna, en hann hefur
hvergi dugað og þyrfti að aukast
mikið, um tíma að minnsta kosti,
til að rétta íjárhag eyjanna af. íbú-
ar í Færeyjum eru nú um 40.000.
Sumir hagfræðingar telja að ey-
jarnar beri einfaldlega ekki svo
mikinn fólksfjölda eigi þær að vera
sjálfum sér nægar. Líklega þoli þær
ekki meira en 20.000 íbúa.
Eitt barn i skólanum
Gjógv er afskekkt, fámennt
þorp, sem taka mætti sem dæmi
um jaðarbyggð í Færeyjum, en þær
eru magrar og smáar. Þar er rekin
seiðaeldisstöð, sem veitir nokkrum
mönnum vinnu. Aðra vinnu er þar
varla að fá, en íbúarnir, sem lang-
flestir eru komnir á eftirlaun, fást
við sauðfé. Þar búa meðal annarra
bræðurnir Páll Sigurd og Hans
Christiansen, sem báðir voru nokk-
ur sumur í Syðra-Langholti í
Hrunamannahreppi, er þeir voru
ungir. Hans er kennarinn í Gjógv
og í fyrra var einn nemandi í
skólanum, 16 ára stúlka, sem flutt
er af staðnum. Vonir standa til að
næsta vetur verði Dánial Jákup,
sonarsonur Páls Sigurðar, í skólan-
um og þá aftur eina barnið. Þeim
bræðrum lízt ekkert á blikuna og
segja stjórnmálamennina hafa
staðið sig með eindæmum illa og
hagað sér eins og kjánar í íjármál-
um. Nú sé staðan orðin svo slæm
að hún geti varla versnað, og þó!
En hvernig gengur fólki að lifa
við þessar aðstæður? Færeysku
blöðin segja til dæmis, að búða-
hnupl fari nú ört vaxandi. Þá eru
það einkum vörur, sem ekki teljast
til nauðsynja, sem stolið er, vörur
sem fólk getur ekki lengur veitt
sér. Margir flýja land, ýmist til að
fá vinnu eða komast á betri at-
vinnuleysisbætur í Danmörku. Við
ræddum þessa hlið mála við Krist-
ian Magnussen, félagsráðgjafa í
Þórshöfn.
Fólk á hvorki til
hnifs né skeióar
Kristian Magnussen hefur verið
félagsráðgjafi í Þórhöfn í mörg ár.
Hann hefur því sinnt starfi sínu
bæði á góðum tímum og erfiðum
eins og nú og á því er mikill mun-
ur. „Þegar staðan var góð var ekk-
ert atvinnuleysi og viðfangsefni
mitt þá aðallega fólk, sem var að
ná sér eftir veikindi eða meiðsli.
Nú er staðan slæm. Samfélagið er
í uppnámi og enginn þorir að skipu-
leggja nokkurn hlut fram í tímann.
Enginn veit hvað morgundagurinn
ber í skauti sínu. Opinberar tölur
segja að fjórðungur vinnufærs
fólks sé án atvinnu, en atvinnu-
leysi er mun meira og margt af
þessu fólki á hvorki til hnífs né
skeiðar.
Það er mjög slæmt að svo stór
hluti þjóðarinnar skuli hafa verið
settur eins og utan garðs. Þetta
fólk hefur nánast ekkert frelsi. Það
hefur ekki fjárhagslegt frelsi og
fyrir vikið ekki jafnrétti til mennt-
unar og stendur félagslega fyrir
utan allt. Að mínu mati er þar
verið að bijóta lýðræði á fólkinu.
Þetta er fólk, sem hefur unnið alla
sína tíð og skilað sínu til samfé-
lagsins og nú bregst samfélagið
því og gerir það gjaldþrota án þess
að fólkið sjálft eigi á því nokkra
sök hvernig komið er. Fólkið tók
lán á sínum tíma, sem það gat
greitt af miðað við þáverandi að-
stæður að mati bæði þess og bank-
anna. Síðan hafa allar aðstæður
breytzt, laun hafa lækkað og skatt-
ar hækkað og fólkið stendur ráð-
þrota eftir. Þetta ástand hefur
varað í nokkurn tíma og farið er
að bera á því að fólkið sé að missa
móðinn. Það hefur ekki fé fyrir
nauðsynjum.
Vantar opinbera
félagsmálastefnu
Danska ríkið greiðir tvo þriðju
hluta af atvinnuleysisbótum á móti
einum þriðja frá atvinnulífinu. Hér
kreijast Danirþess, að allt atvinnu-
bótafé komi frá atvinnulífinu til
að létta ijárútlátum af ríkinu. At-
vinnuleysi í Danmörku er um 11%
en að minnsta kosti 25% hérna og
hvernig í ósköpunum er hægt að
ætlast til að hálflamað atvinnulíf
geti haldið íjórðungi þjóðarinnar
uppi, meðan atvinnulífi í Dan-
mörku er aðeins ætlað að greiða
þriðjung til framfærslu eins tíunda
þjóðarinnar. Okkur eru settir því-
líkir afarkostir að það hlýtur að
vera einsdæmi.
Við félagsráðgjafarnir getum
lítið gert fyrir fólk annað en benda
því á réttindi þess og leiðbeint á
ýmsan hátt. Við höfum enga sjóði
til að veita fólki ijárhagsaðstoð.
Hér í Færeyjum vantar alveg opin-
bera félagsmálastefnu. Hér er at-
vinnulausum ekki boðið upp á nein
námskeið eða menntun til að
byggja það upp til að takast á við
vandann nú og ný verkefni, þegar
að þeim kemur. Heldur er fólkið
brotið niður með bágum kjörum
og fyrir vikið fáum við lakara fólk
út. á vinnumarkaðinn, þegar hann
opnast á ný. Það fer illa með alheil-
brigt fólk að vera án atvinnu og
skammtað fé svo naumlega úr
hnefa hins opinbera að það geti
hvorki lifað né dáið sómasamlega.
Hér vantar svo alla umræðu um
hvaða afleiðingar þetta kann að
hafa fyrir þjóðfélagið til lengri tíma
lítið. Fólk flytur því úr landi í stór-
um stíl, bæði til að leita vinnu eða
til að fara á betri atvinnuleysisbæt-
ur í Danmörku. Þá er kertið orðið
svo vitlaust, að það getur oft verið
betra fyrir fólk að fara héðan til
Danmerkur í skóla. Það hefur þá
úr meiru að spila en almennur fisk-
verkamaður hér.“
11 milljónir króna i vexti
Húsnæðismálin eru kapítuli út
af fyrir sig. Nú þegar eru 120 auð
hús á sölulista hjá bönkunum og
fleiri eru á sömu leið. Auk þess býr
margt fólk enn í húsum sínum, þó
það hafi ekki greitt af þeim í nokk-
ur misseri, því það tekur nokkurn
tíma að gera slík mál upp. Bank-
arnir tapa rúmlega 100 milljónum
króna árlega í töpuðum vöxtum af
þeim húsum, sem ekki seljast. Þeim
þarf líka að halda við og eigi þau
að seljast,þarf að lækka verðið. Því
er fyrirsjáanlegt að tapið verður
enn meira. En hvernig snýr þetta
að húseigendum?
Súsanna Dam er formaður í
Húseigendafélagi Færeyja. Hún
sýnir okkur dæmi um þá fjárhags-
• stöðu, sem margt fólk er í. Þar er
um að ræða hjón með fjögur börn,
sem hafa fengið skuldbreytingu
lána sinna við Sparikassan, sem
bindur þau fram á eftirlaunaaldur-
inn. Samkvæmt samningnum er
fjölskyldunni ætlað að greiða alls
1.118.550 krónur árlega í fastar
afborganir og vexti af lánum og
önnur gjöld, en tekjur fjölskyldunn-
ar eru 1.250.000 á ári. Því hefur
hún eftir til ráðstöfunar 131.450
krónur til kaupa á mat, fötum, olíu
og rafmagni á ári, rúmar 10.000
krónur á mánuði. Lánin á íbúðinni,
alls 8,6 milljónir króna, eru þá
lengd til 30 ára og þegar upp verð-
ur staðið hefur fjölskyldan greitt
um 11 milljónir króna í vexti og
alls um 20 milljónir fyrir íbúðina.
„Við reynum að hafa áhrif á
stjórnmálamennina til þess að okk-
ur verði gert kleift að halda húsun-
um okkar,“ segir Súsanna Dam.
„Við ráðum ekki við stöðuna eins
og hún er orðin. Launin hafa lækk-
að, skattarnir hækkað og margir
eru atvinnulausir. Lenging lána
leysir ekki vandann og eina raun-
hæfa ráðið er að opinberu fé verði
veitt til þess að greiða lánin niður.
Akveðið hafði verið að veita 3 millj-
arða króna til þessarar niður-
greiðslu, en ekki ein króna af því
hefur skilað sér.
Fara meó húslykilinn
ibankann
Það leysir heldur ekki vandann
að taka húsin af fólki, því að þeim
er enginn kaupandi. Fólk er því
farið að gefast upp og dæmi er
um það að, það hafi farið með
húslykilinn í bankann og farið á
atvinnuleysisbætur í Danmörku.
Þar fást atvinnuléysisbætir um
110.000 krónur á mánuði í 7 ár.
Hér fær fólk 65% af verkamanna-
launum í upphafi og upphæðin
lækkar í hveijum mánuði. Eftir
eitt ár er aðeins helmingur upphaf-
legra bóta eftir og þá er fólk kom-
ið svo lágt að ekkert tekur við því
nema félagsmálastofnun.
Bankarnir bjóða einungis óað-
gengilega kosti og við höfum of
lengi búið við of slæma banka-
stjórnendur og slæma stjórnmála-
menn. Það er í raun og veru skrít-
ið að staðan skuli geta verið svo
slæm. Bæði Færeyjar og ísland
framleiða matvæli, en lifa ekki af
því, þótt fólk um allan heim sé að
deyja úr hungri. Við höfum lifað
alltof hátt hér í Færeyjum, gert
óraunhæfar kröfur um lúxus af
öllu tagi og ausið út opiriberu fé
án þess að sjást fyrir.
Við erum enn aðeins um 800 í
húseigendafélaginu, en það eru
miklu fleiri, sem eiga í vandræðum.
Stjórnmálamennirnir hugsa bara
um að skattleggja þjóðina til að
greiða erlendar óráðssíuskuldir, en
á meðan liggur við að þjóðin svelti.
Ég hef verið atvinnulaus síðan
Fossbankanum var lokað, en þar
vann ég lengi. Því miður er ekkert
útlit fyrir að úr rætist enda er lítil
eftirspurn eftir bankamönnum í
Færeyjum, en ákveðið hefur verið
að sameina stærri bankana tvo,
Föroyjabanka og Sjóvinnubankan,
og þá missa 100 Lankamenn til
viðbótar vinnu sína. Það er því
engan ljósan punkt að sjá fram-
undan. Þar er allt svart. Það vant-
ar fisk og svo framvegis. Nú von-
ast fólk eftir því að olía finnist við
eyjarnar, en þó svo fari er þess
langt að bíða. Þar til úr rætist
verðum við bara að reyna að hjálpa
hvoru öðru,“segir Súsanna Dam.
Láta hverjum degi
nægja sinar þjáningar
Það er töluvert af íslendingum
enn í Færeyjum, þó þeim hafi
fækkað mjög eftir að þar tók að
halla undan fæti. Einn þessara
Islendinga er Auður Brynjarsdótt-
ir, sem vinnur í kaffiteríunni í
SMS-verzlunarmiðstöðinni. Hún
hefur verið í Færeyjum í eitt og
hálft ár, en áður vann hún í fimm
sumur á færeysku feijunni Nor-
rönu. Hún er Seyðfirðingur, en
hvernig lá leiðin til Færeyja og
hvernig líkar henni þar?
„Leiðin hingað lá í gegn um
Norrönu, en enga vinnu var þá að
fá á Seyðisfirði. Mér bauðst þessi
vinna hér í SMS og sló til og sé
ékki eftir því. Þó að allt sér hér á
hausnum kann ég vel við mig og
óttast ekki að missa vinnuna. Fær-
eyingar eru gott fólk, en staðan
er orðin anzi erfið. Atvinnuleysi
er mikið og þeir, sem hafa vinnu,
borga svo mikið í skatta, að þeir
geta ekki bæði lifað af og staðið
í skilum. Því var allt anzi dauft í
verzlunum hér fyrir jólin, en svo
hefur lifnað eitthvað yfir hlutunum
á ný og líklega er það vegna þess
að fólk hefur gefizt upp við að
borga af lánunum og reynir að
láta hveijum degi nægja sínar
þjáningar. Það notar það litla sem
það hefur í mat og aðrar nauðsynj-
ar og hirðir lítið um það hvenær
bankinn tekur húsið. Þegar þar að
kemur fer fólk úr landi og nú þeg-
ar hefur skólabörnum og fólki milli
25 og 40 ára fækkað töluvert, en
gamla fólkið verður eftir. Síðan ég
byijaði hafa umsvifin í kaffiter-
íunni minnkað mikið. Nú seljum
60 til 100 hádegisverði á dag, en
200 til 250 fyrir einu og hálfu
ári,“ segir Auður Brynjarsdóttir.
Staðan í Færeyjum er vissulega
slæm og fátt virðist frændum okk-
ar til bjargar annað en segja sig
ti! sveitar í Danmörku eða lýsa
yfir gjaldþroti og hætta að greiða
af erlendum lánum, hvaða afleið-
ingar sem það kann að hafa. Lang-
varandi eyðsla umfrarn efni og
þrái við að bregðast við staðreynd-
um og draga saman seglin leiðir á
endanum til gjaldþrots.
_ IViskalen)I.
2vikur
4 fullorðnir í íbúð
verð frá kr.
Afsláttur fyrir börn 2ja til 12 ára, kr. 10.000.
49.800
2 í íbúð
verð frá kr.,
(> vikuri4.ap.íi
63.900
Innifalið: Mug, gisting, íslensk fararstjóm,
flutningur til og frá flugvelli erlendis, allir
skattar og gjöld.
Við erum í sólskinskapi og bjóðum aðeins
vel slaðsettar og góðar gistingar.
í dag er 25 stiga hiti á Benidorm.
Orla sirli laus í |>ussar l'mlir.
Pantaðu í
síma 621490
VISA
FERÐASKRIF^TOFA
REYKJAVIKUR
AÐALSTRÆTI 16 • SÍMI 6 2 1 4 9 0
Bakið er ekki að drepa þig - það er líklega dýnan!
DUX rúmdýnan - einstök og frábær hönnun.
DUX dýnan er mjúk og lagar sig fullkomlega
að líkama þínum.
Þú liggur ekki á henni - hún umvefúr þig.
Það er stundum dýru verði keypt að kaupa ódýrt.
Á harðri dýnu Hggur
hryggsúlan í sveig
Á DUX-dýnu liggur
hryggsúlan bein
GEGNUM GLERIÐ
Faxafeni 7 (Epalhúsinu). Sími: 689950