Morgunblaðið - 20.03.1994, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994
Fjölskyldnmálln
ern hörón málin
Draumur rætist
ÁRNI Sigfússon í ræðustóli eftir að hafa tekið við embætti borgarstjóra síðastliðinn fimmtu-
dag. Það kom honum á óvart hve skjótt kallið kom en innst inni bjóst hann við því að einhvern
Viðtal: Páll Þórhallsson. Ljósmyndir: Ragnar Axelsson.
SEINT um kvöld gefst nýja borgar-
stjóranum loks tími til að ræða við
blaðamann. Þetta hefur verið eril-
söm vika með afbrigðum og þennan
sama dag tók hann við nýja starf-
inu. Þrjú barnanna eru komin í rúm-
ið og það fjórða er að leika í Borgar-
leikhúsinu þegar Arni og Bryndís
bjóða til stofu. Bubbi Morthens er á
fóninum og blómvendir með heilla-
óskum fylla íbúðina í raðhúsinu við
Álftamýri. Þau eru samhent hjónin
og Bryndís, verkstjórinn á heimil-
inu, fylgist með því að kvöldsvæfur
bóndinn segi nú enga vitleysu.
Ami er fyrst spurður hverra manna hans
sé. Hann er fæddur í Vestmannaeyj-
um 30. júlí 1956, sonur Sigfúsar J.
Johnsens, kennara í Vestmannaeyjum og nú-
verandi félagsmálastjóra í Garðabæ, og Kristín-
ar S. Þorsteinsdóttur, húsmóður og banka-
starfsmanns. Sigfús er Vestmannaeyingur aft-
ur í ættir, sonur Áma Hálfdáns Johnsens,
kaupmanns og útgerðarmanns og Margrétar
Jónsdóttur. Þess má geta að Ámi Sigfússon
og Ámi Johnsen alþingismaður eru systkina-
synir. Móðurforeldrar Árna Sigfússonar eru
ættaðir austan úr Mjóafirði, Þorsteinn Víg-
lundsson skólastjóri í Vestmannaeyjum og Ingi-
gerður Jóhannsdóttir.
tima kæmi að því.
Árni er alinn upp í sex systkina hópi. Elstur
er Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor við há-
skólann, þá Árni, síðan Gylfi, sem er fram-
kvæmdastjóri fjármáladeildar Tollvörugeymsl-
unnar, Margrét innanhússarkitekt, sem starfar
sem fjármálastjóri hjá Garðyrkjufélaginu, Þór,
ráðgjafi fjármálaráðherra, og yngst er Sif, sem
nýlokið hefur enskunámi við háskólann.
Kynntust í Hamrahlíðarkórnum
Fjölskylda Áma flutti til Reykjavíkur þegar
hann var tólf ára, árið 1969. Bjuggu þau í
Háaleitishverfí en Árni gekk í Vogaskóla. „I
Menntaskólanum við Hamrahlíð kynntist ég
Bryndísi, í Hamrahlíðarkórnum þar sem við
sungum bæði,“ segir Árni. Bryndís Guðmunds-
dóttir er Reykvíkingur, faðir hennar er fæddur
á Laugaveginum en móðir hennar er frá Hesti
í Önundarfirði. Móðir Bryndísar er heyrnarlaus
og kom hingað suður barnung til að læra í
Heymleysingjaskólanum.
„Áfangakerfið í MH hentaði mér ekki mjög
vel og ég var fremur rótlaus. Því var Hamra-
hlíðarkórinn kjölfestan á menntaskólaárunum
og við störfuðum lengi með honum eftir stúd-
entspróf," segir Árni. „Við kynntumst geysi-
lega góðu fólki í kórnum og nánasti vinahópur-
inn er í raun þaðan." Árni segist hafa skorið
sig nokkuð úr í skólanum. „Ég gekk yfirleitt
um í jakkafötum með bindi sem var nú heldur
á skjön við það sem viðgekkst. Ég hef gaman
af því að þegar ég hitti núna þá sem voru
hvað mestir hippar í þá daga eru þeir yfirleitt
fínni en ég í tauinu, í einhveijum Boss-klæðn-
aði. Þá hugsa ég gjarnan hvað þeir hafi breyst
mikið.“
Að loknu stúdentsprófi fóru Árni og Bryndís
í Kennaraháskólann og luku þaðan prófi. Árni
segist reyndar hafa spáð í lögfræði og sagn-
fræði en kennaranámið orðið fyrir valinu enda
sé kennslan honum í blóð borin. Að loknu kenn-
aranámi sáu þau um heimavist Heyrnleysingja-
skólans. Síðan lá leiðin í Knoxville-háskólann
í Tennessee þar sem hann fór í framhaldsnám
í opinberri stjórnsýslu en hún í talmeinafræði.
„Með náminu hef ég ávallt stundað vinnu,“
segir Ámi. „Uppeldið í Eyjum var þannig að
menn unnu gjaman með skóla og öll sumur.
Þannig að sem unglingur vann ég í Prímapyls-
um sem þá voru í portinu við Nýja bíó. Síðan
var ég við verslunarstörf, byggingarvinnu og
fatapressun. Ég kenndi í Vogaskóla og starf-
aði við blaðamennsku á Vísi. Á lokaári mínu
í Kennaraháskólanum var ég ráðinn fram-
kvæmdastjóri fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík."
Eftir að námi lauk í Bandaríkjunum starfaði
Árni um tíma sem deildarstjóri hjá Fjárlaga-