Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994
KYIKMYNDIR/SAMBÍÓIN frumsýna á næstunni bandarísku spennumyndina Pelíkana-
skjalið, The Pelican Brief, sem gerð er eftir samnefndri metsölubók eftir John Grisham,
en skammt er síðan Sambíóin sýndu Fyrirtækið, sem einnig var gerð eftir sögu eftir
Grisham. Aðalhlutverkin í Pelíkanaskjalinu leika Julia Roberts og Denzel Washington.
Leikstjóriim
ALAN J. Pakula leiksljóri Pelíkanaskjalsins nýtur þess
að búa til spennumyndir, sem laða fram angistaróp
áhorfenda.
og má þar nefna Klute, The
Parallax View, All The
President’s Men og Pre-
sumed Innocent. „Eg hef
mesta ánægju af því að gera
spennumyndir, og það er
ekkert sem jafnast á við að
heyra angistaróp áhorfenda.
Það er ákveðin geðhreinsun
fólgin í því að fylgjast með
og skynja hættu og sleppa
síðan frá henni. Að sviðsetja
ótta er því mjög ánægjulegt
fyrir mig,“ segir Pakula.
Pelíkanaskjalið er þriðja
skáldsaga rithöfundarins
John Grisham, en hann snéri
sér að skáldsagnagerð eftir
að hafa stundað lögfræði-
störf um skeið. Fyrsta bókin
hans, A Time To Kill, naut
ekki mikilla vinsælda þegar
hún var gefin út, en önnur
bókin, The Firm, fór hins
vegar beint inn á metsölulista
um allan heim. Pelíkana-
slqalið gerði það..sömuleiðis
og fyrsta bókin líka í kjölfar-
ið, og þessa daga trónir nýj-
asta bókin, The Client, á
metsölulistum. Alan J. Pa-
kula beið ekki boðanna þegar
vinsældir The Firm urðu ljós-
ar, og tryggði hann sér kvik-
myndaréttinn að Pelíkana-
skjalinu áður en Grisham var
svo mikið sem byrjaður að
setja fyrstu stafina á blað.
Pakula hreifst af hraðri
framvindu sögunnar þegar
hún leit dagsins ljós og var
þá staðráðinn í að gera eftir
henni kvikmynd. „Þetta er
spennusaga með mikið
skemmtanagildi, og Grisham
hefur þann hæfileika að fá
mann stöðugt til að vilja vita
hvað gerist næst. Þessa sömu
tilfinningu hafði ég reyndar
við gerð kvikmyndarinnar,"
segir Pakula, en í myndinni
er raunverulega verið að
segja þijár sögur í einu. í
fyrsta lagi er um að ræða
morðin á hæstaréttardómur-
unum, síðan er það saga
Derby Shaw, sem er þung-
amiðjan, og í þriðja lagi er
það sagan um ápillinguna á
æðstu stöðum í stjómkerf-
inu.
Rannsóknir á mannlegu
eðli
Óskarsverðlaunahafmn
Denzel Washington, sem
leikur rannsóknarblaða-
manninn Gray Grantham,
eyddi talsverðum tíma með
blaðamönnum og ritstjórum
á Washington Post þegar
hann var að undirbúa sig
fyrir hlutverkið. Hann segir,
að það hafi komið sér á óvart
að blaðamenn og leikarar
ættu fieira sameiginlegt en
að vilja búa til fyrirsagnir í
blöðum. „Bæði blaðamenn
og leikarar eru á vissan hátt
við sífelldar rannsóknir á
mannlegu eðli, og til þess að
ná tökum á hlutverki verð
ég ætíð að umgangast raun-
verulegt fólk til að átta mig
á tilfinningum þess og lífs-
máta. Á vissan hátt gerir
blaðamaðurinn það sama, og
báðir leitum við að ástæðun-
um sem liggja að baki hveiju
sinni og skilningi á þeim,“
segir Wahington.
Denzel Washington hefur
þegar sannað, að hann er
einn af hæfileikamestu leik-
urum samtímans, en strax
fyrir fyrsta kvikmyndahlut-
verk sitt, sem var í mynd
Normans Jewison, A Soldi-
er’s Story, hlaut hann mikið
lof fyrir leik sinn. Fyrir hlut-
verk sitt í Ciy Freedom hlaut
hann tilnefningu til Óskars-
verðlauna fyrir bestan leik í
aukahlutverki, en verðlaunin
hlaut hann síðar fyrir leik
sinn í Glory.
Ys og þys út af vitn-
eskju laganemans
PELIKANASKJALIÐ er
nýjasta mynd bandaríska
leikstjórans Alan J. Pa-
kula, sem sennilega er
hvað þekktastur fyrir
myndirnar Sophie’s Cho-
ice, All The President’s
Men og Presumed Innoc-
ent, en auk þess að Ieik-
stýra Pelíkanaskjalinu og
framleiða myndina skrif-
aði Pakula handritið eftir
metsölubók John Gris-
hams. í myndinni er sögð
ævintýraleg saga Derby
Shaw (Julia Roberts),
laganema frá New Orle-
ans, sem skyndilega flæk-
ist inn í flókinn svikavef
sem nær allt til æðstu
embætta bandaríska
stjómkerfisins, en ástæða
þess er að hún skrifar
stutta ritsmíð þar sem hún
flettir ofan af ólöglegu
athæfi valdamikils olíujöf-
urs. Þegar þeir sem standa
henni nærri era myrtir
hver af öðrum hefst æðis-
gengin barátta unga laga-
nemans fyrir lífi sínu, og
verður rannsóknarblaða-
maðurinn Gray Grantham
(Denzel Washington) eini
bandamaðurinn sem hún
getur treyst, en í samein-
ingu leggja þau allt kapp
á að fletta ofan af ráða-
bruggi olíujöfursins og
kumpána hans.
Tveir hæstaréttardómar-
ar, sem þykja fijálslynd-
ir og hallir undir skoð-
anir umhverfisvemdarsam-
taka, eru myrtir af leigu-
morðingja og vekur mál
þetta áhuga Derby Shaw, en
kennari hennar við lagadeild
háskólans í New Orleans og
elskhugi, Callahan (Sam
Shepard), hafði áður starfað
með öðrum dómaranna.
Derby kannar margvísleg
gögn til að reyna að átta sig
á því hvers vegna dómararn-
ir hafa verið myrtir, og þegar
hún telur sig vera komna
með líklega skýringu skrifar
hún stutta ritgerð um málið,
Pelíkanaskjalið, og afhendir
Callahan. Hann afhendir
skjalið háttsettum vini sínum
Lærifaðirinn
LAGAPRÓFESSORINN Callahan (Sam Shepard), sem jafnframt er elskhugi Derby
Shaw (Julia Roberts), tekur í fyrstu ekki mikið mark á samsæriskenningum henn-
ar um morð á tveimur hæstaréttardómurum.
innan alríkislögreglunnar, en
þaðan berst það um víðan
völl í stjómkerfinu og meðal
annars inn í Hvíta húsið.
Þegar Callahan er myrtur og
Derby sleppur naumlega
undan morðingjum hans
verður henni ljóst að hún
hefur hitt naglann á höfuðið
í tilgátu sinni. Hún reynir
hvað hún getur til að fara í
felur í New Orleans, en ill-
þýðið er þó alltaf á hælunum
á henni og fer hún því til
Washington þar sem hún
hefur samband við rannsókn-
arblaðamanninn Grantham,
en á honum hafði Callahan
haft mikið dálæti. Hún segir
honum frá innihaldi Pelík-
anaskjalsins og tilgátu sinni
um yfirhylmingu sem nær
allt til æðstu embætta innan
ríkisstjómarinnar, og sam-
eiginlega reyna þau að afla
staðfestinga á grunsemd-
unum áður en Grantham
birtir frásögnina í blaði sínu.
En morðingjamir eru ekki
lengi að komast að því hvar
laganeminn og samstarfs-
maður hennar eru niðurkom-
in og leggja þeir allt kapp á
Rannsóknarblaðamaðurinn
GARY Grantham (Denzel Washington) þarf á öllu sínu
að halda, þegar hann, ásamt Derby Shaw, reynir að
fletta ofan af samsæri á æðstu stöðum.
að ráða niðurlögum þeirra
áður en þau koma vitneskju
sinni á framfæri.
Ekkert jafnast á við
angistaróp áhorfenda
Alan J. Pakula, sem leik-
stýrir Pelíkanaskjalinu, á að
baki margar af bestu
spennumyndum seinni ára,
en hann hefur einatt leitast
við að skyggnast í sálfræðina
að baki þráhyggju manna og
skýra raunveruleikann að
baki pólitískri spillingu.
Margar mynda hans af þessu
tagi eru þegar orðnar klass-
ískar í kvikmyndasögunni,
Júlía snýr aftur
JULIA Roberts kemur aftur fram á sjónarsviðið í Pelík-
anaskjalinu, en leikkonan tók sér sjálfviljug tveggja ára
frí frá kvikmyndaleik og lét lítið fyrir sér fara. Hún var
þó eftirlætisefni í slúðurdálkum dagblaðanna á þessu
tímabili og var þá meðal annars rætt um að hún ætti
að etja við vanda vegna eiturlyfjaneyslu, en hún hefur
hins vegar vísað öllu slíku tali á bug. Þegar hún hugðist
snúa sér aftur að kvikmyndaleik síðla árs 1992 gerði
hún sar.ining við kvikmyndafyrirtækið Caravan Pictur-
es, og í fyrstu var gerð tilraun til að fá Daniel Day-Lew-
is til að taka að sér hlutverk á móti henni í myndinni
Shakespeare in Love sem til stóð að gera, en hann var
hins vegar ekki á lausu þá stundina og því varð hlutverk-
ið í Pelíkanaskjalinu fyrír valinu.
Foreldrar hinnar 26 ára
gömlu Juliu Roberts
ráku leikhúsverkstæði í
Smymu í Georgíu, og ólst
Julia ásamt systkinum sínum
því upp við leiklist allt frá
blautu bamsbeini. Árið 1985
hjálpaði bróðir hennar, Eric
Roberts, henni til að fá hlut-
verk í ódýrri kvikmynd, Blood
Red, en hún vakti hins vegar
ekki athygli fyrr en hún lék
í myndinni Steel Magnolias
og hlaut útnefiiingu til Ósk-
arsverðlauna fyrir túlkun
sína. Heimsfrægðin var svo
handan við homið því næsta
hlutverk hennar var í kvik-
myndinni Pretty Woman þar
sem hún Iék á móti Riehard
Gere, og gerði það hana að
einni eftirsóttustu leikkonu
níunda áratugarins í Holly-
wood. Hún hélt svo bæði vin-
Úr felum
JULIA Roberts hefur nú hafið kvikmyndaleik af fullum
krafti á ný, eftir að hafa dregið sig í hlé um tveggja
ára skeið.
sældum sínum og launum, sjö
milljónum dollara fyrir mynd,
í næstu tveimur myndum,
sem vom Flatliners og Sleep-
ing with the Enemy, en auk
þess var hún ein mest áber-
andi leikkonan í samkvæmis-
Iífí og einkalífi. Þegar slitnaði
upp úr trúlofun hennar og
Kiefers Sutherland aðeins
þremur dögum áður en brúð-
kaupið átti að fara fram varð
hún að lifandi þjóðsögu í
Hollywood. Um svipað leyti
fékk svo kvikmyndin Dying
Young, sem hún lék í, afar
misjafnar móttökur, og afréð
hún því að draga sig í hlé um
stund. Nú er hún hins vegar
komin á fullt skrið á nýjan
Ieik eftir að hafa gengið í
hjónaband, og um þessar
mundir er hún að leika í
myndinni I Love Trouble á
móti Nick Nolte.