Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 31 Minning Anna Busk Fædd 20. aprfl 1905 Dáin 5. mars 1994 Hún Anna mín er dáin. Þrátt fyrir háan aldur átti ég alls ekki von á því að hún færi svona fljótt. Aðeins nokkrir dagar liðu frá því að hún veiktist alvarlega þar til hún var látin. Ég kynntist Önnu fyrir þremur árum er ég réðst til hennar sem heimilishjálp og hélt áfram sam- bandi við hana eftir að ég fór í annað starf. Anna var mér alltaf mjög góð og afskaplega þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert, hversu smá- vægilegt sem það var. Hún var afar reglusöm og þrifín og vildi hafa alla hluti á hreinu. Anna hafði aldr- ei skuldað neinum neitt á sinni löngu ævi og var ekki í rónni ef hún hélt að hún skuldaði einhveij- um. Hún átti erfitt með að skilja nútíma hugsunarhátt, eins og t.d. að taka lán og kaupa á afborgun- um. Ekki var hún heldur ýkja hrif- in af nútíma bamauppeldi og fjöl- skyldulífí almennt. Við áttum margar góðar stundir við eldhúsborðið þar sem við röbb- uðum saman um heima og geima. Anna sagði mér margar sögur frá gömlum dögum, bæði frá æsku- stöðvum sínum og eftir að hún fór að heiman á unglingsaldri. Þá var hún í fyrstu hjá Ástu systur sinni og mági sínum, Lúðvíki Norðdahl, lækni á Selfossi. Þar hjálpaði hún til á heimilinu og aðstoðaði við upp- skurði og ýmiss konar læknisstörf og hafði mikla ánægju af. Anna hefði áreiðanlega orðið góður lækn- ir, enda eru margir læknar í ættinni. Anna vann mestallan sinn starfs- aldur við verslunarstörf, bæði í Reykjavík og í Vestmannaeyjum. Reglusemi hennar og nákvæmni Gyða Krisijáns- dóttír — Minning Fædd 29. september 1917 Dáin 14. febrúar 1994 Elsku amma mín er dáin. Það er eitthvað svo óraunverulegt. Ein- hvern veginn er maður aldrei viðbú- inn því að missa ástvini sína. En amma mín vr búin að vera svo veik og ég veit að núna líður henni vel. Það er samt sárt að hugsa til þess að sjá hana ekki framar og að litla dóttir mín skuli ekki fá að kynnast því hversu góð hún amma mín var. Ég minnist allra ferðanna okkar systkinanna norður á Siglufjörð á sumrin með mömmu og pabba til að heimsækja ömmu. Hvað hún var alltaf kát og glöð að sjá okkur og tók alltaf vel á móti okkur. Þegar amma var sjötug fór hún í sína fyrstu og einu utanlandsferð til Hollands og var þar með okkur í sumarhúsi. Það var henni ógleym- anlegt ævintýri. Líf hennar var ekki alltaf auðvelt, en hún var dug- leg og sterk og lét ekki mótlæti buga sig. Hún vr alltaf hress og kát á hveiju sem gekk. Amma eignaðist níu böm og eru sjö þeirra á lífi. Hún ól líka upp eina dótturdóttur sína. Elsku pabbi minn, Maja frænka, Gréta, Örn, Valur, Björg, Gummi, Stína og fjölskyldur. Ég bið góðan Guð að gefa ykkur styrk í sorg- inni. Mynd góðrar móður, ömmu og langömmu mun alltaf geymast í hjörtum okkar allra. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ragnhildur Svansdóttir. Til leigu Vandað einbýlishús á tveimur hæðum, samtals 184 fm, auk bílskúrs, á góðum stað í Breiðholti. Miklir grenndar- kostir. Langtímaleiga möguleg. Upplýsingar gefur: Fasteignaþjónustan Skúlagötu 30, sími 26600. Melaheiði 13, Kóp. - Opið hús Til sölu þetta glæsil. 270 fm einbh. auk 34 fm bílskúrs. Uppi er stofa með arni, eldhús, 3 herb. og bað. Niðri eru 3 rúmg. herb., sjónvherb., gufubað, þvottah. og góðar geymslur. Fallegur garður. Góð staðsetning við opið svæði. Stutt í skóla og barnaheimili. Stórkostlegt útsýni. Skipti á minni eign möguleg. Húsið er til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Fasteignamarkaðurínn hf., Óðinsgötu 4, simar 11540 og 21700. nutu sín áreiðanlega vel í því starfí. Mestan hluta ævinnar hafði Anna haft margt fólk í kringum sig, sem dvaldi hjá henni í lengri eða skemmri tíma. Því voru það mikil umskipti þegar hún var orðin ein og kunni hún því afar illa að hafa engan til að hugsa um. Eiginmaður hennar, Henning Busk, sem var danskrar aettar, lést fyrir tíu árum. Þá fannst Önnu lífíð vera búið. Hún náði sér aldrei að fullu eftir það áfall. Hún átti besta mann í heimi, eins og hún sagði oft. Þau eignuðust einn son, Eyjólf Þór Busk, tannlækni, sem kvæntur er þýskri konu, Ursulu, og hafa þau búið í Þýskalandi undanfarin sextán ár, ásamt sonum sínum, Henning, Jens og Alexander. Anna var mjög stolt af fyölskyldu sinni og ekki að ástæðulausu. Nýlega bættist svo í hópinn lítill „langömmustrákur", Benjamín, sonur Hennings og Söndru, konu hans. Hún kom í heimsókn fyrir nokkrum vikum með litla soninn og hafði Anna mjög gaman af að sjá hann, sem vonlegt var. Anna þráði að komast til Þýska- lands í heimsókn til fjölskyldu sinn- ar, en þijú ár voru síðan hún var þar síðast. Heilsan hafði ekki leyft löng ferðalög en hún var ákveðin í að fara þangað í vor, ef nokkur möguleiki væri. í þess stað fór hún í ferðina löngu, sem á fyrir okkur öllum að liggja. Anna mín. Ég þakka þér innilega fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ég á eftir að sakna þín mikið. Nú ertu komin til hans Hennings þíns, sem þú saknaðir svo mjög. Hann hefur áreiðanlega tekið vel á móti þér. Því miður gat ég ekki fylgt Önnu síðasta spölinn, þar sem ég lá á sjúkrahúsi, en hugur minn var hjá henni. Ég votta syni Önnu, tengdadótt- ur og sonum þeirra, innilega hlut- tekningu í sorg þeirra. Hvíli hún í friði. Kær kveðja, Jóhanna Eyþórsdóttir. Við Lækjartorg Til sölu eða leigu rúmlega 80 fm húsnæði á 2. hæð sem notað hefur verið fyrir veitingarekstur. Laust. Fasteignaþjónustan Skulagötu 30, sími 26600. V Til sölu-til leigu Til sölu/leigu er fasteignin Þingholtsstræti 5. Húsið er mjög traustbyggt steinhús, samtals 1504 fm. Kjallari: 3 hæðir og ris. Fáir steyptir innveggir því húsið er byggt á súlum. Góð lofthæð. Vörulyfta. Húsið sem hefur ver- ið nýtt sem verksmiðju- og skrifstofuhúsnæði, selst eða leigist í einu lagi eða minni einingum. Upplagt tækifæri fyrir byggingameistara að breyta í íbúðir eða gott skrifstofuhúsn. Ýmis eignaskipti koma til greina. Fasteignamarkaðurínn hf., Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700. w^——mmmm^mmmm——mm^ Gullkornið býður Lindu Wessman, konditor, velkomna f til starfa. Linda mun leiða fagfólkið okkar af sinni \ alkunnu snilld. Gullkomið sérhæfir sig í brúðartertum, kransa- kökum, skírnartertum, 4 | s afmælistertum, útskriftartertum, R, sérlöguðu konfekti, ^ tertuhlaðborðum o.fl. J Hafið samband, við leggj- MKmWKKM mmmmmmm* um metnað okkar í að gera veisluna glæsilega. Látið fagfólkið okkar sjá um ,0 fermingarveisluna! ■ilmandi gott! ■—— Bakarí og konditorí, Iðnbúð 2. Garðabæ Pöntunarsími og upplýsingar: 658033

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.