Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 35

Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIVIIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 35 ATVINNUA UGL YSINGA R Hjúkrunarfræðingar - kvöldvaktir Sjúkrahúsið Sólvangur í Hafnarfirði óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á 60% kvöldvaktir. Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Ingi mundardóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 50281. Þjónustudeild Vegna mikillar sölu á Novell-netstýrikerfun- um óskum við eftir að ráða starfsmann í tæknideild okkar. Um er að ræða vinnu við uppsetningar og þjónustu á tölvubúnaði, hugbúnaðarkerfum og Novell-netstýrikerfum. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða menntun á tölvusviði og starfsreynslu við Novell-netuppsetningar. Nánari upplýsingar veitir ívar Harðarson, deildarstjóri tæknideildar. Umsóknum skal skilað fyrir 30. mars nk. merktum: „Þjónustudeild". Tæknival SKEIFAN 17 Póstbólf 8294 128 REYKJAVÍK SÍMI: 91 - 68I66S FAX: 91-680664 Fjármálastjóri Við óskum eftir að ráða fjármálastjóra fyrir einn af viðskiptavinum okkar sem staðsettur er úti á landi. Við leitum að viðskiptafræðingi eða manni með sambærilega menntun eða mikla reynslu. Um er að ræða fyrirtæki í sjávarútvegi, sem rekur bæði veiðar og vinnslu. Umsóknum skal skilað á skrifstofu okkar fyrir 25. mars nk. Endurskoðun Sig. Stefánssonar hf., Ármúla 40, Pósthólf8736, 108 Reykjavík. Framkvæmdastjóri Óskum að ráða framkvæmdastjóra til starfa hjá Sláturfélaginu Barða á Þingeyri. Starfssvið framkvæmdastjóra: 1. Stefnumótun, skipulagning og dagleg framkvæmdastjórn. 2. Yfirumsjón slátrunar, framleiðslu og markaðssetningar. 3. Gerð rekstrar- og greiðsluáætlana, dag- leg fjármálastýring og færsla bókhalds. 4. Efla tengsl við framleiðendur og núver- andi viðskiptavini, afla nýrra og greina þarfir þeirra um vöruframboð og þjón- ustu. Reynsla af stjórnun úr samskonar/svipuðum rekstri ásamt þekkingu á landbúnaði æskileg. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til . Ráðningaþjónustu Hagvangs hf. merktar „Framkvæmdastjóri 068" fyrir 1. apríl nk. Hagvai ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir Hugbúnaðar- tæknimaður Stór þjónustustofnun í borginni óskar að ráða tæknimann til starfa í tæknideild, til að annast þróun, uppsetningu og rekstur upp- lýsingakerfa og ráðgjöf við notendur. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á Unix-umhverfi, netstýrikerfum og aigeng- ustu forritunarmálum. Farið verður með allar fyrirspurnir og um- sóknir sem algjört trúnaðarmál. Umsóknareyðublöð og nánari uppiýsingar fást á skrifstofu okkar til 30. mars nk. QiðntTónsson RÁÐGJÖF feRÁÐNINCARÞjÓNUSTA TJARNARGÖTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: í fullt starf: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488. Efrihlíð v/Stigahlíð, s. 813560. Hraunborg v/Hraunberg, s. 79770. í hálft starf: Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810. í hálft starf 10-15: Heiðarborg v/Selásbraut, s. 77350. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik- skólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Háskólinn á Akureyri Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við Háskólann á Akureyri: Staða prófessors í hagfræði Til greina kemur að ráða í stöðu dósents eða lektors í stað prófessors. Starfsvettvangur er aðallega við sjávarútvegsdeild. Staða prófessors í hjúkrunarfræði Staða dósents íhjúkrunarfræði Starfsvettvangur er aðallega við heilbrigðisdeild. Staða lektors íhjúkrunarfræði Aðalkennslugrein er hand- og lyflækninga- hjúkrun. Starfsvettvangur er aðallega við heilbrigðisdeild. Tvær hálfar stöður lektors íhjúkrunarfræði Aðalkennslugreinar eru barnahjúkrun og fæðingar- og kvenhjúkrun. Starfsvettvangur er aðallega við heilbrigðisdeild. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um námsferil sinn og störf, svo og vísindastörf sín, ritsmíðar og rannsóknir. Laun samkvæmt kjarasamningum Félags háskólakennara á Akureyri. Umsóknir um stöðurnar skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri fyrir 15. apríl nk. Upplýsingar um störfin gefa forstöðumenn viðkomandi deilda eða rektor í síma 96-30900. Háskólinn á Akureyri. Leikskólinn Fagrabrekka, Lambastaðabraut 5, Seltjarnarnesi. Fóstrur Óskum eftir tveimur fóstrum til starfa. Á Fögrubrekku er sveigjanleg vistun barna á aldrinum 2ja-6 ára. Fagrabrekka er einnar deildar leikskóli með alls 43 börnum og byggist starfsemin á öflugu hópastarfi. Vinsamlegast komið eða hringið til Dagrúnar Ársælsdóttur, leikskólastjóra, vs. 611375 og hs. 612197. amttBB *■■*« EIIilIRlKÍU leitKKieim I iii| 1 fclUIiIHSBI 1|E iqmiíiii1 BfliH pBtlgeeieiiii Frá Háskóla íslands Starf kynningarfulltrúa við Háskóla íslands er laust til umsóknar. Starfið felur m.a. í sér að sjá um kynningu á sjónarmiðum og mál- efnum Háskólans, ráðgjöf um kynningarmál innan Háskólans og vinnu við ýmis útgáfu- mál. Kynningarfulltrúi starfar jafnframt með kynningarnefnd Háskólans. Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamenntun og reynslu af fjölmiðla- og almenningstengslum, búi yfir sjálfstæði og frumkvæði í starfi ásamt samstarfs- og skipulagshæfileikum. Umsóknum skal skilað til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu við Suður- götu, 101 Reykjavík, fyrir 19. apríl 1994. Samvinnuháskólinn Umsjón fasteigna Laust er til umsóknar starf umsjónarfulltrúa við Samvinnuháskólann á Bifröst. í starfinu felst m.a. umsjón með rekstri fasteigna skól- ans og Nemendagarða Samvinnuháskólans, útleigu húsnæðis og samskipti við íeigjend- ur, yfirumsjón með viðhaldi og umsjón með húsbúnaði o.fl. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í rekstri fasteigna. Væntanlegir umsækjendur verða að vera tilbúnir til að búa á Bifröst eða mágrenni. Frekari upplýsingar gefur rektor Samvinnu- háskólans í síma 93-50000. Umsóknum þar sem koma fram upplýsingar um menntun og starfsreynslu ásamt með- mælum sendist rektor Samvinnuháskólans, Bifröst, 311 Borgarnes, fyrir 30. mars. Sölustarf Traust innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða sem fyrst hressan og duglegan starfs- kraft (helst stúlku/konu) til tímabundinna sölustarfa, hlutastarf kemur til greina. Starfið felst í að heimsækja fasta viðskipta- menn fyrirtækisins, sem aðallega eru snyrti- vöruverslanir og apótek. Launin geta verið góð, sem ákvarðast sem söluþóknun eftir árangri. Gerðar eru kröfur um að umsækjendur séu: • Skipulagðir. • Heiðarlegir. • Hafi bifreið til umráða. • Hafi ánægju af sölustörfum og mannlegum samskiptum. Umsóknir, með upplýsingum um fyrri störf og annað það sem máli getur skipt (mynd æskileg), skal senda til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 24. mars, merktar: „Sölustarf - 10258".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.