Morgunblaðið - 14.04.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMT.UDAGUR 14. APRIL 1994
,7
Héraðsdómur um sjónvarpsmyndina
Lífsbjörg í Norðurhöfum
Fékk miskabæt-
ur vegna breyt-
inga á myndinni
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Magnús Guðmundsson
kvikmyndagerðarmann til að greiða fyrrum samstarfskonu sinni,
Eddu Sverrisdóttur, um 1,3 milljónir króna auk vaxta frá 1992 í
ógoldin laun vegna vinnu við kvikmyndina Lífsbjörg í Norðurhöf-
um, auk þess sem honum er gert að greiða henni 100 þúsund
krónur í miskabætur vegna breytinga á kvikmyndinni sem dómur-
inn segir hana eiga höfundarrétt að, ásamt Magnúsi.
Haustið 1985 hófu þau Magnús
og Edda gerð sjónvarpskvikmynd-
ar um hvalveiðar við ísland og
unnu að henni með hléum allt þar
til hún var frumsýnd í ríkissjón-
varpinu í mars 1989. í dóminum
kemur fram að þau voru ekki sam-
mála um hvaða hlutverki Edda
hefði gegnt; hún kvaðst hafa verið
leikstjóri og klippt myndina, unnið
að auki að einhveiju ieyti við kvik-
myndatöku og hljóðupptöku og
sinnt verkefnum sem væru á verk-
Gættað
ökuhraða
og belta-
notkun
LÖGREGLAN á Suðvestur-
landi, þ.e. á Selfossi, í
Reykjavík, Hafnarfirði,
Kópavogi, Keflavík og
Grindavík, byrjar í dag
umferðarátak, þar sem at-
hyglinni verður sérstaklega
beint að ökuhraða og bíl-
beltanotkun ökumanna og
farþega.
A hveiju ári þarf lögreglan
á þessu svæði að kæra nærri
10 þúsund ökumenn fyrir að
aka of hratt. Flestir fá sektir,
en. svipta þarf um 300 öku-
menn ökuréttindum sínum í
framhaldi af slíkum umferðar-
lagabrotum. í frétt frá lögregl-
unni segir að markmiðið sé
þó ekki að reyna að sekta eða
svipta sem flesta leyfi, heldur
fyrst og fremst að reyna að
vekja athygli ökumanna á
nauðsyn þess að virða lög og
reglur svo draga megi úr lík-
um á slysum.
Ökumenn og farþegar, sem
ekki nota bílbelti eins og regl-
ur segja til um, verða beittir
sektum.
sviði framleiðanda. Hún sagði að
eftir að hafa árangurslaust reynt
að fá greiðslu og viðurkenningu á
vinnuframlagi sínu hafi hún
ákveðið að krefja um laun fyrir
vinnuna eins og hver annar starfs-
maður, en falla frá kröfum um
viðurkenningu á sameign eða hlut-
deild í hagnaði.
Magnús var Eddu ekki sammála
um að hún ætti höfundarrétt að
myndinni vegna vinnuframlags
síns, þar sem hún hafi verið tækni-
legur samstarfsmaður, ekki leik-
stjóri. Hann hafi einn verið fram-
leiðandi, handritshöfundur og fjár-
magnari og átt hugmyndin^ að
myndinni. Edda hafi átt að fá hlut-
deild í nettó-hagnaði, en ekki tíma-
kaup. Því hafi síðan verið breytt
þannig að hún hafi fengið greitt
sem verktaki fyrir unnar stundir.
Á höfundarrétt
Dómarinn, Jón Finnbjörnsson
dómarafulltrúi, segir í niðurstöð-
um dómsins að Eddu hafi tekist
að sanna að hún eigi höfundarrétt
að myndinni Lífsbjörg í Norður-
höfum. Hann tók hluta krafna
hennar um launagreiðslur til
greina og úrskurðaði að Magnús
skyldi greiða henni rúmar 1,3
milljónir með vöxtum frá stefnu-
birtingardegi 4. maí 1992. Þá voru
henni dæmdar 100 þúsund króna
miskabætur vegna breytinga á
myndinni fyrir endursýningu á síð-
asta ári. Óðrum kröfum, s.s. um
miskabætur vegna breytinga á
kreditlista myndarinnar og
greiðslu til að standa straum af
birtingu dóms var hafnað. Þá
komst dómarinn að þeirri niður-
stöðu, að kröfur um viðurkenningu
höfundarréttar, viðurkenningu á
að Magnús hafi brotið gegn þeim
rétti, viðurkenningu á rétti Eddu
til höfundarlauna og um skyldu
Magnúsar til upplýsinga um þirt-
ingar væri ódómhæfar og yrði að
vísa þeim frá dómi. Þá sagði hann
kröfu í framhaldsstefnu um að
Magnús yrði dæmdur vegna höf-
undarréttar ekki svo skýra að um
hana yrði fjallað efnislega.
Dómnefnd Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Jóhann Hjáhnarsson
tekur sæti í nefndinni
ÓLAFUR G. Einarsson, menntainálaráðherra, hefur skipað Jóhann
Hjálmarsson, rithöfund og blaðamann, í dómnefnd Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs í stað Dagnýjar Kristjánsdóttur, lekt-
ors, sem setið hefur í nefndinni undanfarin fjögur ár. Fyrir situr
í nefndinni af íslands hálfu Sigurður A. Magnússon, rithöfundur.
Fyrir fjórum árum voru ný tíma-
mörk sett á setu manna í nefnd-
inni og má nú sami einstaklingur
ekki sitja lengur en í átta ár.
Annar fulltrúanna situr aðeins í
fjögur ár. Sigurður hefur setið í
fjögur og mun sitja í henni næstu
fjögur ár.
Hlutverk íslensku nefndar-
mannanna er að tilnefna tvær ís-
lenskar bækur á ári hverju til verð-
lauhanriá ög síðan ákveður nefnfli
in í heild hver hlýtur bókmennta-
verðlaun ráðsins.
Tveir fulltrúar sitja í nefndinni
frá hverju Norðurlandanna fimm,
Finnlandi, íslandi, Svíþjóð, Dan-
mörku og Noregi. Einnig hafa
samar, Færeyingar og Grænlend-
ingar rétt á að útnefna eina bók
hver árlega og tekur þá einn full-
trúi þeirra sæti í nefndinni og er
hann útnefndur af rithöfundasam-
tökunv viðkomandi. lands^jjj
Þegar
gæði og gott verð
fara saman
veistu
að þar er
Nissan Sunny
á ferð
SUNNY
með 16 ventla vél
Verð frá krónum:
1.139.000,-